Fréttablaðið - 11.01.2012, Page 31
FRÉTTASKÝRING
Magnús Þorlákur Lúðvíksson
magnusl@frettabladid.is
Árin frá hruni hafa verið gjöful
á skuldabréfamarkaði. Til marks
um það hefur ríkisskuldabréfavísi-
tala ráðgjafar- og fjárfestingarfyr-
irtækisins Gamma rúmlega tvö-
faldast frá upphafi árs 2008. Það
jafngildir meðalraunávöxtun upp á
11,3 prósent á ári frá byrjun 2008.
Ein helsta ástæðan að baki þess-
ari þróun eru fáir fjárfestingar-
kostir á Íslandi. Gjaldeyrishöft
hafa gert það að verkum að ís-
lenskum fjárfestum, lífeyrissjóð-
um og bönkum er illmögulegt að
fjárfesta erlendis. Auk þess lokuð-
ust nokkrir fjármunir í eigu útlend-
inga inni í landinu þegar höftunum
var komið á. Þegar haft er í huga að
líf á bæði hlutabréfa- og húsnæðis-
markaði hefur verið með minnsta
móti frá hruni kemur ekki á óvart
að eftirspurn eftir skuldabréfum
hafi verið mikil. Með öðrum orðum
þá er talsverð þörf eftir fjárfest-
ingu til staðar í hagkerfinu og síð-
ustu misseri hefur hún helst leitað
á skuldabréfamarkaðinn enda fáir
aðrir valmöguleikar í boði.
Greiningardeildir og markaðs-
aðilar hafa á síðustu vikum spáð
áframhaldandi lækkun á ávöxt-
unarkröfu á skuldabréfamark-
aði, en lækkun á kröfu þýðir að
verð skuldabréfa hækkar. Byggir
það mat fyrst og fremst á þeirri
staðreynd að framboð nýrra rík-
isskuldabréfa mun dragast saman
á árinu 2012. Þá er metið sem svo
að ekki sé útlit fyrir að eftirspurn
minnki að ráði að öðru óbreyttu.
BREYTT STAÐA HJÁ RÍKISSJÓÐI
Lánasýsla ríkisins, sem annast út-
gáfu fyrir ríkissjóð, hefur verið
dugleg við útgáfu skuldabréfa eftir
hrun til að fjármagna fjárlagahalla
hins opinbera. Með bættri stöðu
ríkisfjármálanna minnkar hins
vegar þörfin fyrir nýja útgáfu.
Í nýútkominni ársáætlun lána-
sýslunnar kemur fram að innlend
lánsfjárþörf ríkissjóðs er áætluð
100 milljarðar króna á árinu 2012.
Verður þörfinni mætt með útgáfu
ríkisbréfa að fjárhæð 75 milljarð-
ar og með lækkun innistæðna rík-
issjóðs í Seðlabankanum að fjár-
hæð 25 milljarðar. Áætluð hrein
útgáfa ríkisbréfa og ríkisvíxla er
hins vegar einungis áætluð 8 millj-
arðar. Hrein útgáfa lánasýslunnar
dregst því saman um sem nemur
50 milljörðum frá fyrra ári.
Útgáfuáætlun Íbúðalánasjóðs
fyrir árið er óvissari en áætlun
lánasýslunnar. Hún er hins vegar
áætluð 24 til 29 milljarðar króna
að nafnvirði á árinu.
Ríkisskuldabréf eru uppistað-
an í íslenska skuldabréfamark-
aðnum. Á árinu 2011 var velta
með útgáfur ríkissjóðs og Íbú-
ðalánasjóðs rúmlega 99 prósent
af heildarveltu í Kauphöllinni.
Minna framboð nýrra ríkisskulda-
bréfa mun því hafa talsverð áhrif á
skuldabréfamarkaðinn og að öðru
óbreyttu mun það valda lækkun á
ávöxtunar kröfu.
HVER VERÐA VIÐBRÖGÐ
LÍFEYRISSJÓÐANNA?
Lítil útgáfa ríkisbréfa á árinu
2012 veldur lífeyrissjóðum lands-
ins nokkrum vandræðum. Sjóð-
irnir hafa fjárfest fyrir hundruð
milljarða í nýjum ríkisbréfum frá
hruni. Hlutfall ríkistryggðra eigna
sjóðanna hefur þannig aukist úr
24 prósentum í september árið
2008 í 47 prósent í lok nóvember.
