Orðlaus - 01.04.2006, Side 16
►
SKATAR
í þetta sinn tókum við Skáta á tal eða reyndar bara einn meðlim Skáta, hann
Benedikt Reynisson gítarleikara bandsins, kannski betur þekktur sem útvarps-
maðurinn Benni Karate en hann er með þáttinn Karate á X-fm alla sunnudaga
þar sem hann fræðir áhugasama um jaðartónlist.
Bjarni pródúsent og Óli í sumarbústaðnum.
Hvað voru þið lengi að semja efnið á plöt-
una?
Það er nú það. Fyrsta lagið varð til vorið 2004
svo það gera u.þ.b. tvö ár.
En að taka upp?
Við tókum grunnana upp á rúmum átta
klukkutímum. En við fórum upp í sumarbú-
staðinn hans Óla í miðjum febrúar með allar
græjurnar okkar, sextán rása segulbands-
tæki, mixer, míkrófóna og fleira sem við leigð-
um eða fengum lánaða hjá velunnurum og
vinum.
Af hverju sumarbústaðurinn?
Við höfðum velt fyrir okkur nokkrum stöðum
til þess að taka upp á og Óli gítarleikari stakk
upp á því að fara upp í bústaðinn. Það skap-
aði bæði góða stemningu og sparaði okkur
aurinn.
Hver er tónlistarsmekkur hljómsveitarinnar?
Það er nú það, kannski engin sérstök stefna í
gangi. Markús söngvari hlustar bara yfirleitt
ekki mikið á tónlist. Hann fílar nú samt Will
Oldham, Karate, Woody Guthrie og Violent
Femmes. Ég held ég viti um eina plötu sem
hann hefur keypt á síðustu fimm árum. Ég
hef keypt mikið af plötum í gegnum tíðina,
er alltaf að grúska eitthvað í hinu og þessu.
Ólinn kaupir líka mikið af plötum og mest af
stoner-, doom- og underground metal og þá
aðallega frá Bandaríkjunum. Bjössi er nánast
alæta en hann fílar samt ekkert væl. Pétur
fílar fíl- og gíraffaharmóníur.
En þú?
Ég fíla bara góða tónlist hehe, en upp á síð-
kastið hef ég verið að hlusta mikið á nýju Mud-
honey plötuna "Under a billion Suns" sem var
að koma út. Svo hef ég verið að hlusta á Dj
Musician, nýju Ghostigital plötuna og Infad-
els sem er skemmtilegt dansrokkband og mik-
ið fleira.
Hvernig myndir þú lýsa tónlist Skáta?
Svolítið erfitt að lýsa henni, þetta er asnalegt
gítarrokk. Ekki það að við séum svo einstakir.
Okkur hefur verið líkt við mjög ólíkar sveitir
og það segir stundum meira um þá sem eru
að skrifa um okkur en tónlistina sjálfa. Einn
blaðamaður líkti okkur við Pixies, King Crim-
son og Pavement og annar líkti okkur við
blöndu af Frank Zappa, Þeyr og Þursaflokkn-
um. Besta nafnið á tónlistinni okkar er rugl-
rokk.
Hvenær verður túrað og hvert verður farið?
Við erum að íhuga það að fara til Þýskalands,
Belgíu og Frakklands í maí. Svo spilum við
hérna heima i apríl. Þá mun hljómsveitin l'm
being good frá Englandi mæta til landsins og
spila með okkur. Við spiluðum með þeim í
Bretlandi í fyrra. Svo er bara málið að herja á
suðurlandið með vinum okkar í Reykjavíkl.
Nafn á plötu: Eitt sinn eitthvað.
ávallt eitthvað...
Hverjir: Benedikt Reynisson, að-
allega gítar, Markús Bjarnason,
söngvari, hljómborðsleikari og
gólfpáka, Ólaf ur Steinsson gítarleik-
ari en spilar á bassa í einu lagi og
slagverk, Pétur Már Guðmundsson,
trommur og Björn Kolbeinsson,
bassi, gítar og söngur.
Útgáfudagur: í sumar.
Nöfn á lögum: Nokkur eru komin,
Skálholt, The Isle of Matthew, Secr-
et Thunder Weapons, og Ballaðan.
Fjöldi laga: 9 lög
Upptökustjóri: Bjarni Þórisson
Útgefandi: Grandmothers Records
Áður útgefið efni: Heimsfriður í
Chile, Hverju má breyta bæta við
og laga.
JL
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA
Birta Björnsdóttir
Jt ÉL:
Júniform var stofnað árið 2002 af þeim Birtu Björnsdóttur, fatahönnuði og förðunarmeistara og
Andreu Magnúsdóttur. í dag er Júníform á Hverfisgötu og hefuraidrei gengið betur. En einhverjar
breytingar hafa átt sér stað og spurðum við Birtu Björnsdóttur út í þær.
Hvað er að frétta?
Ég er að vinna að nýrri línu eins og er, en nú er ég ein því Andr-
ea hætti í nóvember í fyrra, hún ætlar að fara að slaka á þar
sem hún var að eignast sitt annað barn fyrir nokkrum vikum.
Ég er þá ein hérna með rosalega góðri saumakonu henni
Magndísu Kolbeinsdóttur sem hjálpar mér.
Hvenær má búast við því að sjá nýju línuna?
Ég vinn þetta svolítið öðruvísi en aðrir. Ég
mæti bara í vinnuna á morgnanna og veit í
rauninni ekki hvað ég fer að gera fyrr en ég
byrja bara. Ég breyti alltaf með nokkurra mán-
aða fresti um línu. En það er töluvert af nýju
línunni komin upp.
Hvað einkennir þessa linu?
Hún er mjög rómantísk með hvítum blúndum
en samt frekar rokkuð. Þetta eru eiginlega
áhrif frá bæði Viktoríu tímabilinu og líka svo-
litið út í sixtees feeling. Ég er ekki með mik-
ið af skærum litum núna. Þetta er aðallega
hvítt, svart og húðlitað. Núna nota ég einnig
mikið leður í fötin, og sem beltislinda á kjóla
svo skreyti ég kannski leðrið með kósum og
ýmislegu glingri
Hvernig hefur gengið?
Þetta er búið að ganga alveg vonum framar. Ég
bjóst ekki við að geta unnið við þetta og getað lifað á þessu
eins og ég geri í dag sem er bara algjör draumur, viðskiptin
aukast með hverju árinu.
Ertu að selja Júníform í öðrum búðum ?
ég er með þetta allt saman hér á Hverfisgötunni.
Reyndar er ég með í Gyllta Kettinum svona basic flík-
ur eins og Alladin joggingbuxur, leggins og stutt
pils. En dúllerí flíkurnar eru hér á Hverfisgöt-
unni. Við vorum að selja í Centrum á sínum tíma
sem var alveg frábær auglýsing fyrir okkur. Ég
tefnilega með tvær línur það er Júniform lína
er þá I mesta lagi tíu eins flíkur og svo er ég
inik sem er þá bara eitt af hverju. Ég er að-
að vinnaí Júnik.
Hvað með erlendan markað?
Ég er alveg búin að vera spá I öllu. En eins og er
þá er strákurinn minn svo lítill að ég er núna svo-
lítið í minni kantinum. En það er alveg ýmislegt
á dagskrá.
Á döfinni
Ég er reyndar í Laugavegspælingum. Mig langar
til þess að vera með breiðari línu eins og jakka
og buxur og aðra hluti en það kemur allt í Ijós.