Fréttablaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 70
27. janúar 2012 FÖSTUDAGUR38
„Hann var alveg frábær,“ segir
Gunnar Atli Cauthery um sjálfan
Steven Spielberg sem leikstýrði
honum í kvikmyndinni War
Horse sem var nýlega tilnefnd
til sex Óskarsverðlauna.
Myndin fjallar um ungan mann
sem skráir sig í herinn meðan á
fyrri heimsstyrjöldinni stendur
eftir að hesturinn hans kemst í
vörslu breska hersins. Gunnar
Atli fer með lítið hlutverk í mynd-
inni sem þýskur hermaður og
segir nokkrar línur. Hann starf-
aði með Spielberg í tvo daga í
bænum Wisley á Englandi og við-
urkennir að hafa verið spenntur
að leika fyrir þennan mikla snill-
ing.
„Hann var mjög almennileg-
ur en einnig ákafur og metnað-
arfullur. Hann hagaði sér ekki
eins og hann væri búinn að fá
nóg af þessum bransa,“ segir
Gunnar Atli um Spielberg sem
hefur á ferilskránni stórvirki
á borð við E.T., Saving Private
Ryan og Schindler´s List. „Hann
var mjög skapandi á tökustaðnum
og opinn fyrir öllum nýjungum.
Hann prófaði að láta okkur fá
nýja texta og einnig að skipta um
sjónarhorn fyrir tökuvélarnar.“
Aðspurður segist Gunnar Atli
hafa verið aðdáandi Spielbergs
síðan í æsku og því hafi það verið
óraunverulegt að standa allt í
einu fyrir framan hann og leika.
„Ég var varla að trúa því að hann
væri þarna,“ segir hann.
Gunnar Atli er þrítugur og
hefur búið í Bretlandi alla sína
ævi. Móðir hans er Björg Árna-
dóttir sem eitt sinn lék í Þjóðleik-
húsinu en faðir hans er breskur.
Ungur að aldri fékk Gunnar Atli
leiklistarbakteríuna eftir að hafa
leikið hinn hálfbreska Roland í
kvikmyndinni Benjamín dúfu.
Árið 2008 útskrifaðist hann úr
hinum virta leiklistarskóla Royal
Academy of Dramatic Arts. Eftir
það fékk hann eftirsótt starf í
útvarpsleikritum hjá BBC og
lék meðal annars á móti Ian
McKellen. „Það var engin smá
upplifun svona snemma á ferlin-
um,“ segir hann um samstarfið
við þennan þekkta leikara.
Einnig fór hann með lítið hlut-
verk í sjónvarpsþáttunum The
Tudors. Mest hefur Gunnar Atli
samt leikið á sviði og undanfarna
mánuði hefur hann ferðast um
Bretland með leikhópnum Pro-
peller sem flytur verk Shake-
speares, Hinrik V. Fram undan
eru ferðalög til Ástralíu, Nýja-
Sjálands og Kína með leikhópn-
um. freyr@frettabladid.is
FÖSTUDAGSLAGIÐ
GUNNAR ATLI CAUTHERY: FRÁBÆRT AÐ VINNA MEÐ STEVEN SPIELBERG
Leikur þýskan hermann
í nýjustu mynd Spielbergs
Á TÖKUSTAÐ Gunnar Atli, vígalegur sem þýskur hermaður á tökustað kvikmyndar-
innar War Horse.
„Þetta er mikið spennufall enda
búið að vera langt og strangt ferli,“
segir Baltasar Breki Samper sem
komst inn í hið eftirsótta leikara-
nám hjá Listaháskóla Íslands og
hefur nám næstkomandi haust.
