Fréttablaðið - 08.02.2012, Qupperneq 18
8. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR18
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Birgir Nurmann Jónsson
síðast til heimilis að Austurbrún 6,
lést á Landakoti 1. febrúar sl. Útförin fer fram frá
Fossvogskapellu föstudaginn 10. febrúar kl. 13.00.
Ellen Birgisdóttir
Linda Björk Birgisdóttir
Íris Ösp Birgisdóttir Kristján Rafnsson
Axel Jón Fjeldsteð Birgisson Sólveig Anna Eyjólfsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Skúli Einarsson
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að
morgni sunnudagsins 5. febrúar. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 13. febrúar kl.
13.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknar-
deild LSH Kópavogi.
Ingifríður R. Skúladóttir Guðmundur Örn Guðbjartsson
Árni Einar Skúlason Ann-Sofie Bertholdsson
Einar Jón Skúlason Hansen Ann Hansen
Tómas Freyr Skúlason
og barnabörn.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
„Það hafa ekki verið neinir aular sem
komu Samtökum um kvennaathvarf á
koppinn því stofnfundur var haldinn í
byrjun júní 1982 og athvarfið var opnað í
byrjun desember. Á þessu hálfa ári eign-
uðust samtökin hús, komu því í stand og
fengu fólk til að standa vaktina. Fyrsta
konan flutti inn á opnunardaginn,“
segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastýra Kvennaathvarfsins, sem
er þrjátíu ára á þessu ári. Allar götur
síðan hefur það veitt konum og börn-
um þeirra skjól þegar dvöl á heimil-
um þeirra hefur verið óbærileg vegna
ofbeldis. Á sjöunda þúsund gesta
hafa dvalið í athvarfinu til lengri eða
skemmri tíma og að auki hefur mikill
fjöldi kvenna þegið ráðgjöf og stuðnings-
viðtöl, tekið þátt í sjálfshjálparhópum og
leitað stuðnings og upplýsinga í neyðar-
síma athvarfsins.
Spurð hvort hugmyndin um kvenna-
athvarf hafi mætt andstöðu í sam-
félaginu svarar Sigþrúður: „Ekki beint.
Það voru ekki allir jafn vissir um að
konur mundu nota sér þessa þjónustu
en ég held að enginn hafi beitt sér gegn
henni. Einhverjir karlar mættu á stofn-
fundinn en eftir því sem ég kemst næst
hvíldi málið á kvennahreyfingunni og
konum með reynslu og þekkingu úr
starfi sem höfðu séð afleiðingar ofbeld-
is. Greinilega algerum kjarnakonum. Ég
er akkúrat á leiðinni á fund með einni
þeirra og ef ég er að segja þér einhverja
vitleysu skal ég hringja í þig og leiðrétta
hana!“
Fjögur svefnherbergi eru í húsinu
sem Kvennaathvarfið er í núna, einnig
stofa og fundarherbergi sem oft þarf að
breyta í svefnherbergi. „Athvarfið er
aldrei fullt, samkvæmt skilgreiningu, en
er samt stundum fullt. Á talsvert löngu
tímabili í haust voru 19-21 manneskja í
húsinu. Þá var mjög þröngt.“
Sigþrúður leggur áherslu á að um
neyðarathvarf sé að ræða. „Konur hafa
dvalið hér allt frá einum degi upp í hálft
ár. Það síðarnefnda er undantekning-
artilfelli. Heimatilbúin þumalfingurs-
regla segir að engin ætti að dvelja hér
lengur en fjórar vikur. Þá viljum við að
einhver sé búinn að grípa inn í. Spurð
hvað taki við þegar athvarfinu sleppir
segir Sigþrúður sumar konur snúa aftur
heim, aðrar fari til foreldra eða vina og
eigi þar tímabundið úrræði en flestar
fái nýtt húsnæði sem þær hafi kannski
fengið aðstoð hjá Félagsþjónustunni til
að verða sér úti um.
„Draumur okkar er sá að komast í
stærra húsnæði á afmælisárinu því
þetta er alltof lítið,“ tekur Sigþrúður
fram en sér hún eitthvað hilla undir það?
