Fréttablaðið - 11.01.2012, Side 4

Fréttablaðið - 11.01.2012, Side 4
11. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR4 Ég var ekki látin vita af þessu, mér var ekki gert viðvart. ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR FYRRVERANDI HEILBRIGÐISRÁÐHERRA HEILBRIGÐISMÁL „Mér er algjörlega misboðið með þessari ákvörðun. Hún er vissulega fyrsta skref, en þetta er hluti af svo miklu stærra og meira máli,“ segir Álfheiður Ingadóttir, formaður velferðar- nefndar Alþingis og fyrrverandi heilbrigðisráðherra. Að mati Álfheiðar á umsvifa- laust að bjóða öllum konum með P.I.P. brjóstafyllingar að láta fjar- lægja púðana þeim að kostnaðar- lausu. Kostnaðinn eigi ríkið svo að sækja á það fyrirtæki sem flutti inn púðana annars vegar, og setti þá í konurnar hins vegar. Í þessu tilviki er þetta einn og sami aðil- inn, Jens Kjartansson, lýtalæknir og yfirlæknir lýtalækningadeilda á Landspítalanum. Ríkisstjórnin ákvað í gær að bjóða öllum þeim 440 konum sem fengið hafa P.I.P. púðana á árunum 2000 til 2010 og eru með íslensk- ar sjúkratryggingar að koma í ómskoðun sér að kostnaðarlausu til að kanna ástand púðana. Séu púð- arnir lekir tekur ríkið þátt í kostn- aði við að fjarlægja þá. Áætlaður heildarkostnaður vegna þessa er á bilinu 800.000 til 6.000.000 króna. Álfheiður var heilbrigðisráð- herra í apríl árið 2010, en þá barst landlæknisembættinu tilkynning um að P.I.P. púðarnir hefðu verið teknir af markaði í Evrópu. Þeir hafa þó verið bannaðir í Banda- ríkjunum síðustu tíu ár. Embættið hafði eftir litsskyldu með innflutt- um læknavörum á þeim tíma, en nú er það í höndum Lyfjastofnunar. Geir Gunnlaugsson landlækn- ir segist hafa tekið þá ákvörðun þegar tilkynningin barst árið 2010 að senda út bréf til allra lýtalækna og láta það í þeirra hendur að veita sjúklingum sínum upplýsingarnar. Hann veit ekki til þess að púðarnir hafi verið settir í eftir að upplýs- ingarnar bárust. Álfheiði barst ekki tilkynning um málið í sinni ráðherratíð. „Ég var ekki látin vita af þessu máli, mér var ekki gert viðvart,“ segir hún. „En mér þykja það mjög mikil tíðindi að púðarnir hafi verið bannaðir í tíu ár í Bandaríkjunum. Mér þykir afar skrýtið að það bann hafi ekki borist hingað fyrr en árið 2010.“ Í Fréttablaðinu í febrúar á síðasta ári kom fram að landlæknir hafi ekki upplýsingar um brjóstastækk- anir sem gerðar eru á Íslandi. Þar er haft eftir landlækni að verið sé að kalla eftir þeim upplýsingum, en það gangi treglega að fá þær. Geir segir að nú hljóti sérfræð- ingar að sjá að það liggi á upplýs- ingunum í ljósi umræðunnar. „Við vonumst til þess að vera búin að fá þessar upplýsingar í vikulok,“ segir hann. sunna@frettabladid.is GENGIÐ 10.01.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 217,9961 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 123,43 124,01 190,91 191,83 157,90 158,78 21,230 21,354 20,607 20,729 17,889 17,993 1,6053 1,6147 188,79 189,91 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512- 5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is facebook.com/siminn.is 50% afslátturaf öllu leigðu efni í Sjónvarpi Símans DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað- fest gæsluvarðhaldsúrskurð Hér- aðsdóms Reykjavíkur yfir karl- manni sem er grunaður um að hafa smyglað um tíu kílóum af amfetamíni, rúmlega átta þúsund MDM- töflum og umtalsverðu magni af sterum til landsins. Manninum er gert að sæta gæsluvarðhaldi til 31. janúar. Hann er sakaður um að hafa reynt að smygla fíkniefnum til Straumsvíkur frá