Fréttablaðið - 11.01.2012, Page 25
KYNNING − AUGLÝSING Nýir bílar11. JANÚAR 2012 MIÐVIKUDAGUR 5
Lúxusjeppinn er nú með hagkvæma og umhverfismilda vél en nokkru sinni. M 250 BlueTEC er með sparneytinni,
fjögurra strokka dísilvél. Hún uppfyllir EU6
mengunarreglugerðina eins og vélin í 350
Blue TEC gerir sömuleiðis en hún er endur-
hönnuð 3,0 lítra V6 dísilvél. Báðar gerðirnar
eru sparneytnari en engu að síður aflmeiri
en fyrri gerðir. M 250 BlueTEC 4MATIC
eyðir einungis rúmum sex lítrum á hundr-
aðið sem er 2,4 lítrum minni eyðsla en hjá
fyrri gerð. Koltvísýringslosunin er einung-
is 164 g/km sem er talsvert minna en hjá
öðrum jeppum í þessum stærðarflokki. M
250 BlueTEC er því í mjög hagstæðum vöru-
gjaldaflokki hér á landi vegna þess hve um-
hverfisvænn hann er. Jeppinn kemst 1500
km á einum, 93 lítra tanki, sem skilar
honum hringinn í kringum Ísland og gott
betur. Samt er jeppinn með krafta í köggl-
um því vélin skilar 204 hestöflum og togið
er 500 Nm. Stærri dísilvélin skilar heilum
258 hestöflum en eyðir aðeins 7,4 lítrum í
blönduðum akstri.
„Mercedes-Benz hefur náð þessum at-
hyglisverða árangri með nýrri kynslóð
BlueTEC-dísilvéla og BlueDIRECT-bens-
ínvéla með SCR-útblástursbúnaði,“ segir
Sigurður Pálmar Sigfússon, sölustjóri
Mercedes-Benz hjá Öskju. Sigurður segir að
M-Class hafi verið mjög vinsæll á Íslandi.
Nú þegar sé mikill áhugi á nýju kynslóð-
inni og eftirspurnin mikil. Við erum búin
að selja um tíu M-Class þótt enn hafi jepp-
inn ekki verið kynntur hér á landi,“ segir
Sigurður. Hann segir að grunnverðið á M
250 BlueTec sé 10.590.000 kr. en M 350 Blue-
Tec kostar frá kr. 11.790.000 kr.
Mikill staðalbúnaður
Sigurður segir að nýja kynslóðin af M-lín-
unni sé með óvenju mikið farangursrými
og það mesta í flokki lúxusjeppa. „Staðal-
búnaður í öllum gerðum M-línunnar er nú
ECO start/stop aðgerð sem drepur á vélinni
t.a.m. þegar stöðvað er á rauðu ljósi. Þessi
búnaður ásamt nýrri sjö þrepa 7G-TRONIC
PLUS sjálfskiptingu og yfirbyggingu sem
hefur lægstu loftmótstöðu í f lokki jeppa,
stuðlar að enn frekari eldsneytissparnaði.
Þá er 4MATIC-kerfið einnig staðalbúnað-
ur en það deilir vélarafli og snúningsvægi
til allra fjögurra hjóla bílsins eftir þörfum
hverju sinni. Þetta á jafnt við þegar ekið er
á bundnu slitlagi sem í torfærum. 4MATIC-
kerfið bætir veggrip og stefnustöðugleika
bílsins og eykur snerpu hans og öryggi í
akstri. Þá er fáanlegur ýmis aukabúnaður í
allar gerðir M-línunnar m.a. nýtt fjöðrun-
arkerfi sem er með höggdeyfum með að-
lögunarhæfni (Active Curve). Á ójöfnum
vegum sér kerfið til þess að fjöðrunin býr
yfir mýkt og þægindum en þegar ekið er á
meiri hraða býður það upp á meiri stífleika
sem eykur stöðugleika bílsins,“ segir Sig-
urður.
Ný kynslóð
M-línunnar frá
Mercedes Benz
Þriðja kynslóð M-línunnar frá Mercedes-Benz er væntanleg til Íslands í
vikunni. M-línan setur ný viðmið í flokki jeppa vegna lítillar
eldsneytisnotkunar og lítils koltvísýrings í útblæstri. Í nýju línunni
lækkar eldsneytisnotkunin um allt að 28% miðað við fyrri gerðir.
Sigurður segir að M-Class hafi verið mjög vinsæll á Íslandi. Nú þegar sé mikill áhugi á nýju kynslóðinni og eftir-
spurnin mikil.
Kia Rio er í boði með þremur
eyðslugrönnum og umhverfis-
vænum vélum sem skila bílnum
í lágan vörugjaldsflokk og tryggja
þar af leiðandi betra verð. „Dísil-
vélarnar eru 1,1 og 1,4 lítra og bens-
ínvélin er 1,4 lítra og verður sá bíll
fáanlegur sjálfskiptur. Með 1,1
lítra dísilvélinni eyðir Kia Rio að-
eins 3,2 lítrum í blönduðum akstri
samkvæmt upplýsingum frá fram-
leiðanda. Bíllinn skilar 75 hestöfl-
um og koltvísýringslosunin er að-
eins 85 g/km. Kia Rio er því mjög
hagkvæmur og umhverfisvænn og
setur raunar ný viðmið hvað þetta
tvennt varðar miðað við að hann
er ekki knúinn öðrum aflgjöfum,“
segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia
hjá Bílaumboðinu Öskju.
Hann bætir við að með stærri
dísilvélinni sé bíllinn mjög kraft-
mikill, togið feikigott og bíllinn
mjög skemmtilegur og sportleg-
ur í akstri. „Bensínvélin er einnig
óvenju umhverfisholl og eyðslu-
grönn. Hún skilar 107 hestöflum
og mengar 124 g/km sem er einnig
góður árangur í markmiðum KIA
að framleiða bíla með sem lægst-
um CO útblæstri,“ segir Þorgeir.
Hagkvæmur og ríkulega búinn
bíll
Nýr Kia Rio er mjög mikið breytt-
ur í hönnun og aksturseiginleikum
miðað við forverann. Heildarútlitið
er sérlega vel heppnað með renni-
legum hliðum og rísandi línu aftur
eftir bílnum sem gefur honum mjög
sportlegt yfirbragð. Stórt loftinn-
takið að framan er auk þess mjög
f lott og sportlegt sem og nett og
ávöl afturrúðan. Innrýmið er einn-
ig mjög vel hannað og vandað. Kia
Rio er mjög rúmgóður miðað við bíl
í B-stærðarflokki. Plássið er prýði-
legt bæði fyrir ökumann og farþega
og skottið er rúmgott eða alls 288
lítrar. ,,Kia býður 7 ára verksmiðju-
ábyrgð á öllum bílum sínum og er
eini bílaframleiðandinn sem býður
svo langa ábyrgð sem gerir öryggi
kaupandans mun meira og endur-
söluverðið hærra þar sem ábyrgð-
in færist á milli eigenda,“ segir Þor-
geir. Grunnverð á nýjum Kia Rio er
2.497.777 kr.
Kia Rio sópar að
sér verðlaunum
Kia Motors er einn mest vaxandi bílaframleiðandi heims og sendir nú frá sér hvern
endurhannaðan bílinn á fætur öðrum. Kia-bílarnir hafa fengið mikið lof fyrir flotta og
nútímalega hönnun og hafa sópað til sín hönnunarverðlaunum víða um heim.
Heildarútlit Kia Rio þykir vel heppnað, með rennilegum hliðum og sportlegu yfirbragði.
SPENNANDI KIA OPTIMA Á LEIÐINNI
Kia Optima er væntanlegur síðar á þessu ári en þar er um að ræða fal-
legan og spennandi bíl í C-stærðarflokki. Mikil eftirspurn er eftir bílnum í
Bandaríkjunum og Asíu og því hefur Kia vart náð að anna eftirspurn hvað
varðar framleiðslu bílsins. Ekki er enn ljóst hvenær á árinu Optima kemur
til Íslands eða hvaða útfærslur af bílnum verða í boði.
NÝR OG ENDURHANNAÐUR KIA PICANTO
Kia Picanto hefur verið endurhannaður frá grunni og þykir hönnun
bílsins ákaflega vel heppnuð. Bíllinn hefur þegar unnið til alþjóðlegra
verðlauna fyrir fallegt og frísklegt útlit. Tvær nýjar bensínvélar eru í boði,
1,0 og 1,2 lítra sem báðar eru mjög sparneytnar, með lágt mengunargildi
og eru því mjög umhverfishollar. Bíllinn fæst fimm dyra og beinskiptur
en auk þess er hann í boði sjálfskiptur með 1,2 lítra vélinni. Grunnverð á
nýjum Picanto er 1.997.777 kr.