Orðlaus - 01.04.2006, Page 8
MEÐ ANDSPYRNUNA UM HALSINN
Sfðustu misseri hafa arabískir kafía klútar orðið æ algengari meðal tískugæðinga
og listafólks í New York, Tókíó og öðrum stórborgum. Reykjavík hefur ekki orð-
ið útundan og Jón Sæmundur hjá Dead hefur mikið notast við reitað svart-hvítt
mynstur klútsins í hönnun sinni. Kafían er hins vegar ekki nýtt fyrirbrigði í ís-
lensku höfuðborginni. Líkt og annars staðar á Vesturlöndum tóku róttæklingar
hér og aðrir sem sýna vildu samstöðu með frelsisbaráttu Palestínumanna að nota
klútinn á sjöunda áratugnum. í dag virðist notkunin hins vegar vera útbreiddari
og farin að snúast um allt annað en pólitík.
Nina Lalli, blaðamaður Village Vo-
ice í New York, segir í grein sinni
'Checkered Past' að þar í borg
megi skipta kafíu notendum í
þrjá flokka; þá sem styðja málstað
Palestínumanna, áhugafólk og
tónlistarmenn á sviði þjóðlagatón-
listar og loks "hippsterana" sem
hafa verið að mæta með klútinn
á opnanir listasýninga og klúbba.
Klúturinn hafi verið í tísku með-
al bóhem stúlkna borgarinnar
á níunda áratugnum og hafi þá
fengist á hverju götuhorni borgar-
innar. I dag er hins vegar erfiðara
að næla sér í kafíur og bendir hún
áhugasömum lesendum á að þær
fáist í arabískum og íslömskum
bókaverslunum í Brooklyn.
Hérálandi hefurfélagiðísland-Pal-
estína í nokkur ár selt kafíur beint
frá Vesturbakka Palestínu við ýmis
tækifæri. Síðustu misseri hafa þær
einnig fengist í Spútnik og öðrum
tískuvöruverslunum, en ósagt skal
látið um uppruna þeirra.
öldnum í Palestínu. Sjálfur hef
ég tvisvar ferðast til herteknu
svæðanna og á markaði í Nablus
komst ég að því að það er ekki
sama hverskonar kafíu maður hef-
ur um hálsinn. Með lit kafíunnar
ertu nefnilega að gefa til kynna
hvaða stjórnmálaskoðanir þú hef-
ur, þ.e.a.s. hvaða andspyrnuhreyf-
ingu þú styður.
Við upphaf fyrri Intifada uppreisn
Palestínumannagegnhernámilsra-
ela árið 1987 tók fólk á herteknu
svæðunum upp á því að bera kaf-
íur í takt við þær hreyfingar sem
það studdi. Svart/hvít kafía sem er
algengust í Palestínu og á vestur-
löndum gefur til kynna stuðning
við Fateh, eina stærstu hreyfingu
Palestínumanna og leiðandi afl í
Frelsissamtökum Palestínumanna
(PLO). Rauð/hvít kafía gefur til
kynna stuðning við hina vinstri
sinnuðu Alþýðufylkingu til frelsun-
ar Palestínu (PFLP) og græn/hvít
kafía er notuð af stuðningsmönn-
um Hamas hreyfingarinnar.
Rautt fyrir PFLP,
Grænt fyrir Hamas þó þessi skipting fólks í pólitíska
Kafían er notuð af ungum sem hópa eftir lit kafíunnar sé langt í
frá algild þá fékk ég nokkrar spurn-
ingar um það hvort ég styddi PFLP
með mína rauðu kafíu á ferðum
mínum um Vesturbakkann. Lit-
brigði kafíunnar segir reyndar
ýmislegt annað. Á meðan þær
svart-hvítu eru nánast eingöngu
notaðar í Palestínu eru rauðar
notaðar víðsvegar, meðal annars í
Jórdaníu og írak.
Andspyrnutákn
Kafían hefur verið þjóðernis- og
andspyrnutákn meðal Palestínu-
manna í yfir sjötíu ár. Klúturinn
hefur í aldaraðir verið hluti af hefð-
bundnum klæðnaði íbúa landsins
helga, en öðlaðist nýja merkingu
í Uppreisninni miklugegn nýlendu-
stjórn Breta árin 1936-1939. Þá
sýndu palestínskir íbúar landsins
samstöðu með kröfum uppreisnar-
aflanna um sjálfstæði með því að
bera kafíu um háls eða höfuð.
Bretar reyndu að banna notkun
kafíunnar á vissum stöðum í land-
inu og breskur herforingi lagði til
að allir þeir sem bæru kafíu skyldu
handteknir. Yfirboðarar hans voru
á öðru máli, enda ekki auðvelt að
handtaka þær hundruði þúsunda
sem báru klútinn í borgum, bæj-
um og sveitum um alla Palestínu.
Eftir að Bretar hurfu á brott frá Pal-
estínu og landið lenti undir yfirráð-
um fsraela hefur kafían orðið tákn
um andspyrnuna gegn ísraelsku
hernámi.
Aðalsmerki Arafats
Yasser Arafat á örugglega stærst-
an hlut í vinsældum kafíunnar og
útbreiðslu hennar um heim allan.
Klúturinn var vörumerki kappans,
sem kom aldrei fram opinberlega
án þess að hafa kafíu-klút sveipað-
an um höfuðið. Til að auka enn á
FF
Rauð/hvít kafía gef-
ur til kynna stuðn-
ing við hina vinstri
sinnuðu Alþýðufylk-
ingu til frelsunar
Palestínu (PFLP) og
græn/hvít kafía er
notuð af stuðnings-
mönnum Hamas
hreyfingarinnar.
ff
táknrænt hlutverk höfuðfatsins
braut palestínski leiðtoginn kaf-
íuna með þeim hætti að framhlið
klútsins myndaði útlínur Palest-
ínu, þ.e.a.s. landamæri landsins á
nýlendutíma Breta fyrir skiptingu
þess og ísraelskt hernám.
Palestínska andspyrnukonan Leila
Khaled notaði kafíuna líka með
eftirminnilegum hætti þegar hún
og félagar hennar Alþýðufylking-
unni til frelsunar Palestínu (PFLP)
náðu athygli heimspressunar við
rán á flugvél TWA flugfélagsins
árið 1969. Eftir að vélinni hafði
verið flogið yfir Haifa, heimaborg
Leilu sem hún og fjölskylda henn-
ar höfðu verið hrakin frá við stofn-
un ísraels 1948, var henni flogið til
Damaskus þar sem öllum farþeg-
unum var sleppt og vélin síðan
sprengd í loft upp.
Andlit hinnar fögru Leilu sveipað
kafíu birtist á forsíðum dagblaða
um allan heim. Á einni nóttu varð
hún að átrúnaðargoði þúsunda
róttæklinga um allan heim og
nýju andliti palestínsku andspyrn-
unnar. Leila braut hefðbundnar
reglur um notkun kafíunnar með
því að sveipa henni um höfuð og
axlir með sama hætti og arabískar
konur nota hefðbundnar slæður.
Til þessa hafði ekki verið algengt
að palestínskar konur notuðu kaf-
íu sem höfuðbúnað.
Hvort sem þú berð kafíuna til að
sýna samtöðu palestínsku þjóð-
arinnar eða einfaldlega af því
að þér finnst það flott þá er það
staðreynd að með svart-hvíta,
rauð-hvíta eða græn-hvíta kafíu
um hálsinn þá ertu með eitt helsta
andspyrnutákn Palestínumanna
um hálsinn.
Eldar Ástþórsson
• •
• •
• •
• •
• • • •
• • • •