Orðlaus - 01.04.2006, Blaðsíða 24
Ótrúlega flottir skartgripir sem eru
afurð samstarfs systkinanna Nico og
Catalinu Estrada. Catalina er mynd-
skreytari sem gerir ótrúlega falleg
og draumkennd verk en þau hafa
birst á forsíðum ýmissa tímarita hér
og þar um heiminn. Samstarf hennar
við Nico skilaði þeim mjög kvenleg-
um, litríkum og pínulítið barnalegum
skartgripum en kallast línan Katika í
höfðuðið á einum af þeim karakter-
um sem Catalina hefur skapað. Nú er
bara að vona að vörurnar komi til (s-
lands svo að hægt sé að nálgast þær
hér. En annars getið þið kíkt inn á
www.katika.net og skoðað þetta þar
og ef þið eruð á leiðinni til Barcelona
þá selja þessar búðir skartgripina:
Antherea
Regomir 4 Bis
08002 Barcelona
og
Alea
Argenteria
08003 Barcelona
Ef þið eruð al-
veg rosalega
mikið fyrir
flotta striga-
skó og viljið
helst ganga í
einhverju sem
enginn annar á, þá ættuð þið að kíkja
á þessa síðu. Soldout er þúð á netnu
sem sérhæfir sig í strigaskóm sem hafa
komið í mjög takmörkuðu upplagi á
markaðinn en þar er að finna flotta
skó frá meðal annars Nike, Puma og
Adidas og fleiri merkjum. Skórnir eru
á góðu verði verðinu og er hvert par
mjög sérstakt.
http://www.wesoldout.com/
Stuttermabolir
með lógóum ým-
issa hljómsveita
sem virðast vera
notaðir er nú
hægt að fá á
Netinu hjá fyrir-
tækinu Rock'n
dothing. Þetta
fyrírtæki sérhæf-
ir sig í hönnun stuttermabola sem líta
út fyrir að vera gamlir og notaðir. Efn-
ið í bolunum er frekar þunnt þannig
að það er eins og þeir séu margnotað-
ir en rokkaralúkkið fæst með því að
þvo bolina upp úr ákveðnum efnum.
Nú fara búðirnar að fyllast af vörum
fyrir sumarið. Það vilja allir vera sum-
arlegir og sætir og hvað er þá betra
en að byrja á því að kaupa sér létta
skó eftir að hafa verið í bomsum í
allan vetur. í skór.is var til dæmis að
koma ný sending frá Rhino sem er
merki sem sérhæfir sig í skóm af öll-
um stærðum og gerðum. Red Skórnir
frá Rhino, Marc Ecko Footwear eru
hannaðir sem hjólabrettaskór þannig
að það er mjög sterkt og gott efni í
þeim.
ákveðinni stellingu með eitthvað blað í höndunum og Scarlett Johans-
son stóð einhvern veginn upp við vegg, þannig að ég fór að taka þessar
stellingar og reyna að semja út frá þeim.
Jette: Saga tískunnar er endalaus, rétt eins og hvernig á að haga sér,
það breytist alveg eins mikið og tískan gerir. Nýja lúkkið stendur fyrir
aðra konu en áður, við höldum að þetta hafi breyst siðan corsettudæm-
ið var en svo er ekki, við höfum núna megrunarpillur, við viljum vera
grennri en náttúrulegt er, við troðum okkur í skinny jeans, við höfum
svo margt annað sem í raun endurspeglar corsettuna. Tískan hefur aldr-
ei verið þannig að það geri konum auðvelt fyrir heldur hefur hún alltaf
verið svipan á baki kvenna.
En höfum við ekki skapað þessa ímynd sjálfar?
Halla: Ég er ekkert svo viss um að við höfum skapað þessa ímynd sjálfar.
En ef svo er út frá hverju erum við þá að skapa þessa ímynd.
Jette: f gamla daga þá var það mynd af hinni fullkomnu konu sem karl-
menn sköpuðu en svo breyttist það með hippamenningunni og fem-
inisma. Hin fullkomna konuímynd í dag er eins og Sienna Miller, það
kemur alltaf einhver svona á hverju ári. Kemur þetta ekki meira frá kon-
um núna.
Halla: Já, en er það ekki samt innan þessa ramma, við erum alltaf að
fylgja einhverri ákveðinni ímynd þó að við breytum henni, við komust
ekki út fyrir þetta.
Jette: Eins og þegar þröngar gallabuxur koma i tísku þá reyna allir að
troða sér í þær en það eru bara svona 20% sem eru flottar í þessu, samt
vilja 80% vera í þröngum gallabuxum. Konur horfa samt á sig í spegli
og sjá að þær eru ekkert flottar í þessu en samt þeirra tískufyrirmynd
er sterkari en sú mynd sem þær sjá af sjálfri sér.
Halla: Já, konur reyna að fitta inn í eitthvað ákveðið snið.
Jette: Konur þurfa að læra að horfa á spegilmynd sína og finna sinn
ramma og þá byrja að klæða sig og finna öðruvísi fyrirmynd í kringum
sig heldur en tískufyrirmyndina. Bara öðruvísi rammi í staðinn fyrir að
miða allt út frá fyrirsætum og tísku. Finna einhverja aðra týpu sem er í
tísku hverju sinni sem passar vexti viðkomandi miklu betur.
Á verkið að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri?
Halla: Tilgangurinn er eiginlega meira að vekja upp spurningar, ég get
komið með mitt sjónarmið, hvernig upplifi ég sjálfa mig sem kona í sam-
félaginu í dag og ef ég næ að hafa einhver áhrif á áhorfandann þá er
mínum markmiðum náð.
DANSIeikhúsið hefur staðið fyrir árlegum sýningum í
Borgarleikhúsinu frá árinu 2002. Tilvist þess hefur sannað
gildi sitt og má segja að með tilkomu þess hafi sprottið
upp öflugt og framsækið atvinnuleikhús danslistamanna
sem hefur kryddað íslenska dansleikhúsmenningu svo
um munar á undanförnum árum.
Þann 9. apríl næstkomandi verða frumsýnd tvö ný verk
á vegum DANSIeikhússins á Nýja sviði Borgarleikhúss-
ins. Listdans, leiklist, fumsamin tónlist og mannleg sam-
skipti verða útgangspunktur sýningarinnar og ætti þetta
því að vera spennandi að sjá. Seinni sýningarnar verða
11./I9. og 23. apríl.
Orðlaus tók tali Höllu Ólafsdóttur dansara og danshöf-
und annars verksins og Jette Jonkers fatahönnuð og eig-
anda Trilogiu sem hannar búningana fyrir sýninguna.
Hvernig unnuð þið verkið?
Halla: Mig og Nadju Hjorton sem er sænskur dansari og danshöfundur
langaði til þess að semja verk saman, en þar sem við búum í sitthvoru
landinu þá ákváðum við að verkið yrði þannig uppbyggt að fyrsti part-
urinn yrði unninn í gegnum internetið. Annar hlutinn var svo þegar
við hittumst og settum saman í sýningu allar hugmyndirnar sem við
höfðum unnið með í gegnum Netið. Þannig að í raun og veru var pæ-
lingin sú hvort hægt væri að skrifa niður dans og svo ætluðum við að
vinna með ákveðið concept.
Halla: I þriðja hlutanum tökum við svo inn tónskáld, Hildi Guðnadóttur
sellóleikara en hún mun vera með okkur á sviðinu, þannig tökum við
inn þriðja elementið, frumsamda tónlist og sjáum hvernig verkið breyt-
ist við það. Þetta verður svo sýnt aftur í október á Norrænum Músik-
dögum.
En hvað með búningana?
Jette: Hugmyndin af búningunum er kjóllinn sem hægt er að opna og
loka eins og lífstykki (corset) en fötin túlka líka hugmyndina á bakvið
verkið. Annað hvort hefta fötin hreyfingu dansaranna, eins og þegar
konur klæddust lífstykkjum, eða fötin verða frjálslegri.
Jette: Líka ef þessir búningar virka þá langar mig endilega að gera fleiri
og selja þá í búðinni. Þetta er ekki vinna sem er út í loftið, ég get notað
þetta seinna fyrir mig í búðinni.
Þannig að þetta er ekki bara búningahönnun?
Jette: Aldrei. Þetta er bara nýr inngangur á fataprocessin minn. Ég
hugsa öðruvísi um þetta. Þú hugsar ekki svo mikið um hreyfingu þeg-
ar þú hannar föt en það er það sem þú hugsar um þegar þú semur
dansinn. Hvernig er best að hreyfa sig í fötunum, er efnið þægilegt og
svoleiðis.
Er verkið unnið út frá ímynd kvenna?
Halla: Grunnhugmynd verksins er að það líður ekki sá dagur sem þú
sendir ekki tölvupóst eða tekur ekki upp símann eins og fyrsti hlutinn
er uppbyggður. Þá vorum við komnar með út frá hverju við ætluðum
að vinna. Svo var næsta skref að búa til dansinn. Þá fór ég að hugsa
um uppskriftir, af því að i raun og veru er verkefnið eins og uppskrift
af hinni fullkomnu konu eins og glanstímaritin setja þetta upp. Þannig
að þá fór ég fór inn í stúdío með fullt af myndum af fögrum konum
úr Vogue og þannig tímaritum. Til dæmis var mynd af J-Lo sem stóð í
UPPSKRIFT
AÐ HINNI
FULLKOMNU
KONU