Fréttablaðið - 08.02.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.02.2012, Blaðsíða 8
8. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR8 FRÉTTASKÝRING Hvernig ganga sameiningar grunn- skóla í Reykjavík? Sex grunnskólar í Reykjavík voru um áramótin sameinaðir í þrjá. Að auki stendur til að leggja niður unglingadeildir í tveimur grunn- skólum. Breytingarnar eru hluti af viðameiri breytingum í skóla- málum á grunn- og leikskólastigi. Mestu breytingarnar koma til framkvæmda í Grafarvogi. Búið er að sameina Borgaskóla og Engja- skóla í Vættaskóla auk þess sem Korpuskóli og Víkurskóli hafa sam- einast í Kelduskóla. Þá munu ung- lingadeildir Hamraskóla og Húsa- skóla leggjast af á næsta skólaári og börn úr hverfunum munu færast í Foldaskóla. Foreldrar barna í Hamra- og Húsaskóla hafa margir verið ósátt- ir við þessar breytingar. Tveir for- eldrar hafa sagt sig úr stýrihóp sem hefur umsjón með breytingun- um og fjölmennur fundur í síðustu viku fór fram á að hætt yrði við sameininguna. Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson, skólastjóri Folda- STJÓRNSÝSLA Tillögur fagráðs inn- anríkisráðuneytisins að breyting- um á regluverki og lagaumgjörð er varða kynferðisbrot eru nú til skoðunar innan ráðuneytisins. Ögmundur Jón- asson innan- ríkisráðherra segir fagráð- ið hafa unnið mikið og gott starf síðan það var stofnað. „Við erum hér að stíga mjög mikilvæg frumkvæðisskref í þessum efnum og ég bind mikl- ar vonir við framhald þessarar vinnu,“ segir Ögmundur. Fagráðið skilaði minnisblaði með tillögum að hinum ýmsu breytingum um miðjan síðasta mánuð. Það hefur verið starfandi síðan í maí í fyrra. - sv Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga leitar eftir efnilegum unghundum sem hentað gætu til þjálfunar á leiðsöguhundum. Leiðsöguhundar aðstoða blinda og sjónskerta einstaklinga við að komast leiðar sinnar á öruggan og sjálfstæðan hátt og er leiðsöguhundurinn skilgreindur sem hjálpartæki í umferli. Skilyrði fyrir því að hundur fái að vinna sem leiðsöguhundur eru ótalmörg en mikilvægast af öllu er að hundurinn sé áreiðan- legur, öruggur í umhverfi og öruggur með ókunnugu fólki. Óskað er eftir hvolpum eða unghundum tveggja mánaða til þriggja ára. Þeir sem áhuga hafa á að aðstoða okkur í því að skapa betri aðstæður fyrir blinda og sjónskerta með því að fjölga leiðsögu- hundum, vinsamlegast hafið samband við Drífu Gestsdóttur, þjálfara leiðsöguhunda, í síma 860-9499 eða í netfangið drifa@midstod.is Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, leitar eftir efnilegum unghundum til þjálfunar. FOLDASKÓLI Frá og með haustinu munu unglingar í 8. til 10. bekk úr bæði Hamraskóla og Húsaskóla flytjast yfir í Foldaskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Skiptar skoðanir um sam- einingar í grunnskólum Sameiningar grunnskóla í Reykjavík hófust um áramót þegar þrír nýir skólar urðu til úr sex. Fleiri breyt- ingar eru á döfinni og foreldrar í sumum hverfum hafa verið mjög ósáttir við fyrirhugaðar breytingar. Breytingarnar eiga að spara 138,5 milljónir á þessu ári og sparnaðurinn á að aukast þegar allar breytingar komast að fullu til framkvæmda. Auk þessara breytinga var upphaflega lagt til að sjöundu bekkir í Vesturbænum færðust yfir í Hagaskóla og að Hólabrekku- skóla og Fellaskóla