Orðlaus - 01.04.2006, Qupperneq 41
Ólafur Darri
Ólafsson
- leikari
Uppáhalds íslenska bíómyndin?
Uppáhalds íslenska myndin mín er
Stella í Orlofi, hún er bara svo frá-
bærlega íslensk. Edda Björgvinsog
Laddi fremst meðal jafninga...
Hvaða bíómynd ertu að bíða eftir?
Mýrinni, sem reyndar er að fara í
tökur von bráðar, þannig að ég
gæti þurft að bíða aðeins...
Hver er erótískasta sena sem þú
hefur séð?
Tvær koma upp í hugann, annars
vegar matarsenan I níu og hálfri
viku, Mickey Rourke að gefa Kim
Basinger að borða, allt frá sirópi
upp I algjöran viðbjóð og ástarsen-
an í Enemy At The Gates með Jude
Law og Rachel Weiz.
Hvernig bíómynd myndir þú vilja
gera?
Við ættum að fara að takast á við
íslendingasögurnar. Það er synd að
við skulum ekki þora að kafa meira
í þær.
Hvaða leikara myndir þú vilja í bíó-
myndina (lífs eða liðinn)?
Ron Pearlman.
Hvert er draumahlutverk þitt?
Nú bara veit ég ekki, það er svo
margt sem mann langar að leika.
Hvaða Hollywood stjarna fer mest
í taugarnar á þér?
Enginn farið í taugarnar á mér ný-
lega en Chris O'Donnell var oft að
gera mig crazy á árum áður.
Halla
Vilhjálmsdóttir
— leikkona
Uppáhalds íslenska bíómyndin?
Englar Alheimsins. Hún er svo fal-
leg, átakanleg og fyndin I senn.
Og að sjálfsögðu sérlega vel leikin.
Ein af þeim myndum sem ekki eru
einnota hjá mér.
Hvaða bíómynd ertu að bíða eftir?
Mýrinni. Það litla sem ég hef heyrt
lofar góðu og Balti að sjálfsögðu
enginn grænjaxl.
Hver er erótískasta sena sem þú
hefur séð?
Hin fræga ástarsena I Don't look
now med Donald Sutherland. Sag-
an segir að í þeirri margrómuðu
senu hafi víst ekkert verið stuðst
við leiklistina.
Hvernig bíómynd myndir þú vilja
gera?
Átakanlega og dularfulla hetjubar-
dagamynd í anda Kill Bill.
Hvaða leikara myndir þú vilja í bíó-
myndina (lífs eða liðinn)?
Christian Bale og ef Charlize Ther-
on er upptekin og Jennifer Garner
líka, ætli ég neyðist þá ekki til að
leika á móti honum sjálf.
Hvert er draumahlutverk þitt?
Ég hef sérhæft mig í sviðsbardaga
og tekið framhaldspróf og fleira í
þeirri grein og er mjög "physical"
leikkona með mikinn áhuga á þess
háttar stil, þannig að ég myndi nú
seint hafna hlutverki í Kill Bill 3.
Hvaða Hollywood stjarna fer mest
í taugarnará þér?
Ég veit það ekki, ég er ekki mikið
fyrir að láta hluti fara í taugarnar
á mér. Ef ég yrði að nefna eitthvað
þá kannski helst svona fegurðarfá-
vitar eins og J-Lo eða Colin Farrell.
Vá hvað hann var vondur í Darede-
vil! Að hann skuli hafá komist upp
með þetta.
Elma Lísa
Gunnarsdóttir
— leikkona
Uppáhalds íslenska bíómyndin?
Blóðbönd.
Hvaða bíómynd ertu að bíða eftir?
Ef fréttir síðustu viku eru réttar þá
get ekki beðið eftir að sjá Dallas
með JLo sem Sue Ellen og Travolta
sem JR. Merkilegt hvað endur-
vinnslan I Hollywood er komin á
hátt plan.
Hver er erótískasta sena sem þú
hefur séð?
Ætli það sé ekki ástarsenan milli
Halle Barry og Billy Bob Thornton
í Monster Ball.
Hvernig bíómynd myndir þú vilja
gera?
Drama höfðar alltaf til mín. Myndir
um mannleg samskipti og mannleg-
an breyskleika í hvers konar formi
sem er, er eitthvað sem mig langar
til að gera. Ég væri til í að leika í
ástarsögu og hryllingsmynd,
Hvaða leikara myndir þú vilja í bíó-
myndina (lífs eða liðinn)?
Það er svo erfitt að gera upp á milli
það eru svo margir góðir leikarar
til, en ég og Nina Dögg leikkona og
vinkona mín eigum okkur draum
um að leika saman í bíómynd.
Það kannski kemur að því, aldrei
að vita! Sérðu þetta ekki fyrir þér
ég, Nína og Denzel Washington í
mynd um systur sem báðar verða
ástfangnar af sama manninum.
Hvert er draumahlutverk þitt?
Fyrir utan þetta með Denzel og
Nínu er draumahlutverkið yfirleitt
það sem ég er að leika hverju sinni.
En Marta í „Hver er hræddur við
Virginíu Wolf" kitlar alltaf. Tek
það eftir svona 10 ár, orðin svolítið
lifaðri!
Hvaða Hollywood stjarna fer mest
í taugarnar á þér?
Sandra Bullock.
ívar Örn
Sverrisson
— leikari
Uppáhalds íslenska bíómyndin?
Hrafninn flýgur er alveg sígild í
minningunni og mér fannst líka
Dalalíf skemmtileg.
Hvaða bíómynd ertu að bíða eftir?
Ég býð alltaf óþreyjufullur eftir
dramatískum myndum með Jim
Carrey.
Hver er erótískasta sena sem þú
hefur séð?
Það verður að segjast, senan með
Halle Berry og Billy Bob í Monsters
Ball er rosalega lostafull. Svo var
líka mjög sexý sena I Wild at Heart
sem David Lynch gerði, þegar ka-
rakterinn sem Nick Cage leikur er
að fara að afsveinast og hann labb-
ar upp þröngan stiga á eftir mega
sexý dömu í bleikum tights.
Hvernig bíómynd myndir þú vilja
gera?
Dramatíska körfuboltamynd.
Hvaða leikara myndir þú vilja í bíó-
myndina (lífs eða liðinn)?
Ég myndi hafa Helga Skúlason heit-
inn sem körfuboltaþjálfara og svo
allar sætustu leikkonurnar á land-
inu sem klappstýrur.
Hvert er draumahlutverk þitt?
í bíó var það Spiderman en það er
tekið, var mjög fúll. Á sviði þá er
ég búinn að leika draumahlutverk-
ið og það var Hamlet hjá Leikfé-
lagi Akureyrar. Var meira að segja
tilnefndur til Grímuverðlaunanna
sem leikari ársins ásamt einhverj-
um kanónum í leikhúsheiminum.
Annars er nóg tii af flottum hlut-
verkum í leikbókmenntum, þó
maður leiti ekki nema bara hjá
Shakespeare.
Hvaða Hollywoodstjarna fer mest í
taugarnar á þér?
Matt Damon er bara ekki leikari að
minu skapi, horfi helst ekki á mynd-
ir með honum.
Álfrún
Örnólfsdóttir
— leikkona
Uppáhalds íslenska bíómyndin?
Uppáhaldsbíómyndirnar minar eru
margar. Nokkrar sem eru alltaf
jafnfrábærar eru Léon, A Streetcar
Named Desire með Vivien Leigh og
Marlon Brando, Doctor Zivago og
Oliver Twist, gamla dans og söngva-
myndin
Hvaða bíómynd ertu að bíða eftir?
Ég bíð eftir kvikmynd sem á eftir
að breyta lifi mínu og fá mig til að
sjá heiminn í nýju Ijósi.
Hver er erótískasta sena sem þú
hefur séð?
Ætli það sé ekki ástarsenan í The
Lover, baneitruð.
Hvernig bíómynd myndir þú vilja
gera?
Ég myndi vilja gera ævintýramynd
með miklum áhættuatriðum, loft-
fimleikum, dansandi hermönnum
og ullarklæddum japönum í snjó-
kasti. Hún yrði myndræn veisla og
mjög stílfærð en samt með heill-
andi söguþræði sem skilur engan
eftir ósnortinn.
Hvaða leikara myndir þú vilja í bíó-
myndina (lífs eða liðinn)?
Johnny Depp og Andy Serkis fengju
líklega hlutverk, myndi samt vilja
fá þá í prufur til að vera alveg viss.
Hvert er draumahlutverk þitt?
Mig langar einhvern tima að leika
Blanche i Streetcar Named Desire
og Lady Macbeth í Macbeth.
Hvaða Hollywoodstjarna fer mest í
taugarnar á þér?
Keira Nightley fersvolítiðitaugarn-
ar á mér. Sæt en leiðinleg.