Fréttablaðið - 11.01.2012, Síða 36
11. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ragnhildur Ragnarsdóttir
kaupmaður, Vatnsnesvegi 29, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 3. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
13. janúar kl. 14.00.
Ragnar Jón Skúlason Bryndís Þorsteinsdóttir
Selma Skúladóttir Matthías Sigurðsson
Jórunn D. Skúladóttir Árni Már Árnason
Elsa Ína Skúladóttir Guðni Birgisson
Kristinn Skúlason Drífa Daníelsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Vernharð Sigursteinsson
áðir til heimilis að Hraungerði 6,
Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð sunnudaginn 1. janúar.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
13. janúar kl. 13.30.
Rannveig Vernharðsdóttir Alexander Pálsson
Regína Vernharðsdóttir
Kristján Vernharðsson Sigríður Jakobsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ágústa Einarsdóttir
Kirkjuvegi 14, Keflavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði
föstudaginn 6. janúar. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju fimmtudaginn 12. janúar kl 14.00.
Rúnar Guðjónsson, börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Elsku hjartans mamma okkar,
dóttir, systir og barnabarn,
Berglind Ósk
Guðmundsdóttir
Jötnaborgum 12, Reykjavík,
lést 20. desember sl. Útförin hefur farið fram.
Óðinn Dagur Svansson
Kristófer Máni Svansson
Ísabella Ósk Svansdóttir
Ingibjörg Pétursdóttir
Guðmundur Óskar Kristjánsson
Pétur Guðmundsson
Viðar Guðmundsson
Pétur Ingvi Ólafsson
Elskulegur eiginmaður minn,
Vilhelm Ingimundarsson
Fróðengi 1,
lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 8. janúar.
Útförin verður tilkynnt síðar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ragnhildur J. Pálsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, stuðning og hlýhug
vegna fráfalls ástkærs eiginmanns, föður, afa og langafa,
sr. Björns Jónssonar
Ásabraut 2, Akranesi,
sem lést 20. desember sl. Sérstakar þakkir fær starfsfólk
Sjúkrahúss Akraness fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Jafnframt er starfsfólki Akraneskirkju færðar sérstakar
þakkir fyrir vinsemd og stuðning. Guð blessi ykkur öll.
Sjöfn Pálfríður Jónsdóttir
Sossa Björnsdóttir Ólafur Jón Arnbjörnsson
Ingibjörg Björnsdóttir Hörður Kári Jóhannesson
Jón Páll Björnsson Ásdís K. Smith Óskarsdóttir
Gunnhildur Björnsdóttir Pétur Sigurðsson
afabörn og langafabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Þórunn Guðmundsdóttir
lést 2. janúar á Hrafnistu í Reykjavík.
Útförin verður gerð frá Áskirkju þann 18. janúar
kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélagið.
Þórarinn J. Óskarsson Jóhanna Kristjánsdóttir
Elín Óskarsdóttir Jón Leví Tryggvason
Pálína G. Óskarsdóttir Rafn Sigurðsson
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Trúarbragðaskóli Hafnar-
fjarðarkirkju hefur göngu
sína á ný á sunnudaginn
næstkomandi klukkan 20.
Að þessu sinni verða forn
trúarbrögð mannkynsins
skoðuð og áhrif þeirra á
heiminn í dag. Farið verður
um víðan völl, en helst verð-
ur einblínt á Egyptaland til
forna, grískan og rómversk-
an átrúnað, trúarbrögð
Mesópótamíu, keltnesk og
germönsk trúarbrögð og
Zaraþústra. Leitast verður
við að svara spurningum um
uppruna hugmyndanna um
engla, heimsendi, djöfla og
fleira sem allra jafna er ekki
tengt við fornöldina.
Kennt verður til klukkan
21.30 öll sunnudagskvöld.
Kennslan er eins og áður í
höndum séra Þórhalls Heim-
issonar. Skólinn er þátttak-
endum algjörlega að kostn-
aðarlausu. Mikilvægt er
að áhugasamir skrái sig til
leiks. Skráning fer fram á
thorhallur33@gmail.com.
Skoða áhrif fornra
trúarbragða
KENNARI Séra Þórhallur Heimisson annast kennslu í trúarbragðaskóla
Hafnarfjarðarkirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ljáðu mér eyra – viðtöl eftir fæðingu: Kynning á þjónustu og
rannsóknaráætlun heitir erindi sem ljósmóðirin Valgerður
Lísa Sigurðardóttir flytur á vegum Rannsóknarstofnunar í
hjúkrunarfræði mánudaginn 16. janúar. Í erindinu verður
þjónustan Ljáðu mér eyra kynnt ásamt rannsóknaráætlun
um mat á þjónustunni.
Ljáðu mér eyra er viðtalsþjónusta sem hefur verið starf-
rækt á Landspítalanum frá árinu 1999 fyrir konur með erf-
iða fæðingarreynslu. Í byrjun árs 2009 urðu breytingar á
viðtalsþjónustunni en þá var farið að bjóða öllum konum
sem fæða á Landspítala að koma í viðtal 4-6 vikum eftir
fæðingu. Þannig geta konur sem telja sig þurfa, unnið fyrr
úr fæðingarreynslunni. Þá geta þær valið hvort þær fá við-
tal við ljósmóður sem annaðist þær í fæðingu eða ljósmóður
úr Ljáðu mér eyra-hópnum. Með því að konur hafi kost á við-
tali við ljósmóður sem annaðist þær í fæðingu er jafnframt
verið að stuðla að aukinni samfellu í barneignarþjónustunni.
Markmið rannsóknarinnar er að skoða reynslu kvenna
eftir þátttöku í viðtalsmeðferð og meta áhrif viðtalsmeð-
ferðar á fæðingarreynslu þeirra kvenna sem hafa eignast
barn eftir viðtal. Tilgangurinn er að þróa viðtalsmeðferðina
enn frekar og veita þannig betri heilbrigðisþjónustu fyrir
þennan hóp kvenna.
Málstofan fer fram í stofu C101 í Eirbergi og hefst klukk-
an 12.10.
Rannsókn á Ljáðu
mér eyra kynnt
VINNA ÚR REYNSLUNNI Ljáðu mér eyra er viðtalsþjónusta sem hefur
verið starfrækt á Landspítalanum frá árinu 1999 fyrir konur með
erfiða fæðingarreynslu.
Nú eru liðin tíu ár frá því að fyrsti íbúinn flutti inn í Sól-
tún í Reykjavík, en það var fyrsta hjúkrunarheimilið sem
var opnað sem einkaframkvæmdarverkefni með þjónustu-
samningi við ríkið.
„Starfið hefur verið farsælt og þjónustan við íbúana
hefur alla tíð verið í öndvegi, ásamt því að gera heim-
ilið að aðlaðandi starfsvettvangi. Allt uppbyggingarstarf
hefur miðað að vellíðan íbúa, þróun hjúkrunar og annarr-
ar þjónustu,“ segir Anna Birna Jensdóttir, framkvæmda-
stjóri Öldungs, sem er rekstraraðili Sóltúns, í tilkynningu.
Íbúar Sóltúns eru í dag 92 talsins og er meðalaldur 85 ára.
Í tilefni af starfsafmælinu stendur Sóltún fyrir
fjölbreyttri fræðsludagskrá í vikunni og út mars-
mánuð. Um er að ræða ellefu fyrirlestra sem helg-
aðir eru gæðamálum frá ýmsum sjónarhornum.
- trs
Farsælt starf í
áratug