yrði skipt upp í yngri barna og eldri barna skóla. Málefni Vestur- bæjar eru enn í skoðun en fallið hefur verið frá aldursskiptingu í Breiðholti, að minnsta kosti að sinni. Þá hefur Ártúnsskóli verið sameinaður leikskólanum Kvarnaborg og frístunda- heimilinu Skólaseli undir nafni Ártúns- skóla. Til stóð að sameina Fossvogsskóla, leikskólann Kvistaborg og frístundaheimilið Neðstalandið með sama hætti en þeirri sameiningu var frestað fram til ársins 2013. Aðrar sameiningar í grunnskólum BANDARÍKIN, AP Bann við hjóna- böndum samkynhneigðra brýtur gegn stjórnarskrá Bandaríkj- anna. Þetta er niðurstaða áfrýj- unardómstóls í Kalíforníuríki. Áður hafði undirréttur komist að sömu niðurstöðu árið 2010, að bannið bryti á mannréttindum samkynhneigðra og væri ekki í samræmi við stjórnarskrá. Hjónabönd samkynhneigðra voru leyfð í Kalíforníu árið 2008 en íbúar ríkisins sneru ákvörð- uninni við nokkrum mánuðum síðar. - þeb Hjónabönd samkynhneigðra: Bannið í bága við stjórnarskrá ÖGMUNDUR JÓNASSON Hrósar vinnu fagráðsins: Skoða breyting- ar á lögum um kynferðisbrot Fundu ekki þjófinn Lögreglu var tilkynnt um að þjófur hefði stolið tölvu í Skipholti um þrjúleytið í gær. Þá var þjófurinn enn talinn í húsinu. Lögreglumenn fóru á vettvang og leituðu þjófsins ásamt starfsmönnum í húsinu en án árangurs. LÖGREGLUFRÉTTIR skóla, veit af óánægju foreldra í hverfunum, en segir aðspurður að foreldrar barna í Foldaskóla séu ekki eins óánægðir. „Eitt af því sem hefur verið ásteytingarsteinn er sérdeild sem er í Hamraskóla,“ segir Kristinn. Foreldrar hafa lýst yfir áhyggjum af afdrifum deild- arinnar, en hún mun að öllum lík- indum flytjast yfir í Foldaskóla. „Hópur sem skipaður er tveimur frá skóla- og frístundasviði borg- arinnar og tveimur foreldrum er nú að fara yfir þessi mál.“ Jóhanna S. Vilbergsdóttir, skóla- stjóri nýs Vættaskóla, segir sam- einingarferlið þar hafa gengið vel. Frá og með næsta hausti mun ein sameiginleg unglingadeild verða við skólann, en unglingar þurfa að sækja tíma á báðum stöðum. „Hér er jákvæðni og bjartsýni, þó að sjálfsögðu fylgi svona breytingum alltaf óöryggi. Við erum í upphafs- skrefum í mikilli faglegri stefnu- mótun og erum að vinna í því. Ung- lingarnir voru með skólaþing og foreldrar og starfsmenn héldu líka skólaþing. Starfsmenn og stjórn- endur eru á stefnumótunarfund- um og við erum að vinna að þessu jafnt og þétt,“ segir Jóhanna. Hún segist ekki hafa heyrt af mörgum ósáttum foreldrum þó hún viti að einhverjir séu það. „En ég veit líka af gríðarlega stórum hópi sem er mjög ánægður og sér rökin fyrir þessu.“ Korpuskóli og Víkurskóli hafa verið sameinaðir í Kelduskóla. Engin unglingadeild hefur verið í Korpuskóla og hafa ungling- ar þaðan því stundað nám í Vík- urskóla frá árinu 2008, að sögn Árnýjar Ingu Pálsdóttur skóla- stjóra. Engin breyting verður þar á. „Við erum bara að vinna að okkar stefnumótun um framtíð- arsýn um nýjan Kelduskóla, við höfum haldið góðan fund með for- eldrum og starfsfólki og ætlum að gefa okkur góðan tíma og vanda okkur vel í þessu,“ segir hún. Um áramótin sameinuðust svo Hvassaleitisskóli og Álftamýrar- skóli í Háaleitisskóla. Unglinga- deild Hvassaleitisskóla verður felld niður í haust og unglingar þaðan munu geta haldið áfram í Háaleitis- skóla í Álftamýri eða farið í Réttar- holtsskóla. Foreldrar í Hvassaleitis- skóla voru upphaflega margir ósáttir við áformin. „Ég finn ekki annað en samhug um að láta þetta ganga upp barnanna vegna,“ segir Brynhildur Ólafsdóttir, skólastjóri Háaleitisskóla. „Við erum búin að eiga einn stefnumótunarfund með foreldrum, einn með nemendum og einn með starfsfólki. Svo heldur þetta áfram fram á vorið og auð- vitað tekur þetta einhver ár svona endanlega, en við stefnum á að vera einn skóli í haust.