Bændablaðið - 22.04.2009, Page 16

Bændablaðið - 22.04.2009, Page 16
16 KOSNINGAR 2009 BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 22. APRÍL 2009 Sjálfstæðisflokkurinn Í kosningastefnuskrá Sjálfstæðis- flokksins er ekki vikið sérstaklega að landbúnaðarmálum. Hins vegar samþykkti landsfundur flokksins sérstaka ályktun um landbúnaðar- mál sem inniheldur stefnu flokksins í málaflokknum. Sú ályktun er viðamikil og vikið að mjög mörgum þáttum í íslenskum landbúnaði. Þar er lögð áhersla á að stundaður sé fjölbreyttur landbúnað- ur á Íslandi á grundvelli einkafram- taks og frelsis til athafna. Flokkurinn vill jafnframt að fæðuöryggi þjóð- arinnar sé ávallt tryggt. Stuðla þarf að áframhaldandi þróun landbún- aðarins, sem byggist á frjálsum við- skiptum, hugviti, kjarki og framsýni einstaklinga um land allt. Standa þurfi vörð um sjálfstæði bænda á sínum eignarjörðum, þar sem rétt þinglýstar eignarheim- ildir til lands og sjávar séu varðar. Meðferð þjóðlendumála í fram- kvæmd ríkisins er átalin í álykt- uninni. Hagsmunum landbúnaðarins betur borgið utan ESB Við þær aðstæður sem landbún- aðurinn stendur nú frammi fyrir, þarf að huga að ýmsum mögu- leikum til að tryggja næga mat- vælaframleiðslu í landinu að mati Sjálfstæðisflokksins. Létta þarf greiðslubyrði lána og tryggja eðlilega bankafyrir- greiðslu fyrir landbúnaðinn, sem og aðrar atvinnugreinar. Sjálfstæðismenn telja að hagsmun- um íslensks landbúnaðar sé betur borgið utan ESB en innan enda sé landbúnaðarstefna sambandsins and- stæð hagsmunum íslensks landbún- aðar. Innganga í ESB myndi hafa þær afleiðingar að bændum myndi fækka og afleiddum störfum einn- ig, sem myndi bitna með afgerandi neikvæðum hætti á landsbyggðinni. Komi til aðildarviðræðna verður að skilgreina skýr samningsskil- yrði fyrir hverja búgrein, þannig að tryggt sé að á Íslandi verði áfram hægt að stunda öflugan landbúnað og að fæðuöryggi þjóðarinnar verði ávallt tryggt. Sjálfstæðisflokkurinn hvetur til þess að þegar verði haf- inn undirbúningur að heildstæðum samningi við bændur um fæðu- og matvælaöryggi þjóðarinnar. Stefnt verði að því að kvótakerfið verði lagt af í áföngum. Sérstaklega þarf að huga að nýliðun í landbúnaði. Til að mæta aukinni erlendri sam- keppni vegna alþjóðasamninga og væntanlegra áhrifa af nýrri matvæla- löggjöf, telur Sjálfstæðisflokkurinn nauðsynlegt að leitað verði nýrra leiða til verðmætasköpunar í land- búnaði. Hvergi verði slakað á heil- brigðiskröfum til að koma í veg fyrir smitsjúkdóma sem ella kynnu að berast erlendis frá. Nýta þarf enn frekar tækifæri á erlendum mörk- uðum fyrir íslenskar búafurðir á grundvelli gæða og hreinleika. Veita þarf búgreinunum lagaheimild til stjórnunar á útflutningi afurða sinna. Áhersla verði lögð á rekjanleika afurða og öruggar upprunamerk- ingar, jafnframt því að gerð verði jafn afdráttarlaus krafa til merkinga og upprunavottunar á innfluttum matvælum og fóðri. Landbúnaðurinn verði rekinn í sátt við náttúruna Sjálfstæðisflokkurinn leggur jafn- framt áherslu á öfluga menntun og hagnýtar rannsóknir og vill þann- ig stuðla að auknum framförum í landbúnaði. Flokkurinn leggur sem fyrr áherslu á að landbúnaður- inn sé rekinn í sátt við náttúruna.. Til þess að þessi markmið náist leggur Sjálfstæðisflokkurinn til eftirfarandi aðgerðir: Létta þarf greiðslubyrði lána og tryggja eðlilega