Tíu manna hópur upprennandi
leikara var valinn í byrjun vik-
unnar eftir inntökuferli sem hefur
staðið yfir síðan í byrjun janúar en
yfir 170 umsóknir bárust skólan-
um. Baltasar segir inntökuprófin
miklu skemmtilegri en hann bjóst
við. „Þarna voru margir hæfileika-
ríkir krakkar og það hlýtur að hafa
verið ansi erfitt að velja á milli
enda fannst mér allir eiga fullt
erindi í þetta nám,“ segir Baltasar
en ásamt honum komust þau Albert
Halldórsson, Dominique Gyða Sig-
rúnardóttir, Eysteinn Sigurðarson,
Kjartan Darri Kristjánsson, Katr-
ín Halldóra Sigurðardóttir, Krist-
ín Pétursdóttir, Ólafur Ásgeirsson,
Vala Kristín Eiríksdóttir og Þuríð-
ur Blær Jóhannsdóttir inn.
Þegar Fréttablaðið náði tali af
Baltasar var hann í matarhléi
í vinnunni en hann vinnur sem
sviðsmaður hjá Þjóðleikhúsinu.
„Ég byrjaði að vinna í haust í Þjóð-
leikhúsinu og núna erum við að æfa
Vesalingana sem er risa uppsetn-
ing og mikið fjör.“
Baltasar Breki er sonur leik-
stjórans og leikarans Baltasars
Kormáks og viðurkennir að hann
hafi þegið ráðleggingar frá föður
sínum fyrir prufurnar.
„Ég er löngu smitaður af leiklist-
arbakteríunni og get ekki valið á
milli hvíta tjaldsins eða leikhúss-
ins. Hvort tveggja er jafn spenn-
andi en ég hef unnið mikið með
pabba þegar hann hefur verið að
taka upp myndir hérna heima og
það er heillandi heimur,“ segir
Baltasar og bætir við að hann
hafi aldrei hlakkað jafn mikið til
að byrja í skólanum eins og núna.
„Þetta er skrýtin tilfinning sem ég
hef ekki upplifað áður, get hrein-
lega ekki beðið eftir haustinu.“
- áp
Löngu smitaður af leiklistarbakteríunni
HLAKKAR MIKIÐ TIL Baltasar Breki
Samper hefur aldrei hlakkað jafn mikið
til að byrja í skólanum en hann er einn
af tíu sem komust inn í hið eftirsótta
leikaranám hjá Listaháskólanum í
vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
„Það er ansi
erfitt að velja eitt
lag sem kemur
mér í gott skap,
ég er einstaklega
hrifinn af alls-
kyns stúlkna-
böndum frá sjö-
unda áratugnum
og frönskum söngkonum. Ein
plata sem ég hef spilað mikið
síðustu vikurnar kemur samt frá
Svíþjóð og er frá 1968 og syngja
þar The Sunnygirls lagið From
a Distance. Annars hlusta ég
mikið á Broadcast sem er mín
uppáhaldshljómsveit.“
Sævar Markús fatahönnuður.
Svartur hundur prestsins (Kassinn)
Heimsljós (Stóra sviðið)
Lau 28.1. Kl. 19:30 10. sýn.
Sun 29.1. Kl. 19:30 11. sýn.
Lau 4.2. Kl. 19:30 12. sýn.
Sun 5.2. Kl. 19:30 13. sýn.
Lau 11.2. Kl. 19:30 1. Aukas.
Sun 12.2. Kl. 19:30 2. Aukas.
Lau 18.2. Kl. 19:30 14. sýn.
Sun 19.2. Kl. 19:30 15. sýn.
Lau 25.2. Kl. 19:30 16. sýn.
Sun 26.2. Kl. 19:30 17. sýn.
Lau 28.1. Kl. 15:00 AUKAS.
Sun 29.1. Kl. 13:30 12. sýn.
Sun 29.1. Kl. 15:00 13. sýn.
Sun 5.2. Kl. 13:30
Sun 5.2. Kl. 15:00
Sun 12.2. Kl. 13:30
Sun 12.2. Kl. 15:00
Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan)
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
U
U
U
U
U U
U
U
Fös 27.1. Kl. 19:30 AUKAS. Lau 28.1. Kl. 19:30 AUKAS.
Fös 2.3. Kl. 19:30 Frums.
Fös 9.3. Kl. 19:30 2. sýn.
Lau 10.3. Kl. 19:30 3. sýn.
Sun 11.3. Kl. 19:30 4. sýn.
Fös 16.3. Kl. 19:30 5. sýn.
