Orðlaus - 01.04.2006, Side 26
ERTU ARTIFARTITREFLA
OG LOPAHUFU LUMMA?
Listaspírur vilja vera spes og vissulega eru
spes - eins og blessuð snjókornin. Svo
lega spes... en samt eitthvað svo eins.
Verslarðu í Spútnik, Gyllta Kettinum eða HM þegar þú skreppur til Köben? Finnst
þér líkamsrækt vera fyrir fávita? Myndirðu fyrr deyja en að fara í Ijós? Klippirðu
pig sjálf eða gera vinkonur þínar það fyrir þig? Ertu með skakkan topp og rakað
í hliðunum? Reykirðu rúllaðar sígarettur úr Drum tóbaki sem þú kaupir í tóbaks-
júðinni Björk? Áttu heima í 101? Er allt fyrir utan 101 ógeðsleg sveit sem er ekki
)ess virði að siá; Ha, Berjarimi? Er það í Kashakstan? Ertu ekki með bílpróf af
>ví það tekur pví ekki að taka það af því allt í 101 er í göngufæri? Ferðu bara á
Aðalvideoleiguna? Nagarðu neglurnar eða ertu stundum með blátt naglalakk í
tvær vikur sem þér finnst flott að sjá flagna af? Ertu með síðu á Myspace.com?
Reykirðu hass? Nei, sorrý, gras? Finnst þér Oliver vera útibú frá Helvíti? Ertu að
vinna í bókabúð eða á leikskóla. Eða kannski á kaffihúsi og bar? Eru „hnakkarnir"
óvinurinn? Ertu á móti Kárahnjúkavirkjun og hefurðu jafnvel tekið þátt í að mót-
mæla henni? Skrifarðu Ijóð sem eiga einn daginn að koma út í bók sem þú mynd-
skreytir sjálf? Finnst þér ísland hallærislegt og dreymir þig um að búa í New York?
Ertu kannski núna komin með hroll niður bakið af því þú stóðst í þeirri
meiningu að þú værir jafn spes og Björk en ert svo að átta þig á því að þú
hugsanlega bara steríótypa. Eftirlíking af spesi. Fokk! Fokk! Fokk!
Þær drekka helst svart kaffi.
Reykja mikið. Gengu í MH, fara
svo á listasvið FB og sækja að
lokum um í LHÍ. Sumar komast
inn, aðrar ekki. Þá fara þær að
vinna á leikskóla, á atvinnu-
leysisbætur eða til útlanda að
þykjast meika það. Svo er aftur
komið heim og sótt um í LHÍ.
Að lifa „venjulegu" lífi er and-
legur dauði fyrir listaspírunni
og þess vegna keppist hún við
að hafa sem flest óhefðbund-
ið.
Ólöglegur sviti
Þaer eru vanalega grannar en ekki
í góðu formi þar sem öll líkams-
rækt er af hinu illa. Eini löglegi
sviti listaspírunnar er gulur sviti
undan kaffi og sígarettum, eða
rokksviti sem lekur niður ennið
þegar þær standa með gítar og tjá
tilfinningar sínar í gegnum rokk-
tónlist. Reyndar gengur líf listaspír-
unnar voðalega mikið út á að tjá
tilfinningar. Tilfinningar eru henn-
ar fag. Hvort sem þær eru tjáðar á
kaffihúsum, í gegnum teikningar,
tónlist, klæðaburð eða hvaða tján-
ingarform sem hentar henni þá
stundina. Listaspírur eru jú frjálsar
og þeim halda engin bönd sjáðu
til. Vandinn er sá að tilfinningar
listaspíra eru misáhugaverðar.
Daglegt líf
Listaspírur endast sjaldan lengi
í vinnu. Þær flakka mikið á milli
starfa og eru é bótum þess á milli.
Þær eru oft reknar, enda eiga þær
voðalega erfitt með að vakna á
morgnanna, fyrir utan það að 9-5
formið var líka fundið upp af Sat-
an. Stundum eru listaspírur líka
n
Reyndar gengur líf
listaspírunnar voða-
lega mikið út á að tjá
tilfinningar. Tilfinn-
ingar eru hennar fag.
