Fréttablaðið - 27.01.2012, Qupperneq 12
27. janúar 2012 FÖSTUDAGUR12
S
krautlegu Evrópumóti í
handknattleik er lokið hjá
íslenska landsliðinu og líkt
og svo oft áður skiptust á
skin og skúrir hjá strákun-
um okkar. Liðið varð fyrir
gríðarlegu áfalli fyrir mót þegar
ljóst varð að þeir Ólafur Stefánsson
og Snorri Steinn Guðjónsson myndu
ekki taka þátt. Svo meiðast Alexander
Petersson og Ingimundur Ingimund-
arson. Þetta eru allt lykilmenn og
ekki mörg lið sem myndu höndla það
að missa svo stóra bita úr sínu liði.
Ef mið er tekið af þessum áföllum
þá er árangur strákanna okkar í Serb-
íu magnaður og þeir komu ansi mörg-
um á óvart með vasklegum leik. Það
hefði ekki mikið þurft að falla með
þeim til þess að liðið hefði farið enn
lengra og jafnvel blandað sér í slag-
inn um undanúrslitasæti.
„Ef ég geri upp mótið þá er ég auð-
vitað svekktur að hafa ekki kom-
ist með nein stig í milliriðilinn. Mér
fannst við vera með mjög góða stöðu.
Burtséð frá því þá hefði ég viljað
fá vörn og markvörslu fyrr í gang
hjá okkur. Það fellir okkur að þessu
sinni,“ segir Guðmundur þegar hann
er beðinn um að greina hvað vantaði
upp á.
Hann tók þá ákvörðun að senda
Hreiðar Levý Guðmundsson mark-
vörð heim á kostnað nýliðans Arons
Rafns Eðvarðssonar og menn spyrja
sig að því hvort landsliðsferli Hreið-
ars sé lokið?
„Það var erfið ákvörðun fyrir mig
að senda Hreiðar heim því hann
hefur oft bjargað okkur í erfiðum
stöðum. Ég mun aldrei gleyma leikn-
um sem hann átti gegn Svíum þegar
við tryggðum okkur inn á Ólympíu-
leikana árið 2008. Þar átti hann stór-
kostlegan leik og hann hefur átt fleiri
góðar innkomur og við gleymum þeim
ekki,“ sagði Guðmundur sem fagnar
samkeppni um markvarðastöðurnar.
„Ég met stöðuna þannig í dag að við
eigum þrjá frábæra markverði og það
er mjög jákvætt. Það er gott að hafa
getað bætt Aroni við og fínt að það sé
samkeppni. Hreiðar verður að sjálf-
sögðu áfram í myndinni og landsliðs-
ferli hans er ekkert lokið.“
Lítið vantaði upp á
Þónokkrir nýliðar fengu tækifæri í
Serbíu og nýttu allir sín tækifæri vel.
Er breiddin í íslenska landsliðinu að
aukast?
„Já, hún er að aukast að vissu leyti.
Við eigum auðvitað menn inni. Það má
ekki gleyma því að við vorum án Alex-
anders Petersson allan milliriðilinn.
Við vorum líka án eins besta varnar-
manns liðsins, eins besta hraðaupp-
hlaupsmannsins og eins besta sóknar-
mannsins. Við náum samt mjög fínum
úrslitum og mér finnst margt jákvætt
við það sem við vorum að gera á þessu
móti,“ segir þjálfarinn en ekki vantaði
mikið upp á að liðið færi enn lengra á
þessu móti.
„Ef markvarslan hefði verið betri í
riðlinum þá hefðum við farið mjög langt
í þessum milliriðli. Ég trúi því staðfast-
lega. Við töpum fyrir Króötum með
tveim mörkum og leiðum í 56 mínútur.
Ein varsla í hvorum hálfleiknum hefði
getað riðið baggamuninn. Svona lítið
vantaði upp á og ef við hefðum feng-
ið markvörslu í Slóvenaleiknum hefði
staðan orðið önnur. Þarna sitjum við
eftir með sárt ennið. Varnarleikurinn
var ekki eins góður og við viljum hafa
hann en hann fór batnandi.“
Það var afar áhugavert hversu vel
sóknarleikurinn gekk á mótinu í ljósi
þess að hvorki Ólafur Stefánsson né
Snorri Steinn Guðjónsson voru með
liðinu. Þeir hafa borið uppi sóknarleik
landsliðsins að mestu leyti á undanförn-
um árum.
„Landsliðið hefur ekki í langan tíma
spilað eins góðan sóknarleik heilt yfir
og á þessu móti. Það er frábært. Það
hefur margt háð liðinu en ég get ekki
annað en klappað strákunum á bakið,“
segir Guðmundur en það leynir sér ekki
að hann er stoltur af strákunum sínum.
„Leikmenn eru að nýta sinn frítíma
til að spila á stórmótum. Það er ekki
sjálfgefið og þess vegna er ég svo þakk-
látur. Mér finnst líka að þjóðin eigi að
vera þakklát leikmönnunum sínum
sem eru að fórna sér. Þeir gera þetta
líka ótrúlega faglega þessir strákar og
eru atvinnumenn fram í fingurgóma.
Það gerir það líka þess virði að standa í
þessu. Menn skulu líka ekki gleyma því
að það er ekki sjálfgefið að þetta haldi
áfram svona endalaust,“ segir Guð-
mundur en hann er á meðal þeirra sem
finnst dapurlegt hversu lítið er stutt
við bakið á íslenska landsliðinu sem
hefur borið hróður Íslands víða á síð-
ustu árum.
Þjóðin vill árangur
„Menn verða að átta sig á því að ef
þeir vilja eiga gott landslið þá þarf
að fjárfesta í því. Allt annað er ekki
mögulegt. Það er meira og minna allt
undir á hverju móti. Það liggur stund-
um nánast þannig að ef við komumst
ekki inn á næsta stórmót þá þurfi að
loka HSÍ.
Það liggur við að þetta sé þannig og
hefur stundum verið. Íslenska þjóðin
vill árangur og er oft stolt af þessu liði.
Menn verða líka að fara að gera upp
við sig hvort þeir vilji virkilega eiga
svona heimsklassalið eða ætla menn
bara að slá sér á brjóst á mannamót-
um þegar landsliðið hefur staðið sig
vel? Ég vil sjá meiri fjárfestingu inn
í þetta lið ef menn á annað borð vilja
eiga það,“ segir Guðmundur en strák-
arnir okkar fá aldrei neinar greiðslur
fyrir þátttöku sína með landsliðinu.
Föstudagsviðtaliðföstuda
gur Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari
Það þarf að fjárfesta í landsliðinu
Landsliðsþjálfarinn Guðmundur Þ. Guðmundsson var nokkuð ánægður með leik íslenska landsliðsins á EM í Serbíu. Henry Birgir
Gunnarsson settist niður með Guðmundi í Novi Sad og ræddi við hann um álagið sem fylgir því að þjálfa eitt af stóru liðunum í
handboltanum í Þýskalandi, Evrópumótið, framtíðina, fjárveitingar til landsliðsins og hvort það þurfi að fækka stórmótum.
Guðmundur tók við landsliðinu þegar enginn vildi taka við því af Alfreð Gíslasyni eftir
EM árið 2008. Uppgangur landsliðsins hefur verið með ólíkindum alla tíð síðan þá og
liðið unnið tvenn verðlaun undir stjórn Guðmundar.
Alfreð hætti með liðið af því að álagið við að vera með félagslið og landslið var
honum ofviða. Guðmundur er í nákvæmlega sömu stöðu því hann þjálfar eitt af
stórliðum Þýskalands, Rhein-Neckar Löwen. Samningur Guðmundar við HSÍ rennur
út eftir Ólympíuleikana næsta sumar. Mun Guðmundur halda áfram með liðið eftir
það eða hætta?
„Ég er ekkert farinn að hugsa um það. Ég er að einbeita mér að því að hjálpa til
eins og ég get og vinna mína vinnu. Ég gef alla þá orku sem ég á fyrir landsliðið. Því
verður þó ekki neitað þetta er gríðarlegt álag og orkan er ekki endalaus. Ég geri mér
grein fyrir því. Ég skil vel ákvörðun Alfreðs á sínum tíma,“ sagði Guðmundur, en hann
nýtur þess þó að vera landsliðsþjálfari.
„Ég hef haft gríðarlega gaman af því að starfa með þessum strákum. Okkur hefur
auðvitað gengið vel. Á meðan ég sé liðið vera á réttri leið og að þróast þá hef ég
gaman af því að starfa sem landsliðsþjálfari. Hversu lengi það gengur er erfitt að
segja.“
Mikið álag að vera í tveimur störfum
Mér finnst
líka að
þjóðin eigi
að vera
þakklát leik-
mönnunum
sínum sem
eru að fórna
sér. Þeir gera
þetta líka
ótrúlega fag-
lega þessir
strákar og
eru atvinnu-
menn fram í
fingurgóma.
Landsliðsmenn annarra þjóða skilja
það ekki og hafa margoft sagt við þá
að þeir myndu ekki nenna þessu ef
þeir fengju ekki almennilega greitt.
Þarf að fækka stórmótum
„Það er ómæld og endalaus vinna sem
þessir strákar leggja á sig og þeir eiga
ekkert nema hrós skilið fyrir það. Þeir
eiga alla mína virðingu fyrir það sem
þeir leggja á sig þessir drengir. Mér
finnst þeir alveg frábærir.“
Það kom margt á óvart á þessu EM.
Meðal annars að liðin sem léku til
úrslita á HM fyrir ári – Frakkland og
Danmörk – fóru stigalaus í milliriðli.
Eins fór hjá íslenska liðinu.
Mikil umræða hefur verið um álag
handboltamanna á síðustu árum. Það
er að minnsta kosti eitt stórmót á ári
ofan í erfiðar deildarkeppnir um allan
heim og þetta mikla álag virðist vera að
bíta sum liðin í afturendann.
„Það háir okkur meira en mörg-
um liðum því við erum ekki með eins
marga háklassaleikmenn og þessi
sterkustu lið. Við erum hægt og sígandi
að reyna að nálgast þau en höfum ekki
sömu breiddina og bestu liðin í dag.
Við lentum svo í því núna að þurfa að
fylla stór skörð og mér fannst við gera
það mjög vel. Álagið er auðvitað gríð-
arlegt á öllum þessum leikmönnum.
Mér persónulega finnst að það þurfi
að fækka þessum stórmótum og hafa
lengra á milli þeirra. Ég myndi vilja sjá
að minnsta kosti þrjú ár á milli HM því
þetta er rosalegt álag.“
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN Guðmundur Þórður Guðmundsson hefur stýrt íslenska karlalandsliðinu í handbolta síðustu fjögur ár með frábærum árangri. Samningur hans við
HSÍ rennur út næsta sumar en Guðmundur segist ekki vera farinn að hugsa út í framhaldið með landsliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM