Fréttablaðið - 11.01.2012, Qupperneq 46
11. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR26LÖGIN VIÐ VINNUNA
LA BOHÈME
GIACOMO PUCCINI
HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR
GISSUR PÁLL GISSURARSON
ÞÓRA EINARSDÓTTIR
GARÐAR THÓR CORTES
ÁGÚST ÓLAFSSON
HRÓLFUR SÆMUNDSSON
JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR
BERGÞÓR PÁLSSON
HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON
LEIKSTJÓRI: JAMIE HAYES
LEIKMYND: WILL BOWEN
BÚNINGAR: FILIPPÍA ELÍSDÓTTIR
LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON
MIÐASALAN HEFST Á MORGUN KL. 12
Í SÍMA 528 5050 OG Á HARPA.IS
FRUMSÝNING 16. MARS KL. 20
50% afslátturaf öllu leigðu efni í Sjónvarpi Símans
facebook.com/siminn.is
„Tónlistin hefur komið auðveldlega
og hljómar mjög vel. Við skemmt-
um okkur mjög vel,“ segir banda-
ríski upptökustjórinn Jacquire
King.
King er staddur hér á landi og
stýrir nú upptökum á nýjum lögum
hljómsveitarinnar Of Monsters and
Men. Einhverjum laganna verður
mögulega bætt við plötuna My
Head Is an Animal sem hljómsveit-
in sendi frá sér hér á landi í fyrra,
en kemur út á heimsvísu á vegum
útgáfurisans Universal í ár.
„Við ætlum að reyna að klára
fimm lög og það hefur gengið
mjög vel,“ segir King, sem býr
í Nashville í Bandaríkjunum og
hefur tekið upp með hljómsveitum
á borð við Kings of Leon, Cold War
Kids og Modest Mouse ásamt tón-
listarfólki á borð við Noruh Jones
og Tom Waits. Hann stýrði til að
mynda upptökum á plötunni Only
by the Night með Kings of Leon,
sem hefur selst í milljónum eintaka
um allan heim. En hvernig finnst
honum að vera staddur á norður
í Atlantshafi að vinna með ungri,
íslenskri hljómsveit?
„Allar hljómsveitir sem hafa
orðið stórar byrja einhvers staðar.
Mér finnst þetta mjög skemmtilegt
og ég nýt þess að dvelja á Íslandi,“
segir King. „Ég hef gaman af því
að vinna með ungum listamönnum
og hjálpa þeim að læra á plötugerð-
arferlið. Ég sýni þeim það sem ég
kann og er hluti af ferlinu. Það er
spennandi.“
Maureen Kenny hjá Universal-
útgáfunni kynnti King fyrir Of
Monsters and Men í október á síð-
asta ári. Hann hafði ekki heyrt
um hljómsveitina, en varð að eigin
sögn mjög áhugasamur um að taka
að sér verkefnið fljótlega eftir að
hann heyrði tónlistina. „Ég heyrði
strax að þau væru hæfileikarík
og vel spilandi. Þau voru búin að
gera plötu sem ég hefði haft gaman
að því að gera. Lögin eru góð og
hljómsveitin flytur þau vel,“ segir
hann. „Ástæðan fyrir því að ég
vildi koma til Íslands var sú að þau
gerðu plötuna sjálf og stóðu sig vel.
Mér fannst mikilvægt að koma til
þeirra og taka upp þráðinn þar sem
þau skildu við hann, í staðinn fyrir
að fá þau til Bandaríkjanna og gera
allt öðruvísi. Ég vildi ekki að nýju
lögin yrðu frábrugðin þeim sem
eru á plötunni.“
Jacquire King dvelur á landinu í
tvær vikur í viðbót, en segist ekki
búast við að gera margt annað en
að vinna með Of Monsters and
Men. „Veðrið býður ekki upp á
margt annað,“ segir hann í léttum
dúr. „Ég dvel í miðbænum og þegar
veðrið er í lagi fer ég í göngutúra.
Ég fór í nýja tónlistarhúsið í gær
sem er ótrúlega falleg bygging.
Ég vona að ég komist meira út um
næstu helgi.“ atlifannar@frettabladid.is
JACQUIRE KING: VIÐ SKEMMTUM OKKUR MJÖG VEL
Þekktur upptökustjóri
með Of Monsters and Men
„Hann bauðst til þess að hita upp
fyrir okkur ef við myndum koma
saman á nýjan leik,“ segir Biggi í
Maus um kollega sinn Gisj í Maus.