Eru lífeyrissjóðirnir nú eigendur
21,8 prósenta allra ríkisbréfa og
hafa því mikið að segja á mark-
aðnum. Þá fara lífeyrissjóðirnir
vitaskuld ört stækkandi þar sem
talsvert fleiri borga inn í sjóðina
um hver mánaðamót en fá greitt
úr þeim. Metur greiningardeild
Íslandsbanka þannig fjárfesting-
arþörf sjóðanna um 100 milljarða
króna á árinu 2012. Nettó fjárfest-
ingar þeirra í ríkistryggðum bréf-
um gætu því numið um 40 milljörð-
um, að mati deildarinnar.
Markaðurinn hefur síðustu
daga heyrt hljóðið í lífeyrissjóð-
um landsins með það fyrir augum
að fá þeirra viðbrögð við þessum
vangaveltum. Er það mat sjóð-
anna að ríkisbréf verði áfram
fyrirferðarmikil í fjárfestingum
þeirra en einnig er stefnt að því
auka hlutfall hlutabréfa í eigna-
söfnum sjóðanna. Eru því talsverð-
ar vonir bundnar við nýskráning-
ar á hlutabréfamarkaði á árinu. Þá
finnst sumum sem greiningaraðil-
ar leggi of litla áherslu á aðra fjár-
festingarkosti en ríkisbréf sem lík-
legir séu til að bjóðast á árinu.
„Það er auðvitað vitað að fjár-
festingarmöguleikar lífeyrissjóð-
anna eru mjög takmarkaðir og þeir
möguleikar sem hafa verið til stað-
ar síðastliðin þrjú ár hafa ekki síst
falist í bréfum með ríkisábyrgð.
Nú fer framboð á þeim pappír-
um minnkandi og það er vissu-
lega áhyggjuefni fyrir lífeyris-
sjóðina sem þarf að bregðast við,“
segir Haukur Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri LSR, en bætir því
við hann eigi von á að fjárfesting-
artækifæri skapist í tengslum við
nýskráningar á hlutabréfamark-
aði á árinu auk þess sem hann
útilokar ekki að einhver tækifæri
bjóðist í tengslum við samstarf á
milli ríkis og lífeyrissjóða. Loks
segir Haukur að fá fjárfestingar-
tækifæri geri sjóðunum erfiðara
fyrir að ná markmiðum sínum um
ávöxtun.
Annar sjóðstjóri sem Markað-
urinn ræddi við tók í svipaðan
streng. Sagði ríkispappíra trúlega
verða fyrirferðarmikla í fjárfest-
ingum sjóðs síns og þá væri stefnt
að því að hækka hið sögulega lága
hlutfall hlutabréfa af eignasafni
hans. Þá sagðist hann telja ólíklegt
að ráðist yrði í miklar nýfjárfest-
ingar á verðtryggðum ríkisbréf-
um. Lífeyrissjóðirnir hafi verið
að fjárfesta meira í óverðtryggðu
flokkunum, sér í lagi þeim lengri,
og það sé líklegt til að halda áfram.
Þriðji sjóðstjórinn sem Markað-
urinn ræddi við sagði vanda lífeyr-
issjóðanna þó ýktan. „Við höfum
ekki haft miklar áhyggjur af þessu
í sjálfu sér. Þá kannski fyrst og
fremst vegna þess hve hátt hlut-
fall ríkistryggðra bréfa er orðið
hjá okkur. Það er ekki markmið
hjá okkur að bæta við okkur rík-
isbréfum heldur þvert á móti.“
Þá segir hann að þær greining-
ar sem hafi verið birtar undan-
farið hafi gjarnan einblínt á lána-
sýslu ríkisins en í sumum tilfellum
sleppt því að horfa á aðra fjárfest-
ingarkosti sem kunna að bjóðast.
Má þar meðal annars nefna 18
milljarða útboð á bréfum til end-
urfjármögnunar sambankaláns
vegna byggingar Hörpu sem ráð-
ist verður í á næstunni. Þá segir
hann geta hentað ákveðnum aðil-
um að láta eins og lífeyrissjóðirn-
ir muni keyra kröfuna á skulda-
bréfamarkaði niður á árinu en svo
þurfi ekki að vera. Lykilspurning-
in sé hvort raunhæft sé fyrir líf-
eyrissjóðina að lækka hlutfall rík-
isbréfa í eignasafni sínu á árinu og
þá þurfi að líta til allra fjárfesting-
arkosta sem kunni að verða í boði.
Loks er það mat hans að þeir kost-
ir séu fleiri en oft eru taldir upp.
KRÖFULÆKKUN Í KORTUNUM AÐ
MATI GREININGARAÐILA
Á mánudag fjallaði Fréttablað-
ið um mat sérfræðinga Júpíters,
rekstrarfélags verðbréfasjóðs
í eigu MP banka. Í fréttabréfi
sjóðsins frá því í síðustu viku
kom fram að boðuð skuldabréfa-
útgáfa ríkissjóðs og Íbúðalána-
sjóðs nægði ekki til að fullnægja
fjárfestingarþörf lífeyrissjóða-
kerfisins. Því sé líklegt að ávöxt-
unarkrafa á skuldabréfamarkaði
lækki á næstunni. Þá kom fram í
fréttabréfinu að þótt væntar ný-
skráningar á hlutabréfamarkaði
hjálpi, dugi þær ekki til svo að líf-
eyrissjóðirnir geti minnkað hlut-
fall eigna sinna í ríkisskuldabréf-
um að einhverju ráði.
Greiningardeild Íslandsbanka
fjallaði einnig nýverið um horf-
ur á skuldabréfamarkaði en 19.
desember gaf deildin út spá um
þróun markaðarins næstu miss-
eri. Býst greiningardeildin við því
að krafa á lengri ríkisbréfaflokka
lækki talsvert á árinu, sér í lagi á
fyrri hluta ársins.
Ástæðan sé sú að framboð-
ið verði hóflegt en eftirspurnin
áfram talsverð. Þá sé framboð á
öðrum langtíma óverðtryggðum
fjárfestingarkostum lítið. Grein-
ingardeildin telur hins vegar að
krafa á stystu flokka ríkisbréfa
muni hækka samfara næstu
skrefum í afléttingu gjaldeyris-
hafta. Loks spáir hún lækkandi
kröfu á íbúðabréf en þó mismik-
illi.
Það er þó ekki þar með sagt að
þróun skuldabréfamarkaðarins
á árinu liggi ljós fyrir. Ákveðn-
ir þættir vinna gegn mögulegri
kröfulækkun. Þannig má nefna
að verðbólguhorfur versnuðu tals-
vert á seinni hluta árs 2011 auk
þess sem hagvöxtur varð meiri en
búist hafði verið við. Verði áfram
þrýstingur á verðbólgu og hag-
vöxtur kröftugur kann að vera
að vextir hækki fyrr en búist er
við sem myndi leiða til hækkandi
kröfu á markaðnum.
ÁVÖXTUNARKRAFA
LENGRI ÓVERÐTRYGGÐ RÍKSIBRÉF
2. jan ‘09 2. jan ‘10 2. jan ‘11 2. jan ‘12
10
8
6
4
RIKB 19 0226
RIKB 22 1026
RIKB 25 0612
RIKB 31 0124
ÁVÖXTUNARKRAFA
STYTTRI ÓVERÐTRYGGÐ RÍKSIBRÉF
2. jan ‘09 2. jan ‘10 2. jan ‘11 2. jan ‘12
12
10
8
6
4
2
RIKB 12 0824
RIKB 13 0517
RIKB 16 1013
ÁVÖXTUNARKRAFA
VERÐTRYGGÐ BRÉF
2. jan ‘09 2. jan ‘10 2. jan ‘11 2. jan ‘12
8
7
6
5
4
3
2
1
HFF 1506 44
HFF 1502 24
HFF 1504 2034
HEIMILD: SEÐLABANKI ÍSLANDS
SKULDABRÉFAVÍSITÖLUR GAMMA
4.
ja
n
‘0
5
4.
ja
n
‘0
6
4.
ja
n
‘0
7
4.
ja
n
‘0
8
4.
ja
n
‘0
9
4.
ja
n
‘1
0
4.
ja
n
‘1
1
4.
ja
n
‘1
2
250
200
150
100
50
GAMMA: government bond index
GAMMA: Verðtryggt
GAMMA: Óverðtryggt
HEIMILD: GAMMA Í GEGNUM DATAMARKET
Lífeyrissjóðirnir búast við því að
fjárfestingarkostum fjölgi á árinu
Ríkisskuldabréf verða líklega áfram fyrirferðarmikil í fjárfestingum lífeyrissjóða á árinu 2012. Sjóðirnir telja þó líklegt að fjárfestingarmögu-
leikum fjölgi á árinu. Greiningaraðilar telja að krafa á ríkisbréf lækki vegna minni fjárþarfar ríkissjóðs en lítið breyttrar eftirspurnar.
RÍKISSJÓÐUR Betri staða ríkissjóðs veldur því að hrein útgáfa ríkisbréfa minnkar um í kringum 50 milljarða á milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2012 5