bankafyrir- greiðslu fyrir landbúnaðinn sem og aðrar atvinnugreinar. Veita þarf búgreinunum laga- heimild til stjórnunar á útflutningi afurða sinna. Gerð verði afdráttarlaus krafa til merkinga og upprunavottunar á innfluttum matvælum og fóðri. Hafinn verði undirbúningur að heildstæðum samningi við bændur um fæðu- og matvæla- öryggi þjóðarinnar, sem hafi m.a. að inntaki að núverandi kvóta- kerfi verði lagt af í áföngum. Öfluga menntun og hag- nýtar rannsóknir stuðli að framförum í landbúnaði. Mótaðar verði reglur er varða kolefnisbindingu með skóg- rækt og landgræðslu til verð- mætasköpunar í landbúnaði. Stofnanir á sviði skógræktar og landgræðslu verði sameinaðar. Stefna flokkanna í landbúnaðarmálum Framsóknarflokkurinn Í kosningastefnuskrá flokksins er lögð áhersla á að efla og hlúa að matvælaframleiðslu þjóðarinn- ar í landbúnaði og sjávarútvegi sem bæði skapa gjaldeyristekjur og spara gjaldeyri. Fæðuöryggi sé Íslendingum brýnt hagsmuna- mál. Jafnframt kemur fram að vilji Framsóknarflokksins stendur til þess að Ísland hefji aðildarviðræð- ur við Evrópusambandið á grund- velli samningsumboðs frá Alþingi sem tryggi hagsmuni almennings og atvinnulífs og þá sérstaklega sjávarútvegs og landbúnaðar líkt og kveðið var á um á síðasta flokksþingi flokksins. Íslenskur landbúnaður verði áfram sterkur atvinnuvegur Á umræddu flokksþingi var sam- þykkt ályktun um landbúnaðar- mál og matvælaöryggi. Markmið þeirrar ályktunar er að íslenskur landbúnaður verði áfram sterkur atvinnuvegur sem framleiðir holl og góð matvæli, þannig að fram- boð, matvælaöryggi og heilbrigði þjóðarinnar verði tryggt. Til þess vilja Framsóknarmenn meðal ann- ars leggja áherslu á eftirfarandi: @ Ræktun og nýting landsins gæða sé ávallt sjálfbær. @ Vinna skal að því með öllum tiltækum ráðum að hingað berist ekki neinir búfjársjúkdómar. @ Gerðar verði sömu kröf- ur til innfluttra matvæla og gerðar eru til íslenskrar framleiðslu. @ Hvatt skal til notkunar endurnýjanlegra orkugjafa í landbúnaði. @ Tryggt verði, með hófleg- um skilyrðum um búsetu og með auknum skyldum jarðareigenda gagnvart samfélaginu, að bújarðir verði setnar og nýttar til verðmætasköpunar. @ Allar búvörur verði upp- runamerktar þar sem því verður við komið þannig að neytandinn viti hvaðan varan er. @ Tryggt verði að fjármagn til landbúnaðarmenntunar verði nægjanlegt svo efla megi áfram háskólanám, starfsmenntun og endur- menntun í landbúnaði. @ Heimavinnsla afurða úr hráefnum landbúnaðarins verði efld. @ Leitað verði leiða til að auðvelda nýliðun í bænda- stétt og fagmenntuðum bændum auðveldað að hefja búskap. @ Tryggja þarf áfram öflugt kynbótastarf í landbúnaði þannig að framfarir í rækt- un leiði til áframhaldandi hagræðingar í íslenskum landbúnaði. Til að þessi markmið náist leggur Framsóknarflokkurinn til að ákveðin fyrstu skref verði stig- in. Flokkurinn vill að tryggt verði, að ef ný matvælalöggjöf á Íslandi verður samþykkt, opni það ekki fyrir frjálst flæði ótryggra matvæla til landsins. Það skal gert með því að fara fram á viðbótartrygging- ar varðandi fleira en salmonellu í kjúklingum. Koma verður í veg fyrir að innflutt hrávara geti verið lakari að gæðum og heilnæmi en íslenskar landbúnaðarafurðir. Sett verði á stofn nefnd um hvernig sé hægt að auka verðmætasköp- un í landbúnaði á næstu 10 árum. Samhliða verði Framleiðnisjóður landbúnaðarins efldur. Halda þarf áfram endurskipulagningu á stjórn- sýslu- og eftirlitskerfi landbún- aðarins, en gæta þarf þess að kostn- aður bænda af eftirliti opinberra aðila með starfsemi þeirra verði lágmarkaður. Tollar á aðföng land- búnaðar verði endurskoðaðir með lækkun framleiðslukostnaðar að markmiði. Borgarahreyfingin Ekkert er í stefnuskrá framboðsins um landbúnað. Samfylkingin Í kosningastefnuskrá Sam- fylkingarinnar kemur fram að stefnt skuli að Evrópusambandsaðild og þar ætli flokkurinn að tryggja grundvallarhagsmuni atvinnu- veganna, sérstaklega íslensks sjávarútvegs og landbúnaðar, og standa vörð um náttúruauðlind- ir landsins. Í atvinnumálakafla stefnuskrárinnar kemur fram að Samfylkingin vilji móta nýja sóknarstefnu í landbúnaði með áherslu á fullvinnslu afurða og nýsköpun í anda sjálfbærrar þróunar. Einnig er lögð áhersla á að auka frelsi bænda til heima- framleiðslu og sölu gæðaafurða. Kosningaáherslur flokksins eru nánast samhljóða landbúnaðar- ályktun flokksins sem samþykkt var á síðasta landsfundi flokksins. Lýðræðishreyfingin Ekkert er í stefnuskrá framboðsins um landbúnað. Á Morastöðum í Kjós búa hjón- in Orri Snorrason og María Þórarinsdóttir með sauðfé og hross. Þau sögðu að það sem mestu skipti í þessum kosningum væri að stjórnmálamenn störfuðu í þágu almannaheilla. „Atvinnumálin brenna á þjóð- inni og þau skipta okkur bændur líka máli. Þetta hangir allt saman því atvinnulaust fólk hefur ekki efni á því að kaupa sér mat.“ Það sem ræður því hvernig þau verja atkvæðum sínum er hverj- um hægt er að treysta best til þess að stuðla að almannaheill. „Það gæti reynst nokkuð snúið að finna þann rétta því allir flokkarnir eru stofnaðir utan um einhvers konar hagsmunagæslu,“ sögðu þau Orri og María og bættu því við að fundurinn væri fínn og framsögu- mennirnir skörulegir. Blaðið lagði tvær spurningar fyrir Jón Björnsson í Deildartungu eftir framboðsfundinn í Borgarnesi. Hann var fyrst spurður um það hvað honum þætti mikilvægasta málið fyrir bændur í komandi kosning- um. „Stöðugleiki. Ekki verði grip- ið til neinna örþrifaráða svo sem inngöngu í ESB,“ sagði Jón. Þá var hann spurður um hvað réði því hvernig hann kysi þann 25. apríl nk. Jón segir að það ráðist af því að frambjóðendur hafi raunverulega þekkingu á lífi og störfum bænda og annarra sem búa í dreifbýlinu, en þykist ekki bara hafa hana. Koma þjóðfélaginu aftur í gang Hjónin Ásta Sigrún Einarsdóttir og Hreiðar Grímsson, Gríms- stöðum í Kjós, búa með sauðfé og hænsni og eru komin út í fram- leiðslu stofneggja. Þau sátu fund- inn í Hlégarði og þegar blaðamað- ur spurði þau hvað þeim fyndist mikilvægast í þessum kosningum var það tvennt: „Í fyrsta lagi þarf að byggja upp atvinnustarfsemina í landinu og koma þjóðfélaginu aftur í gang og í öðru lagi þarf að koma í veg fyrir aðild að ESB, hún myndi drepa íslenskan landbúnað.“ Þegar spurt var hvað réði mestu um það hvernig þau verja atkvæðum sínum vísaði Ásta á bónda sinn sem svaraði: „Ég hef alltaf verið á móti haftastefnu og er það enn. Ég man þá tíð þegar menn þurftu að skríða fyrir bankastjórum og vil ekki fá slíka fyrirgreiðslupólitík aftur. Hins vegar má svo sem segja að frjáls- lyndið hafi gengið helst til of langt hjá okkur.“ Hverjum er hægt að treysta? Jón Björnsson. Engin örþrifaráð eins og innganga í ESB

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.