Orðlaus - 01.04.2006, Blaðsíða 33

Orðlaus - 01.04.2006, Blaðsíða 33
"SHAKEN NOT STIRRED" Það þekkja eflaust allir drykkinn Dry Martini en hann var uppáhalds drykkur lan Flemmings. Ekki nóg með það heldur náði lan að gera Dry Martini að einum frægasta drykk í heimi með því að láta sögupersónu sína, töffarann James Bond, drekka ekkert annað en "hristan en ekki hrærðan" Martini. Það má þó til gamans geta að læknar sem rann- sökuðu Martini voru sammála um að hristur Martini hefði jákvæð áhrif á hjarta- og æða- kerfið. Hristur Martini er því líklegri en hrærður til þess að draga úr líkum á þvi að neytandinn deyi úr hjarta- eða æðasjúkdómum en auðvit- að aðeins ef drukkið er í hófi. Rannsakendur komust þannig að því að James Bond hafi verið hófdrykkjumaður því annars hefði hann ekki verið jafn heilsuhraustur og hann var. Bond var þó ekki sá eini sem féll fyrir drykkn- um og því hafa menn oft á tíðum gengið svo langt að kalla Dry Martini frægasta kokt- eil í heimi. Hér er nokkrir frægir Dry Martini drykkjumenn. HWinston Churchill Fyrrum forsætisráðherra BretlandsogNóbelsverð- launahafi (1874-1965). HFranklin Roosevelt Fyrrum forseti Bandaríkj- anna (1882-1945). Humphrey Bogart Bandarískur leikari (1899-1957). Dean Martin Söngvari og leikari af ítölskum og bandarísk- um ættum (1917-1995). Ernest Hemingway Rithöfundur (1899-1961). NYTT TREND FYRIR SUMARIÐ Ef að þið eruð orðnar 20 ára og langar til að fá ykkur í glas um helgar erum við með drykkinn fyrir ykkur. Martini Bi- anco og appelsínudjús með klökum er nýjasti tískudrykk- urinn. Þessi blanda hefur verið að koma sterk inn upp á síðkastið og er drykkurinn orðin nokkuð vinsæll í partýum og á skemmtistöðum víðsvegar um heiminn. Segjið bless við Mojito, Cosmopolitan og aðra kokteila sem eru mun flóknari og tekur óratíma að blanda. Kaupið frekar ap- pelsínudjús, Martini Bianco og klaka fyrir næsta partý og drykkurinn er tilbúinn. Það sem gerir þennan drykk einnig betri en aðra er að Mart- ini Bianco er ekki sterkt vín heldur vermút og inniheldur lægri prósentu af alkóhóli. Hann er því mun mildari drykk- ur en gin, vodka, romm og önnur sterk vín og þar af leið- andi einnig ódýrari. Það er líka mun dömulegra að vera létt með mildan drykk í hendinni allt kvöldið heldur en að vera hauslaus eftir fjóra drykki laust eftir miðnætti. MARTINI '■/f* m GIRL POWER SAMFÉLAG Á NETINU! Martini hefur einbeitt sér að heimasíðu fyrir ungar konur sem heitir Martini Lounge. Á síðunni má finna hinar ýmsu greinar meðal annars um heilsu, kynlíf, pólitík, starfsframa, tísku og upp- eldi svo eitthvað sé nefnt. Á síðunni er einnig öflug skilaboða- tafla þar sem konur víðsvegar að úr heiminum eiga samskipti sín á milli. Aðstandendur síðunnar lýsa henni sem samfélagi á Netinu fyrir konur sem koma úr ólíkum áttum og hafa ástríðu fyrir því að breyta hlutunum og vera sjálfstæðar. Markmið þeirra er að skapa heim fyrir konur sem býður útlitsdýrkun byrginn og endurskil- greinir hið hefðbundna hlutverk konunnar. Jafnframt leggja þeir sterka áherslu á jafnrétti kynjanna og að konur taki fullan þátt i samfélaginu hvort sem um ræðir á sviði lista eða stjórnmála. Þannig vilja þeir að stuðla að sjálfstæði og velferð kvenna með áherslu á vinskap og fræðslu á milli þeirra þannig að takmarkinu verði náð. Síðan er ný af nálinni þannig að það er um að gera að skrá sig sem fyrst til að vera með í að breyta heiminum. Það ættu líka allar stelpur að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á síðunni en slóðin erwww.martini-lounge.com.

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.