Bændablaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | fimmtudagur 24. mars 2011 Núverandi ábúendur tóku við ábúð á jörðinni árið 1988. Fyrstu árin var rekinn blandaður búskapur með sauðfé, geldneyti og garðyrkju. Árið 2003 var eyðijörðin Fjós keypt. Í kjölfarið var byggt nýtt fjárhús. Með betri aðstöðu til allra verka fjölgaði fénu og er enn að fjölga. Býli? Giljur. Staðsett í sveit? Mýrdal í Vestur Skaftafellssýslu. Ábúendur? Ólafur Þorsteinn Gunnarsson og Birna Kristín Pétursdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra)? Við eigum þrjú börn, Maríu, bif- vélavirkja hjá Öskju í Reykjavík, Gunnar, nema í Borgarholtsskóla, og Kristínu sem er í 3. bekk Víkur skóla. Tveir Border Collie hundar, Skuggi og Lubbi. Stærð jarðar? Giljur 220 ha og Fjós 600 ha. Tegund býlis? Sauðfjárbú. Fjöldi búfjár og tegundir? Tæplega 700 fjár, 50 holdablend- ingar Aberdeen Angus og þrjú hross. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Enginn dagur eins. Gengið í það sem þarf að gera og þá ekki alltaf unnið eftir klukku. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Oftar en ekki skemmtilegt á sauðburði og í heyskap en allra skemmtilegast er í smalamennskum í hrikalegum heiðarlöndum Mýrdalsins. Leiðinlegast er að sinna sífellt vaxandi skrifræði í búskapnum. Þá eru vélaviðgerðir ekki á óskalista. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Vonandi stærri í sniðum og fjölbreyttari. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Viðhorf almennings til bænda er að okkar mati mun jákvæðara en það var fyrir nokkrum árum síðan. Það hlýtur að einhverju leyti að vera mælikvarði á frammistöðu for- svarsmanna bænda. Þar hefur ungt og drífandi fólk oftar en ekki verið áberandi. Hvernig mun íslenskum land- búnaði vegna í framtíðinni? Íslenskum landbúnaði mun vegna vel vegna þess að Íslendingar munu hafa þá skynsemi til að bera að fella aðild að ESB. Hvar teljið þið að helstu tæki- færin séu í útflutningi íslenskra búvara? Tvímælalaust í lamba- kjöti. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, smjör, ostur, egg og AB mjólk. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Súrmatur eða skata hjá húsbóndanum en pizza hjá hinum en Hamborgarahryggur með brún- uðum kartöflum er alltaf bestur. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Það er nú svo margt og oft tengt ýmsu broslegu í eigin fari eða annara. Þó líður seint úr minni eltingaleikur við útigöngufé er hljóp á jökul og faldi sig þar undir klakafossi. Örstuttu eftir að fénu var snúið við hrundi jökulstálið. Ískaldur gusturinn var „ofurlítið frískandi“. 5 6 4 8 5 2 3 6 5 9 7 9 1 2 4 1 5 7 2 3 4 7 8 7 1 1 6 3 4 3 2 6 9 9 7 8 5 5 3 4 3 5 2 9 8 1 7 2 5 5 9 6 4 7 8 9 4 1 5 9 1 6 8 4 1 9 8 7 3 6 7 5 Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem er lengst til vinstri er léttust og sú til hægri þyngst en sú í miðjunni þar á milli. Hægt er að fræðast nánar um Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni www.sudoku2.com og þar er einnig að finna fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir ekki. Líf og lyst Holl brauð við hendina Það þarf ekki að ráðast í bakstur brauða sem búin eru til upp úr flóknum uppskriftum. Oftast nær er þó hráefnalistinn nokkuð lang- ur en hér eru tvær uppskriftir að hollum brauðum sem eru einföld í lögun og sem gott er að eiga til í brauðboxinu. Hrökkbrauð Aðferð: Setjið allt hráefnið í skál og hrærið með sleif. Ef deigið er þunnt er gott að láta það standa aðeins því þá drekka fræin í sig vökvann. Setjið helminginn af deiginu á bökunar- pappír og annað blað af pappír yfir og rúllið með kökukefli. Þessi upp- skrift passar á tvær plötur. Bakið í 15 – 20 mínútur á 200°C. Hollustubrauð Aðferð: Blandið öllu hráefninu vel saman í skál og látið standa í örlitla stund. Hægt er að setja allt deigið í ílangt form (brauðform) og þá skal baka það í eina klukkustund við 200°C en ef búnar eru til litlar bollur úr deiginu er það bakað í 40 mínútur við 200°C. /ehg MATARKRÓKURINN Þetta hrökkbrauð er dásamlegt að eiga í skál í eldhúsinu og grípa í þegar hungrið segir til sín. 7 Bærinn okkar Giljur Gunnar, María og Kristín Ólafsbörn ásamt Ólafi Péturssyni afa sínum, fyrrum bónda á Giljum. Ólafur er 101 árs gamall og býr enn í eigin húsi á Giljum.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.