Fréttablaðið - 08.02.2012, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 08.02.2012, Blaðsíða 46
8. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR26 folk@frettabladid.is 2 fyrir 1 af lambasamlokum í febrúar. Nýbýlavegi 32 www.supersub.is Rokksveitin Sólstafir heldur útgáfutónleika í Gamla bíói á á morgun þar sem platan Svartir sandar verður leikin í heild sinni með aðstoð reynslubolta úr rokk- senunni. „Við ætlum að leika þessa plötu í þetta fyrsta og eina skipti,“ segir söngvarinn Aðalbjörn Tryggva- son. „Við höfum bara leikið þrjú lög af plötunni á tónleikum áður og eitthvað af þessum lögum verða ekki leikin aftur.“ Aðspurður segist hann mjög ánægður með viðbrögðin sem Svartir sandar hefur fengið. „Plat- an hefur gengið mjög vel hérlend- is, í Þýskalandi, Finnlandi og Eng- landi,“ segir Aðalbjörn. Grein um hljómsveitina var birt í þýska dagblaðinu Der Spiegel og platan náði inn á vinsældalista í Finnlandi. Þangað fer hljómsveit- in einmitt í viku tónleikaferð í vor. Tónleikaferð sveitarinnar um Evr- ópu hefst annars um miðjan mars og stendur hún yfir í tvo mánuði. Í sumar verður svo spilað á hinum ýmsu tónlistarhátíðum í Evrópu. Hópur fólks mun aðstoða Sól- stafi á tónleikunum á morgun, þar á meðal Steinar Sigurðar- son, Heiða í Hellvar, Hallgrímur Jón Hallgrímsson og Halldór Á Björnsson sem aðstoðuðu sveit- ina við upptökur á plötunni. Hall- ur Ingólfsson og Birgir Jónsson úr XIII spila einnig ásamt Jóni Birni Ríkharðssyni úr Brain Police og bakraddasöngvurunum Agnari Eldberg og Kristófer Jenssyni. Gunnar Ben úr Skálmöld stjórnar kór sem syngur einnig á tónleik- unum. - fb Sólstafir spila Svarta sanda í heild sinni LOFAR STEMNINGU Aðalbjörg Tryggva- son úr Sólstöfum lofar mikilli stemningu í Gamla bíói á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Tónlist ★★★★ ★ Töf Náttfari Vel heppnuð endurkoma Hljómsveitin Náttfari var stofnuð árið 2000 og vakti þá athygli fyrir tónleika- hald. Meðlimir hennar sneru sér svo að öðrum verkefnum, en hljóm- sveitin er skipuð þeim Nóa Steini Einarssyni og Andra Ásgrímssyni sem báðir eru meðlimir í Leaves, Haraldi Þorsteinssyni, bassaleikara Feldberg, og Ólafi Josephs- syni sem hefur starfað undir listamannsnafninu Stafrænn Hákon undanfarin ár. Náttfari var endurvakinn árið 2010 og spilaði þá á Iceland Airwaves við mikla hrifningu. Í fyrra tók sveitin svo upp plötuna Töf og gaf út síðla árs. Tónlist Náttfara flokkast undir síðrokk. Þegar hljómsveitin var stofnuð var það ennþá frekar heit tónlistarstefna, en í dag er síðrokkið eitt af þeim fjölmörgu afbrigðum rokksins sem þróast samhliða. Tónlistin á Töf er að langmestu leyti án söngs. Hún er stemningsfull og dýnamísk, lögin stigmagnast og hníga og útsetningarnar sjá til þess að það er alltaf eitthvað að gerast, þó að enginn sé söngurinn. Töf er flott plata. Lagasmíðarnar og útsetningarnar standa vel fyrir sínu og platan hljómar sérstaklega vel. Það heyrist vel í öllum hljóðfærunum og auðvelt, ef maður lokar augunum, að ímynda sér að hljómsveitin sé stödd, í góðum fíling, í stofunni hjá þér. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Flott plata þrátt fyrir tíu ára töf. Vefsíður eru jafn misjafn- ar og þær eru margar. Ein þeirra heldur því fram að Madonna hafi verið að til- biðja djöfulinn í hálfleiks- atriði sínu í Ofurbikarn- um. Vefsíðan Hollywoodilluminati. com heldur því fram í fullri alvöru að tónlistaratriði Mad- onnu í hálfleik Ofurbikarsins í bandaríska fótboltanum hafi verið eitt stórt ákall til djöfulsins. Vefsíðan vill meina að samtök- in The Illuminati, sem Dan Brown fjallaði um í bókinni Da Vinci Code, hafi staðið á bak við atriðið. Á síð- unni kemur fram að til að hægt sé að tilbiðja djöfulinn þurfi athöfnin að vera haldin á milli nýs tungls og fulls tungls og sú var einmitt raun- in á sunnudagskvöld þegar aðeins tveir dagar voru í fullt tungl. Sem sagt, fullkomin tímasetning. Þrátt fyrir að þema atriðisins hjá Madonnu hafi verið rómverskt voru hornin á hjálmi hennar aug- ljós tilvísun til djöfulsins að mati síðunnar, því engin slík horn voru á hjálmum Rómverja fyrr á öldum. Hásætið sem hún tyllti sér í teng- ir vefsíðan einnig við hásæti djöf- ulsins. Vefsíðan bætir við að í fyrsta laginu, Vogue, hafi náungi dans- að í kringum Madonnu með englavængi og hörpu. Lúsífer var einmitt engill tónlistar- innar í himnaríki áður en hann féll þaðan. Til að færa enn frekari rök fyrir tengingunni við djöfulinn er minnst á annað lag sem Madonna söng, Like a Prayer, sem fjallar um Lúsífer. Litanotkun Madonnu í hálfleiks- atriðinu er einnig tínd til, eða rauði liturinn, sá svarti og sá gulllitaði sem eru einmitt allir tengdir við djöfulinn og tilbeiðslu við hann. Orðið heimsfriður var svo sýnt með stórum stöfum í lok atrið- isins og það mun einungis vera skilgreining The Illuminati á heimsfriði, samkvæmt Hollywood- illuminati.com. Madonna sögð tilbiðja djöfulinn í hálfleiksatriði MEÐ DJÖFLAHORN Madonna með „djöflahornin“ í hálfleik Ofurbikarins. NORDICPHOTOS/GETTY DJÖFULLINN Var Madonna að tilbiðja djöfulinn í atriðinu? FULL TUNGL Tónlistaratriðið var haldið skömmu fyrir fullt tungl MEÐ ENGLAVÆNGI „Lúsífer“ dansar í kringum Madonnu með vængi og hörpu. HÁSÆTI DJÖFULSINS? Madonna situr í hásæti sínu í hálfleiksatriðinu. 2 AL PACINO ætlar að leika illmenni í teiknimyndinni Despicable Me 2. Þetta verður í fyrsta sinn á ferlinum sem Pacino talar inn á teiknimynd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.