Fréttablaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 36
FULLT NAFN: Manuela Ósk Harðar- dóttir ALDUR: 21, plús/mínus sjö ár HVAR ERTU ALIN UPP: Í Vesturbæ Reykjavíkur BÖRN: Jóhann Grétar sjö ára og Elma Rós eins og hálfs árs. ÁHUGAMÁL: Ég hef áhuga á tísku, hönnun og öllu fallegu. Mér finnst gaman að ferðast, fara í leikhús og á tónleika – en skemmtilegast finnst mér að eiga góðar stundir og skapa dýrmætar minningar með fjölskyldu og vinum. 8 • LÍFIÐ 27. JANÚAR 2012 Hvernig er tilfinningin að vera komin heim? Tilfinningin er unaðs- leg! Hér eru allir uppáhaldsstaðirn- ir mínir, besta loftið, besta vatn- ið og fallegasta náttúran. Svo er þetta öruggasta landið til að ala upp börnin sín í. Ísland mun allt- af verða landið mitt! Er einhver einn staður sem þér þykir vænst um? Snæfellsnesið er mér afar kært! Þar er ólýsanlega orku og óútskýrðan kraft að finna. Hvernig upplifun er að hafa búið erlendis og hvað lærdóm get- urðu dregið af þeirri upplifun? Það er búið að vera mikið ævin- týri og viðbót í reynslubankann að flytja frá heimalandinu og fóta sig í ókunnugu landi. Ég er mjög þakk- lát fyrir þennan tíma – en glamúr- inn við útlandið var fljótur að fölna og heimþráin magnaðist upp með hverju árinu. Hvaða kosti hefur Ísland fram yfir Bretland að þínu mati? Að- alkosturinn er auðvitað sá að á Ís- landi býr nánast öll mín fjölskylda og vinir. Annars finnst mér Ísland hafa nánast allt fram yfir Bretland – nema kannski að þar er meira vöru- úrval og fjölbreyttari ferðamögu- leikar. Er munur á breskum konum og íslenskum? Íslenskar konur eru einstakar að mörgu leyti og það rennur augljóslega víkinga- blóð um æðar þeirra því þær eru vinnuþjarkar, sjálfstæðar mjög og standa saman þegar á reynir. Það er erfiðara að eignast alvöru vin- konur þarna úti, það er bara öðru- vísi menning. Svo er gamla klisjan um að við eigum fallegustu konur í heimi bara dagsönn. Einkalíf þitt hefur ratað ítrek- að í fjölmiðla undanfarið. Hefur það reynst þér og þínum erfitt? Ég gæti aldrei lýst því með orðum hversu erfitt það var að lenda svona í klóm fjölmiðla – og ætla því ekkert að reyna. Það versta er tilhugsunin um að börnin mín gætu séð þetta í framtíðinni – og þeim mun ábyggi- lega þykja erfitt að skilja hvers vegna ókunnugt, fullorðið fólk hafði þörf fyrir að úthúða móður þeirra á opnum vef, þegar fram líða stundir. Fannst þér þú fá óréttláta um- fjöllun? Auðvitað er það óréttlátt þegar fréttamiðlar sniðganga allt Eftir fjögurra ára búsetu í Bretlandi er Manuela Harðardóttir komin heim. Heim til Íslands þar sem hún ætlar að skjóta rótum og hlúa að börnum sín takast á við ný verkefni hér á landi og lítur björtum augum á framtíðina eftir erfiða tíma í einkalífinu og slæma útreið í fjölmiðlum í kjölfar skilnaða ÍSLAND MUN ALLTAF VERÐA LANDI MYNDIR: VALGARÐUR GÍSLASON FÖRÐUN: HANN Skoðið brot af úrvalinu á facebook! Engjateigi 5, 2. hæð. Opið 12 - 16 virka daga og 10 - 16 laugardaga 60 - 90% afsláttur af kjólum 60 - 80% afsláttur af öllum skóm Nýtt á lagersölunni mikið úrval af jökkum og pilsum á 60 - 90% afslætti Nú 20% viðbótarafsláttur af öllum kjólum Skór upphaflegt verð 29.900 útsöluverð 5.990.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.