Fréttablaðið - 08.02.2012, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 08.02.2012, Blaðsíða 1
veðrið í dag VIÐSKIPTI Lífeyrissjóðirnir munu fara fram á að dómskvaddir mats- menn verði fengnir til að leggja mat á hvort gögn sem lögð voru fram í umdeildu skuldabréfaútboði Glitnis í mars 2008 hafi endur- speglað raunverulega stöðu bank- ans. Sjóðirnir vilja meina að þeir hafi verið blekktir til að kaupa víkjandi skuldabréf í útboðinu fyrir samtals 10,7 milljarða króna og hafa stefnt slitastjórn Glitnis vegna þessa. Alls keyptu sjóðirnir tæplega 72% af öllum skuldabréf- unum sem í boði voru í útboðinu. Undirbúningur að málarekstrinum hefur staðið yfir mánuðum saman. Hann snýst um að lífeyrissjóðirnir vilja skulda- jafna bréfunum en því hefur slitastjórn Glitnis hafnað. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins stendur málið þannig að sjóðirn- ir hafa reynt að knýja fram fyrir dómstólum að Glitni verði gert að leggja fram margvísleg gögn sem þeir telja líklegt að sýni fram á að bankinn hafi verið öðruvísi og mun verr staddur en útboðsgögnin sögðu til um. Eiginfjár- og lausa- fjárstaða hans hafi verið verri auk þess sem áhættuskuldbindingar Glitnis hefðu verið vanmetnar. Í skýrslu úttektarnefndarinn- ar um starfsemi lífeyrissjóða í aðdraganda bankahrunsins 2008 segir að fjárfesting í umræddum skuldabréfum sé dæmi um „mjög mislukkaða fjárfestingu“. Það er niðurstaða nefndarinnar að lífeyrissjóðir ættu ekki að fjárfesta í slíkum gerningum nema lög heimili það sérstaklega. - þsj / sjá Markaðinn LÖGREGLUMÁL Sautján nálgunarbönn hafa verið sett á síðastliðin tvö ár. Notkun úrræð- isins hefur aukist mikið en tveir höfðu í heild- ina verið úrskurðaðir í nálgunarbann fjögur ár á undan. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá ríkislög- reglustjóra voru nálgunarbönn tíu talsins í fyrra. Þau voru sjö árið 2010 og eitt nálgunar- bann var í gildi árin 2008 og 2006. Árin 2007 og 2009 voru engin nálgunarbönn úrskurðuð. „Þetta eru í mjög mörgum tilvikum erfið samskipti fólks eftir aðskilnað – skilnað eða sambúðarslit,“ segir Jón H. B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæð- inu. Hann segist telja að nálgunarbann sem úrræði hafi smátt og smátt verið að sanna sig og sé nú talin lausn í málum. Það skýri líklega þá miklu fjölgun nálgunarbanna sem orðið hefur. „Nálgunarbannið er úrræði sem hægt er að grípa til ef einstaklingur eða einstak- lingar verða fyrir áreiti og jafnvel brotum,“ segir Jón. Ekki þarf að vera um brot að ræða. „Þetta er líka mögulegt sem úrræði ef ein- hver ónáðar viðkomandi með því að koma að heimili eða vinnustað og skirrist ekki við þó að hann fái skilaboð um að ekki sé óskað eftir nærveru hans.“ Ný lög um nálgunarbönn og brottvísun af heimili tóku gildi um mitt síðasta ár. Jón segir nýmæli hvað varðar nálgunarbönn að nú geti lögregla tekið ákvörðun um að beita úrræðinu og ber það síðan undir dómara. Áður þurfti að bíða eftir að dómari fjallaði um málið svo bann tæki gildi. „Nú kemur úrræðið til fram- kvæmdar strax. Þetta er skilvirkara úrræði.“ - þeb MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011 Miðvikudagur skoðun 14 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Markaðurinn veðrið í dag 8. febrúar 2012 33. tölublað 12. árgangur Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457 Safnasafnið á Svalbarðsströnd, Sjóræningjahús- ið á Vatneyri við Patreksfjörð og tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði eru tilnefnd til Eyrarrósar- innar 2012. Eyrarrósin er viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á lands- byggðinni. Hún verður veitt í áttunda sinn á laugardag. DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerískgæðavara Amerískgæðavara Boston leður svart, hvítt st. 35-48rautt st. 36-42blátt st. 36-47 Roma Rúskinn lj.blátt d.blátt 36-42 Verona svart, hvítt st. 36-41 Bari leður rautt, sand, bláttst. 36-42 Monako leður svart, hvítt rúskinn og microfib. st. 36-46 Paris leður svart, hvítt, blátt m/microfib og rúskinnssóla st. 36-42 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.mistyskor.is Hugsaðu vel um fæturna Sími 551 2070Opið mán.-fös. 10-18.Opið á laugard. 