Fréttablaðið - 08.02.2012, Síða 22
8. FEBRÚAR 2012 MIÐVIKUDAGUR4
FRÉTTASKÝRING
Magnús Þorlákur Lúðvíksson
magnusl@frettabladid.is
B
jórmenning á Íslandi
hefur tekið stakka-
skiptum á síðustu árum.
Fjöldi og fjölbreytileiki
íslensks bjórs hefur auk-
ist mikið og þá hafa árstíðabundn-
ar bjórtegundir orðið æ vinsælli.
Um þessar mundir eru um 50 teg-
undir af íslenskum bjór í boði
í Vínbúðum en voru ekki nema
helmingur þess fyrir fáum árum.
Þróunina má ekki síst rekja til til-
komu minni brugghúsa sem hafið
hafa störf. Ölgerðin og Vífilfell eru
þó enn langstærst á markaðnum
Fyrsta litla brugghúsið á Íslandi
var Bruggsmiðjan á Ársskógs-
sandi. Hugmyndin vaknaði hjá
hjónunum Agnesi Sigurðardótt-
ur og Ólafi Þresti Ólafssyni eftir
að hafa séð frétt um lítið brugg-
hús í Danmörku. Fyrirtæki þeirra
var stofnað í lok árs 2005 og fram-
leiðsla hófst ári síðar. Gerðu þau
upphaflega ráð fyrir framleiðslu
upp á 170 þúsund lítra á ári en hafa
tvívegis aukið framleiðslugetuna
sem er nú 550 þúsund lítrar.
„Við vorum algjörlega að renna
blint í sjóinn. Okkar einu markmið
voru að skapa störf og nýta frá-
bæra vatnið okkar,“ segir Agnes og
heldur áfram: „Þetta hefur gengið
vonum framar og aldrei átti ég von
á því að hjón á Ársskógssandi gætu
breytt bjórmenningunni á Íslandi.”
Nefnir Agnes sem dæmi að árið
2007, þegar þau hófu að brugga
dökkan bjór, var enginn íslenskur
dökkur bjór í framleiðslu. Nú séu
þeir hins vegar orðnir algengir.
Sjö starfa hjá Bruggsmiðjunni,
þar af fimm í fullu starfi, sem
selur nú fimm bjórtegundir allan
ársins hring undir nafninu Kaldi.
Þá hefur fyrirtækið bruggað árs-
tíðabundna bjóra auk nokkurra
bjóra fyrir aðra aðila. Til að mynda
hefur það nýhafið bruggun á gos-
bjórnum Volcanic Energy sem er
fyrsti íslenski gosbjórinn.
MISJAFNT GENGI
Árið 2007 hófu þrír aðilar til við-
bótar að selja íslenskan bjór í litlu
upplagi. Fyrstan ber að nefna
Eyþór Þórisson, veitingamann á
Seyðisfirði, sem hóf að selja bjór-
inn El Grillo. Í dag eru tvær út-
gáfur af honum í sölu en Ölgerðin
bruggar bjórinn fyrir Eyþór.
Þá voru tvö brugghús stofnsett
árið 2007: Ölvisholt í Flóahreppi og
Mjöður í Stykkishólmi. Ölvisholt
kom sér upp framleiðslugetu upp
á 300 þúsund lítra á ári og hefur
framleitt bjórana Freyju, Móra,
Lava Stout og Skjálfta auk árstíða-
bundinna bjóra. Mjöður í Stykkis-
hólmi framleiddi tvo bjóra: Jökul
og Skriðjökul en hætti starfsemi á
síðasta ári. Nýjasta brugghúsið er
svo Gæðingur öl í Útvík í Skaga-
firði sem hóf starfsemi í fyrra.
Gæðingur framleiðir fjóra bjóra
undir eigin nafni og hefur einnig
framleitt árstíðabundna bjóra.
„Við áætlum að framleiða 45
þúsund lítra fyrsta starfsárið en
eigum að geta framleitt 100 þús-
und lítra,“ segir Jóhann Axel Guð-
mundsson, bruggari hjá Gæðingi.
Þá segir Jóhann viðtökurnar hafa
verið framar vonum.
Þrátt fyrir góðar viðtökur virð-
ist rekstur litlu brugghúsanna hafa
verið erfiður. Eins og áður sagði
hætti Mjöður starfsemi í fyrra og
þá varð fyrirtækið utan um fram-
leiðsluna í Ölvisholti gjaldþrota
árið 2010. Í kjölfarið var rekstur-
inn keyptur af félagi í eigu starfs-
manna, innflutningsfyrirtækisins
Karls K. Karlssonar og Eignar-
haldsfélags Suðurlands. Nýja fé-
lagið hefur enn ekki skilað árs-
reikningi en ætla má að skuldir
reynist rekstrinum ekki jafn þung-
ar og þær gerðu eftir bankahrunið.
Bruggsmiðjan skilaði einnig tapi
fyrstu rekstrarár sín, sýnu mest
árið 2008. Árið 2010 skilaði fyr-
irtækið hins vegar 6,5 milljóna
hagnaði og virðist því hafa komið
undir sig fótunum rekstrarlega.
VÍFILFELL OG ÖLGERÐIN STÆRST
Eins og áður sagði eru það þó
Vífil fell og Ölgerðin sem ráða
lögum og lofum á bjórmarkaðn-
um. Vífilfell framleiðir rúmlega
9 milljónir lítra á ári og Ölgerðin
7 milljónir lítra. Samanlögð mark-
aðshlutdeild þeirra er því senni-
lega í kringum 90 prósent. Bæði
fyrirtækin hafa aukið vöruúrval
sitt á síðustu misserum og opnaði
Ölgerðin eigið smábrugghús árið
2010, Borg.
„Markmiðið með þessu var að
búa til bjór sem er öðruvísi og
kannski að mörgu leyti sérstakari
en þessir klassísku bjórar okkar.
Við viljum þjónusta þennan hóp
sem er að leita að fjölbreyttari teg-
undum af bjór,“ segir Guðmund-
ur Mar Magnússon, bruggmeistari
Ölgerðarinnar. Þá segir hann við-
brögðin við Borg hafa verið gríðar-
lega góð og hafi þeir vart undan að
anna eftirspurn. Átta ólíkar bjór-
tegundir hafa verið framleiddar
hjá Borg en fimm þeirra eru í sölu
hjá Vínbúðunum núna.
Vífilfell er stærsti bjórfram-
leiðandi landsins með um helm-
ingsmarkaðshlutdeild. Þekktustu
vörur Vífilfells eru Víking og
Carlsberg en síðustu misseri hefur
Vífilfell kynnt til sögunnar svo-
kallaða úrvalslínu sem inniheldur
meðal annars árstíðabundna bjóra.
„Við byrjuðum með sérbjóra
stuttu áður en litlu brugghúsin
fóru að spretta upp. Við fluttum
þá inn bjóra frá Jacobsen, í eigu
Carlsberg. Þá hins vegar virtist
markaðurinn ekki tilbúinn fyrir
þessa bragðmeiri og sérstakari
bjóra. Á þeim árum sem eru liðin
hefur menningin hins vegar þróast
hratt sem hefur kannski ekki síst
endurspeglast í vinsældum tíðar-
bjóranna,“ segir Hreiðar Þór Jóns-
son, markaðs- og sölustjóri áfeng-
is hjá Vífilfelli.
BRUGGHÚS Á ÍSLANDI
Reykjavík
Ölgerðin
Gæðingur öl
Útvík í Skagafirði
Ölvisholt brugghús
Flóahreppi í Ölfusi
Bruggsmiðjan
Árskógssandi við Eyjafjörð
Akureyri
Vífilfell
Mikil gróska í bjór-
framleiðslu á Íslandi
Bjórmenning á Íslandi hefur breyst á síðustu árum ekki síst með tilkomu minni
brugghúsa. Vöruúrval hefur aukist og framleiðendur leggja nú áherslu á fjölbreytni.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Íslenskum bjórtegundum sem seldar eru í Vínbúðunum hefur fjölgað um helming á síðustu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Formlegar söluviðræður við einn
af bjóðendum í 77% hlut þrotabúa
Landsbankans og Glitnis í Iceland
Foods gætu hafist eftir viku til
tíu daga, samkvæmt heimildum
Markaðarins. Frestur til að skila
inn bindandi tilboðum í hlutinn
rann út um síðustu mánaðamót.
