Fréttablaðið - 11.01.2012, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 11. janúar 2012 11
HEATHROW Smygl á 63 skammbyssum
til Bretlands er litið alvarlegum augum í
Bandaríkjunum. NORDICPHOTOS/A
BANDARÍKIN, AP Fyrrverandi land-
gönguliði í Bandaríkjaher á yfir
höfði sér allt að 30 ára fangelsi
fyrir smygl á skammbyssum til
Bretlands. Maðurinn, sem heitir
Steven Neal Greenoe, játaði
brot sitt, en hann bíður dóms í
Greenville í Norður-Karólínu í
Bandaríkjunum.
Saksóknari segir manninn
hafa falið 63 skammbyssur í far-
angri sínum í nokkrum flugferð-
um til Bretlands, en þar seldi
hann vopnin. Bent er á að fátítt
sé að breskir lögreglumenn
beri vopn og það auki alvarleika
brotsins. - óká
Smyglaði byssum í flugi:
Gæti setið inni
í allt að 30 ár
DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu hefur ákært
meintan dópsala fyrir Héraðs-
dómi Reykjaness.
Manninum er gefið að sök að
hafa í maí á síðasta ári verið með
rúmlega níutíu grömm af mar-
ijúana og tóbaksblandað kanna-
bisefni sem hann ætlaði að selja.
Efnin fundust við húsleit lög-
reglu á heimili hans í Kópavogi.
Þá reyndist maðurinn einnig vera
með fimmtán þúsund krónur í
reiðufé sem hann hafði fengið
fyrir fíkniefni.
Ákæruvaldið krefst þess að
hann verði dæmdur til refsingar
og að fíkniefnin og fjármunirnir
verði gerð upptæk. - jss
Með dóp og fjármuni:
Ákærður fyrir
fíkniefnasölu
GRÆNLAND Leif Fontaine, for-
maður Samtaka sjómanna og
veiðimanna á Grænlandi, segir
fjölgun sela við landið vera tif-
andi sprengju.
Hann segir fæðuna við norður-
pólinn ekki vera nóga fyrir þær
milljónir sela sem séu á svæðinu
vegna banns Evrópusambands-
ins við viðskiptum með sela-
afurðir.
Að sögn formannsins má sjá
sel um allt norðurskautið.
Hann vill að dönsk yfirvöld
þrýsti á Evrópusambandið í þeim
tilgangi að aflétta banninu sem
hafi áhrif á viðskipti með sela-
afurðir um allan heim. - ibs
Grænlendingar áhyggjufullir:
Fjöldi sela tif-
andi sprengja
ALMANNATRYGGINGAR Útgjöld vegna bóta
almannatrygginga jukust um 12,6 millj-
arða króna árið 2011 miðað við árið á
undan eða um 23 prósent samkvæmt
bráðabirgðauppgjöri. Alls námu heildar-
útgjöldin um 67,2 milljörðum, að því er
kemur fram á vef velferðarráðuneytisins.
Skýringar á auknum útgjöldum eru
sagðar þríþættar. Í fyrsta lagi ákváðu
stjórnvöld að hækka bætur lífeyrisþega í
tengslum við kjarasamninga á almennum
vinnumarkaði í vor. Útgjöld vegna þess
námu rúmum sex milljörðum króna. Í
því fólst hækkun bóta um 8,1 prósent og
50.000 króna eingreiðsla til lífeyrisþega í
júní síðastliðnum auk sérstaks álags sem
bættist á orlofs- og desemberuppbót líf-
eyrisþega.
Í öðru lagi skýrast aukin útgjöld af því
að fjármagnstekjur lífeyrisþega og tekjur
þeirra úr lífeyrissjóðum hafa lækkað. Þar
með hefur réttur þeirra til bóta almanna-
trygginga aukist.
Í þriðja lagi fjölgaði ellilífeyrisþegum
um 4,6 prósent frá árinu 2010 til 2011. Sú
fjölgun skýrist annars vegar af hækkandi
meðalaldri þjóðarinnar og hins vegar af
því að fleiri eiga nú rétt til almannatrygg-
inga en áður vegna fyrrnefndrar tekju-
skerðingar. - ibs
Útgjöld vegna bóta almannatrygginga jukust um 23 prósent milli ára:
Heildarútgjöld Tryggingastofnunar 67,2 milljarðar
TRYGGINGASTOFNUN Útgjöld til bóta vegna almannatrygg-
inga jukust um 12,6 milljarða.
Ofurpotturinn stefnir í 3.450 milljónir.
Ekki gleyma að vera með, fáðu þér
miða fyrir klukkan fimm í dag á
næsta sölustað eða á lotto.is
FYRSTI VINNINGUR
STEFNIR Í
250 MILLJÓNIR
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM!
MIÐINN GILDIR 11. JANÚAR 2012
A. 12 14 17 21 41 48
B. 05 16 23 36 37 38
C. 07 09 13 22 34 38
D. 03 06 19 24 25 31
E. 11 19 21 25 38 42
F. 01 25 35 36 39 46
G. 18 19 20 23 28 46
H. 22 27 29 39 40 42
SÖ
LU
LÝ
KU
R
KL
. 1
7
LÖGREGLUMÁL Líkamsárás var
nýverið kærð til lögreglunnar í
Vestmannaeyjum.
Að sögn lögreglu átti árásin sér
stað í heimahúsi í bænum. Þar
hafði maður, sem var gestkom-
andi á heimilinu, orðið fyrir árás.
Hann mun hafa verið sleginn í
höfuðið með flösku. Afleiðingarn-
ar voru þær að maðurinn hlaut
skurð á höfði sem þurfti að loka
með sjö sporum.
Ástæða árásarinnar er enn
óljós en lögreglan í Vestmanna-
eyjum rannsakar málið. - jss
Líkamsárás kærð í Eyjum:
Sleginn með
flösku í höfuð