Fréttablaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 62
Slæmt kvef eins vara-
samt og nokkrir ískaldir
Landsmenn keppast nú við
að blóta færðinni á vegum
úti enda hefur óvenjumikil
snjókoma síðustu daga sett
strik í reikninginn hjá
mörg um. Sigvaldi Kalda-
lóns, eða Svali, er hins
veg ar í þeim minnihluta-
hópi sem fagnar versnandi
færð enda vel búinn til að
takast á við skaflana.
BÍLAR „Ég frelsaðist þegar ég
skipti yfir í jeppa árið 2001,“ segir
Sigvaldi Kaldalóns, útvarps-
maður en hann keyrir
óhræddur um götur
bæjarins á breyttum
Nissan Patrol jeppa,
óhræddur við snjó-
skafla og vonda
færð sem einkenna
vegina þessa dagana.
„Ég skil ekki þá
sem eru að pirra sig
á færðinni og snjónum.
Það er svo skemmtilegt og
það birtir yfir öllu,“ segir Sig-
valdi, betur þekktur sem Svali,
og bætir við að hann hlakki til á
hverjum vetri að fá snjóinn til að
geta spreytt sig á jeppanum.
„Þegar óveðrið var sem mest
fyrr í vikunni, græjaði ég mig upp
í kuldagalla og fór út að keyra með
spotta. Bæði til að hjálpa bílum
sem eru fastir og svo keyra aðeins
í sköflunum og komast í smá fjör.
Ekki skemmdi fyrir að festa sig og
þurfa að moka smá. Það er bara
gaman.“
Svali fullyrðir að mikill munur
sé á jeppaeiganda og jeppakarli en
að hann sjálfur sé í síðarnefnda
flokknum. „Fyrir mér er þetta
fjölskylduvænt áhugamál sem við
félagarnir deilum saman. Jeppinn
er ferðatæki sem gerir mér kleift
að komast hvert á land sem er,
hvernig sem viðrar.“
Svali viðurkennir að dýrt sé að
eiga jeppa en hann á sem betur fer
góða að sem aðstoða hann í við-
haldi bílsins en samhliða jeppan-
um á fjölskyldan lítinn Póló sem er
notaður í innanbæjarakstur.
„Ég fer helst ekki á jeppanum í
HEILSA Fáum myndi detta í hug
að setjast undir stýri eftir að hafa
svolgrað í sig fjórum tvöföldum
skotum af viskí, en líklegast eru
þeir enn færri sem myndu sleppa
því að keyra sökum þess að þeir
væru með kvef.
Samkvæmt nýrri rannsókn á
vegum bresks tryggingafélags
hefur þó komið í ljós að mjög
slæmt kvef getur haft álíka
mikil áhrif á aksturshæfnina og
það áfengismagn sem fylgir fjór-
um tvöföldum
viskískotum.
Rannsókn-
i n sýndi
að slæmt
kvef dreg-
ur mjög úr
viðbragðs-
f lý t i og
athyglis-
gá fu og
getur þannig bugað færustu öku-
menn. Þetta var mælt með þartil-
gerðu tæki, sem sett er í bílana
og mælir meðal annars aksturs-
hraða, bremsuhraða og beygju-
fimi.
Í ofanálag fylgja hnerrar oft
kvefpestum og þeir geta verið
stórhættulegir þegar um öku-
mann bifreiðar er að ræða. Bæði
lokar fólk augunum þegar það
hnerrar, sem gæti reynst hættu-
legt þó aðeins sé í örfáar sekúnd-
ur, og einnig geta þeir haft það
í för með sér að fólk kippist til
og getur við það misst stjórn á
bílnum.
Það er því augljóslega vit í að
halda sig heima í rúminu þegar
kvefpestin heltekur mann,
heilsunnar vegna, sam-
starfsfélaganna og
umferðarinnar. - trs
27. janúar 2012 FÖSTUDAGUR30
Skilur ekki fólk sem pirrar
sig á færðinni og snjónum
67 milljónir spjaldtölva seldust í heiminum árið 2011, sem er aukning upp á 260 prósent frá árinu áður, samkvæmt tölum frá markaðsrannsóknarfyrirtækinu Strategy Analytics. iPad frá Apple
er ennþá vinsælasta spjaldtölvan, en þær sem keyra á Android-stýrikerfinu fylgja fast á eftir.
KOSTIR
● „Maður kemst allt sama hvernig
viðrar.“
● „Frábært og fjölskylduvænt áhuga-
mál að fara reglulega í jeppaferðir.
Maður uppgötvar fallega staði á
landinu.“
● „Það er eitthvað við það að sitja
svona hátt uppi og hafa gott
útsýni.“
GALLAR
● „Maður þarf að fylgjast vel með
því jeppar slitna frekar en fólks-
bílar og því dýrt reglulegt viðhald.“
● „Dýrt bensín- og dísilverð hefur
áhrif á jepparekstur því þeir eyða
að sjálfsögðu meira.“
● „Maður er ekkert að fara að
skjótast milli staða innanbæjar
á jeppanum. Oft erfitt að finna
stæði, til dæmis í Kringlunni.“
KOSTIR OG GALLAR VIÐ JEPPANN AÐ MATI SVALA
Kringluna en ég var á litla bílnum
um daginn í snjónum og þurfti að
moka og moka og mér fannst það
alveg jafn mikið sport.“
Spurður hvort hann verði var
við öfund frá öðrum bílstjórum í
snjónum svarar Svali: „Já, maður
hefur alveg heyrt fólk sem tuðar
„Þið þarna jeppakarlar“ en þetta
er lífsstíll og ég er duglegur að
koma öðrum til hjálpar í þessu
veðri. Stundum fer ég gagngert út
til að hjálpa bílstjórum í neyð.“
alfrun@frettabladid.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Nýtt verk úr smiðju Vesturports
Tryggðu þér miða strax!
