Fréttablaðið - 27.01.2012, Qupperneq 2
27. janúar 2012 FÖSTUDAGUR2
fyrir lok síðustu viku, hafa skilað
inn gögnum. Að sögn Geirs Gunn-
laugssonar landlæknis eru þau gögn
þó „ekki fullkomin“.
Hann er ekki sammála túlkun
læknanna, sem telja að trúnað-
ur milli læknis og sjúklings vegi
þyngra en réttur landlæknisemb-
ættisins til upplýsinga til að sinna
eftirlitsskyldu sinni.
„Við erum að vinna í því að grípa
til aðgerða til að fá þessar upplýs-
ingar og munum skilgreina ferlið
mjög vel,“ segir hann. „Allar upp-
lýsingar um heilbrigðisþjónustu á
landinu eiga að vera aðgengileg-
ar á hverjum tíma til að vita hvað
fer fram í heilbrigðiskerfinu og það
er fjöldi lækna sem styður okkur í
þeirri afstöðu. Við munum fá niður-
stöðu í þessu máli.“
Ekki náðist í Ottó Guðjónsson,
formann Félags lýtalækna.
sunna@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Velferðarráðherra
mun beita sér fyrir lagabreyting-
um til að krefja lýtalækna um að
afhenda landlæknisembættinu upp-
lýsingar, leysist málin ekki á næst-
unni. Hópur lýtalækna neitar land-
lækni enn um upplýsingar varðandi
brjóstastækkanir sem þeir hafa
gert á sjúklingum sínum frá árinu
2000. Þeir hafa leitað með málið til
Persónu verndar.
Guðbjartur Hannesson velferðar-
ráðherra segir afstöðu sína í málinu
afar skýra.
„Ef við ætlum að hafa eftirlit
með því hvað fagfólk með lögvar-
in starfsréttindi er að gera við lík-
ama fólks, án þess að vera hluti af
hinu opinbera heilbrigðiskerfi og
skilmálunum þar, þá virkar þetta
kerfi aldrei,“ segir hann. „Það getur
ekki verið svo að við megum vita
minna um mannslíkamann heldur
en bílana okkar ef fréttist af gall-
aðri vöru. Við munum því skoða
þetta mjög alvarlega og ef þar vant-
ar lagastoð til að fylgja því eftir, þá
þarf að skoða hvernig við getum
breytt þeim lögum.“
Guðbjartur segir það alger-
lega óhugsandi að heilbrigðisyfir-
völd geti ekki gripið til tafarlausra
aðgerða með fullum stuðningi
lækna til að vernda íbúa landsins
þegar mál eins og það í kringum
PIP-púðana koma upp.
„Því þetta eru ekki bara fyrir-
tæki, þetta eru menn sem starfa
undir læknaeiði og eru með rétt-
indi umfram alla aðra til að sinna
ákveðnum verkum,“ segir hann.
„Það er eins gott að þeir standi
undir því og ég treysti á að þeir
muni gera það.“
Tveir lýtalæknar af þeim tólf sem
landlæknir krafði um upplýsingar
Guðrún Eva, varstu vakin með
kossi í morgun?
„Já, ég fékk koss á báðar kinnar.“
Guðrún Eva Mínervudóttir hlaut á mið-
vikudag Íslensku bókmenntuverðlaunin
í flokki fagurbókmennta fyrir bókina Allt
með kossi vekur.
Gráða & feta ostateningar henta
vel í kartöflusalatið, á pítsuna,
í sósuna, salatið, ofnréttinn og
á smáréttabakkann.
ms.is
Gráða & feta
ostateningar í olíu
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Þvinga á fram gögn
um brjóstastækkanir
Velferðarráðherra ætlar að beita sér fyrir lagabreytingum ef lýtalæknar af-
henda ekki upplýsingar um brjóstastækkanir. Landlæknir undirbýr aðgerðir í
málinu og undrast afstöðu lýtalækna, sem nú hafa leitað til Persónuverndar.
Formaður Læknafélags Íslands, Þorbjörn Jónsson, segir hóp kvenna hafa hringt
til lýtalæknanna og óskað eftir því að nafn þeirra birtist ekki á skrám landlæknis.
„Það setur þá í ákveðna klemmu,“ segir Þorbjörn. „Þeir leituðu því til okkar og
niðurstaðan var sú að við ætluðum að bíða eftir áliti Persónuverndar.“ Hann segir
málið snúast um skráarhald og heimild landlæknis til að halda „brjóstastækk-
unarskrá“ annars vegar, og trúnaðarskyldu lækna gagnvart sjúklingum hins vegar.
„Það má segja að það bráðliggi ekkert á að gera einhverja brjóstastækkunar-
skrá fyrir allar konur á Íslandi. Það er betra að þetta sé á traustum grunni reist.“
Í lögum um landlækni frá árinu 2007 eru tilteknar átta tegundir heilbrigðis-
skráa sem embættinu er heimilt að skrá upplýsingar um sjúklinga án þeirra
samþykkis, til dæmis fæðingaskrá, krabbameinsskrá, slysaskrá, samskiptaskrá
sjálfstætt starfandi sérfræðinga og skrá um sykursýki.
Bráðliggur ekki á brjóstastækkunarskrá
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur þyngt
fangelsisdóm yfir Grétari Torfa
Gunnarssyni, 31 árs, úr þremur
árum í fjögur. Grétar nauðgaði
konu sumarið 2010.
Grétar þröngvaði konunni til
munnmaka, samræðis og enda-
þarmsmaka í heimahúsi en bar
að það hefði verið með fullu sam-
þykki hennar. Líkamlegir áverkar
og andlegt ástand hennar þóttu
hins vegar næg sönnun þess að svo
hefði ekki verið.
Hæstiréttur telur að með hlið-
sjón af einbeittum brotavilja
Grétars beri að þyngja refsinguna.
Honum er eftir sem áður gert
að greiða konunni 1,2 milljónir í
miskabætur. - sh
Fjögurra ára fangelsi:
Þyngri dómur
fyrir nauðgun
SKÁK Skákdagur Íslands var haldinn
í fyrsta sinn í gær. Stórmeistarinn
Friðrik Ólafsson var heiðraður í til-
efni dagsins, en Friðrik átti einmitt
77 ára afmæli.
Margs konar uppákomur tengdar
skák voru um allt land í tilefni dags-
ins, en meðal annars var athöfn á
Bessastöðum þar sem Ólafur Ragn-
ar Grímsson, forseti Íslands, fór í
ávarpi yfir afrek Friðriks og áhrif
hans á skákíþróttina og þjóðina alla.
Að lokinni ræðu forseta tefldi
Friðrik við Nancy Davíðsdóttur
Íslandsmeistara barna. Skákinni
lyktaði með jafntefli. - þj
Friðrik Ólafsson heiðraður:
Jafnt hjá barna-
meistaranum
MEISTARAEINVÍGI Friðrik og Nancy
Íslandsmeistari að tafli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SÍLÍKONPÚÐI Formaður Læknafélagsins vill fá leiðbeiningar frá Persónuvernd
um hvernig upplýsingarnar um brjóstastækkanir skuli meðhöndlaðar.
FJÖLMIÐLAR Lífið, nýtt fylgirit Fréttablaðsins um lífs-
stíl og dægurmál, kemur út í fyrsta sinn í dag í rit-
stjórn Ellýjar Ármannsdóttur og Kolbrúnar Pálínu
Helgadóttur.
„Við vorum búnar að ganga með þá hugmynd í mag-
anum um nokkurt skeið að gera létt og skemmtilegt
lífsstílsblað fyrir konur sem yrði laust við alla æsi-
fréttamennsku,“ segir Kolbrún Pálína um nýja verk-
efnið. „Við erum því afar ánægðar með að það sé orðið
að veruleika.“
Ellý og Kolbrún búa að talsverðri reynslu af skrif-
um um lífsstíl – Ellý hefur um hríð verið umsjónar-
maður Lífsins á Vísi og Kolbrún Pálína ritstýrði Nýju
lífi í rúmt ár þar til í fyrrasumar.
Lífið mun koma út alla föstudaga og leysir af hólmi
vikublaðið Föstudag.
Í fyrsta tölublaðinu er meðal annars að finna viðtal
við Manuelu Ósk Harðardóttur, sem er flutt til Íslands
eftir að hafa staðið í ströngu í Bretlandi undanfarin
fjögur ár.
Þá má jafnframt lesa um skoðanir nokkurra þjóð-
þekktra kvenna á því að þær hafi verið orðaðar við
embætti forseta Íslands.
Kolbrún Pálína segir að þær Ellý ætli að hafa
jákvæðnina að leiðarljósi við ritstjórnina.
