Fréttablaðið - 27.01.2012, Page 32
4 • LÍFIÐ 27. JANÚAR 2012
Íslenska handboltalandsliðið hefur staðið sig vel á Evrópumótinu í Serbíu þar sem á
ýmsu hefur gengið hjá strákunum okkar. Karen, Hanna Borg og Hanna Steina lýstu
fyrir Lífinu hvernig þeim líður þegar strákarnir taka slaginn fyrir Íslands hönd.
„Það fer svolítið eftir gæðunum á hótelnetinu,“ segir
Hanna Steina spurð hvernig samskiptum hennar og
Ingimundar fer fram þegar hann er staddur erlendis
í keppnisferðum. „Stundum er bara ekki hægt að ná
sambandi netleiðina og þá hringjumst við á, en yfir-
leitt reynum við nú að vera í bandi gegnum Skype
netsamskiptaforritið. Það er reyndar svolítið misjafnt
hvar ég er stödd en ef leikirnir eru ótrúlega spenn-
andi þá líður mér nú best einni, því ég er tæplega
húsum hæf því ég tek leikina svo gríðarlega inn í
sálina,” útskýrir hún einlæg og segir: „Ég gæti létti-
lega fengið alvarlega greiningu hjá geðlækni ef hann
fylgdist með mér á þessum mómentum.”
„En oftast horfi ég nú samt með fjölskyldu og
vinum, og reyni að halda ró minni eins og ég mögu-
lega get.”
REYNIR AÐ
HALDA RÓ SINNI
HANNA STEINA ARNARDÓTTIR
STARF: Lögfræðingur
ALDUR: 26 ára
HJÚSKAPARSTAÐA: Í sambúð með Ingimundi „Didda“ Ingi-
mundarsyni í 4 ár
„Ég er yfirleitt einhvers staðar með fjölskyldunni
minni, heima hjá foreldrum mínum eða bræðrum,“
svarar Hanna Borg spurð hvort hún fylgist með
Ásgeiri hægri skyttu spila á HM.
„Ég er alltaf glöð, stolt og ánægð fyrir hans hönd
þegar ég sé hann inná því þá veit ég að hann er
ánægðastur. Þegar hann skorar fæ ég góða gæsa-
húð og brosi út að eyrum en þegar skotið geigar
kemur smá sviti í lófana sem kreppast saman. Best
af öllu er samt tilfinningin þegar maður sér strák-
ana fagna eftir sigurleiki. Þeir eru svo góðir vinir og
gleðin þeirra er svo einlæg. Þá eru nokkur gleðitár
alveg í lagi. Við sendum mikið tölvupósta og reyn-
um að heyrast á Skype-netsamskiptaforritinu sirka
annan hvern dag. Þá tölum við yfirleitt um eitthvað
allt annað en handbolta, ótrúlegt en satt,“ segir
Hanna um samskipti hennar og Ásgeirs þegar hann
er staddur erlendis. „Þetta getur verið hálfgert sjó-
HÁLFGERT
SJÓMANNSKONULÍF
HANNA BORG JÓNSDÓTTIR
STARF: Lögfræðingur hjá utanríkisráðuneytinu
ALDUR: 26 ára
HJÚSKAPARSTAÐA: Nýtrúlofuð – í sambúð með Ásgeiri Erni
Hallgrímssyni í 8 ár
mannskonulíf oft á tíðum og ef ekki væri fyrir lands-
liðið væru öll jólafrí, páskafrí og sumarfrí töluvert
lengri. En maður reynir að pæla ekki mikið í því. Ás-
geir nýtur þessa og finnst þetta gaman og svo fylgir
þessu alveg dásamlegur félagsskapur. Strákarnir
eru yndislegir og konurnar þeirra ennþá betri,“ segir
Hanna. „Þetta er sannur heiður fyrir Ásgeir í hvert
skipti sem hann er valinn og maður fyllist stolti í
hvert sinn. Svo er líka ekkert leiðinlegt að vita að öll
stórfjölskyldan og vinir manns eru stolt og ánægð
með eiginmannsefnið manns,“ segir hún að lokum.