Lau 17.3. Kl. 19:30 6. sýn.
Sun 18.3. Kl. 19:30 7. sýn.
Fös 23.3. Kl. 19:30 8. sýn.
Lau 24.3. Kl. 19:30 9. sýn.
Sun 25.3. Kl. 19:30 10. sýn.
Fös 30.3. Kl. 19:30 11. sýn.
Lau 31.3. Kl. 19:30 12. sýn.
Sun 1.4. Kl. 19:30 13. sýn.
Lau 14.4. Kl. 19:30 14. sýn.
Sun 15.4. Kl. 19:30 15. sýn.
Lau 21.4. Kl. 19:30 16. sýn.
Sun 22.4. Kl. 19:30 17. sýn.
Fös 24.2. Kl. 19:30 Frums.
Fim 1.3. Kl. 19:30 2. sýn.
Lau 3.3. Kl. 19:30 3. sýn.
Lau 10.3. Kl. 19:30 4. sýn.
Sun 11.3. Kl. 19:30 5. sýn.
Lau 17.3. Kl. 19:30 6. sýn.
Sun 18.3. Kl. 19:30 7. sýn.
Fös 23.3. Kl. 19:30 8. sýn.
Lau 24.3. Kl. 19:30 9. sýn.
Fös 30.3. Kl. 19:30 10. sýn.
Lau 31.3. Kl. 19:30 11. sýn.
Fös 13.4. Kl. 19:30 12. sýn.
Les Misérables – Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Dagleiðin langa (Kassinn)
Uppnám (Stóra sviðið)
Fös 3.2. Kl. 21:00 AUKAS.
Uppistand – Mið-Ísland (Stóra sviðið)
Fös 10.2. Kl. 20:00 AUKAS.
U U
Ö Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U U U
U U U
U U
U U
U U
U U „Ég bara skil þetta ekki,“ segir rit-
höfundurinn Hallgrímur Helga-
son.
Bók hans, The Hitman‘s Guide
to Housecleaning, eða 10 ráð til
að hætta að drepa fólk og byrja að
vaska upp, náði efsta sætinu á vin-
sældalista Amazon yfir spennu-
bækur í Kindle-rafbókarformi.
Bókin er gefin út af Amazon
bæði í Kindle- og kiljuformi og
kom inn á sölusíðuna á þriðjudag-
inn. Strax á fyrsta degi fór bókin
inn á topp tíu í Kindle-búð Amazon
í Englandi og um stund náði hún
toppsætinu í spennusagnaflokki af
Stieg Larsson, höfundi Millenni-
um-þríleiksins. Í gær var bók Hall-
gríms komin niður í annað sætið.
„Þetta er eitthvað furðulegt, líka
af því að bókin er í „þriller“-deild.
Ég vona bara að fólk verði ekki
fyrir vonbrigðum því þetta var
ekki beint „þriller“ þegar ég var
að skrifa hana,“ segir Hallgrímur.
Eini „þrillerinn“ sem ég þekki er
með Michael Jackson. Ég las
einhvern tímann textann
við það lag og það er eini
þrillerinn sem ég hef lesið.“
Að sögn Hallgríms var búið
að reyna að gefa bókina út á
ensku, tungumálinu sem hún
var fyrst skrifuð á, í
fjögur ár eða þang-
að til Amazon kom
inn í myndina.
„Maður var með
hnút í maganum
yfir því hvort
enskumælandi
fólk myndi
sætta sig við
að lesa ensku
sem vær i
ekki eft ir
mann með ensku að móðurmáli.“
Bókin hefur komið út á tíu
tungumálum, nú síðast á
kóresku. Kvikmynda-
réttur hennar hefur
einnig verið seldur til
Danmerkur og hefur
leikstjórinn Kasper
Barfoed verið ráðinn af
því tilefni. - fb
Náði efsta sætinu hjá Amazon
FYRIR OFAN
LARSSON
Hallgrímur
Helgason
hrifsaði topp-
sætið af Stieg
Larsson hjá
Amazon.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Nýtt verk úr smiðju Vesturports
Tryggðu þér miða strax!