Bændablaðið - 11.02.2010, Page 2

Bændablaðið - 11.02.2010, Page 2
2 Bændablaðið | fimmtudagur 11. febrúar 2010 Fréttir Annað skinnauppboð sölutíma- bilsins 2009 til 2010 hjá Kopen- hagen Fur var haldið dagana 5.-9. febrúar. Á uppboðinu voru seld rúmlega 4 milljónir minka- skinna. Á uppboðið mættu um 500 kaupendur, rúmlega helm- ingur þeirra frá Kína. Að sögn Einars E. Einarssonar ráðunaut- ar hjá Bændasamtökunum gekk uppboðið vel. Öll skinn sem boð- inn voru fram seldust og hækk- uðu minkaskinnin að meðaltali um 13% frá desember síðastliðn- um en þá hækkuðu skinnaverð verulega frá meðalverði uppboð- anna þar á undan. Meðalverð allra minkaskinna sem seld voru á þessu uppboði var 324 dansk- ar krónur sem verður að teljast mjög gott. Rétt er hinsvegar að hafa í huga að það voru einkum fyrsta flokks skinn sem seld voru á uppboðinu. Enginn vafi leikur þó á að markaðurinn er góður og margt bendir til þess að svo verði áfram. Skilaverðið í íslensk- um krónum er síðan annað mál að sögn Einars en óhætt er að segja að á genginu í dag sé það verulega gott. Rétt er þó að hafa í huga að þeir sem selja vöru á hinum frjálsa markaði lifa á meðaltalinu og ekki hafa öll ár í sögu minkaræktar verið góð en engu að síður er útlitið mjög gott núna að sögn Einars. Bændablaðið heyrði í Birni Halldórssyni á Akri í Vopnafirði, formanni Sambands íslenskra loðdýrabænda til að fá viðbrögð hans. Björn var úti í minkahúsum að skoða holdafarið á minkunum. Beinast lá þá við að spyrja hann hvernig honum litist á holdafarið. „Bara vel, mér líst vel á flest það sem snýr að loðdýraræktinni núna. Þessi hækkun núna ofan á hækk- unina sem varð í desember síðast- liðnum kemur mönnum nokkuð á óvart, hvað hún er mikil. Ég hugsa nú að flestir hafi búist við að í best falli héldist verðið frá því síðast en við erum að tala um 10 prósenta hækkun og allt upp í 35 prósenta hækkun á þessum algengustu litum.“ – Þetta eru allt aðrar tölur en hafa sést á síðustu árum, ekki satt? „Þetta eru í raun aðstæður sem við höfum aldrei séð áður. Við erum að tala um meðalverð eitt- hvað yfir sjö þúsund krónur og framleiðslukostnað á milli 3.600 og 3.900 krónur, með öllu. Við höfum aldrei séð afkomutölur eins og þessar.“ – Ertu bjartsýnn á að þetta haldist? „Auðvitað á maður að vera gæt- inn í fullyrðingum, þetta er auðvit- að heimsmarkaðsverð. Það er hins vegar ekkert í spilunum sem bend- ir til annars en að þetta geti hald- ist í einhver ár. Hversu mörg þau eru er erfitt um að spá. Eins og staðan er þá er eftirspurnin borin uppi af Kínverjum að mestum hluta á meðan að Vesturlöndin og Rússland eru nánast óvirk vegna kreppunnar. Þeir markaðir munu hins vegar jafna sig og þegar að þeir verða orðnir virkir aftur þá verður þetta mjög gott.“ Bændur hugsa um að borga upp skuldir Eitt af því sem vinnur með loð- dýraræktinni núna er staða íslensku krónunnar. Lágt gengi hennar hjálpar loðdýrabændum verulega mikið eins og öðrum útflutnings- greinum. Björn segist hins vegar þeirrar skoðunar, og deili því með flestum þeim sem stundi útflutning, að gengið sé nú ekki mjög langt frá því sem eðlilegt sé. „Ef að krónan styrkist eitthvað að verulega væri það áfall fyrir þjóðarbúið. Við lifum núna algjörlega á útflutn- ingi og ferðamannaiðnaðinum og ef möguleikar þessara greina til að afla gjaldeyris skerðast verulega með mikilli styrkingu krónunnar þá verður ástandið verulega erfitt. Þeir fjármunir sem þjóðin þarf á að halda núna verða til í útflutnings- greinunum. Í fimm ár bjuggum við loðdýrabændur við gengisvístölur á bilinu 100 til 120 og það var alveg vonlaus staða. Menn brugðu búi og voru við það að bregða búi á þeim tíma þannig að við erum í sjálfu sér ekki að fá annað en leiðréttingu á þeirri stöðu nú.