Fréttablaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 25
KYNNING − AUGLÝSING27. JANÚAR 2012 FÖSTUDAGUR
Nánari upplýsingar og skráning:
sími 525 4444 og endurmenntun.is
Álitamál í þróunarsamvinnu og hjálparstarf á vettvangi
Árangursríkar slæðusýningar (PowerPoint)
Excel I – fjármál og rekstur
Gerð viðskiptaáætlana - í fimm skrefum
Gerð þjónustusamninga – aukin hagræðing í rekstri
Grunnnámskeið í verkefnastjórnun
Gæðastjórnun- hugmyndafræði, stefna, aðferðir
og umbótastarf
Hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna í félögum
Listin að gera lista. Markviss forgangsröðun
– leið til aukinna afkasta
Samskiptahæfni og samskipti á ensku fyrir lengra komna
Skrif og skipulag efnis fyrir vefinn
Starfsemi bankastofnana
Stjórnun fyrir nýja stjórnendur
Stjórnun og leiðtogahæfni
Tilboðs og áætlanagerð
Vakandi athygli (gjörhygli) og innsæ íhugun
Viðbrögð stjórnenda og samfylgd í kjölfar áfalla
í starfsmannahópum
WordPress – Vinsælasta vefumsjónarkerfi í heimi
Þrívíddarhönnun í SketchUp – grunnnámskeið
Öflugt sjálfstraust
Örlög og ástir á þýsku: þjálfun í þýsku talmáli og þýskum
kurteisisvenjum á nýstárlegan hátt
Styrktu stöðu þína
Fjölbreytt námskeið á vormisseri
Enn fleiri námskeið á endurmenntun.is
REKSTUR, STJÓRNUN OG
MARKAÐSSETNING SMÁFYRIRTÆKJA
Námskeiðslínan Rekstur, stjórnun og markaðssetn-
ing smáfyrirtækja – markviss leið hjá Endurmennt-
un HÍ hefur fengið góðar undirtektir og í lok febrú-
ar er ætlunin að þriðji nem-
endahópurinn hefji
nám. Um er að
ræða þrjú nám-
skeið sem hægt
er að taka sem
eina heild eða
sem stök nám-
skeið. Námið
er ætlað öllum
sem hafa áhuga
á að kynna sér
uppbyggingu
og mismunandi
rekstrarform smá-
fyrirtækja og hent-
ar bæði þeim sem
eru nú þegar í atvinnurekstri og þeim sem hafa hug
á að stofna fyrirtæki.
Allir áhugasamir eru velkomnir í námið en ekki
er krafist neinnar forkunnáttu.
Umsóknarfrestur er til 6. febrúar. Nánari upplýs-
ingar á endurmenntun.is
NÁMSKEIÐ Í FJARFUNDI
Endurmenntun á í samstarfi við fræðslumiðstöðv-
ar á landsbyggðinni um námskeið í heimabyggð.
Á vormisseri verða 12 námskeið á dagskrá sem
eru send út í gegnum fjarfundabúnað og eru ein-
göngu ætluð þátttakendum í fjarfundi. Námskeið-
in eru send út í rauntíma
sem gerir þátt-
takendum
kleift að
taka þátt
í um-
ræðum.
Hægt
er að
kynna
sér
nám-
skeið-
in á vef
Endur-
mennt-
unar,
endurmennt-
un.is, en skráning og upplýsingagjöf fer fram hjá
fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum víðs vegar
um landið. Fyrirtæki og stofnanir sem eiga fjar-
fundabúnað geta einnig tekið þátt og hafa þá sam-
band við Endurmenntun.
Endurmenntun HÍ er til húsa á
Dunhaga 7 í Reykjavík.
Ný námskeiðslína er að hefja göngu sína hjá Endur-menntun undir yfirskrift-
inni Lykilþættir þjónustu – mark-
viss leið. Meðal kennara er Guð-
rún Sverrisdóttir þjónusturáðgjafi
en hún segir þjónustustefnu gjarn-
an gleymast við stefnumótun fyrir-
tækja.
„Áhrifin sem góð þjónusta hefur
eru gríðarlega vanmetin,“ segir
Guðrún. „Þjónustan sem slík er
ósýnileg, óáþreifanleg og ekki hægt
að setja hana á lager. Hún gerist í
raun í augnablikinu milli þess sem
er að veita hana og þess sem mót-
tekur hana,“ segir Guðrún.
Búið er að þarfagreina hvaða
þættir skipta máli í þjónustu, bæði
fyrir fyrirtæki sem heild og fyrir
einstaklinga sem veita þjónustuna.
Námskeiðslínan er í þremur lotum
og farið verður yfir allt það sem
skiptir máli varðandi þessa þætti.
„Við byrjum á að fara yfir þjón-
ustustefnu fyrirtækja þannig að
nemendur hafi skilning á því hvaða
þýðingu skipulag og ferlar hafa
fyrir starfsfólk þjónustufyrirtækja
og geti hannað einfalt ferli fyrir
þjónustu,“ útskýrir Guðrún. „Þar er
meðal annars skilgreint til hvers er
ætlast af starfsfólki en það er stund-
um ekki ljóst. Þess vegna verður
einnig tekið á ýmsum þáttum sem
styrkja þátttakendur í starfi. Farið
verður í samskiptahæfni, lausn
ágreiningsmála, líkams- og radd-
beitingu, vinnugleði og leiðir til að
takast á við streitu og álag svo eitt-
hvað sé nefnt. Allir þessir þættir
vega þungt þegar veita á framúr-
skarandi þjónustu,“ segir Guðrún.
„Við þekkjum það öll sem við-
skiptavinir að ef við upplifum
áhuga og þjónustuvilja hjá þeim
sem þjónustar okkur þá verður það
eftirminnilegt. Sá sem veitir þjón-
ustu þarf að vita hvað viðskipta-
vinurinn vill og kunna að spyrja
spurninga. Svo er hægt að fara
yfir strikið og verða þreytandi og
yfir gengilegur. Þetta er línudans.
Þjónustustarf er gríðarlega kröfu-
hart starf því viðskiptavinir eru jafn
ólíkir og þeir eru margir.“
Námskeiðslínan er ætluð öllum
sem starfa við þjónustu í fyrirtækj-
um og stofnunum og þeim sem
hafa áhuga á að auka þekkingu
sína og færni á því sviði. Að nám-
inu koma sérfræðingar og reynslu-
miklir kennarar úr röðum atvinnu-
lífs og háskólasamfélags. Í lok náms
fá þeir þátttakendur sem lokið hafa
öllum lotum skírteini sem vottar
þátttöku í náminu.
Námið er öllum opið og án inn-
tökuskilyrða. Umsóknarfrestur er
til 6. febrúar. Sótt er um á endur-
menntun.is. Einnig er hægt að fá
upplýsingar í síma 525 4444.
Nám í lykilþáttum
þjónustu
Áhrif góðrar þjónustu eru vanmetinn þáttur í rekstri fyrirtækja. Hjá Endurmenntun
Háskóla Íslands er að hefjast námskeiðslína þar sem nemendur öðlast hagnýta
grunnþekkingu og færni í framúrskarandi þjónustu.
Guðrún Sverrisdóttir þjónusturáðgjafi er meðal kennara á nýju námskeiði sem er að hefja göngu sína hjá Endurmenntun, Lykilþættir
þjónustu – markviss leið. MYND/GVA