Hollandi í októ- ber á síðasta ári. Tveir menn sitja í gæsluvarð- haldi vegna málsins. - jss Grunaður um eiturlyfjasmygl: Gæsluvarðhald framlengt Álfheiði misbýður lausn ríkisins vegna sílíkonpúða Formaður velferðarnefndar og fyrrverandi heilbrigðisráðherra telur að ríkið ætti að bjóða öllum konum með P.I.P. fyllingar að láta fjarlægja þær þeim að kostnaðarlausu. Landlæknir vissi af gallanum árið 2010. SÍLÍKONHAUGUR Í SUÐUR-FRAKKLANDI Efnt var til mótmæla við höfuðstöðvar Poly Implant Prostheses (PIP) í Suður-Frakklandi síðasta vor. Ríkisstjórnin ákvað í gær að bjóða þeim 440 konum sem fengið hafa P.I.P. brjóstafyllingar og eru tryggðar að koma í ókeypis ómskoðun til að skoða púðana og láta fjarlægja þá séu þeir lekir. NORDICPHOTOS/AFP VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 17° 6° 8° 8° 8° 6° 7° 7° 22° 11° 17° 8° 23° 0° 9° 15° 4°Á MORGUN Hæg vestlæg eða breytileg átt, vaxandi vindur um kvöldið. FÖSTUDAGUR Strekkingur V-lands annars hægari. 3 54 6 5 -6 -5 -5 -5-5 0 1 -2 -1 -3 -3 -4 -5 -2 -1 -9 6 8 7 5 6 12 7 23 7 185 11 4 FROST OG ÞÍÐA Það lítur út fyrir frost á landinu í dag og á morgun en svo hláku þegar kemur fram á föstudag. Sunnan og vestan til verður einnig talsverð rigning og þar má því búast við asa- hláku. Hvort hlákan dugar til að taka upp snjó og klaka er alls óvíst. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður MENNTUN Nýr leikskóli verður formlega tekinn í notkun í Garða- bæ í dag. Fyrstu börnin hafa þó verið þar frá því á mánudag. Leikskólinn Akrar er eini leik- skólinn á höfuðborgarsvæðinu sem hefur verið í byggingu und- anfarið ár, en hann er 814 fer- metrar og hefur verið rúmt ár í byggingu. Með tilkomu nýja leikskól- ans verður áfram hægt að bjóða öllum börnum leikskólapláss um átján mánaða aldur. Um hundrað börn munu geta verið í leikskól- anum, í fjórum deildum. - þeb Tekinn í notkun í Garðabæ: Hundrað börn í nýjum leikskóla LEIKSKÓLABÖRN Fjórar deildir fyrir 100 börn verða í leikskólanum Ökrum. HEILBRIGÐISMÁL Oddfellowreglan hefur undirritað viljayfirlýsingu um að regl- an færi Landspítalanum að gjöf fram- kvæmdir við líknardeildina í Kópavogi. Eins og komið hefur fram í Frétta- blaðinu á að sameina starfsemi líknar- deildanna á Landakoti og í Kópavogi með fjölgun rúma í Kópavogi. Við samein- inguna fækkar þó rúmum í heild. Að því er kemur fram í frétt Oddfellow reglunnar varð líknardeildin í Kópavogi að veruleika 1. ágúst 1997 fyrir tilstilli reglunnar á 100 ára afmæli hennar. „Hún hefur síðan komið með öfl- ugum hætti að stækkun deildarinnar, opnun dag- og göngudeildar hennar og gerð kapellunnar þar,“ segir á vefsíðu Oddfellowa. Eins og við fyrri áfanga líknardeildarinnar mun Oddfellowregl- an taka að sér að framkvæma og kosta nauðsynlegar breytingar á húsi átta, þar sem verður dag- og göngudeild, og á húsi níu þar sem verður legudeild. Þetta verð- ur gert í samráði við starfsmenn rekstr- arsviðs Landspítala sem einnig leggur til hönnun breytinganna og nauðsynlegar framkvæmdir utanhúss. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við hús níu ljúki 1. apríl næstkomandi og að við hús átta verði verklok 1. október á þessu ári. Heildarkostnaðurinn er áætl- aður 101 milljón króna. - gar Landspítalinn fær öflugan stuðning Oddfellow-reglunnar við stækkun líknardeildar sinnar í Kópavogi: Gefur vinnu og búnað í 101 milljónar framkvæmd LÍKNARDEILDIN Í KÓPAVOGI Oddfellow-reglan hefur haft veg og vanda af uppbyggingu líknardeildar í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.