Fréttablaðið - 08.02.2012, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 08.02.2012, Blaðsíða 26
8. FEBRÚAR 2012 MIÐVIKUDAGUR2 ● vetrarhátíð Það er mikilvægt að halda hátíð sem lýsir upp svartasta skamm-degið, fær fólk til að hlæja og njóta þess sem er skemmtilegt í okkar fallegu borg. Vetrarhátíð í Reykjavík er einmitt svoleiðis hátíð. Hún er sann- kölluð fjölskylduskemmtun sem bregð- ur birtu á febrúarmyrkrið og litar það skærum litum. Þemað í ár er Magn- að myrkur og speglast það með ólík- um hætti í vel á þriðja hundrað upp- ákomum um alla borg. Ég vek sérstaka athygli á Sundlauganótt sem er frá- bær nýjung á dagskrá hátíðarinnar. Þá fá borgarbúar frítt í sund og gestum verður boðið að upplifa magnaða listviðburði í sundlaug. Hátíðin hefst á glæsilegu opnunarverki fimmtudagskvöldið 9. febrúar en þá verður Hallgrímskirkja lýst upp og henni breytt í stórbrotið listaverk ljóss, lita og hreyfingar. Að venju verður Safna- nótt einn af hornsteinum hátíðarinnar og Heimsdagur barna verður á sínum stað í Gerðubergi með listviðburðum og skemmtidagskrá fyrir börn og unglinga. Það sem mér finnst skipta mestu máli á Vetrarhátíð er að hún færir borgarbúa saman og gefur fullorðnum og börnum tækifæri til að njóta lista og menningar af öllu tagi. Í fyrra sóttu yfir fimm- tánþúsund manns hátíðina og allir sem ég hitti voru með bros á vör. Það finnst mér frábært. Á Vetrarhátíð geta allir skemmt sér konunglega. Líka þeir sem hafa engan sérstakan áhuga á fræðslu, listum eða menningu. Þeir geta einfaldlega notið mannlífsins. Það er nefnilega mjög gaman að sjá aðra glaða. Góða skemmtun á Vetrarhátíð! Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík Starfsmenn Miðstöðvar munnlegrar sögu verða í Höfða um helgina að safna reynslusögum fólks af myrkrinu í borginni. Viðburðurinn er hluti af dagskrá Vetrarhátíðar. N auðsynlegt er að varð-veita myrkrið sem hefur verið á undanhaldi með tilkomu rafmagnslýsingar og gæta þess að útrýma því ekki. Þess vegna viljum við draga fram myrkrið í Reykjavík með sögum af því hvernig fólk skynjar það og það sem það geymir. Hvort sem það eru draugar eða aðrir óvættir eða fegurðin á himninum, stjörn- ur, norðurljós eða annað,“ segir Arnþór Gunnarsson, verkefnis- stjóri Miðstöðvar munnlegrar sögu, sem verður ásamt sam- starfsfólki sínu staddur í Höfða um helgina að safna reynslusög- um fólks af myrkrinu í Reykja- víkurborg. Að hans sögn verða frásagn- irnar hljóðritaðar og varðveitt- ar í safni Miðstöðvarinnar, í húsakynnum Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns þar sem þær verða öllum aðgengileg- ar. „Allir sem miðla af reynslu sinni fá jafnframt afrit af upp- töku á geisladiski. Fólk þarf ekki að gera boð á undan sér heldur mætir bara á staðinn. Það getur síðan sótt aðra viðburði í leiðinni því þarna verður opið hús báða daga frá klukkan 13 til 17.“ Viðburðinn segir Arnþór hugs- aðan sem viðbót við verkefnið Reykjavíkursögur sem Miðstöð munnlegrar sögu vann í sam- starfi við Reykjavíkurborg á ár- unum 2007 til 2009. „Markmið þess var að draga fram reynslu fólks af því að hafa búið í Reykja- vík,“ útskýrir hann og getur þess að alls hafi hundrað frásagnir safnast á vetrarhátíðum og menn- ingarnóttum. Brot af þeim megi nálgast á heimasíðu Miðstöðvar- innar á slóðinni www.munnleg- saga.is, með því að smella á flipa sem er merktur vefsýningar og því næst á borgarbörn. Spurður hvers vegna Höfði hafi orðið fyrir valinu, segir Arn- þór varla hægt að hugsa sér jafn sæmandi staðsetningu. „Höfuð- borgarstofa bauð okkur Höfða til afnota og okkur þótti það einstak- lega viðeigandi, meðan annars í ljósi reimleikanna sem sumir tengja við húsið, hvítu konuna og aðrar verur sem hafa sést þar á sveimi. Eða er það ekki annars ástæðan fyrir því að þú ert að spyrja,“ svarar hann glettinn og hvetur unga sem aldna að kíkja í heimsókn um helgina. Margt býr í myrkinu „Nauðsynlegt er að varðveita myrkrið sem hefur verið á undanhaldi með tilkomu rafmagnslýsingar og gæta þess að útrýma því ekki,“ segir Arnþór Gunnarsson, hjá Miðstöð munnlegrar sögu sem um helgina safnar reynslusögum fólks af myrkrinu í Reykjavík. MYND/ANTON Útgefandi: Höfuðborgarstofa | Ábyrgðarmaður: Karen María Jónsdóttir | Umsjónarmaður auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@fret- tabladid.is s. 512 5411 „Þemað er þannig að Egill kemur til með að flytja lögin með hefðbundn- um hætti við undirleik tríósins og fær gesti í sal til að taka undir. Svo spilar tríóið djassútsetningar af hverju lagi jafnóðum og Egill bregður líka á leik ef sá gállinn er á honum.