Fréttablaðið - 11.01.2012, Qupperneq 2
11. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR2
Tenerife
14. febrúar í 7 nætur
Frá kr. 119.900 með „öllu inniföldu“
Heimsferðir bjóða frábært verð á allra síðustu sætunum til Tenerife 14. febrúar
Í boði er einkar hagstætt verð á Villa Adeje Beach íbúðahótelinu með öllu inniföldu.
Athugið að mjög takmörkuð gisting er í boði! Einnig önnur gisting í boði á afar
hagstæðum kjörum.
Frá kr. 119.900 Villa Adeje Beach *** með “öllu inniföldu”
Netverð á mann m.v. tvo fullorðna í búð með allt innifalið.
STJÓRNMÁL Þór Saari, alþingis-
maður Hreyfingarinnar, telur að
koma ætti upp sama fyrirkomulagi
við sölu stangveiðileyfa og er við
úthlutun veiðileyfa á hreindýrum.
Á spjallsvæði Stangaveiðifélags
Reykjavíkur segir Þór stanga-
veiðimarkaðinn
einkennast af
því að framboð
af ám sé tak-
markað. Verð-
ið hafi hækkað
gríðarlega því
eftirspurnin
sé mikil. „Slík
náttúruleg
fákeppni – jafn-
vel einokun – er almennt litin
hornauga af samkeppnisyfirvöld-
um flestra landa og það er reynt
að tryggja hag neytenda,“ skrifar
Þór sem kveður veiðirétt í ám og
vötnum eiga að vera almannarétt-
ur sem yrði svo úthlutað með sams
konar hætti og hreindýraleyfum.
„Veiðiám yrði skipt upp í mis-
munandi flokka, verðin gerð
aðgengileg fyrir almenning og
síðan úthlutað úr potti samkvæmt
því. Veiðiréttar„eigendur“ fengju
borgað – en ekki eins mikið – og
gætu hagnast áfram á sölu gisting-
ar og fæðis,“ segir Þór.
„Enginn á íslenska náttúru og
þó bændur hafi nýtingarrétt á ám
þá er gróðahugsjónin í því geimi
komin alveg út úr kortinu,“ skrifar
Þór sem telur þörf á að hugsa um
stangveiði og hlunnindanýtingu út
frá öðrum forsendum en hámarks-
gróða fyrir nýtingarréttarhafann.
Margir taka þátt í umræðunni á
vef Stangaveiðifélagsins. „Sjálfur
er ég þeirrar skoðunar að „útlend-
ingarnir“ séu ekki komnir til að
vera og þegar harðnar enn meira
á dalnum í evrulandi þá muni þeir
halda að sér höndum og þegar
krónan okkar styrkist þá verð-
ur þetta enn erfiðara fyrir þá
útlensku,“ skrifar Bjarni Júlíus-
son, formaður félagsins.
Stefán Páll Ágústsson segir
hugmyndir um þjóðnýtingu veiði-
hlunninda ekki nýja. Auðvitað
vilji allir geta keypt góð veiðileyfi
á mun lægra verði en nú þurfi að
að borga. „Við myndum líka vilja
geta keypt betri bíla og stærra
húsnæði á miklu lægra verði en
okkur býðst nú. Hvaða handstýr-
ingar vilja menn setja á slík við-
skipti?“ spyr Stefán Páll.
Í samtali við Fréttablaðið seg-
ist Þór alls ekki vera að óska eftir
þjóðnýtingu á landi bænda. „Hugs-
unin á bak við þetta er miklu djúp-
stæðari en að ég vilji sjálfur getað
keypt mér ódýrari veiðileyfi. Þetta
snýst um það hvort einhver geti átt
landið og átt náttúruna og hvern-
ig eigi að ráðstafa aðgangi að nátt-
úrugæðum. Það er réttlætissjónar-
mið að íslenskir veiðimenn séu
ekki hraktir út í að aðkoma þeirra
að íslenskum veiðiám sé sú að
þjóna útlendum auðjöfrum sem
leiðsögumenn.“
gar@frettabladid.is
Veiðileyfum í vötnum
og ám verði úthlutað
Þingmaðurinn Þór Saari segir gróðahyggjuna komna út úr korti í stangveiði.
Venjulegir veiðimenn hrekist burt. Gera ætti veiðirétt að almannarétti og út-
hluta stangveiðileyfum á sama hátt og nú er með hreindýraveiðileyfi.