DRAGA ÚR HITA Í TÖLVUM Indverskir vísindamenn hafa
fundið upp leið til að draga úr hita í tölvum, iPodum og
farsímum. Sífellt er verið að fjölga örflögum í slíkum tækj-
um til að auka virkni þeirra en fyrir vikið verður hitinn
meiri og það fer illa með tækin. Samkvæmt
Deccan Herald er hugmyndin sú að koma
fyrir örsmáum hitapípum í tækin sem soga
til sín hitann frá þeim. Efnið sem notað yrði
til verknaðarins kallast á ensku „graphene“ og
er það þynnsta sem til er í heiminum.
LÆRA AÐ GERA „ÖPP“ Í SKÓLUM „Öppin“ sem notuð eru
í farsímunum verða sífellt vinsælli. Til marks um það geta
nemendur í Apex-menntaskólanum í Norður-Karólínu í
Bandaríkjunum lært að hanna og markaðssetja „öpp“ fyrir
snjallsíma. Um tólf vikna tilraunanám er að ræða sem tölvu-
framleiðandinn Lenovo og samtökin National Academy
Foundation standa fyrir. Sautján milljónum „appa“ var
hlaðið niður í Bandaríkjunum í fyrra. Búist er við að sú tala
eigi eftir að hækka til muna á næstu árum.
TÆKNI
HEILSA
Spírulína
Inniheldur yfir 100
lífræn næringarefni,
13 vítamín,16
steinefni o.fl.
Bjuggu til
ósýnilegan
hlut
VÍSINDI Vísindamönnum hefur í
fyrsta sinn tekist að fela þrívíðan
hlut og gera hann þannig ósýnileg-
an frá öllum sjónarhornum.
Þetta virkar reyndar aðeins
þegar um svokallaðar örbylgju-
öldur á rafsegulsviði er að ræða,
samkvæmt tímaritinu New
Journal of Physics.
Frekari rannsóknir á þessari
uppgötvun og hvernig hægt er að
nýta sér hana eru fyrirhugaðar á
næstunni.
HEILSA Hingað til hefur beikon
ekki verið talið til upp þegar rætt
er um heilsusamlegt fæði, nema þá
í því samhengi að það beri að var-
ast sem heitan eldinn.
Nú hafa fjórir læknar við lækna-
miðstöðina í Detroit þó fundið út
að beikon hefur í raun læknandi
mátt. Það hefur í tvígang verið
notað til að ná tökum á óstöðv-
andi blóðnasir ungrar stúlku sem
er með sjaldgæfan og lífshættu-
legan erfðafræðilegan sjúkdóm
sem lýsir sér í óstöðvandi blóð-
nösum. Árangurslausar tilraunir
læknanna við að stöðva blóðnasir
stúlkunnar, sem er fjögurra ára
gömul, voru farnar að valda þeim
áhyggjum eftir að blóðnasirnar
hafði staðið yfir í rúma viku. Það
var þá sem einn þeirra, Dr. Wal-
ter Belenky, mundi eftir ráðlegg-
ingum sem hann hafði lesið þegar
hann starfaði sem læknir í hern-
um, en þar var talað um að stöðva
blæðingu með svínakjöti.
Dr. Belenky segir aðferðina ekki
hafa verið vel útskýrða og að ekki
hafa legið nein meiri háttar vísindi
á bak við hana. Það var þó ákveðið
að láta á þetta reyna og upprúllað
svínakjöt var sett í nasir stúlkunn-
ar. Árangurinn leyndi sér ekki og
gat stúlkan farið heim 72 tímum
síðar. Nokkrum mánuðum síðar
datt stúlkan á andlitið og fékk
blóðnasir aftur. Hún var flutt á
spítalann þar sem var strax brugð-
ið á það ráð að stinga svínakjöti í
nefið á henni. Hún var útskrifuð 48
tímum síðar.
Það er því ljóst að beikon stíflar
fleira en kransæðarnar. - trs
Lækningamáttur
beikons viðurkenndur
ÞARFAÞING Beikonið á þessari mynd
gæti bjargað lífi þínu.
ÓHRÆDDUR VIÐ SKAFLANA Sigvaldi
Kaldalóns, eða Svali, fagnar versnandi
færð og mikilli snjókomu síðustu daga
enda brunar hvert sem hann vill á
jeppanum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
lífsstíll
lifsstill@frettabladid.is
KVEF EÐA ÁFENGI Getur
haft slæm áhrif á aksturs-
færnina.
ÓSÝNILEGT EN SATT Vísindamönnum
hefur tekist að gera hlut ósýnilegan.