“ thorunn@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Rúmlega tvítugur maður var í Hér- aðsdómi Reykjaness í gær úrskurðaður í gæslu- varðhald til 21. febrúar grunaður um manndráp í heimahúsi í Hafnarfirði aðfaranótt mánudags. Hann mun jafnframt sæta geðrannsókn. Maðurinn kom sjálfur á lögreglustöðina að Flatahrauni í Hafnarfirði á mánudagsmorgun og kvaðst hafa unnið konu mein á heimili sínu. Að öðru leyti var erfitt að ráða í framburð hans. Lögreglumenn fóru á heimili hans að Skúla- skeiði í Hafnarfirði og fundu þar látna konu. Aðkoman var ljót og mikið blóð á staðnum. Svo virtist sem konunni hefði verið ráðinn bani með hníf sem fannst á vettvangi og hefur verið sendur í lífsýnagreiningu. Maðurinn er 23 ára og hefur verið í mikilli óreglu. Hann hefur hlotið tvo dóma fyrir minni háttar afbrot á undanförnum mánuðum. Konan var 35 ára og hafði einnig verið í óreglu. Þau höfðu átt í sambandi um nokkurt skeið. Konan lætur eftir sig tæplega tvítugan son. - sh Á VETTVANGI Konan fannst í þessu húsi við Skúlaskeið í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ungur maður sem talinn er hafa myrt kærustu sína mun sæta geðrannsókn: Grunaður morðingi í varðhald 1. Hvaða deild Háskóla Íslands ætlar að taka upp inntökupróf í fyrsta skipti fyrir haustið? 2. Hvaða listabókstaf hefur nýtt framboð Lilju Mósesdóttur fengið? 3. Hvaða lið vann dönsku bikarkeppnina í handbolta? SVÖR: 1. Hagfræðideild. 2. Bókstafinn C. 3. AG. STJÓRNMÁL „Samstaða á að höfða til kjósenda sem hafa fengið nóg af spillingunni í samfélaginu og hafa fengið nóg af misskiptingunni á milli þeirra sem eiga og hinna sem skulda.“ Þetta sagði þingkonan Lilja Mósesdóttir þegar hún kynnti nýjan stjórnmálaflokk sinn, Samstöðu – flokk lýðræðis og velferðar, í Iðnó í gær. Flokkurinn hefur fengið lista- bókstafinn C. Lilja er formaður flokksins til bráðabirgða, en gert er ráð fyrir að aðalfundur í maí eða júní kjósi for- ystu, nema blásið verði til kosninga fyrr. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur og og Agnes Arnardótt- ir atvinnurekandi gegna nú vara- formennsku. Lilja sagði að sextán manna undirbúningshópur hefði unnið að stofnun flokksins. Í honum er meðal annars að finna fyrrver- andi liðsmenn Vinstri grænna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæð- isflokksins. Samstaða leggur einna mesta áherslu skuldaleiðréttingu heimila og aukna lýðræðisþátttöku almennings. Liðsmenn hans stað- setja sig hvorki til vinstri né hægri á hinu pólitíska litrófi. - sh Lilja Mósesdóttir fer fyrir Samstöðu, flokki sem er hvorki til hægri né vinstri: Fyrir þá sem eru þreyttir á spillingu APPELSÍNUGULUR EINKENNISLITUR „Það þarf ákveðið C-vítamín í þetta samfélag til að koma hjólum atvinnu- lífsins í gang,“ sagði Lilja á blaðamanna- fundinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.