Fréttablaðið - 08.02.2012, Blaðsíða 35
5MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2012
Arion banki hóf nýlega
samstarf við trygginga-
félagið Euler Hermes um
að bjóða viðskiptamönn-
um sínum greiðslufalls-
tryggingar.
E u l e r H e r m e s e r
stærsta tryggingafélag-
ið í Evrópu á þessu sviði,
með um 34% markaðs-
hlutdeild, að því er fram
kemur í upplýsingum frá Arion
banka, en viðskiptavinir þess
eru um 52.000 talsins í ríflega 50
löndum.
Ferlið er með þeim hætti að
tryggingafélagið metur greið-
andann og gefur út tryggingu sem
endurspeglar mat þess á greiðslu-
hæfi viðkomandi og hvort líklegt
sé að hann lendi í greiðslufalli.
Komi svo til þess að greiðandi
lendi í vanskilum tekur trygg-
ingafélagið að sér innheimtu kröf-
unnar en íslenska fyrirtækið fær
kröfuna greidda í gegnum Faktor-
ingu Arion banka.
Hrönn Greipsdóttir, forstöðu-
maður Faktoring Arion
banka, segir í samtali við
Markaðinn að þetta sé
talsverður áfangi og hafi
mikla þýðingu fyrir bank-
ann og viðskiptavini hans.
„Þetta er sérstaklega
mikilvæg þjónusta fyrir
fyrirtæki í útflutningi þar
sem oft getur reynst dýrt
og erfitt að sækja kröfur
á greiðendur erlendis. Með því
að kaupa greiðslufallstryggingar
er fyrirtækjum tryggð greiðsla
og Euler Hermes mun sjá um að
sækja fjármunina á greiðendur
erlendis.“
Hrönn segir að eftirspurn eftir
greiðslufallstryggingum hafi auk-
ist í núverandi efnahagsástandi
þar sem jafnvel traustustu fyrir-
tæki hafa lent í erfiðleikum með
greiðslur.
„Eins eru þær mikið notaðar
þegar um er að ræða nýja við-
skiptamenn þar sem greiðslusaga
viðkomandi er ekki vel þekkt.“
- þj
Tryggingarisinn Euler Hermes og Arion banki:
Hefja samstarf um
greiðslufallstryggingar
ARION BANKI Viðskiptavinum bankans býðst nú að kaupa greiðslufallstryggingar á vegum
tryggingarisans Euler Hermes, sem er að meirihluta í eigu Allianz, og er með starfsemi í
rúmlega 50 löndum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HRÖNN
GREIPSDÓTTIR
VIÐSKIPTI
Magnús Þorlákur Lúðvíksson
magnusl@frettabladid.is
Facebook tilkynnti loks í síðustu
viku að fyrirtækið hygðist skrá
sig á hlutabréfamarkað á þessu
ári. Búist hafði verið við tilkynn-
ingunni um nokkra hríð og mikil
eftirvænting skapast vegna þessa.
Í skjölum sem Facebook hefur
sent til verðbréfaeftirlits Banda-
ríkjanna vegna fyrirætlananna
kemur fram að fyrirtækið vonast
eftir því að selja hluti fyrir 5 millj-
arða Bandaríkjadala, jafngildi 614
milljarða íslenskra króna. Hluta-
fjárútboðið verður því líklega hið
stærsta sem internetfyrirtæki
hefur lagst í.
Sé sú verðlagning á Facebook í
takt við væntingar á markaði verð-
ur heildarvirði fyrirtækisins allt
að 100 milljarðar dala, jafngildi
12.270 milljarða króna. Facebook
yrði með öðrum orðum eitt verð-
mætasta fyrirtæki heims.
Hlutafjárútboðið gefur Face-
book færi á að auka verulega fjár-
hagslegan styrk sinn. Í tengslum
við það þarf Facebook hins vegar
að opinbera mun meira af upp-
lýsingum um fyrirtækið en það
hefur gert áður. Meðal upplýsinga
sem þar koma fram opinberlega í
fyrsta skipti eru tekjur fyrirtæk-
isins, helstu hluthafar þess og mat
fyrirtækisins á helstu áskorunum
sínum og ógnum á næstu árum.
Eins og búist hafði verið við
kemur í ljós að hagnaður fyrirtæk-
isins er mikill. Á síðasta ári hagn-
aðist það um 668 milljónir Banda-
ríkjadala og hafði tekjur upp á 3,7
milljarða. Hafa tekjur þess vaxið
hratt síðustu misseri en til saman-
burðar voru tekjurnar 777 milljón-
ir árið 2009 og hagnaður 122 millj-
ónir sama ár.
Tekjur vegna auglýsinga eru
langstærsti tekjuliður Facebook
eða 85 prósent. Hin 15 prósentin
eru vegna greiðslna sem Face book
fær frá fyrirtækjum á borð við
Zynga sem hannar tölvuleiki fyrir
Facebook, þar á meðal tölvuleikinn
vinsæla Farmville.
Þótt tekjur fyrirtækisins kunni
að hljóma gríðarlegar hafa sumir
greinendur staldrað við litla tölu
sem er að finna í gögnunum. Það
eru tekjur fyrirtækisins á hvern
notanda, sem eru einungis 4,39
Bandaríkjadalir á notanda á ári.
Til samanburðar eru tekjur Google
á skráðan notanda rúmlega 30
Bandaríkjadalir á ári og tekjur
Yahoo og AOL á notanda 7 og 10
Bandaríkjadalir á ári.
Facebook hefur fyrir löngu gert
Mark Zuckerberg, stofnanda og
framkvæmdastjóra Facebook,
forríkan en bandaríska tímarit-
ið Forbes mat auðævi hans á 17,5
milljarða Bandaríkjadala, jafngildi
2.150 milljarða króna, í nýjustu út-
tekt sinni á ríkasta fólki Bandaríkj-
anna.
Hlutafjárútboðið mun að öllum
líkindum gera hundruð annarra
starfsmanna Facebook forríka.
Fjölmargir starfsmenn fyrirtæk-
isins hafa fengið hluti í því á mun
lægra verði en búist er við að fáist
í útboðinu og geta nú brátt selt hlut-
ina.
Í hönnun útboðsins fetar Zucker-
berg í fótspor þeirra Larry Page
og Sergej Brin, stofnenda Google.
Er hlutum í fyrirtækinu skipt í
tvo flokka sem gerir það að verk-
um að Zuckerberg mun hafa loka-
orðið um hvernig nærri 57 prósent
hluta í fyrirtækinu kjósa á hluta-
hafafundum. Hann mun því áfram
hafa meirihlutavald yfir fyrirtæk-
inu.
Almennt virðast greinendur
nokkuð bjartsýnir á gengi hluta-
fjárútboðsins. Sumir greinendur
telja sig þó sjá líkindi með vænting-
um á markaði nú og þess þegar net-
bólan blés út í lok tíunda áratugar-
ins. Þá setja sumir spurningamerki
við tækifæri Facebook til að auka
tekjur sínar án þess að angra not-
endur síðunnar þeim mun meira.
Tilkynningin um hlutafjárútboð-
ið hafði jákvæð áhrif á hlutabréfa-
verð ýmissa annarra netfyrir-
tækja, svo sem Zynga og hópkaupa-
síðunnar Groupon.
Í útboðsskjölunum er einnig
fjallað um helstu ógnir Facebook.
Minnst er á þá hættu að Google
takist að nota gríðarleg umsvif sín
á vefnum til að auka verulega vin-
sældir eigin tengslavefjar, Google
Plús. Þá minnist Facebook á þá
hættu að persónuverndarlögum í
Evrópu og Bandaríkjunum verði
breytt á þá leið að erfiðara verði
fyrir Facebook að hagnýta upplýs-
ingar um notendur sína.
Fjöldi Facebook-notenda var
um síðustu áramót 845 milljón-
ir og hafði aukist um 39 prósent
á milli ári. Aukist fjöldi notenda á
sama hraða næstu mánuðina verð-
ur hann 1 milljarður einhvern tím-
ann í sumar.
Gríðarleg verðmæti fólgin í Facebook
Facebook hefur loksins tilkynnt að fyrirtækið hyggist leggja í hlutafjárútboð. Búist er við því að fyrirtækið verði verðlagt á allt að 100 millj-
arða Bandaríkjadala, jafngildi 12.270 milljarða króna. Vöxtur fyrirtækisins hefur verið stjarnfræðilega hraður síðustu ár og misseri.
MARK ZUCKERBERG Stofnandi Facebook er þegar
kominn í hóp ríkustu manna Bandaríkjanna en
væntanlegt hlutafjárútboð fyrirtækisins mun
að öllum líkindum skapa hundruð annarra
milljóna- og milljarðamæringa sem fengið hafa
hluti í fyrirtækinu á síðustu árum.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P