„Í þessu blaði verða eingöngu jákvæðar og
skemmtilegar fréttir af fólki, viðtöl við sterkar
íslenskar konur úr öllum stéttum þjóðfélagsins og
uppbyggileg umfjöllun um lífsstíl.“ - sh
Lífið, nýtt vikublað um lífsstíl, fylgir Fréttablaðinu í fyrsta sinn í dag:
Leggja áherslu á jákvæðar fréttir
ÁNÆGÐIR RITSTJÓRAR Kolbrún og Ellý eru engir nýgræðingar
í lífsstílsblaðamennsku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Mennirnir þrír sem eru taldir af
eftir sjóslys í Noregshafi í gær-
dag þegar togarinn Hallgrím-
ur SI-77 fórst eru Einar Gísli
Gunnars-
son, fæddur
1944, búsett-
ur í Grafar-
vogi. Hann
lætur eftir
sig eigin konu
og fjóra r
uppkomnar
dætur og eitt
barnabarn.
Magnús
Þ. Daníels-
son, fæddur
1947, búsett-
ur í Njarðvík.
Hann lætur
e f t i r s i g
eigin konu,
þrjú uppkom-
in börn og
fimm barna-
börn. Gísli
Garðarsson,
fæddur 1949,
búsettur í
Keflavík.
Hann lætur
e f t i r s i g
eiginkonu.
Bæna-
stundir
vegna sjó -
slyssins á
miðvikudag
verða haldnar í dag klukkan
18.00 í Grafarvogskirkju og í
Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Fórust í sjóslysi
GÍSLI GARÐARSSON
MAGNÚS Þ.
DANÍELSSON
EINAR G.
GUNNARSSON
SJÁVARÚTVEGUR Hafrannsókna-
stofnunin leggur til að leyfilegur
hámarksafli á loðnuvertíðinni
verði 765 þúsund tonn, að með-
töldum þeim afla sem búið var að
veiða þegar mælingar fóru fram.
Um 590 þúsund tonn af loðnu
munu falla til íslenskra útgerða.
Útflutningsverðmætið er um 30
milljarðar króna, segir á heima-
síðu LÍÚ.
Í janúar hefur rannsóknaskip-
ið Árni Friðriksson verið við
rannsóknir og mælingar á stærð
loðnustofnsins frá sunnanverðum
Austfjörðum, norður um og allt
að Norðvesturmiðum. Fyrstu
dagana komu jafnframt 11 veiði-
skip að því að kanna útbreiðslu
loðnunnar út af Austfjörðum
og Norðurlandi. Útreikningar
á stærð veiðistofnsins sýna að
alls mældust 1.065 þúsund tonn
af kynþroska loðnu í fyrri mæl-
ingunni, en 1.020 þúsund tonn í
þeirri síðari.
Í ljósi gildandi aflareglu um
að skilja 400 þúsund tonn eftir
til hrygningar hefur Hafrann-
sóknastofnunin nú lagt til að
leyfilegur hámarksafli á vertíð-
inni 2011/2012 verði ákveðinn 765
þúsund tonn, eins og áður sagði.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, segir
fréttirnar afar ánægjulegar
enda verði loðnuvertíðin í ár sú
stærsta í um áratug og gefi góðar
vonir um framhaldið. Hann segir
þetta ekki síður mikilvægt fyrir
lífríkið í hafinu vegna fæðuöflun-
ar annarra nytjastofna.
- shá
Hafrannsóknastofnun leggur til 765 þúsund tonna hámarksafla í loðnu:
Útlit fyrir stærstu loðnuvertíð í áratug
Á NÖSUNUM Í VESTMANNAEYJAHÖFN
Það styttist óðum í að loðnuvertíðin fari
á fullt. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
Jóhann til ríkisstjórnarinnar
Blaðamaðurinn Jóhann Hauksson
hefur verið ráðinn til forsætisráðu-
neytisins sem upplýsingafulltrúi ríkis-
stjórnarinnar. Hann er ráðinn sam-
kvæmt lagaheimild með sama hætti
og aðstoðarmenn ráðherra, að því er
segir í tilkynningu frá ráðuneytinu, og
hefur þegar tekið til starfa. Jóhann er
menntaður félagsfræðingur og hefur
starfað við fjölmiðla frá 1986.
STJÓRNMÁL
SPURNING DAGSINS