Fréttablaðið - 27.01.2012, Qupperneq 22
Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar stendur frá deginum í dag og fram á
mánudag. Þátttakendur fylgjast þá með garði í einn klukkutíma einhvern þessara
daga, skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og skrá niðurstöður á þar til gert
eyðublað og senda til Fuglaverndar. Nánari upplýsingar eru á www.fuglavernd.is
Andrea Helgadóttir er ein af níu
götulistamönnum sem opna sam-
sýningu í Norræna húsinu á morg-
un. Sýningin, sem ber heitið Vägg-
ar, tengir saman tvær kynslóðir
götulistamanna og á að endur-
spegla þverskurðinn af því sem
hefur verið að gerjast í listinni
síðustu árin.
„Þetta verður mjög forvitnilegt
enda óvenjulegt að sýna grafflist
í svona formlegum sýningarsal,“
segir Andrea sem er ein af upp-
hafsmönnum götulistar á Íslandi
og ein af fáum stelpum sem leggja
stund á þessa list. „Ég byrjaði að
graffa ellefu, tólf ára gömul, og
þá aðallega til að herma eftir eldri
bróður mínum,“ segir Andrea
glaðlega. Hún fór þó að mestu
leyti löglegu leiðina að listsköpun-
inni. „Ég og vinur minn fengum
leyfi til að gera graffverk á skóla-
lóðinni og fengum meira að segja
leyfi úr myndmenntatíma til að
dúlla í því,“ segir hún en í fram-
haldinu fengu þau fleiri verkefni
frá öðrum skólum. Þótt hún seg-
ist gera lítið af því að mála ólög-
lega játar hún þó fúslega að hún
reyni að finna sér veggi sem vel
þoli að láta flikka upp á sig. „Það
er skemmtilegt að finna staði sem
eru í niðurníðslu og fegra þá enda
yfirleitt fáir sem hafa á móti því,“
segir hún og bætir við að hún
merki sér iðulega verkin.
Andrea hefur lært myndlist frá
unga aldri. „Ég var alltaf í teikni-
námi þegar ég var lítil, fór síðan á
myndlistarbraut í FB og lærði loks
teiknimyndagerð,“ upplýsir hún en
hennar helsti áhugi liggur í því að
vinna með persónur og karaktera.
En er ekki leiðinlegt að sjá verk
sín hverfa undir málningu og í
niður rif? „Stundum, en það sem
gerir graffið að spennandi list-
formi er að það er eins og lífið
sjálft, maður fær að upplifa stuttar
stundir og reynir að njóta þeirra,“
segir hún hugsi og bendir á að
götulist sé svolítið eins og illgresi.
„Margt illgresi er fallegt en samt
illa séð af mörgum.“
Andrea segist oftast fá jákvæð
ummæli frá gangandi vegfarend-
um sem sjái hana við iðju sína.
„Sérstaklega voru margir ánægð-
ir með okkur götulistamenn þegar
við vorum að mála í undirgöngun-
um í Hlíðunum. Þeir sem fóru þar
um voru ánægðir að fá list í stað
krass, krots og gubbulyktar,“ segir
Andrea en þeir sem hafa áhuga á
að kynna sér list hennar geta kíkt
á grænu skrímslin á Hjartatorginu
við Hverfisgötu eða stórt verk við
enda Vesturgötu.
Í Norræna húsinu mun Andrea
sýna smámyndir málaðar á hjóla-
brettaplötur. Sýningin opnar á
morgun klukkan 18 með lifandi
listviðburði, tónlist og léttum veit-
ingum. Ásamt Andreu munu eftir-
farandi listamenn taka þátt: Björn
Árnason, Margeir Dire Sigurðar-
son, Orri, Ólafur Guðmundsson,
Skúli Árnason, Þorsteinn Davíðs-
son, Örn Tönsberg og Gebes sem
er einn af fremstu graffitimálur-
um Danmerkur.
solveig@frettabladid.is
Götulistin eins og illgresi
Níu götulistamenn færa listsköpun sína frá veggjum götunnar inn í Norræna húsið um helgina. Andrea
Helgadóttir er ein af upphafsmönnum götulistar á Íslandi og ein af fáum stelpum sem stunda listina.
Andrea Helgadóttir götulistamaður við eitt af verka sinna sem prýðir vegg í Reykjavík. Á samsýningu nokkurra götulistamanna í
Norræna húsinu mun hún sýna smámyndir sem hún hefur málað á hjólabrettaplötur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fæst í Bónus
Nú er tíminn fyrir harðfisk og bitafisk!
Þegar litið er til innihalds og næringargildis kemur í ljós að
Gullfiskur harðfiskur og bitafiskur er einhver besti prótíngjafi sem
völ er á. Það fara 5 kíló af nýrri roðlausri ýsu í að búa til 1 kíló af
harðfiski / bitafiski. Vatnið er dregið út með kældri þurrkaðferð,
en næringarefnin halda sér. Örlítið salt til bragðbætis.
Gullfiskur harðfiskur og bitafiskur
inniheldur rúmlega 80% prótín og
önnur næringarefni, sem eru
líkamanum nauðsynleg.
ÚTSALAN
heldur áfram og núna er
50%-70%
afsláttur
af öllum vörum
Sölufulltrúar:
Jóna María
jmh@365.is 512 5473
Brynja Dan
brynjadan@365.is 512 5465
Snorri
snorris@365.is 512 5457
alla sunnudaga klukkan 16. Njótið vel
Hemmi Gunn – og svaraðu nú!
Fjölbreyttur og fjörugur þáttur
Það sem gerir graffið að spennandi listformi er að það er
eins og lífið sjálft, maður fær að upplifa stuttar stundir og
reynir að njóta þeirra.