Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 26
KYNNING − AUGLÝSINGNýir bílar MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 20126
Grænu lánin hafa hlotið frá-bærar viðtökur,“ segir Ást-hildur Kristjánsdóttir, for-
stöðumaður hjá Ergo, en svoköll-
uð græn lán eru til fjármögnunar
á þeim bílum sem losa 0-120 g
CO á hvern ekinn kílómetra.
Ergo hefur frá upphafi boðið
viðskiptavinum sínum græn lán
og hafa þau verið helmingur lána
til einstaklinga.
„Við höfum því ákveðið að
framlengja sérkjör við fjármögn-
un á þessum bílum og fellum
niður lántökugjöld vegna grænna
bílalána út júnímánuð 2012,“ út-
skýrir Ásthildur.
Á síðustu árum hefur eldsneytis-
kostnaður í heiminum aukist og
bílaframleiðendur hafa í auknum
mæli farið að framleiða bíla sem
eyða minna eldsneyti og menga
minna. Ásthildur segir það mark-
mið Ergo að aðstoða viðskiptavini
við að taka upplýsta ákvörðun
þegar þeir kaupa bíl og að styðja
við fjölgun umhverfishæfari bíla
á Íslandi.
„Fólk er einnig farið að spá
mun meira í rekstrarkostnaðinn
við bíl og samanburður milli ára
sýnir að meðaleyðslugildi á ný-
skráðum bílum hefur á einu ári
lækkað úr 7,9 l/100 km í 5,6 l/100
km. Meðalútblástursgildi hafa
einnig lækkað um það bil um 50
g/km. Ergo vill styðja við þessa
þróun og hjálpa viðskiptavinum
sínum að spara, vernda umhverf-
ið og efla þjóðarhag með því að
fjármagna nýrri bíla sem að eyða
og menga minna,“ segir Ásthildur
og bendir heimasíðu Ergo, ergo.is,
til upplýsinga.
„Á vef Ergo höfum við lagt
mikla áherslu á að hafa góðar
reiknivélar þar sem viðskipta-
vinir geta reiknað bílalán út frá
sínum forsendum til dæmis hvað
þeir geta greitt á mánuði, hvað
þeir eiga mikla útborgun eða eftir
verði bílsins,“ segir Ásthildur.
„Einnig eru þar „grænar“ reikni-
vélar frá Orkusetri, sem sýna
svart á hvítu hvernig val á spar-
neytnum bíl getur sparað háar
fjárhæðir.
Þar er meðal annars hægt að
sjá hversu miklu bíllinn þinn
eyðir í bensín og hversu mikið
hann mengar. Einnig er hægt að
sjá samanburð á eyðslu, útblæstri
og bifreiðagjöldum bíltegunda
auk þess sem bíllinn þinn getur
fengið eyðslueinkunn eftir því
hvað hann eyðir miklu eldsneyti.
Það er athyglisvert hvað grænu
lánin okkar hafa fengið mikla at-
hygli og hvað landinn er í meiri
mæli farinn að velta eyðslu- og
umhverfisþáttum fyrir sér. Við
sjáum þetta einnig í fjármögnun
á öðrum vistvænum verkefnum,“
segir Ásthildur.
Grænu bílalánin njóta vinsælda
hjá viðskiptavinum Ergo
Hækkandi eldsneytisverð hefur leitt til þess að bílaframleiðendur sjá hag sinn í framleiðslu sparneytinna bíla sem menga minna. Ergo styður þessa
þróun og býður viðskiptavinum svokölluð græn lán til kaupa á slíkum bílum. Lántökugjöld verða felld niður á grænum lánum út júní 2012.
Ásthildur Kristjánsdóttir, forstöðumaður hjá Ergo segir markmið Ergo að aðstoða viðskiptavini við að taka upplýsta ákvörðun þegar
þeir kaupa bíl og að styðja við fjölgun umhverfishæfari bíla á Íslandi. MYND/BERNHARD KRISTINN
Ergo býður græn bílalán til þess að styðja við fjölgun umhverfishæfari bíla á Íslandi.
Græn bílalán standa til boða við kaup á bílum í útblástursflokkum A, B og C og eru
þau án lántökugjalda út júnímánuð 2012. Kannaðu kosti grænna bílalána á ergo.is.
Suð
urla
ndsb
raut
14
sím
i 44
0 44
00
www
.erg
o.is
erg
o@
ergo
.is
Framtíðin er
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
9
8
6
1