Orðlaus - 01.04.2006, Síða 46
*
Einkenni Hrútsins:
Fiskurinn passar best við fólk í:
Ijónsmerkinu, voginni og bogamanninum.
Frægt fólk í fiskamerkinu: Sarah Jessica Parker, Ewan McGregor,
Marlon Brando, Eddie Murphy.
Happatölur: 6, 14, 23
Fólk f hrútsmerkinu á það til að vera mjög sjálfstætt og fara sínar eigin leiðir
I einu og öllu. Hrúturinn er líflegur og jákvæður og fylgir hugmyndum sínum
fast eftir. Hann er einlægur og opinn og á yfirleitt auðvelt með að vinna með
öðrum, svo lengi sem hann fær svigrúm til þess að taka af skarið af og til.
Stærsti galli hrútanna er sá að þeir eiga það til að vera óþolinmóðir og hvat-
vísir.
Srf Ljón 24. júlí - 23. ágúst (fcL Meyja 24. ágúst • 23. september FÍvog 24. september - 23. október <4E Sporðdreki 24. október - 22. nóvember
Þú hefur verið frekar óhress undanfarið en
loksins ertu að ná þér á strik. Það er farið
að birta til í kringum þig og þú finnur ork-
una verða meiri og meiri með hverjum deg-
inum. Nýttu þér þessa orku til þess að byrja
í líkamsrækt eða Ijúka þeim verkefnum sem
fyrir þér liggja og þú hefur verið að draga
í þó nokkurn tíma. Farðu að huga að sumr-
inu, ef þú ætlar í utanlandsferð farðu þá að
gera ráðstafanir. Samband þittvið vini þína
er upp á það þesta. Taktu frumkvæðið og
farðu að skipuleggja eitthvað skemmtilegt
með þínum nánustu. Vertu jákvæð/ur og
reyndu að temja þér þolinmæði.
Bjartsýnin skín af þér og fólk laðast að þér
þess vegna. Það bíða þín spennandi tækifæri
handan við hornið sem þú munt taka fegins
hendi. Nú er líka rétti tíminn til þess að fara
að huga að sumrinu en þú ættir að gera eitt-
hvað sérstaklega skemmtilegt í sumar, þú
átt það skilið eftir þennan langa og dimma
vetur. Leggðu áherslu á aðhald í fjármálun-
um og þá þarftu ekki að hafa áhyggjur að
því hvort að þú munir geta borgað næstu
reikninga. Reyndu að hafa yfirsýn yfir eyðsl-
una og ræktaðu þau áhugamál sem krefjast
ekki mikilla fjárútláta.Vertu þú sjálf/ur og
góðir hlutir munu gerast.
Loksins ertu að ná jafnvægi í lífi þínu á nýjan
leik en þú þarft að gæta þess missa ekki tök-
in og standa fast á þínu. Sambandið við fjöl-
skylduna hefur ekki verið með besta móti
og þarf nú að fara að hreinsa andrúmsloftið
á þeim þænum. Einhver sem er þér náinn á
erfitt og þú þarft að hafa augun opin fyrir
vini í neyð og leggja þitt af mörkum til þess
að létta af þessum aðila. Ekki láta ósætti
við vin slá þig út af laginu heldur reyndu að
rækta sambandið á nýjan leik. Þú ert góð
manneskja og getur lagt heiminn að fótum
þér ef þú ferð rétt að.
Farðu nú að hugsa þinn gang og reyndu að
taka ekki svona mikið að þér. Þú hefur verið
iðin/n við að hreyfa þig en þú þarft að gæta
þess að það fari ekki út í öfgar. Þú ert líka
of gjörn/gjarn á aðtaka að þérverkefni ann-
arra og verður nú að fara að hugsa betur um
sjálfa/n þig og láta þína líðan hafa forgang.
Ekki velta þér of mikið upp úr þeim áhyggj-
um sem þú hefur og hafðu það í huga að yf-
irleitt reddast málin að lokum. Njóttu lífsins
og farðu vel með þig.
Nú eru loksins miklar breytingar yfirstaðn-
ar og þú getur farið að slappa af. Dagarnir
hafa verið svolítið óreglulegir hjá þér og þú
ert farin/n að hafa þörf fyrir meira skipulag
í kringum þig. Drífðu nú í því sem er búið
að sitja á hakanum og hafðu það líka í huga
að nú er rétti tíminn til þess að leita sér að
vinnu og kynnast nýju fólki. Treysta meira
á hæfileika þína og gáfur og ekki láta aðra
draga úr þér. Ákvarðanir um framtíðina
þarf ekki að taka á einum degi heldur er allt
í lagi að setjast niður og skoða í rólegheit-
um hvað er best að gera.
Eyddu tímanum í góðra vina hópi og reyndu
að slappa af. Ekki láta glepjast í allri neysl-
unni sem er allt í kringum þig og haltu fast
utan um peningana þína. Það eru ekki allir
þessir hlutir sem gera lífið betra heldur verð-
ur maður líka að kunna að njóta þess sem er
allt í kring og er ekki bundið í veraldlegum
hlutum. Harkaðu af þér og farðu að beita
þig meiri sjálfsaga í þeim málum sem þú vilt
ná árangri í. Það gengur ekki til lengdar að
vera alltaf að byrja á einhverju nýju og gef-
ast svo upp á miðri leið.
Þú hefur haft miklar áhyggjur af peninga-
málum undanfarið og hefur sjaldan verið
jafn blönk/blankur. Þú ert á tímamótum og
þarft að fara að taka mikilvægar ákvarðanir
varðandi framtíðina og það veldur þér þó
nokkru hugarangri. Leitaðu til vina og ætt-
ingja og vertu óhrædd/ur við að taka fyrsta
skrefið í þá átt sem þér finnst þú þurfa að
stefna. Það kemur alltaf að breytingum í lífi
hversog eins og þá þarf aðgæta þess aðfyll-
ast ekki of miklum kvíða. Þú ert hæfileikarík
manneskja sem getur náð langt á þeim svið-
um sem þú ætlar þér, ekki gleyma því.
Slappleiki hefur legið yfir þér í þó nokkurn
tíma og nú þarft þú að fara að gera eitthvað
í málunum. Farðu að huga að mataræðinu
og reyndu að taka það i gegn. Eins verður
þú að fara að hreyfa þig ef þú ert ekki byrj-
uð/byrjaður á þvi nú þegar. Skapsveiflur
og óþolinmæði hafa líka einkennt þig und-
anfarið. Gættu þess að særa ekki þá sem
standa þér næst og gefðu þér tíma til þess
að setjast niður með vinum og ættingjum
og njóta líðandi stundar. Vorið mun færa
þér ný tækifæri sem þú skalt taka á móti
með gleði í hjarta.
Þér gengur rosalega vel í þínu og ert virki-
lega farin/n að blómstra á því sviði sem þú
hefur valið þér. Loksins er að færast ró yfir
þig og þú ert að verða sátt/ur við sjálfa/n þig
og ert að átta þig á því að stöðug sjálfsgagn-
rýni gerir engum gott. Það eru bjartir tímar
framundan og lífið og tilveran leggst vel í
þig. Ekki hafa of miklar áhyggjur af sumr-
inu en það gæti verið sniðugt fyrir þig að
hafa einhver plön fyrir þann tíma sem er að
ganga í garð. Þú munt eiga skemmtilegan
tíma með vinum þínum og mun það hjálpa
þér að endurnýja orkuna eftir veturinn.
Nú er loksins að rofa til í ástarmálum þín-
um. Þú hefur verið frekar niðurdregin/n
síðustu mánuði en finnur nú að það er eitt-
hvað spennandi í vændum. Njóttu þess að
kynnast nýju fólki og leyfðu þér að líða vel
í návist þeirra sem þér þykir vænt. Leitaðu
til þinna nánustu ef þú þarft hjálp og vertu
ófeimin/n við að biðja um greiða ef þú þarfn-
ast þeirra. Hlutirnir eru líka farnir að róast
í kringum þig og þú munt fara að upplifa
hvað það getur verið nauðsynlegt að hægja i
aðeins á og hugsa sinn gang. Gættu þess að
láta ekki drauga fortíðarinnar ná tökum á
þér og haltu ótrauð/ur áfram í þínu.
Þú stendur á tímamótum og hefur verið að
bíða eftir spennandi atburði í nokkra mán-
uði og loksins fer að líða að lokum þessa bið-
tíma. Breytingar á umhverfi þínu hafa verið
þó nokkrar en það mun bara hafa jákvæð
áhrif á líf þitt ef þú tekur þessum breyting-
um opnum örmum. Eins máttu fara að líta i
kringum þig ef þú ert ekki í ástarsambandi
nú þegar en hver veit nema einhver hafi ver-
ið að gefa þér hýrt auga undanfarið. Líttu
í kringum þig og reyndu að sjá fólk i nýju
Ijósi og einhver mun koma þér reglulega á
óvart.
Nú er loksins rólegt tímabil framundan þó
svo að þú þurfir að Ijúka nokkrum verkefn-
um af sem hafa setið á hakanum í langan
tíma. Þegar þessu er lokið getur þú virki-
lega farið að anda léttar og njóta lífsins.
Gerðu skemmtileg plön fyrir sumarið. Það
bíður þín líka skemmtilegt ferðalag handan
við hornið og ný tækifæri í vinnunni og þú
munt fá meiri ábyrgð. Nú er líka tími til kom-
inn að fara að taka ákvarðanir í málúm sem
þú hefur verið að velta fyrir þér. Ræktaðu
sjálfa/n þig og farðu að huga að heilsunni
og því sem þú setur ofan í þig.
fcr? Bogmaður Steingeit Vatnsberi Fiskar
23. nóvember - 21. desember 22. desember - 20. janúar 21. janúar - 19. febrúar 20. febrúar - 20. mars
Hrútur
21. mars - 20. apríl
fr* Naut
21. apríl - 21. maí
IVA Tvíburar
22. maí - 21. júní
Krabbi
22. júní - 23. júlí
46