Gisj van Veldhuizen og félagar
í Maus hafa ákveðið að breyta
nafninu sínu í Mauz. Ástæðan er
sú að Biggi í Maus kvartaði yfir
nafni hollensku sveitarinnar, enda
hefur hljómsveitin hans einka-
réttinn á nafninu í Evrópu. Engu
að síður munu Gisj og félagar
spila á Eurosonic-hátíðinni í
Hollandi á fimmtudaginn undir
nafninu Maus því of seint var að
breyta því í tæka tíð. „Þetta var
allt á vingjarnlegu og fallegu nót-
unum,“ segir Biggi um tölvupóst-
inn sem hann fékk frá Gisj í gær.
Biggi óttaðist að aðdáendur
hinnar íslensku Maus héldu að
hún ætlaði að spila á Eurosonic og
sú var raunin. „Þetta er svo lítill
heimur. Um leið og þeir voru aug-
lýstir á Eurosonic byrjaði ég að fá
tölvupóst um hvort við værum að
fara að spila. Eftir að internetið
kom geta tvær hljómsveitir ekki
lengur heitið sama nafni.“
Biggi og félagar í Maus spiluðu
síðast saman í október 2004, eða
fyrir rúmum sjö árum. Aðspurður
segist hann ekki búast við endur-
komu í bráð, enda búa tveir liðs-
menn Maus erlendis. En kemur til
greina að Mauz hiti upp fyrir Maus
ef af henni verður? „Auðvitað. Það
yrði ógeðslega flott en ég ætla ekki
að borga undir þá flugfarið.“ - fb
Mauz vill hita upp fyrir Maus
MÁLIÐ TIL LYKTA LEITT Biggi í Maus er
ánægður með að hin hollenska Maus
ætli að breyta nafninu sínu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hlaupagarpurinn Guðmundur Guðnason brá á
það ráð á dögunum að setja tréskrúfur undir
hlaupaskóna sína til að geta fótað sig í hálk-
unni.
„Ég var búinn að leita lengi að einhverri
lausn sem virkar hvort sem maður er í hálku
eða á beru malbiki,“ segir Guðmundur, sem
hleypur fimm daga vikunnar, sama hvernig
viðrar. Samanlagt um 70 til 90 kílómetra.
„Ég sá hvernig ástandið var síðasta föstudag.
Það var búin að vera glerhálka og ég ætlaði
að hlaupa á laugardagsmorgun, þannig að ég
græjaði þetta á föstudagskvöldið. Ég fór inn
í bílskúr, fann mér tréskrúfur og skellti þeim
undir gamla hlaupaskó sem ég átti og þetta
svínvirkaði.“
Guðmundur setti myndir af „nýju“
hlaupaskónum sínum á Facebook og vöktu þær
mikla athygli hlaupafélaga hans. „Þeir voru að
forvitnast hvernig þetta hefði gengið. Einhverj-
ir ætluðu að græja þetta strax fyrir sig.“
Ekki veitir af því enda hafa margir dottið illa
í hálkunni að undanförnu, þar á meðal vinur
hans sem fór út að hlaupa og rotaðist eftir að
hafa runnið á hausinn. „Það er stórhættulegt
oft og tíðum þetta færi, þannig að ég er ánægð-
ur með að vera kominn með einhverja lausn.“
Guðmundur vakti athygli í sumar þegar hann
hljóp í kringum landið til styrktar krabba-
meinsveikum börnum ásamt eiginkonu sinni og
tveimur öðrum. Sjálfur hleypur hann í vinnuna
á hverjum morgni úr Garðabæ til Reykjavíkur
og var einmitt fljótari á staðinn í gærmorgun
en vinnufélagi hans sem kom akandi úr Hafn-
arfirðinum, enda umferðin afar hæg vegna
slæmrar færðar. - fb
Með tréskrúfur undir hlaupaskónum
Í STARTHOLUNUM Guðmundur í hlaupagallanum rétt
áður en hann hljóp heim úr vinnunni seinni partinn í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Í HLJÓÐVERINU Jacquire King ásamt hljómsveitinni Of Monsters and Men. Hann hefur unnið með hljómsveitum á borð við Kings
of Leon og Modest Mouse, en er nú mættur til landsins til að taka upp með Of Monsters and Men. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég hlusta mest á Cörlu Bruni
og Mugison. Hann er alveg að
slá í gegn núna.“
Heiða Björg Bjarnadóttir hjá Myconcept-
store.is
alla sunnudaga klukkan 16. Njótið vel
Hemmi Gunn – og svaraðu nú!
Fjölbreyttur og fjörugur þáttur