ÞÓR SAARI
LAXÁRDALUR Þór Saari bendir á að leyfi í urrriðaveiði í Laxá í Laxárdal hafi kostað 17
þúsund krónur fyrir örfáum árum en kosti nú hátt í 50 þúsund.
Veiðiám yrði skipt
upp í mismunandi
flokka, verðin gerð aðgengi-
leg fyrir almenning og síðan
úthlutað úr potti samkvæmt
því.
ÞÓR SAARI
ALÞINGISMAÐUR HREYFINGARINNAR
DÓMSMÁL Hvorki Lárus Welding,
fyrrverandi forstjóri Glitnis, né
Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi
yfirmaður fyrirtækjasviðs bank-
ans, mættu við þingfestu ákæru
sérstaks saksóknara á hendur
þeim í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Verjendur þeirra létu dómn-
um hins vegar í té yfirlýsingar þar
sem tvímenningarnir lýsa yfir sak-
leysi sínu.
Lárus og Guðmundur eru ákærð-
ir fyrir umboðssvik gagnvart hlut-
höfum í Glitni, með því að hafa
lánað Milestone um tíu milljarða
snemma árs 2008 án fullnægjandi
trygginga. Lánið er talið hafa verið
veitt svo Milestone gæti staðið í
skilum við bandaríska bankann
Morgan Stanley, sem ella hefði
gengið að hlutabréfum Milestone í
Glitni og sett þau á markað.
Lárus býr erlendis og stundar þar
nám og Guðmundur er einnig stadd-
ur erlendis um þessar mundir.
Þórður Bogason, lögmaður Guð-
mundar, óskaði eftir því við þing-
festinguna að saksóknari legði fram
alla símhlerunarúrskurði gagnvart
skjólstæðingi hans, en saksóknari
svaraði því að engir slíkir úrskurð-
ir væru til. Hann vildi ekki svara
þeirri spurningu fréttamanna hvort
sími Lárusar hefði verið hleraður.
Verjendur hafa frest til 28. febrú-
ar til að skila greinargerðum. - sh
Sakborningar í máli sérstaks saksóknara gáfu yfirlýsingar frá útlöndum:
Lárus og Guðmundur neita sök
LÁRUS WELDINGGUÐMUNDUR
HJALTASON
Áslaug, hafa íslenskar stelpur
skipt út rokknum fyrir rokkið?
„Ja, það er nú trylltur spuni í rokk-
inu líka.“
Áslaug Einarsdóttir stendur fyrir rokk-
búðum fyrir stelpur á aldrinum 12 til 16
ára í sumar.
SÝRLAND, AP Sýrlandsforseti
kveðst enn hafa stuðning þjóðar
sinnar og ætlar ekki að láta af
embætti.
„Við lýsum
brátt yfir
sigri,“ sagði
Assad Sýr-
landsforseti
í ræðu sem
sjónvarpað
var beint frá
Damaskus-
háskóla í gær.
„Þegar ég læt
af embætti verður sú ákvörðun
líka byggð á vilja fólksins.“
Ræðan er sú fyrsta sem for-
setinn flytur eftir að hafa í síð-
asta mánuði látið undan þrýst-
ingi Arababandalagsins um að
hætta árásum stjórnvalda á mót-
mælendur. Hann áréttaði full-
yrðingar sínar um að óróinn í
landinu væri af völdum erlends
samsæris og yrði brátt að baki.
- óká
Ræða í beinni útsendingu:
Assad ætlar
ekki að hætta
BASHAR AL-ASSAD
FINNLAND, AP Guggenheim-stofn-
unin bandaríska hefur lagt til
byggingu safns í Helsinki, höfuð-
borg Finnlands.
Stofnunin segir að listasafn í
Helsinki yrði „markvert fram-
lag“ til menningarlífs á Norður-
löndum og í Eystrasaltslöndun-
um, fái bygging þess samþykki
borgaryfirvalda. Ákvörðun verð-
ur tekin í borgarstjórn í næsta
mánuði.
Guggenheim-stofnunin rekur
nokkur söfn víða um heim, þar
á meðal í Þýskalandi, á Ítalíu,
Spáni og eitt sem er í byggingu í
Abu Dhabi. - óká
Markvert menningarframlag:
Hugleiða safn
í Helsinkiborg
Í HELSINKI Áætlað er að bygging
Guggenheimsafns í Helsinki kosti 140
milljónir evra, eða um 22 milljarða
króna. NORDICPHOTOS/AFP
BANDARÍKIN Margfalt meiri hætta
er á því að fólk fái hjartaáfall í
kjölfar mikillar sorgar en ella.
Fyrsta sólarhringinn eftir að
hafa misst einhvern nákominn
er fólk 21 sinni líklegra til að
fá áfall og sex sinnum líklegra
fyrstu vikuna.
Þetta eru niðurstöður rann-
sóknar sem gerð var undir
stjórn doktors hjá læknadeild
Harvard-háskóla. Aðstæður
tæplega 2.000 manns sem höfðu
lifað af hjartaáfall voru skoð-
aðar.
Rannsakendur minna þó á að
undirliggjandi hjartasjúkdómar
séu venjulega til staðar þegar
streita leiðir til hjartaáfalls, líkt
og hjá syrgjendum. - þeb
Rannsókn í Bandaríkjunum:
Syrgjendur fá
frekar áfall
TÆKNI Sjónvarpsframleiðandinn
Samsung hefur kynnt nýja teg-
und af nettengdum sjónvörpum
sem eru með stýrikerfi sem hægt
er að uppfæra. Með þessu vill
fyrirtækið fullvissa kaupendur
um að sjónvörpin verði ekki úrelt
í bráð, að því er segir í frétt BBC.
Væntanlegir eigendur þessa
nýja snjallsjónvarps munu geta
skoðað netið með handahreyf-
ingum frá sjónvarpssófanum og
skipt um stöðvar með því að tala
við tækið á einhverju af þeim 20
tungumálum sem það skilur.
Þá mun sjónvarpið þekkja not-
endur í sundur og geta lagað sig
að kröfum hvers áhorfanda. - bj
Samsung kynnir nýtt sjónvarp:
Hægt að upp-
færa stýrikerfi
VEÐUR Truflanir urðu á dreifikerfi Landsnets í gær-
kvöldi vegna óveðurs sem gekk yfir landið í gær,
sem aftur olli því að rafmagn fór af álverinu og járn-
blendiverksmiðjunni á Grundartanga, Hellisheiðar-
virkjun og sjónvarpsútsendingar lágu niðri um tíma.
Rafmagn var ekki komið á álverið á Grundartanga
þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi en vonast
var til að hægt yrði að koma því á fljótlega svo afstýra
mætti stórtjóni. Rafmagn fór af víðar á landinu og var
skammtað annars staðar.
Vonskuveður var um land allt í gær og tjón varð
víða. Á Austurlandi fuku þakplötur af húsum og
gáma tók af skipi á leið að Grundartanga í Hvalfirði.
Allt innanlandsflug lá niðri vegna veðursins og
fjöldi vega um land allt var ófær. Hellisheiði var
lokuð frá því í fyrrakvöld og útlit var fyrir að hún
yrði ekki opnuð að nýju fyrr en í dag. Þar fór vind-
hraði í þrjátíu metra á sekúndu í hviðum. Fjögur ár
eru síðan heiðin hefur verið lokuð jafnlengi.
Á höfuðborgarsvæðinu hafði lögreglan í nógu að
snúast, bílar festust og rákust hver á annan og ollu
reglulega umferðaröngþveiti. Þá rifnuðu tré upp
með rótum og rafmagn fór af umferðarljósum í mið-
borginni. Í gærkvöldi var búist við því að veðrið yrði
gengið niður fljótlega eftir miðnætti þótt hvasst yrði
fram undir hádegi norðaustanlands. Spáð er skap-
legu veðri næstu tvo daga en umhleypingum um
helgina. - sh
Hvassviðri og ofankoma gerði óskunda á landinu öllu í gær:
Illviðrið sló út rafmagni víða
BLINDBYLUR Þessir krakkar voru eflaust öllu lengur en
venjulega á leið sinni heim úr skólanum í vonskuveðrinu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
VÍSINDI Ný gögn sýna að risa-
skjaldbökur, sem talið var að hafi
orðið útdauðar fyrir 150 árum,
séu enn á lífi, eða hafi verið það
fyrir fimmtán árum.
Við rannsóknir á skyldri teg-
und skjaldbaka á Galapagos-
eyjunum hafa fundist nokkrar
skjaldbökur sem eru blending-
ar þeirrar tegundar og útdauðu
tegundarinnar. Sumir blending-
anna eru um 15 ára, sem staðfest-
ir að skjaldbökurnar sem áður
voru taldar útdauðar eignuðust
afkvæmi fyrir 15 árum. - bj
Merki um útdauða tegund:
Risaskjaldbökur
eiga afkvæmi
SPURNING DAGSINS