Fréttablaðið - 27.01.2012, Qupperneq 26
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012
MBA-námið við Háskóla Íslands er tveggja ára metnaðarfullt og starfs-
miðað meistaranám fyrir stjórn-
endur í íslenskum fyrirtækjum og
stofnunum en námið er skipulagt
meðfram starfi. Vegur Jóns Ólafs
Halldórssonar í MBA-námið við
Háskóla Íslands var ansi langur.
„Ég er menntaður véltæknifræð-
ingur frá Tækniskólanum í Kaup-
mannahöfn, útskrifaðist þaðan
árið 1987 og kom þá heim og fór
út á vinnumarkaðinn. Ég hóf störf
hjá OLÍS fyrir sautján árum og hef
verið framkvæmdastjóri sölusviðs
félagsins síðastliðin 15 ár.“ Jón
Ólafur segir að þegar líða hafi tekið
á starfsferilinn hafi hann farið að
finna til löngunar til að mennta sig
meira en með stofnun fjölskyldu
og verandi í stjórnunarstöðu hafi
ekki verið hæg heimatökin.
„Ég ákvað hins vegar árið 2006
að fara í nám við IESE (Univer-
sity of Navarra), Business School
í Barcelona og lauk þaðan AMP-
diploma 2007. Námið var keyrt
í fjórum lotum yfir árið og og
tekur á margan hátt það besta úr
MBA-náminu við skólann. Það
sem þetta gerði hins vegar var
að kynda undir áhuga mínum á
MBA-námi,“ segir hann og hlær.
Hann segir að konan hans hafi
ákveðið að fara í framhaldsnám
við HÍ árið 2010 og hvatti hún
hann í framhaldinu að skoða
möguleikana á MBA-námi. „Ég
skoðaði bæði námið í HR og HÍ
en mér hentaði HÍ betur. Mér leist
mjög vel á kennarahópinn og
eins að það var kennt á íslensku
en í mínu fyrra námi í Barcelona
var ég búin að prófa að læra á er-
lendum tungumálum. Markmið
námsins er að auðvelda nem-
endum að skilja betur forsendur
á sviði rekstrar og stjórnunar og
taka á móti verkefnum framtíð-
arinnar. Einnig er markmiðið að
efla frumkvæði, færni og forystu-
eiginleika.“
Jón Ólafur segist hafa mjög góða
reynslu af náminu. „Ég var ánægð-
ur með kennsluna á margan hátt,
kennararnir eru vel menntaðir
og sinna kennslunni faglega, það
komu reyndir stjórnendur með
gestafyrirlestra inn í námið og
eins fórum við í fjölmargar fyrir-
tækjaheimsóknir. Reynsluheim-
ur nemenda, sem er mismunandi,
gerir kennsluna einnig skemmti-
lega þar sem allir hafa eitthvað
fram að færa sem aðrir geta lært
af. Vissulega væri eitt og annað
sem mætti slípa til en í heildina
var þetta frábært.“
Hann segir að þótt hann sé enn
í sama starfinu þá hafi námið
endurnýjað hann sjálfan. „Ég er
ferskari, ég hef eflst sem persóna,
ég get notað hugmyndir úr nám-
inu í mínu starfi til að takast á við
krefjandi verkefni auk þess sem
tengslanet mitt er stærra. Einnig
er það ómetanlegt að eignast alla
þá góðu vini sem samnemendur
mínir eru.“
Efldist í MBA
námi í HÍ
MBA-námið við Háskóla Íslands efldi Jón Ólaf
Halldórssson sem persónu, hjálpaði honum að takast á við
krefjandi verkefni í stjórnunarstörfum og stækkaði
tengslanet hans.
„Ég er ferskari, ég hef eflst sem persóna, ég get notað hugmyndir úr náminu í mínu starfi
til að takast á við krefjandi verkefni auk þess sem tengslanet mitt er stærra,“ segir Jón
Ólafur um MBA-námið við Háskóla Íslands. MYND/PJETUR
Opið fyrir umsóknir
www.mba.is
MBA-námið við Háskóla Íslands er hagnýtt nám sem miðar
að því að efla frumkvæði, færni og forystueiginleika
MBA-námið í Háskóla Íslands er:
· tækifæri fyrir þig til að efla persónulega færni á sviði rekstrar og stjórnunar
· sérstaklega miðað að íslensku atvinnulífi
· nám með alþjóðlegum blæ þar sem horft er á Ísland í alþjóðasamhengi
· tveggja ára metnaðarfullt og starfsmiðað meistaranám fyrir stjórnendur
· skipulagt samhliða starfi, kennt er á föstudögum og laugardögum aðra hvora helgi
Skoraðu á þig
og taktu skrefið!
MBA-nám við Háskóla Íslands