„Nei, eiginlega ekki en við eigum þetta
hús sem er yndislegt og vissulega dýr-
mæt eign, það er bara ekki nógu stórt.
Við ætlum í fjársöfnun með vorinu, það
er eitt þeirra verkefna sem unnið verð-
ur að á afmælisárinu. Planið er sem
sagt að halda málefnum athvarfsins á
lofti og eignast peninga en ekki síður að
efna til funda um ofbeldi í nánum sam-
böndum, eðli þess, birtingarmyndir og
afleiðingar.“ gun@frettabladid.is
SIGÞRÚÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR: STÝRIR KVENNAATHVARFI Á 30 ÁRA AFMÆLI
Draumurinn er að komast í
stærra húsnæði á afmælisári
FRAMKVÆMDASTÝRA KVENNAATHVARFSINS „Heimatilbúin þumalfingursregla er að engin ætti að dvelja hér lengur en fjórar vikur,“ segir Sigþrúður
Guðmundsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nasdaq kauphöllin tók til starfa þennan
dag árið 1971. Hún er önnur af tveimur
af helstu kauphöllum Bandaríkjanna.(
Hin er New York Stock Exchange NYSE).
Nasdaq, er skammstöfun fyrir National
Association of Securities Dealers
Automatic Quotation og þar fara fleiri
viðskipti fram en í nokkrum öðrum
kauphöllum í Bandaríkjunum en kaup-
hallir eru, sem kunnugt er, vettvangur
þar sem kaupendur og seljendur verð-
bréfa eiga viðskipti.
Lengst af komu kaupendur og selj-
endur hlutabréfa, ásamt milliliðum,
saman á einum stað og áttu viðskipti
upp á gamla mátann, augliti til auglitis
en nú er yfirleitt skipst á tilboðum með
rafrænum hætti.
Nasdaq varð fyrsta kauphöllin til að
taka upp rafræn viðskipti.
ÞETTA GERÐIST: 8. FEBRÚAR 1971
Nasdaq-kauphöllin opnuð
HALLDÓR KILJAN LAXNESS, nóbelsskáld lést þennan dag árið 1998
„Eh, það er nú svo margt sem getur verið líkt mér.“ (svar við spurningu Svavars
Gestssonar menntamálaráðherra um hvort skáldinu þætti styttan lík honum.)
1925 Læknir í Salem í Massachusettes í Bandaríkjunum lýsir
því yfir að þrjár táningsstúlkur séu andsetnar af djöflinum
og markaði þannig upphaf galdaofsókna í þorpinu.
1924 Nevada verður fyrsta ríki Bandaríkjanna til að taka mann
af lífi með gasi.
1925 Tveir togarar farast á Halamiðum, Leifur heppni og
Robertson, og með þeim 68 menn. Einnig ferst vélbátur
með sex mönnum og fimm manns verða úti.
1935 Enskur togari strandar við Svalvogahamra á milli Dýra-
fjarðar og Arnarfjarðar og 14 manna áhöfn hans ferst.
1974 Concorde-þota lendir í Keflavík.
1980 Ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen tekur við völdum.
1980 Kvikmyndin Veiðiferðin er frumsýnd í Reykjavík og á
Akureyri. Leikstjóri er Arndrés Indriðason.
1984 Vetrarólympíuleikarnir hefjast í Sarajevó.
1989 Boeing 707 þota ferst á Asóreyjum. 144 farast.
2002 Opnunarhátíð Vetrarólympíuleikanna er haldin í Salt
Lake City.
2005 Ísrael og Palestína samþykkja vopnahlé.
Merkisatburðir
AFMÆLI
JÓNATAN
GARÐARSSON
fjölmiðlamað-
ur er fimmtíu
og sjö ára.
ARNBJÖRG
HLÍF VALS-
DÓTTIR
leikkona er
þrjátíu og sex
ára.
JÓHANN
HJARTARSON
skákmeistari
er fjörutíu og
níu ára.
SVALA BJÖRG-
VINSDÓTTIR
söngkona
er þrjátíu og
fimm ára.
NICK NOLTE
leikari er
sjötíu og eins
árs.
ÁSLAUG DÓRA
EYJÓLFSDÓTTIR
menn-
ingarmálasér-
fræðingur er
fjörutíu og sjö
ára.