„Ég byrja alltaf að stressast upp í þjóðsöngnum
en stressið fer fljótt því það er alltaf jafn
skemmtilegt að horfa þegar leikurinn er byrjað-
ur, „segir Karen Einarsdóttir eiginkona
Björgvins markmanns spurð hvernig
henni líður þegar hann spilar með
landsliðinu. „Ef ég er ekki stödd á
mótinu sjálfu er ég eiginlega alltaf
heima með mömmu og pabba á Ís-
landi að horfa,“ segir hún.
Tala saman í gegnum Skype
„Við notum Skype
mjög mikið nema eins
og til dæmis núna í
upphafi þegar netið
var mjög lélegt á hót-
elinu hjá þeim. Þá var það
bara GSM-síminn en núna er netsambandið betra.
Ég held að Nova hafi grætt ansi mikið á okkur þenn-
an mánuðinn. En Skype bjargar manni alveg þegar
þeir eru lengi í burtu. Kostirnir eru kannski þeir
hvað það er rosalega skemmtilegt að horfa
á þá og fara á stórmótin og einnig er æðis-
legt að vera hluti af svona skemmtilegum
hóp og þá er ég að tala um strákana og
konurnar þeirra.“
„Ég veit nú ekki með gallana,
mér dettur ekkert sérstakt í
hug. Kannski það hversu mörg
ferðalögin eru. Þegar það
kemur frí frá félagsliðum þá
tekur landsliðið við þannig
að það er lítið um frí,“ segir
Karen spurð um kosti og
galla sem fylgja handbolta-
landsliðinu.
STRESSAST UPP
Í ÞJÓÐSÖNGNUM
KAREN EINARSDÓTTIR
STARF: Leggur stund á félagsráðgjöf
ALDUR: 23 ára
HJÚSKAPARSTAÐA: Gift Björgvini Páli Gústafssyni
MYND/LALLISIG
MYND/ÚR EINKASAFNI
M
Y
N
D
/Ú
R
E
IN
K
A
S
A
F
N
I
Hvernig líður þér að sjá manninn þinn berjast á
vellinum fyrir Íslands hönd? „Fyrst og fremst er ég
virkilega stolt af honum og finnst ótrúlega gaman að
sjá hann tæta þessa bergrisa í hinum liðunum í sig.
Sérstaklega finnst mér það gaman í ljósi þess að ég
er einungis hársbreidd frá því að snúa hann niður
sjálf – án gríns! Kostirnir eru fyrst og fremst hvað
það er gaman að fá að taka aðeins þátt í þessu ár-
lega stórmótahæpi á Íslandi og fá að fylgjast með
hvað gengur á utan vallar sem innan. Það birtir
allavegana smá upp janúarmánuðinn fyrir mér.
Lentir í Serbíu 2 tímar í rútu, kvöldmatur,
fundur og heyri svo í þér ástin mín Love
you!
Síðasta SMS frá Björgvini:
Sakna þín ennþá meira en áðan …
Síðasta SMS frá Ásgeiri:
ég er online, skype-aðu mig í drasl beibí
Síðasta SMS frá Didda:
KONJAK er ný grenningarvara fyrir fullorðna í
ofþyngd. KONJAK inniheldur náttúrulegar trefjar,
(glucomannan) sem eru unnar úr konjak plöntunni
sem vex í Asíu.
Þegar KONJAK er notað samhliða léttu mataræði
má auka þyngdartap um allt að 60%. Það þýðir að
fyrir hvert kíló sem þú missir af eigin rammleik getur
þú með hjálp KONJAK misst allt að 1,6 kg.
Glucomannan eru fyrsta náttúrulega efnið sem
sérfræðingar Matvælaöryggisstofnunar Evrópu hafa
viðurkennt að raunverulega hjálpi við þyngdartap.
Glucomannan eru vatnsuppleysanlegar trefjar sem
eru þeim eiginleikum búnar að þær geta dregið til
sín 2-300 falda þyngd sína af vatni. Þegar töflurnar
leysast upp í maga myndast því massi sem fyllir upp
í magann og flýtir fyrir seddu tilfinningu.
Frekari upplýsingar
VIÐUR-
KENNT
AF EFSA