Fréttablaðið - 08.02.2012, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2012 7vetrarhátíð ●
Gestagjörningur verður
framinn í Pakkhúsi
byggðasafns Hafnarfjarðar
föstudaginn 10. febrúar frá
klukkan 19 til 24.
Á rið 1904 tók fyrsta al-menningsrafveita Íslands til starfa í Hafnarfirði. Þá
voru í fyrsta sinn á Íslandi tendr-
uð ljós í sextán íbúðarhúsum í
bænum,“ segir Karl Rúnar Þóris-
son hjá Byggðasafni Hafnarfjarð-
ar sem heldur utan um viðburð-
inn Magnað myrkur, sextán ljósa
kraftur á Safnanótt. „Þegar við
fórum að velta fyrir okkur hvað við
ættum að taka okkur fyrir hendur
á þessum degi datt okkur í hug að
nýta þennan merka viðburð í sögu
Hafnarfjarðar,“ útskýrir hann. Það
þótti enda viðeigandi í tilefni þema
Vetrar hátíðar í ár sem er Magnað
myrkur. „Þá fengum við þá hug-
mynd að hafa samband við Iðnskól-
ann í Hafnarfirði til að fá til liðs
við okkur nemendur í rafiðnaðar-
deild. Þetta þótti okkur tilvalið þar
sem markhópur safnanætur er ein-
mitt fólk á aldrinum 14 til 25 ára,“
segir Karl sem hafði samband við
Björgólf Þorsteinsson, kennara við
skólann, sem tók mjög vel í hug-
myndina.
Verkefnið fékk styrk úr safna-
næturpotti og hefur heill bekkur í
Iðnskólanum unnið hörðum hönd-
um að stórskemmtilegum gjörn-
ingi. „Í fórum Iðnskólans fannst
gamall rafall og á hann að skírskota
til hins upprunalega rafals sem
framleiddi rafmagn fyrir fyrstu
almenningsrafveituna árið 1904,“
segir Karl en upprunalegi rafall-
inn er hins vegar of stór og þung-
ur til að nota. Nemendur Iðnskól-
ans hafa þróað nútíma stýribúnað
sem tengdur verður við gamla raf-
alinn. „Á safnanótt geta síðan gest-
ir sem leggja leið sína í Pakkhús-
ið við Vesturgötu notað stýrikerf-
ið til að knýja rafalinn og upplifað
afl, já eða aflleysi, þessarar gömlu
nýsköpunarhugmyndar frá upphafi
síðustu aldar,“ segir Karl og bætir
við að þarna komi berlega í ljós
aflleysi þeirrar nýsköpunar í sam-
anburði við ógnarkraft orku sam-
tímans.
Tendra sextán ljós á ný
● LJÓSMYNDADAGAR Ljósmyndasafn Reykjavíkur stendur fyrir
metnaðarfullri dagskrá frá klukkan 19 á föstudag fram til klukkan 16 á
sunnudag. Meðal annars verður vinn-
ingshafi ljósmyndasamkeppni Ljós-
myndadaga heiðraður, ljósmyndagrein-
ing verður í Þjóðminjasafni Íslands og
Christophe Laloi, listrænn stjórnandi,
mun sýna ljósmyndir frá ljósmynda-
hátíðinni Voies Off í Arles í Frakklandi á
KEX Hosteli.
Farnar verða nokkrar ljósmynda-
göngur á sunnudag: frá Stjörnugróf,
um Árbæjarhverfið, Laugarneshverfið,
Grafarvog og Breiðholtið.
Nokkrar ljósmyndasýningar standa
yfir á Ljósmyndadögum: á Lækjartorgi, í
Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnarbíói og Sundhöll Reykjavíkur.
Allar nánari upplýsingar um dagskrá Ljósmyndadaga er að finna á
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
Karl Þórisson og Björgólfur Þorsteinsson kennari með nemendum rafiðnaðardeildar Iðnskólans í Hafnarfirði. MYND/VILHELM
● LJÓÐUM VARPAÐ Á VALDA GLUGGA Reykjavík Bók-
menntaborg UNESCO mun glæða vetrarmyrkrið lífi í tilefni Vetrar hátíðar
með því að varpa ljóðum og skáldskap í bland við myndir af skáldum á
vel valda glugga í miðbænum. Staðirnir eru Mokka kaffi á Skólavörðu-
stíg, Laugavegur 11, Trúnó/Barbara
á Laugavegi 22, Hressingarskálinn
í Austurstræti og biðstöð strætó á
Hlemmi.
Textarnir eiga það sameigin-
legt að takast á við myrkrið og kall-
ast þannig á við þema hátíðarinnar
í ár, „Magnað myrkur“. Þeir eru allir
eftir þekkt borgarskáld svo sem
Stein Steinarr, Dag Sigurðarson,
Ástu Sigurðardóttur og Lindu Vilhjálmsdóttur svo einhver séu nefnd.
Skáldagluggar eru samstarfsverkefni Bókmenntaborgarinnar og Gunnars
Gunnarssonar. Þeir munu lifa alla Vetrarhátíðina frá fimmtudagskvöldinu
9. febrúar til mánudagsmorguns þann þrettánda.
Sigfús Daðason skáld á Mokka.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
MP banki er meginbakhjarl Vetrarhátíðar í Reykjavík
Góða skemmtun!