Orðlaus - 01.04.2006, Side 14
ROKK MED BROTIÐ HORN
Nokkrar bækur um tónlistartengd málefni
Björn Þór Björnsson
balladofbob.blogspot.com
Hammer of The Gods
Stephen Davis, 1985
Þetta er bókin sem setti reglurnar fyrir rokkstjörnulífernið.
Led Zeppelin er ein mesta saurlífernissveit sem uppi hefur
verið og þarna eru allir skandalarnir saman komnir. Fiskum
er troðið í píkur, skitið er í skó, djöfullinn er lofsunginn og
fólk deyr. Og auðvitað eitthvað um kynlíf, eiturlyf og blús-
rokk. Þessi bók var skrifuð i skiljanlegri óþökk Led Zeppelin
og þeir hafa löngum neitað að margir af þessum atburðum
hafi gerst. Hvort allar sögurnar séu heilagur sannleikurinn
skiptir ekki höfðuðmáli. Goðsagnakennd hljómsveit eins
og Led Zeppelin þarf goðsagnakennda ævisögu. Besta
rokkbók allra tíma.
e«slcál»! olilta'ii Mtlil Milet
HBLL BEHX
FQÍÍ ÚeATHER
ScbHuntct
Hell Bent for Leather
Seb Hunter, 2004
Seb Hunter var gítarleikarinn í bresku hairmetal hljóm-
sveitinni Cat Ballou. En þú hefur auðvitað aldrei heyrt
minnst á Cat Ballou eða Seb Hunter. Þetta er átakanleg
en um leið sprenghlægileg ævisaga stráks sem meikaði
það... næstum því. Eftir að hafa eytt æskunni í að full-
komna skíthælalúkkið yfirgaf Seb vini, fjölskyldu og
öryggi í smábænum Winchester til að elta drauminn
til London. Þar tók við vesældarlíf og sífellt hark við að
koma hljómsveit af stað. En þegar hjólin fóru loksins að
| snúast hjá Seb gerðist svolítið hræðilegt og draumurinn
var úti (vísbending: það kom frá Seattle)
On the Road
Jack Kerouac, 1957
Hröð, kúl og ófyrirsjáanleg. Meistaverk beat-skáldsins Jack
Kerouac er saga um ferðalag tveggja manna eitthvað út í busk-
ann í Bandaríkjum sjötta áratugarins. Sal og Dean eru í leit
að engu sérstöku, þeir vilja bara ná sem mestu út úr lífinu og
drífa sig að sjá það sem landið hefur upp á að bjóða, hvað
sem það er, áður en það hverfur. Það er í rauninni enginn
söguþráður í bókinni, bara endalaust ferðalag frá íbúðar-
holum í New York til hóruhúsa í Tijuana. Kerouac sagði að
bókina ætti að lesa í einni setu, helst á einhverju örvandi,
og textinn ætti að hljóma eins og trylltur jazz í höfðinu á
lesandanum. Hipp stöff.
Fargo Rock City
Chuck Klosterman, 2002
Hann Chuck hefur aldrei verið með sítt hár. Það hefur samt
ekki stöðvað hann í að hafa eytt mestallri sinni ævi sem
einlægur og í raun fanatískur aðdáandi metaltónlistar. í
þessari stórskemmtilegu bók rekur hann sögu þessararfyr-
irlitnu tónlistarstefnu frá árdögum glamtímans til endalok-
anna, sem komu auðvitað þegar Kurt Cobain mætti á sjón-
arsviðið. Chuck er ótæmandi viskubrunnur um hármetalinn
og fer með okkur í saumana á öllum mögulegum hliðum
umræðuefnisins eins og klæðaburðinn, powerballöðurnar
og myndböndin. Kaflinn um "Gervitónleikamyndböndin"
einn og sér gerir bókina þess virði að lesa.
The Dirt
Tommy Lee, Mick Mars, Vince Neil, Nikki Sixx, 2002
...Og sú næst besta. Saga Mötley Crue, sögð af vitleysingun-
um sjálfum. Þetta er skruddan á náttborðinu hans Johnny í
Mínus. Zeppelin voru reyndar alveg jafn dópaðir og fullir,
en þeir höfðu þó klassa. Það er engan klassa að finna hér.
Mestu soradólgar sem Los Angeles pungaði út á Sunset
Strip urðu að vinsælustu rokksveit heimsins með ógeð-
felldum afleiðingum. Óheyrileg neysla á lyfjum og raðir
af hjólhýsagarðs-beyglum með sílikon. Fullkomin lesning
fyrir þá sem dreymir um að sitja með augnskugga og
poka af heróíni í fataskáp fimm daga í röð, eftir að hafa
drepið besta vin sinn í érekstri.
WSmSmSmMife
Fear and Loathing in Las Vegas
Hunter S. Thompson, 1971
"Bókin var betri". - Þetta er eitthvað sem maður heyrir oftast
þegar kvikmyndir eru gerðar eftir bókum. Maður skyldi ætla að
Terry Gilliam - leikstjóri myndarinnar - og töfrar tæknibrelln-
anna hefðu getað fært okkur bjagaða veraldarsýn Hunter S.
Thompson á hvita tjaldið. En nei. Engin kvikmynd gæti komið
geðveiki þessarar bókar nægilega vel til skila. Thompson og lög-
fræðingur hans fara til Las Vegas í þeim tílgangi að skrifa grein
um kappakstur í eyðimörkinni. Ferðalagið breytist þó fljótt í
villimannslegt ferðalag inn í niðamyrkur eiturlyfjasturlunar.
Myndskreytingar Ralph Steadman gefa bókinni enn súrreal-
ískari blæ. Thompson batt enda á lif sitt fyrir skemmstu þann-
ig að það liggur vel við að kynnast þessari bók upp á nýtt.
Lords of Chaos
Michael Moynihan, Didrik Soderlind, 1998
Kirkjuíkveikjur, geðbilun, djöfladýrkun, saur, blóð
og tilgangslaus morð. Þessi spennandi bók er túr
með leiðsögn um myrkustu undirheima black met-
al senunnar í Noregi. Menn eins og Euronymous,
Mayhem og Varg Vikernes voru áhrifamestu menn
þessarar senu auk þess að lifa lífi sínu í fullkomn-
um glundroða. Tilvera þeirra var og er tilefnislaust
ofbeldi, hatur á 'eðlilegu' samfélagi og dýrkun á
krafmestu tónlist sem fyrirfinnst í flórunni. Ég er ekki mikill að-
dáandi svartmetals, en þessi bók er grípandi frá upphafi og gefur skýra sýn á þennan
ótrúlega heim.
Psychotic Reactions and Carburetor Dung
Lester Bangs, 1987
Hvort sem það er NME, Vice eða Orðlaus þá eiga allir sem
skrifa um tónlist í þau blöð eitt sameiginlegt: Þau vilja öll
vera Lester Bangs. Þetta er maðurinn sem bjó til nútíma rokk-
bókmenntir eins og við þekkjum þær í dag. Hvort sem það
voru hugvekjur sem náðu yfir tugi blaðsíðna eða örstuttir
plötudómar þá var flestallt sem Lester Bangs skrifaði eitur-
snjallt og hnífbeitt. Hann var einstök og einlæg rödd í rokk-
flórunni og hans er sárt saknað í dag. í þessari bók hefur
verið safnað saman hans bestu skrifum og er hún
lestur fyrir alla sem hafa áhuga á tónlist. Fyrir áhugasama
bendi ég einnig á safnið 'Main Lines, Blood Feasts and Bad
Taste'.