Fréttablaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 56
27. janúar 2012 FÖSTUDAGUR24
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. nautasteik, 6. tveir eins, 8. fornafn,
9. bein, 11. leita að, 12. þyrping, 14.
urga, 16. tveir eins, 17. ennþá, 18. for,
20. tveir eins, 21. þjappaði.
LÓÐRÉTT
1. iðja, 3. umhverfis, 4. græðgi, 5.
af, 7. endalaus, 10. framkoma, 13.
atvikast, 15. sál, 16. ílát, 19. holskrúfa.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. buff, 6. ee, 8. mér, 9. rif,
11. gá, 12. klasi, 14. ískra, 16. ff, 17.
enn, 18. aur, 20. dd, 21. tróð.
LÓÐRÉTT: 1. verk, 3. um, 4. fégirnd,
5. frá, 7. eilífur, 10. fas, 13. ske, 15.
andi, 16. fat, 19. ró.
Ég sagði henni að
sambandið væri
ekki að ganga upp
og tárin hættu
ekki að flæða fyrr
en hún var horfin!
Friðþóra!
Þú ert með
eitthvað milli
tannanna!
Farið?
Nei, ekki
alveg!
Svona!
Fullkomið!
Hæ, mamma.
Hvað segirðu?
Ég er búin
að eiga svo
merkilegt kvöld!
Öhm. Leyfðu mér að
endurorða spurninguna.
Hvað segirðu, skyldmenni
sem ég hef mikinn áhuga
á að hlusta á.
Nú erum við búin
að skrifa bréfið til
jólasveinanna, en
hvernig komum
við því til fjalla?
Við
verðum
einhvern
veginn
að fljúga
þangað.
Sjáðu, undir trénu!
fjarstýrð þyrla eins og úr
sögunni hans pabba!
Núna þurfum við bara aðra
þyrlu til að komast þangað.
Ég held að ég hafi
opnað eina áðan.
Ég æddi inn á gjörgæsludeild klukkan 23.45 á sunnudagskvöldi, útgrátin með
úfið hár og í inniskóm. Það voru einmitt
vaktaskipti og ég hrasaði í flasið á lækni
sem var að fara heim. Hún leit á mig og
sagði svo: „Sestu niður með mér smá-
stund.“ Hún spurði mig hvern ég væri að
heimsækja og rakti svo fyrir mér hvernig
staðan væri, hvað væri verið að gera og
hvað væri hægt að gera. Vaktin hennar var
búin, hún var á leið heim eftir örugglega
erfiðan dag en gaf sér samt tíma fyrir mig.
ÉG sat kjökrandi á sunnudagskvöldi með
barnið mitt fjögurra vikna í fanginu og
snökti í símann: „Þetta gengur ekki neitt,
þú sagðir að ég mætti hringja í þig …“.
Hálftíma síðar var komin til mín ljós-
móðir sem var ekki á vakt og sem
fékk, mér vitanlega, ekkert greitt
fyrir þessa heimsókn til mín. Bara til
að hjálpa mér.
ÉG gekk inn á líknardeild Landspítal-
ans í Kópavogi á sunnudagskvöldi með
blómvönd. Starfsfólkið, vinir mínir
sem ég hafði kynnst meðan ég beið
þar þess sem verða vildi, heilsaði
mér blíðlega og einn hjúkrunar-
fræðingur tók við blómunum
og sagði: „Mikið ertu dugleg
að koma hingað aftur.“ Og
mig langaði að svara: „Mikið
ert þú duglegur að vera
hérna á hverjum degi, alltaf.“
ÞAÐ er bara tilviljun að þessar þrjár
smásögur úr lífi mínu skuli gerast á
sunnudagskvöldi. Ég á líka aðrar sögur
af samskiptum mínum við starfsfólk
í heilbrigðiskerfinu sem gerast ekki á
sunnudegi. Ljósmæðurnar góðu sem tóku
á móti dætrum mínum, sjúkrabílalið-
arnir sem sóttu barnið mitt í andnauð og
komu því á bráðamóttöku, sjúkraliðarnir
sem önnuðust afa mína og ömmur á elli-
heimilum, starfsfólkið á heilsugæslunni
minni, á hjartadeild Landspítalans, fleiri
og fleiri.
FÓLK sem velur sér erfiðasta starf í
heimi, oft þakklátt en stundum vanþakk-
látt, oft gefandi en oftar slítandi, þar sem
mistök geta kostað mannslíf, sem þarf að
þrífa alls konar líkamsvessa, lyfta full-
orðnu fólki og horfa á fólk deyja. Ofan á
þetta eru langar og einkalífsfjandsamleg-
ar vaktir, endalaus niðurskurður og sjúk-
lingar og aðstandendur í geðshræringu
sem örugglega eru ekki alltaf sanngjarn-
ir eða skemmtilegir og þurfa stundum að
fá útrás fyrir erfiðar tilfinningar.
FÓLKIÐ sem vinnur í heilbrigðiskerfinu.
Það má líka tala um lögreglufólk, slökkvi-
liðsfólk, kennara, leikskólakennara, allan
þennan fjölda fólks sem vinnur fyrir mig
á hverjum degi og leggur sig fram, jafn-
vel í lífshættu.
MIG langaði bara að segja takk.
Takk
Leikurinn sem allir
óttast
Andrúmsloftið er spennuþrungið fyrir viðureign Liverpool og
Manchester United vegna atburða síðustu mánaða.
Gott er að borða gulrótina
Kafað í mataræði landans og skoðað
hvar úrbóta er þörf.
Meðal annars efnis: