Fréttablaðið - 27.01.2012, Page 6
27. janúar 2012 FÖSTUDAGUR6
„Ísland stóð svo sannarlega
undir nafni þegar það tók á móti
okkur,“ segir Siv Friðleifsdóttir
alþingismaður sem lenti í hrakn-
ingum ásamt fleiri þingmönnum
við komuna til landsins í fyrra-
kvöld.
Með Siv í för voru Álfheiður
Ingadóttir, Bjarni Benediktsson,
Helgi Hjörvar, Jón Gunnarsson
og Lúðvík Geirsson. Auk þeirra
voru síðan nokkrir starfsmenn
þingsins í föruneytinu sem var að
skila sér heim frá Ósló að lokn-
um fundum hjá Norðurlandaráði.
Þingmaðurinn Höskuldur Þór-
hallsson kom einnig til landsins
í fyrrakvöld annars staðar frá.
Siv segir hópinn hafa verið
fastan í flugrútunni hér og þar í
og við Keflavík áður en leikurinn
barst aftur upp í Leifsstöð eftir
um tvo klukkutíma. Jón Gunnars-
son hafi þó verið fljótur í gegn
um flugstöðina og náð að fara
Reykjanesbrautina á eigin bíl
rétt í þann mund sem veginum
var lokað.
„Við gátum brotist upp í flug-
stöð aftur og þar hófst bið. Sumir
komu sér síðan á hótel í Keflavík
eða til vina og vandamanna,“
segir Siv sem eins og Álfheiður
Ingadóttir og Bjarni Benedikts-
son gisti á Hótel Keflavík.
Siv segir að þótt mannskapur-
inn hafi tekið öllu af æðruleysi
hafi sumir ferðamennirnir ekki
vitað hvaðan á þá stóð veðrið.
„Einn hélt víst að hann væri að
koma til Reykjavíkur þegar við
vorum að koma upp í flugstöð
aftur,“ segir Siv sem hrósar bíl-
stjóra rútunnar fyrir mikla færni
í blindhríð og ófærð.
Lúðvík Geirsson segir að það
hafi einmitt verið umhyggjusam-
ur rútubílstjóri Kynnisferða sem
bauð farþegunum sínum að láta
fara þokkalega um sig í heitri rút-
unni í stað þess að hírast í flug-
stöðinni. Hann og Helgi Hjörvar
ásamt tveimur starfsmönnum
Alþingis hafi náð að dotta þar til
morguns. Hann furðar sig hversu
lítill viðbúnaður sé vegna tilviks
eins og þessa þegar fjöldi manna
verður innlyksa í flugstöðinni.
Fólk þar hafi þó fengið vatn og
teppi um miðja nótt.
„Mér þótti sárt og aumt að
horfa upp á þetta gagnvart mörgu
fólki sem var með börn og gat
litla björg sér veitt. Fólk lá bara á
beru steingólfinu út um alla flug-
stöð. Ég kvarta ekki en nóttin var
erfið hjá mörgum,“ segir Lúðvík
Geirsson. gar@frettabladid.is
Einn hélt víst að hann
væri að koma til
Reykjavíkur þegar við vorum
að koma upp í flugstöð aftur.
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
ALÞINGISMAÐUR
Tilkynning um framboðsfrest
til stjórnarkjörs
Samkvæmt 32. gr. laga Félags íslenskra rafvirkja
skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör
stjórnar og trúnaðarráðs.
Með hliðsjón að framansögðu tilkynnist hér með að
framboðsfrestur hefur verið ákveðinn til kl. 12.00
þriðjudaginn 28. febrúar 2012 og ber að skila
tillögum ásamt meðmælendum fyrir þann tíma á
skrifstofu félagsins.
Hverjum framboðslista skulu fylgja skrifleg
meðmæli minnst 179 fullgildra félagsmanna
Reykjavík 27. janúar 2012.
Stjórn Félags íslenskra rafvirkja
Allt á kafi í snjó
Sólarhrings-
úrkoma við
Bolungavík var
64 sentímetrar í
gærmorgun.
64cm
Varmahlíð
Húnavallaskóli og
leikskólinn Vallaból
Laugarbakki
Ísafjörður
Sólgarður
Álftanes
Kerhólsskóli
Hofsós
Flateyri
Borðeyri
Bolungarvík
Selfoss
Flóaskóli
Borgarfjörður
Hólmavík
? Óvissustig vegna snjóflóða
! Hættustig vegna snjóflóða
Víða ófært
Snjóflóðahætta
Maður veittist að björgunarsveitar-
manni í Reykjanesbæ í gærmorgun.
Maðurinn var ósáttur við að fá ekki
að fara brautina áleiðis til Reykjavíkur
þegar snjóplógur lagði í hann. Lög-
reglan hafði metið það sem svo að
flugrúta og fleiri bifreiðar sem þurftu
að komast til höfuðborgarinnar fengju
að fara í kjölfar snjóplógs en aðrir
þyrftu að bíða. Björgunarsveitarmaður-
inn flúði inn í bíl og læsti að sér. Þá
barði maðurinn í rúðu bílsins og kallað
var á lögregluna.
Ógnaði björgunar-
sveitarmanni
Yfir hundrað manns unnu að snjóhreinsun og hálkuvörnum
í Reykjavík í gær á 66 tækjum. Unnið var allt frá því
klukkan fjögur í gærmorgun. Allar stofnleiðir og helstu
umferðargötur voru því orðnar færar seinni partinn í gær og
þá var unnið að því að hreinsa íbúagötur í öllum hverfum
fram á kvöld. Þegar símaveri borgarinnar lokaði í gær
höfðu 560 ábendingar verið skráðar yfir daginn. Flestar
vörðuðu snjóruðning í tiltekinni götu eða bílastæði, nokkrar
ábendingar lutu að bílastæðum við fjölbýlishús, en slíkt er í
verkahring húsfélaga og íbúa.
Hundrað manns í snjóhreinsun
Hættuástandi vegna snjóflóða á Ísafirði
og Hnífsdal var aflýst um
hádegisbil í gær. Lögreglan á
Ísafirði hafði samband við íbúa
á þeim svæðum sem höfðu
verið rýmd á miðvikudag
og þeim leyft að fara
heim.
Veðurstofan lýsti þó
enn yfir óvissustigi
á norðanverðum
Vestfjörðum og
Norðurlandi.
Maður tilkynnti bílstuld til
lögreglunnar í Reykjavík á
miðvikudagsmorgun. Um
var að ræða fólksbíl sem
hafði horfið af bílastæði
við fjölbýlishús í Breiðholti
og boðaði maðurinn komu
sína á lögreglustöð vegna
málsins. Stuttu síðar hafði
maðurinn aftur samband við
lögreglu og afboðaði komu
sína, því bíllinn var fundinn.
Í tilkynningu frá lögreglu
segir að bíllinn hafi þá staðið
óhreyfður á áðurnefndu
bílastæði. Hins vegar hafði
snjóað svo mikið að mað-
urinn hafði einfaldlega ekki
fundið bílinn fyrst í stað og
því álitið að honum hefði
verið stolið.
Horfinn í snjó
ÞINGMENN Í LEIFSSTÖÐ Eftir tveggja klukkutíma ferð um illfærar slóðir sneri flugrútan aftur með farþega sína í Leifsstöð. Þingmenn-
irnir Helgi Hjörvar, Álfheiður Ingadóttir og Lúðvík Geirsson spá í spilin ásamt tveimur starfsmönnum Alþingis. MYND/SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
ÚTLITIÐ SVART Öngþveiti blasti við út um framrúðuna á flugrútunni.
Þingmenn gistu í flugrútu
Hópur þingmanna á leið til landsins í fyrrakvöld komst ekki heim vegna ófærðar. Eftir hrakninga sváfu
tveir þeirra í flugrútunni en aðrir gistu í Keflavík. Margir hírðust við illan leik á steingólfinu í Leifsstöð.
Kennsla féll niður á
þessum stöðum í gær
vegna veðurs og ófærðar.
INNLYKSA Það þyrfti ansi hraustan
mann með skóflu til að moka sig út
úr þessum aðstæðum á heimavistinni
á Laugarvatni. MYND/ HANNES Þ. ÖFJÖRÐ
„Við fundum útganginn upp úr
hádegi og komumst þá út um
glugga á gömlu hliðarherbergi,“
segir Ægir Freyr Hallgrímsson,
nemandi við Menntaskólann á
Laugarvatni, sem snjóaði bók-
staflega inni á heimavistinni í
gær.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
að snjórinn lokaði útidyrunum
gjörsamlega og það sama gilti
um önnur hús í götunni. Vegna
þess var skólahaldi í mennta-
skólanum frestað fram yfir
hádegi í gær, að því er fram
kemur á vef skólans. - sh
Nemendur ML lokaðir inni:
„Fundum út-
ganginn upp
úr hádegi“
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur
og frábær tónlist
alla virka morgna
kl. 6.50 – 9.00