Reuters-fréttastofan hefur fullyrt
að tveir fjárfestingasjóðir, Bain
Capital og BC Partners, hafi skil-
að inn tilboðum.
Heimildir Markaðarins herma
að nú standi yfir óformlegar við-
ræður við báða aðilana. Þær snú-
ast meðal annars um að fara yfir
hvort fjármögnun bjóðendanna
sé örugg og hvers konar verðmiði
þyrfti að vera undirstaðan í form-
legum viðræðum. Enn er ekki úti-
lokað að hætt verði við söluna,
Iceland Foods matvörukeðjan
er langstærsta seljanlega eign
Landsbankans, sem á 67% hlut
í henni. Hún er með um 2,1%
markaðshlutdeild í Bretlandi og
selur vörur árlega fyrir á fimmta
hundrað milljarða króna. Talið
er að þrotabú Landsbankans og
Glitnis vilji fá rúmlega 220 millj-
arða króna fyrir hluti sína. Ekk-
ert hefur verið gefið upp opinber-
lega um hversu mörg né hversu há
tilboðin voru. - þsj
Söluferli Iceland Foods:
Óformlegar viðræður
um fjármögnun og verð
STOFNANDINN Malcolm Walker stýrir Iceland Foods og á minnihluta í félaginu. Ekki er
talið að hann hafi gert tilboð í hlut skilanefndanna.
Lífeyrissjóðirnir munu fara fram
á að dómskvaddir matsmenn verði
fengnir til að leggja mat á það
hvort gögn sem lögð voru fram
í umdeildu skuldabréfaútboði
Glitnis í mars 2008 hafi endur-
speglað raunverulega stöðu bank-
ans. Sjóðirnir vilja meina að þeir
hafi verið blekktir til að kaupa
víkjandi skuldabréf í útboðinu
fyrir samtals 10,7 milljarða króna
og hafa stefnt slitastjórn Glitnis
vegna þessa. Undirbúningur að
málarekstrinum hefur staðið yfir
mánuðum saman.
Ef fallist verður á málatilbún-
að lífeyrissjóðanna gæti ávinn-
ingur þeirra orðið umtalsverður.
Verði skuldabréfin flokkuð sem
almenn krafa, líkt og þau eru nú,
munu sjóðirnir líkast til ekki fá
nema um fjórðung greiddan fyrir
þau miðað við væntar endurheimt-
ur í þrotabúi Glitnis. Takist að
fá skuldabréfin viðurkennd til
skuldajöfnunar nýtist hins vegar
mun meira af virði þeirra.
Það væri þá hægt að nota bréf-
in til skuldajöfnunar gegn tapi
á gjaldmiðlavarnarsamning-
um. Tap íslenskra lífeyrissjóða
vegna þeirra gæti orðið rúmlega
70 milljarðar króna eftir skulda-
jöfnun eins og staðan er í dag ef
ýtrustu kröfur þrotabúa föllnu
bankanna verða samþykktar. Tap
sjóðanna vegna samninganna er
bókfært á 36,4 milljarða króna í
skýrslu úttektarnefndar sem birt
var síðastliðinn föstudag. Þar er
miðað við uppgjör á gengisvísitöl-
unni 175. Hvorki skilanefnd Kaup-
þings né Glitnis hafa fallist á upp-
gjör á þeim forsendum. - þsj
Lífeyrissjóðir stefna Glitni vegna skuldabréfaútboðs:
Gæti falið í sér
milljarða ávinning
fyrir sjóðina
NEFNDIN Skýrsla um starfsemi lífeyrissjóða í aðdraganda bankahrunsins var kynnt
síðastliðinn föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA