Fréttablaðið - 08.02.2012, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 8. febrúar 2012 15
Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveld-
isins sem er grundvallarlöggjöf samfélagsins
og er mikil þörf á því að ræða þær á Alþingi og
ekki síður meðal þjóðarinnar. Skipun stjórn-
lagaráðs var söguleg eins og menn muna, eftir
kosningu sem dæmd var ógild af Hæstarétti, en
ráðið hefur starfað og skilað af sér ítarlegum
tillögum um nýja stjórnarskrá sem fela í sér
miklar breytingar frá þeirri sem nú gildir. Ljóst
er að áhersla var lögð á það í stjórnlagaráði að
ná saman um tillögur, og endanleg niðurstaða er
málamiðlun milli mismunandi sjónarmiða sem
vissulega voru fyrir hendi innan ráðsins. Stjórn-
lagaráðið vann mikla vinnu við þetta verk – ekki
síst í ljósi þess að því var ætlaður mjög skamm-
ur tími til þess að ná niðurstöðu.
Það plagg sem nú liggur fyrir er ekki hafið
yfir gagnrýni fremur en önnur mannanna verk.
Nú er nauðsyn að tillögurnar fái vandaða og
yfirvegaða umfjöllun, þá er mjög áríðandi að
líta til lengri tíma og reyna eftir föngum að
gera sér ljósa grein fyrir áhrifum þeirra á sam-
félagsþróunina til frambúðar. Í umfjölluninni er
einnig nauðsynlegt að tryggja að ný stjórnarskrá
verði skýr og gefi ekki tilefni til deilna um lög-
fræðileg túlkunarefni. Niðurstaðan verði síðan
lögð í dóm þjóðarinnar. Nauðsyn ber til að skapa
Alþingi svigrúm til þess að vinna þetta verk að
sínum hluta og kynna málið með skipulegum
hætti í þjóðfélaginu öllu.
Framsóknarmenn samþykktu tillögu um
stjórnlagaþing á flokksþingi árið 2009. Það var
í kjölfar þess að dægurmálin urðu til þess að
vinna endurskoðunarnefndar um stjórnarskrána
strandaði. Ekki síst í ljósi þess ber að leggja sér-
staka áherslu á að láta ekki persónur, stjórn-
máladeilur dagsins eða þær hremmingar sem
þjóðfélagið hefur gengið í gegnum síðustu árin
yfirskyggja alla sýn til framtíðar. Hins vegar
skal hér bent á nokkur grundvallaratriði sem
þarfnast úrlausnar og Framsóknarflokkurinn
hefur lagt áherslu á:
■ Að eignarhald Íslendinga á auðlindum sínum
verði tryggt í stjórnarskrá.
■ Að valdsvið og hlutverk forseta Íslands verði
skilgreint með óumdeildum hætti.
■ Að þrígreining ríkisvaldsins verði styrkt. Ráð-
herrar sitji ekki á Alþingi með atkvæðisrétti
samhliða ráðherradómi og ráðning hæstarétt-
ardómara verði aðskilin frá framkvæmdar-
valdinu.
■ Að auðlindaákvæði komi inn í stjórnarskrána.
■ Að stjórnarskráin sé grundvöllur mannrétt-
inda og lýðræðis.
■ Að um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu
gildi skýrar reglur sem festar eru í löggjöf.
Skipulag fiskveiða hefur verið heitt deilumál
í samfélaginu um árabil. Við framsóknarmenn
leggjum áherslu á að auðlindir sjávar eru sam-
eign þjóðarinnar og nauðsyn er að fá sátt um
veiðiréttinn og gjaldtöku fyrir hann. Auðlinda-
ákvæði þarf að mynda grunn fyrir slíka sátt,
þótt útfærslan sé í löggjöf.
Hér er stiklað á stóru. Stjórnarskráin þarf
að vera skýrt plagg um grundvallaratriði sam-
félagsskipunarinnar. Hún á ekki að innihalda
orðmargar stefnuyfirlýsingar. Nú er nauðsyn að
fram fari góð og gagnleg umræða í framhaldi
af því starfi sem unnið hefur verið á vettvangi
stjórnlagaráðs.
Stjórnarskráin þarf að vera
skýrt plagg um grundvallar-
atriði samfélagsskipunarinnar. Hún á
ekki að innihalda orðmargar stefnu-
yfirlýsingar.
Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá
franska framleiðandanaum Poly
Implant Protèse (hér eftir nefnt
PIP púðar) á árunum 2000-2010,
langflestar hjá sama lækninum.
Frönsku PIP púðarnir fengu
CE-vottun og töldust því hæfir
til notkunar í lækningaskyni á
öllu Evrópska efnahagssvæðinu.
Framleiðandinn stundaði kerfis-
bundin vörusvik með því að nota
við framleiðslu sína iðnaðarsílí-
kon í stað læknisfræðilegs sílí-
kons. Um árabil komust eftirlits-
stofnanir Evrópusambandsins
ekki að þessum svikum. Það var
því ómögulegt fyrir notendur
púðanna, hvort heldur lækna eða
heilbrigðisstofnanir, að varast
þessi svik. Málið er nú rannsak-
að sem sakamál og framleiðandi
púðanna situr í varðhaldi.
Mikil umræða hefur spunnist
undanfarið um PIP brjóstapúða,
viðbrögð yfirvalda og ráðlegg-
ingar Læknafélags Íslands til
hóps félagsmanna vegna máls-
ins. Þung orð hafa verið látin
falla og í umræðunni hefur borið
á misskilningi og rangfærslum.
Ástæða er til að vekja athygli á
því að iðulega er blandað saman
tveimur málum. Annars vegar
snýst málið um úrræði stjórn-
valda fyrir konur sem fengið hafa
PIP brjóstapúða, hins vegar um
ósk landlæknis um að halda per-
sónugreinanlega skrá yfir allar
konur sem farið hafa í brjósta-
stækkun á Íslandi frá árinu 2000.
Á fyrra málinu er aðkallandi að
finna góða lausn sem konurnar
geta sætt sig við, hið síðara getur
varla talist brýnt.
Lýtalæknum barst bréf frá
landlækni í byrjun ársins þar
sem óskað var eftir skrá með
kennitölum allra kvenna sem
gengist hafa undir brjósta-
stækkunaraðgerðir hjá þeim frá
árinu 2000. Hópur kvenna hafði
samband við lýtalækna og lagði
blátt bann við því að nöfn þeirra
kæmu fram á slíkri skrá. Læknar
hafa ríka trúnaðar- og þagnar-
skyldu gagnvart sjúklingum og
setti krafa kvennanna um nafn-
leynd þá í verulegan vanda. Þess
vegna óskuðu lýtalæknar eftir
aðstoð frá Læknafélagi Íslands.
Eftir nákvæma skoðun er það
niðurstaða Læknafélags Íslands
að óvíst sé að landlækni sé heim-
ilt að gera persónugreinanlega
brjóstastækkunarskrá eins og
að er stefnt. Þetta var rætt á
fundi Læknafélagsins með land-
lækni og var ákveðið að leita til
Per sónuverndar sem er endan-
legur úrskurðaraðili í málum
sem þessum.
Mál þetta snýst ekki um að
læknar vilji ekki af annar-
legum hvötum láta upplýsingar
af hendi, heldur snýst það um
trúnað lækna gagnvart sjúkling-
um og að læknar fari eftir lögum
og reglum um persónuvernd
sjúklinga. Læknar hafa engan
persónulegan ávinning af því að
afhenda ekki landlækni þau gögn
sem til umræðu hafa verið. Lýta-
læknar hafa boðið fram aðstoð
sína til þess að greiða úr PIP
málinu á sem bestan hátt fyrir
konurnar. Það kom skýrt fram á
fundi lækna með velferðarnefnd
Alþingis fyrir skömmu. Lýtalækn-
irinn sem framkvæmdi flestar
PIP aðgerðirnar hafði milligöngu
um að senda boðsbréf velferðar-
ráðuneytisins til þeirra kvenna
sem fengið höfðu PIP púða.
Margt hefur verið rætt og ritað
um brjóstastækkunarmálið, sumt
af hófsemi og skynsemi en margt
hefur verið á misskilningi byggt
eða átt rætur að rekja til hreinn-
ar fáfræði. Umræða hefur verið
um hugsanlega skaðsemi sílí-
konsins í PIP púðunum og var
því m.a. haldið fram á tímabili
að sílíkonið væri krabbameins-
valdandi. Þær fréttir voru síðar
dregnar tilbaka. Rannsóknir eru
nú í gangi erlendis á hugsanlegri
skaðsemi púðanna. Nánari upp-
lýsingar um PIP púða má finna
á heimasíðu landlæknisembætt-
isins (http://www.landlaeknir.
is/Pages/1055?NewsID=2335).
Það er mikilvægt að halda allri
umræðu um þetta mál á skyn-
samlegum nótum til að magna
ekki áhyggjur kvenna með PIP
brjóstafyllingar. Vanda verður
alla málsmeðferð og hraða henni
um leið eftir föngum.
Ein alvarlegasta rangfærslan
sem sett hefur verið fram er sú
að Læknafélag Íslands tefji fyrir
því að konur með PIP púða fái
úrlausn sinna mála. Ekkert er
fjær sanni. Sú töf sem varð á því
að konum með PIP púða væri
boðin ómskoðun af brjóstum
stafaði af ágreiningi heilbrigðis-
yfirvalda og Krabbameinsfélags
Íslands um greiðslur fyrir þess-
ar skoðanir. Þetta hefur vel-
ferðarráðherra staðfest, m.a. í
umræðum á Alþingi. Þessi drátt-
ur tengist hvorki Læknafélagi
Íslands né lýtalæknum. Enda
hefur það komið fram að lang-
flestar konur með PIP púða fengu
sent bréf velferðarráðuneytisins
strax og yfirvöld höfðu samið um
þessar greiðslur.
Það er dapurlegt að PIP
málið, sem erfitt var að varast
fyrir lækna og eftirlitsaðila, sé
notað til árása á lækna og sam-
tök þeirra og til að tortryggja
alla einkarekna heilbrigðisþjón-
ustu hér á landi. Gæði og árang-
ur íslenska heilbrigðiskerfisins
undanfarna áratugi er meðal
þess sem best gerist í Evrópu,
eins og getið er um í skýrslu ráð-
gjafarfyritækisins Boston Con-
sulting Group sem nýlega var
unnin fyrir velferðarráðuneytið.
Þetta hefur tekist þrátt fyrir að
útgjöld til heilbrigðismála hafi
verið hófleg. Ekki má gleyma því
að hinn góði árangur sem náðst
hefur í íslenskum heilbrigðis-
málum undanfarna áratugi hefur
orðið til í kerfi sem er blanda af
opinberum rekstri og einkarek-
inni starfsemi. Er einhver ástæða
til að breyta því?
PIP brjóstapúðamálið
– um staðreyndir og
villandi málflutning
Endurskoðun stjórnarskrárinnar
Ný stjórnarskrá
Birkir Jón
Jónsson
varaformaður Framsóknarflokksins
Heilbrigðismál
Þorbjörn
Jónsson
formaður Læknafélags
Íslands
AF NETINU
Ekki þó ég hefði reynt
Ég er nú – eins og ég þreytist seint á að taka fram – ekki
mjög reikningsglöggur maður, og bókhald leikur ekki í
höndunum á mér.
En ég get þó fullyrt að ef einhver hefði haft vit á því að
skipa mig yfir lífeyrissjóðina, þá hefði mér ekki tekist að
tapa 479 milljörðum á tveimur árum.
Ekki einu sinni þó ég hefði reynt.
Það er þó huggun harmi gegn, er það ekki, að þeir sem
töpuðu öllum þessum peningum hafa vafalítið tapað
minna af sínum lífeyri en við aumur pöpullinn.
http://blog.eyjan.is/illugi
Illugi Jökulsson
Hvað er samfélagsábyrgð
fyrirtækja?
Morgunverðarfundur Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð
fyrirtækja og Samtaka atvinnulífsins, miðvikudaginn 15. febrúar
kl. 8.30–10.00 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura (þingsal 3).
Dagskrá:
8. 1 5 – 8.30 Skráning og morgunverðarhlaðborð.
8.30 – 9.00 Samfélagsábyrgð fyrirtækja. Hræsni eða heilindi?
Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands.
9.00 – 9.1 5 Síminn og samfélagsábyrgð.
Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri tæknisviðs Símans
og stjórnarformaður Festu.
9.1 5 – 9.30 Samfélagsábyrgð Landsvirkjunar og áskoranir við innleiðingu.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
9.30 – 9.45 Siðræn neysla – hin hliðin á sama peningi.
Brynhildur Pétursdóttir, ritstjóri Neytendablaðsins.
9.45 – 10.00 Pallborðsumræður með þátttöku fyrirlesara.
Regína Ásvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Festu, stýrir fundi. Þátttökugjald er 2.500 kr.
og er morgunverður innifalinn. Aðildarfélagar og háskólanemar greiða 1.500 kr.
Skráning er á festa@ru.is.
SAMFÉLAGSÁBYRGÐ
FYRIRTÆKJA
FESTA