“ – Hvað heyrir þú á þínum félagsmönnum í þessu ljósi? Huga menn að uppbyggingu og fram- kvæmdum? „Ég veit það nú svo sem ekki. Flestir eru auðvitað með gamlar skuldir á herðunum og munu leggja áherslu á að klára þau mál áður en farið verður í annað. Versti tím- inn til að stækka við sig í greininni er í raun þegar að verð eru há því þá er verð á lífdýrum einnig hátt. Besti tíminn til þess hefði verið fyrir svona tveimur árum en þá vissu menn ekkert hver staðan yrði nú. Það eina sem menn sáu var að framleiðslan í heiminum var að dragast saman í heiminum. Fjöldi minkaskinna hefur dregist saman úr 57 eða 58 milljónum og niður í 47 milljónir í dag. Samkvæmt öllum lögmálum kapítalismans ætti það að hækka verð en það sem hefur í raun riðið baggamuninn er þetta gríðarlega markaðsátak í Kína sem Copenhagen Fur hefur leitt.“ Raunhæft að kynna Ísland sem ákjósanlegt fyrir loðdýrarækt Útflutningsráð Íslands hefur ýtt úr vör markaðsátaki erlendis til að vekja athygli erlendra fjár- festa á Íslandi sem ákjósanlegum stað til að ala loðdýr. Samband íslenskra loðdýrbænda, tvö sveitar- félög, fóðurstöðvar auk fleiri aðila koma að verkefninu. Björn segir það mál í vinnslu. „Það er verið að vinna kynningarefni og við munum fara á stóra sýningu í Danmörku nú í byrjun næsta mánaðar. Þessi kynning er lítillega farin af stað úti í Danmörku og við reynum að kynna möguleika og aðstöðu hér á landi, bæði fjárhagslega og félags- lega. Fyrsta kastið horfum við til Danmerkur og Hollands.“ – Er ekki Ísland að sumu leiti mjög ákjósanlegt land til loðdýra- ræktar? „Jú, það er fullkomlega raun- hæft að kynna landið sem slíkt. Hollendingar og Danir hafa til að mynda verið að setja upp bú í Austur Evrópu og það má segja að umhverfið þar sé annað en þeir eiga að venjast á meðan að hér á landi líkjast allar aðstæður því sem þekkt er í þessum löndum. Það á við um regluverk, kúltur og þjóðfélags- gerð, þjónustu og eftirlit og við eigum jafnframt aðkomu að upp- boðshúsum. Það myndi efla grein- ina að stækka hana og bændur hér eru jákvæðir fyrir því. Við munum hins vegar ekki gefa neinn afslátt á gæðakröfur og reglur. Við höfum þegar fengið viðbrögð, menn hafa leitað frekari upplýsinga frá okkur. Góðir hlutir gerast hins vegar hægt og þetta tekur tíma.“ – Hverju myndi það breyta fyrir íslenska loðdýrabændur ef hér yrðu sett á laggirnar ný bú með erlendu fjármagni? „Það myndi í fyrsta lagi gera rekstur fóðurstöðva hagkvæmari. Félagslega myndum við styrkj- ast enda myndi uppbyggingin fara fram á þeim svæðum þar sem bú eru fyrir. Sömuleiðis myndum við fá sterkari rödd í samskiptum við ríkisvaldið og aðra aðila í hags- munabaráttu fyrir greinina. Ég held að það sé enginn loðdýrabóndi á landinu sem ekki myndi fagna því að hingað kæmu erlendir aðilar inn í greinina.“ Áhyggjur dýralækna byggðar á misskilningi – Dýralæknar hafa lýst áhyggj- um vegna þessara áforma, meðal annars vegna þess að erfitt sé að búa loðdýrum gott umhverfi með tilliti til eðlisþarfa og dýravernd- ar. Sömuleiðis sé ræktun loðdýra umdeild. Hverju svarar þú þeirra áhyggjum? „Mín viðbrögð eru þau að eftir að hafa rætt við forsvarsmenn Dýralæknafélagsins kemur í ljós að verulegur hluti þessara efasemda þeirra er byggður á misskilningi. Þeim auðnaðist ekki að hafa sam- band hvorki við okkur loðdýra- bændur, ráðunaut eða útflutnings- skrifstofu áður en þessi ályktun var samin og samþykkt. Það hefði því verið hægt að leiðrétta ýmsa hluti sem eru byggðir á misskilningi. Það eru þarna hins vegar hlutir sem Dýralæknafélagið er að drepa á eins og dýravernd sem við erum algjörlega sammála þeim um. Við munum ekki samþykkja að það verði gefinn neinn afsláttur á neinu slíku. Við höfum byggt upp gott orðspor á seinni árum og við höfum engan áhuga á að sú þróun snúi til baka. Ég vil í sjálfu sér ekki vera að ræða mikið um þessa ályktun dýra- læknafélagsins frekar, það er búið að leiðrétta ákveðinn misskilning og það stendur til að við sendum frá okkur sameiginlega yfirlýsingu um málið. Dýralæknar eru stétt sem við ætlum og þurfum að eiga góð samskipti við og við höfum engan áhuga á deilum við þá.“ – Eitt af því sem menn hafa viðr- að áhyggjur yfir varðandi þessi áform er að eldri loðdýrahús sem ekki standist kröfur nútímans verði tekin í notkun á nýjan leik. Eru ein- hverjar líkur á því? „Eitt af því sem hefur valdið misskilningi í þessari umræðu er að eldri loðdýrahús uppfylli ekki regl- ur. Það er ekki rétt því í reglugerð- um er ákvæði um notkun á eldri húsum og þar er leyfilegt að nota aðeins styttri búr til að nýta húsin. Þetta er það sama og á við í Noregi til að mynda. Fullyrðingar um að eldri hús uppfylli ekki reglugerðir eru því ekki réttar. Hins vegar tel ég útilokað að erlendir aðilar færu að nýta eldri hús, þau standast einfald- lega fæst nútímakröfur fólks um vinnuaðstöðu. Við höfum ekki einu sinni velt því fyrir okkur að benda á þessi hús sem einhvern kost, menn færu bara í uppbyggingu.“ Guðbjörg Þorvarðardóttir for- maður Dýralæknafélagsins segir að ekki sé búið að slá á áhyggjur dýralækna vegna áformanna. „Við höfum áhyggjur af því að ekki sé gengið frá því að nægjanlega virkt eftirlit muni koma til ef af þessum áformum verður. Auk þess er loð- dýrarækt umdeild ræktun og gagn- rýnisraddir hafa verið háværar í Evrópu. Við munum ræða betur við Samband loðdýrabænda og MAST og það verður gert á næstunni.“ fr             Enn hækkar skinnaverðið Flest bendir til að áframhald geti orðið á Hópur frá Bændsamtökunum fór í síðustu viku til Noregs og Finnlands til þess að ræða um ESB og landbúnað við ýmsa aðila. Ferðin er liður í þeirri upplýsingaöflun sem samtökin hafa unnið að um árabil vegna áhrifa mögulegrar aðildar að ESB á íslenskan landbúnað. Efni fundanna var m.a. að ræða um aðildar ferl- ið framundan, landbúnaðarstefnu ESB og fá svör við ýmsum spurningum sem snúa að landbún aðar hluta aðildarsamninga við sambandið. Á vegum Bænda- samtakanna var með í för Stefán Már Stefánsson, pró- fessor í lögum við Háskóla Íslands, sem hefur víðtæka reynslu af Evrópurétti. Hann hefur sinnt ráðgjafarstörf- um fyrir BÍ og verið þeim innan handar við túlkun ýmissa lagalegra þátta sem snúa að aðildarferlinu. Nánar verður greint frá niðurstöðum ferðarinnar í skýrslu sem lögð verður fyrir Búnaðarþing í lok mán- aðarins þar sem fjallað verður ítarlega um stöðu ESB- mála og afstöðu bænda. Myndin hér að ofan er tekin í höfuðstöðvum Norges bondelag í Osló en þar hitti hópurinn m.a. fyrrum fram- kvæmdastjóra norsku bændasamtakanna og sérfræð- inga í málefnum ESB. Frá vinstri: Harald Milli, fyrrv. framkvæmdastjóri Norges bondelag, Nils T. Björke, formaður Norges bondelag, Ragnheiður Snorradóttir, Stefán Már Stefánsson prófessor við HÍ, Sigurbjartur Pálsson stjórnarmaður í BÍ, Erna Bjarnadóttir, hag- fræðingur BÍ, Eiríkur Blöndal framkvæmdastjóri BÍ, Christian Anton Smedshaug, sérfræðingur hjá Norges bondelag og Svein Guldal stjórnarmaður í Norges bondelag. Íslenskir bændur safna upplýsingum um ESB Björn Halldórsson að störfum í minkabúinu á Akri í Vopnafirði. Þann 28. janúar sl. gerðu Bændasamtök Íslands (BÍ) og Samband Garðyrkjubænda (SG) með sér samstarfssamning þar sem markmiðið er að verkaskipting sé skýr og saman fari ábyrgð og forræði í þeim málaflokkum sem undir hvorn aðila heyra. Í samningnum kemur fram að með því móti sé stefnt að því að sinnt sé brýnum hagsmunamálum er búgreinina varða, auk þess sem koma megi í veg fyrir tvíverknað og ómarkviss vinnubrögð. Myndin er tekin þegar þeir Haraldur Benediktsson, formaður BÍ, og Þórhallur Bjarnason, formaður SG, undirrituðu samninginn. mynd | TB Samningur BÍ og SG um samstarf og verkaskiptingu

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.