“ Þannig lýsir Reynir Sigurðs- son fyrirhuguðum tónleikum Tríós Reynis Sigurðssonar (TRES) og Egils Ólafssonar, Sungið og sving- að í Iðnó á morgun, fimmtudaginn 9. febrúar klukkan 21. Tónleikarn- ir eru hluti af dagskrá Vetrarhátíð- ar sem hefst með pompi og prakt sama dag. Íslensk tónlist verður í fyrirrúmi á tónleikunum þar sem flutt verða valinkunn lög eftir þjóðþekkt skáld. „Þarna munu heyrast lög sem hafa fylgt þjóðinni um árabil, svo sem Ég veit þú kemur, Fröken Reykjavík og Litla flugan,“ segir Reynir og útskýrir að lagaval ráðist af disk sem tríóið gaf út með lögum Sigfúsar Halldórssonar fyrir nokkr- um árum og tónleikum sem það hélt í Vestmannaeyjum í nóvember í fyrra til að fagna 100 ára fæðing- arafmæli Oddgeirs Kristjánsson- ar. „Svo bættum við við nokkrum perlum úr smiðju Jóns Múla Árna- sonar,“ bendir hann á og bætir við að gestir muni því ekki eiga í nein- um erfiðleikum með að kyrja með. Ástsæl lög í djassútfærslum Tríó Reynis Sigurðssonar skipa, frá vinstri: Reynir Sigurðsson á víbrafón, Jón Páll Bjarnason á gítar og Gunnar Hrafnsson á bassa. ● NORÐURLJÓSALEIT UM BORÐ Í GLÆSIBÁT Langar þig að stinga af úr ljósadýrð borgarinnar og leita að norðurljósunum í ævintýra- legri sjóferð? Þá gefst gullið tækifæri þegar farið verður með Rósinni, nýjasta glæsibát Sérferða, frá Reykjavíkurhöfn klukkan 21. Ferðin tekur um þrjár klukkustundir og um borð er allt til alls: fríir kuldagallar, heitir drykkir og veitingasala með léttum veitingum. Ekki láta þetta frábæra ævin- týri framhjá þér fara! Fyrstur kemur, fyrstur fær. Mæting er í sölumóttöku Sér- ferða (Special Tours) á Ægisgarði 7 við Gömlu höfnina. Ávarp borgarstjóra Kæru Reykvíkingar Í lestrarsal Þjóðskjalasafnsins fjallar sagnfræðingurinn Gunn- ar Örn Hannesson um dularfullt líkfundarmál á Austfjörðum, sem leiddi til alþjóðlegrar lögreglu- rannsóknar seint á 19. öld. „Forsaga málsins hefst í maí 1894 þegar hárreysti og slark frá enskum gufutogara bergmál- ar inn Seyðisfjörð. Síðar í sama mánuði berst íslenskum yfirvöld- um fyrirspurn að utan þar sem grennslast er fyrir um manns- lík í firðinum, en þá hafði skip- stjóri togarans tilkynnt yfirvöld- um að hann hefði misst yfirvél- stjóra sinn fyrir borð 10 mílum frá Seyðis firði,“ útskýrir Gunnar Örn sem enn er að leysa ráðgát- una um vélstjórann frá Aberdeen. Áhöfn togarans var strax yfir- heyrð vegna hvarfs vélstjórans, en var missaga og fljótt beindust grunsemdir að ribbalda um borð. „Þegar komið var fram í októ- ber voru tveir sjómenn á skaki út af Seyðisfirði og toga þá upp illa farið lík af karlmanni íklæddum fatnaði merktum Aberdeen. Settu þeir líkið á land í Brimnesi þang- að sem sýslumaður kom ásamt áhugaljósmyndara sem tók mynd af líkinu og mun vera elsta ljós- myndin sem tekin er í glæparann- sóknum á Íslandi,“ upplýsir Gunn- ar Örn, en myndina sýnir hann gestum í lestrarsalnum í kvöld. „Myndin er alls ekki fyrir við- kvæma, enda kom í ljós við lík- skoðun að maðurinn var með stunguáverka og hafði verið sökkt með keðjum, en hold var allt horf- ið af höfði hans og höndum.“ Í erindi sínu um vélstjórann frá Aberdeen mun Gunnar Örn einn- ig sýna merkileg skjöl sem til eru um málið, frásagnir af slagsmál- um við afturgöngu stýrimannsins og fleira sem tengist líkfundinum. Dagskráin hefst í Þjóðskjala- safni Íslands á Laugavegi 162 klukkan 20. Dularfullt líkfundarmál Gunnar Örn Hannesson með myndina merkilegu og skjöl sem tengjast líkfundar- málinu á Seyðisfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.