10-14. Í meira en hálfa öld hafa milljónir manna um allan heim notað BIRKENSTOCK® sér til heilsubótar. Hvað um þig? Teg: Arisona. Verð: 12.885,- Ráðstefnan Hestamennska fyrir fólk með fötlun fer fram í hestamannafélaginu Herði á laugardag. Eflir sjálfstraust og styrk Þ egar Gunnar Logi fer á hestbak liggur við að maður sjái ekki að hann sé fatlað-ur. Þetta eykur honum mikið sjálfstraust og sjálfstæði enda getur hann sjálfur stjórnað hvert hann er að fara,“ segir Auður Sig-urðardóttir formaður fræðslunefndar fatlaðra hjá Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ. Félagið stendur, ásamt Íþróttasambandi fatlaðra, fyrir ráð-stefnu um hestamennsku fyrir fólk með fötlun í félagsheimili Harðar, laugardaginn 11.febrúar frá klukkan 10 til 16. 2 www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 8. febrúar 2012 | 3. tölublað | 8. árgangur Svansmerkt prentverk! Rannsakar rætur kreppunnar ➜ Jesper Rangvid fer fyrir rann- sóknarnefnd um fjármálakreppuna í Danmörku ➜ Segir mikilvægt að læra af því sem aflaga hefur farið ➜ Býst ekki við álíka viðbrögðum og við íslensku rannsóknarskýrslunni Geta brotið upp fyrirtæki Samkeppniseftirlitið (SE) hefur gefið út umræðu-skjal þar sem fram koma drög að leiðbeiningum um beitingu ákvæðis sem gerir því m.a. kleift að skipta upp fyrirtækjum án þess að þau hafi fram-ið samkeppnislagabrot. Heimildin var lögfest í fyrra. Í skjalinu er því lýst hvernig SE hyggst beita markaðsrannsóknum sem undanfara beit-ingu ákvæðisins, en framkvæmd slíkra rann-sókna er nýlunda í starfi þess. Markaðsrannsókn er „hagfræðileg greining á samkeppni á tilteknum markaði [...] Hún lýtur eftir atvikum m.a. að verð-myndun vöru og þjónustu, kostnaðaruppbyggingu, uppbyggingu markaðar, stærð hans og þróun, ný-sköpun, tækniframförum, lagaumhverfi og öðru regluverki, aðgangshindrunum, kostnaði fyrir við-skiptavini að skipta um fyrirtæki, þátttöku opin-berra og hálfopinberra aðila á markaðnum, lóð-rétta og lárétta samþættingu fyrirtækja, fjölda fyrirtækja og eignartengslum þeirra, markaðshlut-deild, fjölda birgja, fjárhagslegri afkomu fyrir-tækja og framlegð þeirra“. SE óskar nú eftir sjónarmiðum markaðsaðila sem gætu nýst við ákvörðun um fyrstu markaðs-rannsókn. Á liðnum misserum hefur mestur hluti ráðstöfunartíma SE farið í: Matvöru-/dagmark-að, fjármálamarkað, fjarskiptamarkað og flutn-ingsmarkað. Óskað er eftir sjónarmiðum fyrir 15. mars. - ÞSJ Bjó Nýr tilboðsbæklingur í dag Njóttu lífsins með heilbrigðum lífsstíl Ný bragðtegun d. Karamella! 14 dagar til Öskudags Sjáðu búningana okkar á Facebook Barnabúnin gar: 1.490, 2.990 og 4.990 Sautján settir í nálgunarbann Tíu voru úrskurðaðir í nálgunarbann í fyrra og sjö árið á undan. Árin á undan var úrræðið nánast ekkert notað, en er að sanna gildi sitt að mati aðstoðarlögreglustjóra. Sambúðarslit eru oft bakgrunnur málanna. Samkvæmt lögum um nálgunarbönn frá því í fyrra er manni í nálgunarbanni bannað að koma á tiltekinn stað eða svæði, veita eftirför, heimsækja eða setja sig með öðru móti í samband við annan mann. Bönn af þessu tagi geta varað í allt að ár. Þeim er alltaf afmarkaður ákveðinn tími sem ekki má framlengja nema með nýrri ákvörðun. Viðurlög við broti á nálgunarbanni eru sektir og allt að ár í fangelsi. Brot varðar árs fangelsi www.vetrarhatid.is Fylgir Fréttablaðinu í dag! Lífeyrissjóðir telja að stjórnendur Glitnis hafi veitt rangar upplýsingar: Matsmenn leggi mat á blekkingu milljarða króna víkjandi skuldabréf telja lífeyrissjóð- irnir að þeir hafi verið blekktir til að kaupa í umdeildu skuldabréfaútboði Glitnis. 10,7 Teiknaði gjöf Apatows Hugleikur Dagsson teiknaði mynd sem leikstjórinn Judd Apatow fékk í afmælisgjöf. fólk 34 Dreymir um stærra hús Sigþrúður Guðmundsdóttir stýrir Kvennaathvarfinu á 30 ára afmælisári. tímamót 18 Spennandi verkefni Patrekur Jóhannesson ætlar sér að gera góða hluti með austurríska landsliðið. sport 30 DREGUR ÚR VINDI vestan- lands eftir því sem á daginn líður. Sunnan og vestan til verða skúrir eða slydduél en nokkuð bjart norð- austanlands. Hiti víða á bilinu 0 til 6 stig. VEÐUR 4 3 3 3 3 3 ÆVINTÝRALAND Í SMÍÐUM Guttormur Þorfinnsson (lengst til hægri) og sonur hans Þorfinnur (fyrir miðju) munu næstu daga tæma 60 kassa af legókubbum í Tjarnarsal Ráðhússins. Byggður verður ævintýraheimur sem er hluti af Vetrarhátíð borgarinnar. Gestum og gangandi verður boðið að koma og skoða, en þeir sem vilja geta látið reyna á sköpunargáfu sína. Með þeim á myndinni er legógeggjarinn Þorvaldur Breiðfjörð Berglindarson. Sjá síðu 4 FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.