Hvort sem þær eru
tjáðar á kaffihúsum,
í gegnum teikningar,
tónlist, klæðaburð
eða hvaða tjáning-
arform sem hentar
henni þá stundina.
svo skapandi að þær geta hrein-
lega ekki unnið með öðru fólki.
Þær eru alltaf að benda á eitthvað
„listrænt" við alla hluti þannig að
venjulegt fólk verður hrætt og
hættir að geta slappað af innan
um spíruna.
Listaspírur þekkja dyraverði á
mjög litlu svæði innan 101. Það
svæði afmarkast við Klappar- og
Smiðjustíg. Þær komast oftast
fram fyrir raðir, enda eru þær á
uppáhalds stöðunum sínum helgi
eftir helgi eftir helgi og oftast á
virkum kvöldum líka. Stemningin
á uppáhalds stöðum listaspíranna
er oftast heimilisleg þar sem allir
þekkjast svaka vel en stundum
verður hún rafmögnuð. Það er þeg-
ar stóru listaspírurnar - prótótýp-
urnar mæta á svæðið. Þá erum
við að tala um móðurskip eins og
Björk og vini hennar eða erlenda
gesti.
Tilhugalífið
Listaspírur blandast oftast mjög
mikið innbyrðis líkt og hommarn-
ir. Það er ekki úr miklu að moða.
Þetta er þjóð meðal þjóða líkt og
gyðingarnir. Sér ættbálkur.
Listaspírur heillast heldur ekki
af „venjulegu" fólki þannig að
það eru sjaldan margir valkostir
í gangi. Sigga hefur kannski átt
í stuttum ástarsamböndum við
fimm stráka á barnum og er að
byrja að deita þann sjötta. Þetta
er allt í lagi. Öllum er nokk sama
af því listaspírur eru svo frjálsar og
flippaðar.
Listaspírur reyna samt eiginlega
aldrei við hvor aðra svo að aðrir
sjái. Þær eru heldur ekki með það
á heilanum að þær verði að prófa
að fara í þrísom eins og hnakkarn-
ir. Nei, listaspírur eru yfir höfuð
ekkert að flagga kynhvötinni. Ekki
það að þær lifi ekki kynlífi og hafi
ekki prófað að fara ofurölvi í þrís-
om, það er bara ekki ógeðslega
töff að tala mikið um það.
Menningin
Listaspíra myndi ekki láta sjá
sig dauða á mynd eins og Bad
Momma 2, hún er hinsvegar dug-
leg að mæta á aliskonar opnanir
og þá bara opnanirnar en ekki á
sýninguna í miðri viku. Þær hafa
nefnilega meiri áhuga á fólkinu
sem mætir á opnanirnar heldur
en sjálfri listinni. Þær hafa líka
töluverðan áhuga á veitingunum
sem eru vitaskuld ókeypis og fyrir
listaspíru á leikskólalaunum eða at-
vinnuleysisbótum erfáttæðislegra
en að komast á ókeypis fyllerí með
„kúl" fólki. Kvikmyndahátíðir eru
líka stórfenglegur viðburður í ann-
ars viðburðasnauðu lífi listaspír-
unnar (helvítis Reykjavík).
Byrjunargræjur fyrir verðandi flippara:
Lesefni
Id magazine
Id magazine
Engill, pípuhattur og jarðarber
e. Sjón
Matur
Sómasamlokur
Heimagert Sushi
Grænmetiskássa
Brún hrísgrjón
Fatnaður
Umfram allt... notuð:
Spandex leggings
Loðnar peysur með perlusaumi
Stígvél
Doppóttir, notaðir kjólar
Eitthvaðsemeinhvervinurhann-
aði
Drykkir
Stór bjór úr krana
Thule
Húsgögn
Góði hirðirinn
Eitthvað frá mömmu og pabba
Ikea
Draumafríið
Fyllerí í New York
Berlín
New York
Berlín
og New York
Tómstundir
Reykja jónu og föndra
Gera tónlist í tölvunni
Laga My-Space síðuna sem er
geðveikislega artí
Fara á kaffihús með apple lapp-
toppinn