Fréttablaðið - 27.01.2012, Qupperneq 34
6 • LÍFIÐ 27. JANÚAR 2012
1. Þetta er góð tilfinning. Mér finnst
vænt um þetta. Heyri þetta af og til.
Finn fyrir hlýju en finnst þetta líka
mjög fyndið.
2. Ég yrði forseti sem nyti mín í
mannlegum samskiptum við fólk
af öllum stéttum þjóðfélagsins. Ég
myndi njóta þess að heilsa upp á
unga og gamla landsmenn, til sjáv-
ar og sveita. Ég myndi vera í ess-
inu mínu að kynnast nýjungum í
atvinnulífinu, menntamálum, skóg-
rækt og menningarlífinu. Ég myndi
hvetja fólk áfram og hlusta á þjóð-
ina. En þar sem þetta er nú líka lýs-
ing á því að starfa í fjölmiðlum þá
held ég að ég sé alveg á réttum
stað núna.
3. Ég vona að næsti forseti verði
góður einstaklingur með lífs-
reynslu, tali nokkur tungumál, sé
vel menntaður, standi vörð um ís-
lenska menningu og tungu. Sé al-
þýðlegur, jarðbundinn, hógvær, hlýr,
glæsilegur, þekki vel inn á þing-
störf og stjórnsýslu, kunni sig vel
og sé sambland af Kristjáni Eldjárn
og Vigdísi Finnbogadóttur. Slík-
ur einstaklingur myndi vinna að
málum sem yrðu til góðs fyrir nátt-
úru landsins, menningu, jafnrétti
kynjanna og jafnræði landsmanna.
4. Eina tenging mín við forsetaemb-
ættið verður að ég mun nýta mér
kosningaréttinn og kjósa góðan for-
seta. Við eigum marga frambæri-
lega einstaklinga sem passa í þetta
embætti. Ég er alls ekki manneskj-
an í embættið – en vil gjarnan fá
að taka viðtal við næsta forseta Ís-
lands.
1. Það er góð tilfinning.
2. Góður forseti, vonandi.
3. Forsetinn á að vera leiðtogi sem
stuðlar að því með ráðum og dáð
að hugarfar góðvildar, hjálpsemi
og virðingar leysi af hólmi græðgi,
eigingirni og hroka. Hann á að vera
nálægur fólkinu í landinu, vinna
með því, setja gott fordæmi og
hvetja menn áfram til góðra verka.
Þannig gætum við virkjað forseta-
embættið til mikils gagns fyrir Ís-
land á öllum sviðum þjóðlífsins og
einnig út fyrir landsteinana.
4. Já.
1. Það er svo sannarlega elsku-
legt af fólki að nefna nafnið mitt í
sömu andrá og val á þjóðarleiðtoga
er rætt. Ég nota auðvitað tækifærið
og þakka ykkur traustið, kæru vin-
konur og vinir. Þið eruð alveg hreint
ótrúleg og mér er heiður gerr.
2. Konan mín segir að ég yrði bæði
gleyminn og óstundvís forseti en
ágæt að öðru leyti. Sjálf trúi ég að
starf mitt með börnum í yfir þrjátíu
ár hafi kennt mér að ná til fólks í tali,
samskiptum, ræðu og riti og það er
nákvæmlega grundvallarstarf leið-
toga. Ná til fólks eða að snerta
hjörtu annarra, eins og ég hef nefnt
þetta fyrirbæri, gefur samhljóm sem
fær fólk til að vera samferða, bæði
í leiðtogahlutverk og fylgjenda-
hópi. Þessi samhljómur er ástríða
mín í lífinu. Þannig myndi ég án efa
tala, boða, hvetja og kenna í von
um að ná samhljómi sem flestra
yfir Frónið, samhljómi um sam-
komulag og sættir. Svo yrðu upp-
eldi og menntun, mannréttindi og
jafnrétti leiðarstefin mín enda líður
mér stundum eins og ég hafi sungið
sama sönginn í áratugi, rétt eins og
Soffía frænka sem kunni bara einn
söng – en lögin okkar beggja eru
náttúrulega sígild.
3. Ætli það væri ekki að draga
embættið út úr pólitískum átök-
um og ágreiningi. Þar með er ég
ekki að segja að síðustu ár núver-
andi forseta hafi verið á villigöt-
um – þjóðin þarf bara núna frið og
samstöðu um óbrotgjarnari sann-
indi eins og gömul og góð gildi og
þjóðarmenningu Íslands. Samtímis
myndi ég vilja sjá Bessastaði opna
sem mest fyrir landsmenn, bæði
gesti og gangandi sem vilja skoða
staðinn. Jafnframt vildi ég sjá for-
setann aðgengilegan og sýnilegan
alls staðar í þjóðlífinu. Ekki aðeins í
lista- og menningarlífinu, heldur líka
í skólum, á vinnustöðum, til sjáv-
ar og til sveita, um allt land. Svo
verða börn og ungmenni að fá sér-
stakan sess í hefðum og siðum
Bessastaða. Þau eiga að vera tákn
embættisins, framtíðin sem þjóðin
sameinast um. Hamingjan sanna,
er þetta ekki að verða eins og fram-
boðsræða.
4. Ég er ekki á flæðiskeri stödd at-
vinnulega, er í afskaplega skemmti-
legu starfi sem forseti Hjallastefn-
unnar og þar er miklu meira en nóg
að gera. Svo er ég heldur ekki viss
um að íslenska þjóðin sé besti og
gleðiríkasti vinnuveitandinn, sem
er í boði um þessar mundir. Þann-
ig að …
1. Ég hef ekki fylgst mikið með
vangaveltum um forsetaframboð
þar sem ég hef verið mikið erlendis
að undanförnu og verið í smá fjöl-
miðlafríi. En ef einhver hefur tilnefnt
mig í þetta starf þykir mér vænt um
það. Það eru mikil meðmæli.
2. Góð spurning.
3. Það er ýmislegt sem hægt
væri að gera í þessu embætti.
Sannarlega hægt að láta gott
af sér leiða og mjög margt sem
mætt i breyta t i l h ins betra.
4. Nei það er svo margt spenn-
andi fram undan hjá mér sem ég
væri engan veginn tilbúin til þess
að fórna. Og svo vantar mig alveg
ástríðuna fyrir þessu embætti. Sú
ástríða þarf að vera fyrir hendi.
Þessar voru
einnig tilnefndar
Herdís Þorgeirsdóttir stjórnmála-
fræðingur.
Linda Pétursdóttir, eigandi Bað-
hússins
Steinunn Ólína leikkona
Ragna Árnadóttir lögfræðingur
Kristín Ingólfsdóttir prófessor
Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöf-
undur
Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona
1. Auðvitað met ég mikils og þykir
vænt um að vera nefnd í þessu
samhengi en verð um leið að játa
að þetta kemur mér á óvart. Ég hef
aldrei gengið með forsetaembættið
í maganum. Ég er þakklát fyrir ótrú-
lega mörg gefandi og skemmtileg
samtöl við gott fólk sem gefur sig á
tal við mig vegna þessa.
2. Það væri mjög stór ákvörðun
að fara í framboð en ég er frekar
prívat manneskja og tilhugsunin um
að verða opinber persóna er blend-
in. Spurningar um hverju ég myndi
breyta eða hvernig ég yrði í þessu
embætti eru því alls ótímabærar.
3. Ég get fullyrt að ég er ósköp
venjuleg og látlaus manneskja og
að í kringum mig yrði ekkert glys
eða prjál í þessu embætti frekar en
öðrum verkefnum sem ég hef tekið
að mér.
4. Nokkrum hef ég lofað að hug-
leiða málið alvarlega.
FLOTTAR Í
FORSETANN
Forsetakosningar eru á næsta leiti
eins og allir vita og hafa hinar
ýmsu kannanir og kosningar verið
framkvæmdar af því tilefni. Ýmsar
áhugaverðar konur úr ólíkum stéttum
þjóðfélagsins hafa verið orðaðar við
embættið. Lífið tók nokkrar
þeirra tali sem tilnefndar voru
í forsetakosningu Vísis og
forvitnaðist um hvort þær tækju
tilnefningunni alvarlega eður ei.
Sigríður Arnardóttir, fjölmiðlakona
VILL TAKA VIÐTAL VIÐ NÆSTA FORSETA
Valgerður Matthíasdóttir fjölmiðlakona
ÁSTRÍÐAN FYRIR FORSETAEMBÆTTINU EKKI FYRIR HENDI
1. Hvernig er tilfinningin að vera tilnefnd?
2. Hvernig forseti heldurðu að þú yrðir?
3. Hverju myndirðu helst vilja breyta sem forseti?
4. Geturðu raunverulega hugsað þér að verða forseti Íslands?
Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar
LOFAR AÐ HUGLEIÐA MÁLIÐ
Margrét Pála Ólafsdóttir, forseti Hjallastefnunnar
ÞJÓÐIN ÞARF FRIÐ
Elín Hirst, rithöfundur
FORSETINN Á AÐ VERA NÁLÆGUR
FÓLKINU Í LANDINU
ÚTSALAN
Í FULLUM GANGI
50% afsláttur af skarti,
töskum og öðrum fylgihlutum
10% afsláttur af aðhaldsfatnaði
og öðrum standard vörum
50 –70%
afsláttur af öllum fatnaði
SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
Grensásvegur 8, sími 553 7300
Opið mán–fös 12–18 og laugd 12–17
Nýtt kortatímabil