Fréttablaðið - 11.01.2012, Síða 14
11. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR14
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Leikfélag Reykjavíkur var stofnað þennan
mánaðardag árið 1897 er tveir hópar
áhugamanna um leiklist sameinuðu
krafta sína. Félagið er elsta leikfélag sem
starfað hefur óslitið á Íslandi og jafn-
framt eitt elsta starfandi menningarfélag
landsins.
Helsti hvatinn að stofnun þess var
bygging Iðnaðarmannahússins við
Tjörnina sem í daglegu tali var kallað
Iðnó.
Allir stofnendur Leikfélags Reykjavíkur
voru áhugamenn og því fóru æfingar og
allt starf leikhússins fram utan venjulegs
vinnutíma.
Fyrsta frumsýning félagsins var í
desember 1897 í hinu nýja húsi Iðnó.
Þá voru frumsýnd tvö dönsk leikverk
með söngvum, Ferðaævintýrið eftir A. L.
Arnesen og Ævintýri í Rósenborgargarði
eftir Johan Ludvig Heiberg í leikstjórn
Indriða Einarssonar.
ÞETTA GERÐIST: 11. JANÚAR 1897
Leikfélag Reykjavíkur var stofnað
STEINÞÓR SIGURÐSSON náttúrufræðingur (1904-1947) fæddist þennan dag.
„Það verður að teljast skylda okkar sem menningarþjóðar að
þekkja sem ítrast okkar eigið land.“
Merkisatburðir
1922 Insúlín er notað í fyrsta sinn til að vinna á sykursýki í
manni.
1935 Amelia Earhart verður fyrst kvenna til að fljúga einmenn-
ingsflug frá Havaí til Kalíforníu.
1944 Togarinn Max Pemberton frá Reykjavík ferst með allri
áhöfn, 29 manns.
1972 Austur-Pakistan verður Bangladess.
1973 Réttarhöld í Watergate-málinu hefjast.
1974 Fyrstu sexburar sem lifa af fæðast í Höfðaborg í Suður-Afr-
íku.
1980 Nigel Short, fjórtán ára, verður yngsti alþjóðlegi skákmeist-
ari heims.
Okkar ástkæra
Magnea Hrönn
Stefánsdóttir
Austurgerði 5, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn
4. janúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju, fimmtu-
daginn 12. janúar nk. kl. 13.00.
Jón Höskuldsson
Kristín Jónsdóttir Heiðar Ingi Ólafsson
Mikael Bjarki Heiðarsson
Guðríður Jónsdóttir Egill Einarsson
Jón Stefán Sigurbjörnsson Marín Hallfríður Ragnarsdóttir
Salbjörg J. Thorarensen
Stefán Már Stefánsson Lára Margrét Traustadóttir
Höskuldur Jónsson Guðríður Jónsdóttir
Yndislegur eiginmaður minn,
faðir okkar, sonur, bróðir,
barnabarn og tengdasonur,
Valdimar Viðar Tómasson
Fjallalind 147, Kópavogi,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut
að morgni 7. janúar.
Anna Karen Kristjánsdóttir
Tómas Hrói Viðarsson
Kristján Ari Viðarsson
Steinar Viðarsson
Tómas Sveinbjörnsson
Sigurður S. Tómasson Eva María Grétarsdóttir
Pétur Valdimarsson
Anna Lára Hertervig
Kristján Halldórsson Olga Guðnadóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn,
Guðmundur Gíslason
lést 7. janúar síðastliðinn.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Erna Adolphsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sólveig Guttormsdóttir
Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi,
sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Akranesi, laugardaginn 7. janúar, verður jarðsungin frá
Borgarneskirkju laugardaginn 14. janúar kl. 14.00.
Kristín Finndís Jónsdóttir
Jón Helgi Jónsson Ragna Sólveig Eyjólfsdóttir
Gunnar Magnús Jónsson María Stefánsdóttir
og ömmubörn.
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar systur
minnar, mágkonu og frænku okkar,
Önnu Steinunnar
Sigurðardóttur
Drápuhlíð 39.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Reykjavík
fyrir hlýhug og góða umönnun.
Flosi Hrafn Sigurðsson Hulda Sigfúsdóttir
Ágústa Lyons Flosadóttir
Sigurður Flosason
Þrítugasta vetrarmót norrænna jarð-
fræðinga stendur nú yfir í Hörpu og
sækja það um 300 manns. Mótin eru
haldin á tveggja ára fresti á Norður-
löndunum fimm, þannig að tíunda hvert
ár koma þau í hlut Íslendinga. „Þessi
þing varpa góðu ljósi á fjölbreytileika
og gæði rannsókna sem fara fram á
Norðurlöndunum,“ segir doktor Þor-
steinn Sæmundsson, formaður Jarð-
fræðafélags Íslands. Sjö meginþemu
eru á ráðstefnunni og undir þeim rúm-
lega 30 undirþemu eftir umfjöllunar-
efnum, að sögn Þorsteins sem telur upp
ísaldarjarðfræði, eldfjallafræði, jökla-
fræði, landmótunarfræði, veðurfræði
og jarðskjálfta. „Það eru öll jarðvísindi
undir. Við erum líka að tala um olíujarð-
fræði, jarðhitann og fleira. Það er bara
verst að geta ekki hlýtt á öll erindin,
þau eru svo fróðleg.“
Af spennandi rannsóknum sem
fjallað er um á ráðstefnunni nefn-
ir Þorsteinn eina sem Jan Mangerud,
prófessor frá Bergen, lýsti í allsherjar-
fyrirlestri í gær sem allir gestirnir
gátu setið. „Við Úralfjöllin hafa fundist
33 þúsund ára mannvistarleifar norðan
við heimskautsbaug og spurningin er
hvort þar hafi nútímamaðurinn verið á
ferð eða Neanderdalsmaðurinn. Þetta
er langt norðan við þau mörk sem talið
er að Neanderdalsmaðurinn hafi búið
á í Evrópu.“
Annar allsherjarfyrirlestur var um
veðurfars- og sjávarstöðubreytingar
sem hinn þýski Stefan Rahmstorf hélt.
„Rahmstorf er einn allra fremsti vís-
indamaður heims í sínu fagi og það var
mjög gaman að fá hann hingað,“ segir
Þorsteinn. Hann gleymir heldur ekki
íslensku kollegunum, Magnúsi Tuma
Guðmundssyni sem var með fyrirlest-
ur um áhrif sprengigosa, Helga Björns-
syni sem fjallaði um jöklarannsóknir á
Íslandi og útlitið í upphafi 21. aldar né
Þóru Árnadóttur sem heldur fyrirlestur
á morgun um aflögun jarðskorpunnar á
Íslandi. „Svo hélt forsetinn okkar, Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, flotta ræðu við
setningu mótsins. Það hefði mátt halda
að hann væri jarðfræðingur þegar hann
stóð í pontu.“
Þrjár ferðir eru skipulagðar í dag til
að gefa mótsgestum kost á að sjá Ísland
í vetrarklæðnaði, á Reykjanesið, að
Eyjafjallajökli og um gullna hringinn.
„Það er erfitt að skipuleggja janúarferð-
ir um Ísland löngu fyrirfram en veðr-
ið virðist ætla að leika við okkur, sam-
kvæmt spánni,“ segir Þorsteinn. „Nú
verðum við bara að vona að vegirnir
séu færir.“ gun@frettabladid.is
DR. ÞORSTEINN SÆMUNDSSON: 30. VETRARMÓT NORRÆNNA JARÐFRÆÐINGA
Verst að geta ekki hlýtt á öll
erindin, þau eru svo fróðleg
DR. ÞORSTEINN SÆMUNDSSON „Þingið varpar góðu ljósi á fjölbreytileika og gæði rannsókna
sem fara fram á Norðurlöndunum,“ segir Þorsteinn um þrjátíu ára afmælismót norrænna
jarðfræðinga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN