Fréttablaðið - 08.02.2012, Blaðsíða 24
Þegar Auður byrjaði í hesta-
mennsku í Herði árið 2010 lang-
aði hana að fá fjölskyldu sína
með sér í sportið. Sonur hennar,
Gunnar Logi Tómasson 15 ára,
er í hjólastól og því biðlaði hún
til formanns hestamannafélags-
ins um hvort ekki væri hægt að
koma á félagsstarfi fyrir fatlaða.
„Hann hafði mikinn áhuga fyrir
slíku starfi og stofnaði nefndina
þá og þegar,“ segir Auður glað-
lega og var þar með komin á fullt
í félagsstarf Harðar. „Við fengum
gott fólk með okkur og sömdum
við konurnar í Hestamennt um að
útvega hesta og sjá um kennslu
á námskeiðum,“ segir Auður en
markmiðið var að hafa gaman og
leyfa fötluðum að stunda hesta-
mennsku. „Þessir krakkar eru
allir með skerta getu af einhverj-
um toga. Það að geta stjórnað
hátt í 400 kílóa skepnu er ótrú-
lega eflandi. Þetta eflir sjálfs-
traust, styrk, sjálfstæði, samhæf-
inu og er auðvitað líka þjálfun
fyrir líkamann,“ segir Auður.
Hún segist sjá mikinn mun bæði
á syni sínum og öðrum fötluðum
börnum sem sótt hafa námskeið-
in. „Mörg koma aftur og aftur og
ljóma hreinlega af hamingju,”
segir hún glaðlega.
Meðal efnis á ráðstefnunni
á laugardaginn er kynning á
sjúkraþjálfun á hestbaki, kynn-
ing á starfi fyrir fatlaða innan
Harðar og haldið erindi um
hlutverk hestsins og félagslega
þætti. Einnig verður kynnt nýtt
keppnisfyrirkomulag fyrir fólk
með fötlun. solveig@frettabladid.is
Auður með syni sínum Gunnari Loga
sem tekur sig vel út á hestbaki.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Framhald af forsíðuwww.baendaferdir.is s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Hófý, fararstjóri Bændaferða
verður á skrifstofunni 6. - 10. febrúar
Hólmfríður Bjarnadóttir, eða Hófý eins
og við flest þekkjum hana, fararstjóri
Bændaferða, verður á skrifstofu
Bændaferða mánudaginn 6. febrúar
til föstudagsins 10. febrúar frá
kl. 10:00 - 16:00.
Það er því alveg upplagt að kíkja í
Síðumúlann í kaffi, hitta Hófý og fá
upplýsingar um ferðirnar.
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur
og frábær tónlist
alla virka morgna
kl. 6.50 – 9.00
Alla daga kl. 19.00 og 01.00
CNN er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR
PIERS MORGAN tonight
„Þetta er fyrst og fremst handbók
og verkfæri sem er til þess ætlað
að hjálpa fólki að skipuleggja
ferðalögin sín á netinu á sem hag-
kvæmastan hátt. Margir vita ekki
hvernig á að snúa sér þegar kemur
að þannig skipulagningu ferðalaga
og bókin er tilraun til að bæta úr
því.“
Þetta segir Margrét Gunnars-
dóttir, höfundur bókarinnar Vertu
þín eigin ferðaskrifstofa: Ein-
föld ráð til að lækka ferðakostn-
aðinn, sem er nýkomin út á raf-
rænu formi. Eftir því sem Margrét
kemst næst er bókin sú fyrsta sinn-
ar tegundar sem kemur út opinber-
lega hérlendis.
„Bókin inniheldur fróðleik og
hagnýtar ábendingar og tengla á
erlendar vefsíður á ensku þar sem
ég sýni meðal annars fram á hvern-
ig hægt er að lækka kostnað á flugi
og gistingu, sem eru að mínu mati
þeir liðir sem fólk eyðir oft óþarf-
lega miklu í og finna bílaleigu-
bíla og lestarfargjöld á hagstæðu
verði. Þannig hentar hún túristum
sem vilja skipuleggja ferðalög upp
á eigin spýtur,“ upplýsir hún og
segist að mestu leyti miða þau við
Evrópu þótt bókin teygi anga sína
víðar. „Sjálf hef ég ferðast mest
um hana og finnst best að skrifa
um það sem ég þekki.“
Ísland sé þó ekki til umfjöllunar.
„Nema með þeirri undantekningu
að ég tek saman ítarlegar leiðir til
að komast frá landinu.“
Innt út í tilurð bókarinnar seg-
ist Margrét hafa gengið með hug-
myndina í maganum um nokkurt
skeið en hún hefur árlanga reynslu
af fararstjórn ásamt því að halda
úti vefsíðunni ferdalangur.net og
samnefndu fréttabréfi. „Hún er
búin að blunda í mér síðan ég setti
upp vefinn 2005. Þar hef ég safnað
alls konar ferðaupplýsingum með
sparnað að leiðarljósi sem byggj-
ast á minni reynslu og birt ókeypis
bæklinga sem ég hef tekið saman.
Nú ákvað ég bara að taka hug-
myndina skrefinu lengra og gefa
út bók.“
Margrét tekur fram að bókin sé
þó ekki alls hugsuð sem formúla
að fullkomnu ferðalagi. „Lesendur
verða sjálfir að ákveða hvers konar
ferðalag þeir ætla að taka sér fyrir
hendur og hvað þeir eru tilbúnir að
verja miklum tíma í undirbúning á
netinu til að halda kostnaði niðri.
Bókin er því hugsuð sem hjálpar-
tæki,“ bendir hún á og bætir við
að hana megi nálgast á vefsíðun-
um www.ferdalangur.net og www.
emma.is.
roald@frettabladid.is
Locatify hefur gefið út snjallforrit sem inniheldur leiðsagnir frá
suðurhluta þjóðgarðs Vatnajökuls og á suðvesturhorni Íslands; frá
Keflavíkurflugvelli í Borgarfjörð með viðkomu í Reykjavík og Krísu-
víkurleiðina frá Hafnarfirði að Bláa lóninu. Forritið er fyrir iPhone-
snjallsíma og iPad-spjaldtölvur og fæst í vefverslun Apple.
SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
Grensásvegur 8, sími 553 7300
Opið mán–fös 12–18 og laugd 12–17
Aðeins
5
Útsölunni
lýkur
verð
Verðsprengja
Kápur
Leðurjakkar
Buxur
og margt fleira
Leiðarvísir að ódýrara fríi
Vertu þín eigin ferðaskrifstofa er heiti rafbókar sem var gefin út á dögunum. Þar leiðbeinir höfundurinnn
Margrét Gunnarsdóttir lesendum sem vilja skipuleggja ferðalög sín á netinu á sem ódýrastan máta.
„Bókin inniheldur fróðleik og hagnýtar ábendingar og tengla á erlendar vefsíður á
ensku þar sem ég sýni meðal annars fram á hvernig hægt er að lækka kostnað við
flug og gistingu,“ segir Margrét Gunnarsdóttir, höfundur Vertu þín eigin ferðaskrif-
stofa. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON