Fréttablaðið - 08.02.2012, Side 36
8. FEBRÚAR 2012 MIÐVIKUDAGUR6
Það sparast pláss og tími
með lausnum frá Rými
– fyrir alla muni
Ráðgjöf
Hönnun
Sérsmíði
Þjónusta
Afmælis-
tilboð á
hillum
-20%
Frábærar lausnir fyrir stofnanir, einstaklinga og fyrirtæki
75
ÁR
A
15%
nýársafsláttur
á hillum
Geymslu- og lagerhillur
Skjalaskápar á hjólum
Starfsmanna- og munaskápar
Verslunarinnréttingar
Gínur og fataslár
Lagerskúffur og bakkar
Eldtraustir skápar
Brautarholti 26, 105 Reykjavík, sími 511-1100 – rymi@rymi.is – www.rymi.is
VIÐTAL
Þorgils Jónsson
thorgils@frettabladid.is
Danski hagfræðingurinn Jesper
Rangvid var staddur hér á landi ný-
verið þar sem hann var gestapró-
fessor við viðskiptadeild Háskólans
í Reykjavík. Rangvid, sem er pró-
fessor við Viðskiptaháskóla Kaup-
mannahafnar, var nýverið skipað-
ur formaður yfir rannsóknarnefnd
sem mun freista þess að skýra
hvort, og þá með hvaða hætti, inn-
lendir áhrifaþættir höfðu áhrif á
yfirstandandi erfiðleika fjámála-
lífsins þar í landi.
Þó að ástandið í Danmörku sé
langt í frá eins alvarlegt eða víð-
tækt eins og verið hefur hér á Ís-
landi, hafa fjármálastofnanir átt í
miklum erfiðleikum. Eins og stend-
ur hafa ellefu bankar orðið gjald-
þrota frá hruninu haustið 2008.
Rannsóknarnefndin nýskip-
aða hefur það yfirlýsta hlutverk
að greina innlenda og erlenda or-
sakaþætti í dönsku fjármálakrepp-
unni, hvort ráðgjöf bankastofnana
til viðskiptavina sinna hafi haft
magnandi áhrif á erfiðleikana sem
lagst hafi á einstaklinga og fyrir-
tæki, og loks leggja til aðgerðir til
þess að koma í veg fyrir að sagan
endurtaki sig. Nefndin á að skila
niðurstöðum sínum áður en árið er
á enda liðið.
Hvernig er ástandið í dönsku
efnahagslífi nú, rúmum þremur
árum eftir að alþjóðafjármála-
kreppan skall á?
„Það fer að miklu leyti eftir því
hvað miðað er við. Í samanburði við
Svíþjóð og Noreg, sem við Danir
berum okkur jafnan saman við,
erum við sannarlega verr á vegi
stödd. Við erum enda að kljást við
atvinnuleysi, lítinn hagvöxt, verð-
fall á húsnæðismarkaði og halla-
rekstur í ríkisfjármálum.
Í samanburði við löndin sunn-
ar í álfunni, til dæmis Spán, Ít-
alíu, Frakkland, Belgíu og Bret-
land, erum við hins vegar í mun
betri stöðu.
Ástandið er vissulega ekki frá-
bært, en við erum heldur ekki að
horfa upp á neinar hörmungar í
fyrirsjáanlegri framtíð.“
Hver eru þá mest aðkallandi
vandamálin?
„Fyrst og fremst verður að skapa
vöxt, en það er tvennt sem stend-
ur því fyrir þrifum. Í fyrsta lagi
eru dönsk heimili afar skuldsett, en
það er afleiðing húsnæðisbólunn-
ar, sem var alvarlegri hjá okkur en
til dæmis í Noregi. Fasteignaverð
hefur fallið á meðan skuldirnar
hækka og nú er svo komið að með-
alskuldir heimilanna í Danmörku
eru þær hæstu í öllum heimi, að
mér skilst, þó að danska ríkið sé
ekki mjög skuldsett. Skuldir heim-
ilanna verða hins vegar til þess
að fólk hefur minna á milli hand-
anna og það kemur niður á neyslu
almennings.
Þar fyrir utan erum við enn að
kljást við það að atvinnulífið er
ekki nógu samkeppnisfært miðað
við önnur lönd, en það hafði að vísu
þegar gerst fyrir kreppu með stór-
hækkuðum launum á danska vinnu-
markaðnum. Af þeim sökum hugsa
fyrirtæki sig tvisvar um þegar þau
velta því fyrir sér hvort eigi að
hefja starfsemi í Danmörku frek-
ar en í Póllandi eða Þýskalandi, til
dæmis, þar sem kostnaðurinn er
þriðjungi lægri.“
Hvernig mun rannsóknarnefndin
starfa og hvað verður gert við nið-
urstöður hennar?
„Við verðum sex sjálfstæðir
fulltrúar í nefndinni, fjórir fræði-
menn, fyrrum seðlabankastjóri og
fyrrum bankastjóri Nordea-bank-
ans. Svo verða fimm fulltrúar frá
ráðuneytunum, fjármálaeftirlitinu
og seðlabankanum, auk aðstoðar-
fólks.
Við munum ekki vera með
opinberar yfirheyrslur eins og
sums staðar hefur tíðkast, heldur
munum við aðallega greina gögn
sem við öflum okkur. Við munum
svo komast að ákveðinni niður-
stöðu og leggja til leiðir til úrbóta,
sem stjórnmálamenn munu svo
taka afstöðu til.“
Er eitthvað sérstakt sem bend-
ir til þess að innlendir þættir hafi
haft áhrif á stöðuna?
„Sú staðreynd að á annan tug
danskra banka hefur orðið gjald-
þrota á síðustu árum á meðan
enginn banki í Noregi eða Svíþjóð
hefur orðið gjaldþrota, gefur ýmis-
legt í skyn. Mest liggur þó á því
að fá úr því skorið hvort eitthvað
sem gert var innanlands hafi gert
ástandið verra en ella. Ef svo reyn-
ist munum við í framtíðinni geta
hagað okkar málum þannig að við
getum komið í veg fyrir að sagan
endurtaki sig.“
Stendur til að nota niðurstöður
rannsóknarinnar sem grundvöll til
saksóknar ef grunur leikur á að lög-
brot hafi verið framin?
„Ég er ekki viss um það. Í rann-
sókninni sem var gerð á Íslandi
var ýmsum steinum velt og margt
kom í ljós. þar á meðal upplýsingar
sem hægt var að nota sem sönnun-
argögn til að rannsaka glæpamál. Í
Danmörku hefur hins vegar hvert
gjaldþrot banka og gjörðir stjórn-
enda þeirra þegar verið rannsak-
að. Okkar niðurstöðum og tillög-
um um úrbætur verður því frekar
beint til stjórnmálastéttarinnar en
ákæruvalds eða dómstóla.“
Íslenska rannsóknarnefndin
hafði mjög víðtækt hlutverk. Verður
ykkar rannsókn eins umfangsmikil?
„Já, ég held það. Við förum
kannski ekki svo náið ofan í hvern
einstakan banka eins og gert var
á Íslandi, en við viljum skoða um-
hverfi og bakgrunn kreppunnar
mjög ítarlega og þá spilar allt inni
í, þar á meðal gerðir stjórnmála-
manna í afreglun markaða og um-
fjöllun fjölmiðla, til dæmis um fast-
eignamarkaðinn.“
Hefur þú kynnt þér íslensku
skýrsluna og er viðbúið að ykkar
skýrsla muni hafa eins mikil áhrif?
„Ég hef kynnt mér íslensku
skýrsluna að því leyti sem ég get og
þar var margt mjög vel gert, en ég
býst ekki við því að okkar skýrsla
verði eins áhrifarík. Það helgast
einna helst af því hvað nefndin er
stofnuð seint. Síðasta ríkisstjórn
vildi ekki þessa rannsókn, þar sem
Greina orsakir til að læra af þeim
Dönsk stjórnvöld hafa skipað rannsóknarnefnd til að greina orsakir fjármálakreppunnar þar í landi. Alls hafa ellefu bankar orðið gjaldþrota í Dan-
mörku síðustu misserin, en formanni nefndarinnar, hagfræðingnum Jesper Rangvid, þykir það benda til þess að innlendir þættir hafi átt hlut í máli.
Jesper Rangvid hefur vanið komur sínar til Íslands sem gestaprófessor við
Háskólann í Reykjavík. Hann er meðal fremstu álitsgjafa danskra fjölmiðla í
efnahagsmálum og þekkir vel til aðstæðna hér landi. Spurður um sína sýn á
ástandið hér á landi, segir hann að staðan sé mun skárri en hann hafði óttast.
„Þið hafið staðið ykkur umtalsvert betur en ég óttaðist á sínum tíma eftir
að allir stóru bankarnir ykkar urðu gjaldþrota. Þó að atvinnuleysi sé enn hátt,
ríkisfjármálin séu erfið og gjaldeyrishöft séu til staðar er útlitið nokkuð jákvætt
miðað við mörg önnur ríki sem fóru illa út úr kreppunni. Atvinnuleysi er að
dragast saman og hagvöxtur er kominn í gang. Þið lukuð samstarfi við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn á tilsettum tíma og þó að það sé ekki bara sólskin í kortunum
eru hér miklir möguleikar, sérstaklega með aukinni samkeppnishæfni atvinnu-
lífsins. Þið njótið nú góðs af því að geta brugðist við í gengismálum, sem er
kostur sem Grikkjum stendur til dæmis ekki til boða, og þó að þið hafið tekið á
ykkur þungan skell getið þið nú horft fram á veginn.“
„GETIÐ NÚ HORFT FRAM Á VEGINN.“
RANNSAKAR ORSAKIR KREPPUNNAR Hagfræðiprófessorinn Jesper Rangvid fer fyrir rannsóknarnefnd um orsakir fjármálakreppunnar í
Danmörku. Hann segir mikilvægt að skera úr um að hvaða leyti megi rekja orsakir kreppunnar til innlendra þátta. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
talið var að flest hefði þegar komið
fram og meginorsakirnar væri að
finna utan Danmerkur. Síðan eru
stjórnarskipti síðasta haust og nýja
stjórnin ákveður að ráðast í þetta
verkefni. Á tímanum sem síðan er
liðinn hefur mjög margt komið í
ljós og margt áunnist og því er ekki
við því að búast að okkar niður-
staða muni hafa eins mikil áhrif.“
Hvernig metur þú horfur dansks
efnahagslífs næstu árin?
„Eins og ég sagði áður, erum við
í vandræðum, en ekki sambæri-
legum við lönd eins og Spán, Grikk-
land og Ítalíu. Það verður líklega
ekki hraður vöxtur í Danmörku
næstu árin, en við munum ekki
þurfa að kollvarpa okkar samfélagi
eins og hefur þurft víða í Evrópu,
þar sem aðhaldsaðgerðir og niður-
skurður gengur afar nærri fólki.
Markaðirnir hafa trú á stöðugleika
í Danmörku sem sést á því að við
erum að fá lægri vexti á skulda-
bréf en Þýskaland, meira að segja.
Þess vegna held ég að við getum
horft fram á nokkuð stöðugan bata
í dönsku efnahagslífi þó að hann
verði hægur.“