Fréttablaðið - 08.02.2012, Blaðsíða 40
8. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR20
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar og afi,
Stefán Bjarnason
flugvélstjóri,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum við
Hringbraut sunnudaginn 22. janúar. Útförin fer fram
frá Víðistaðakirkju föstudaginn 10. febrúar kl. 13.00.
Eygló Gunnarsdóttir
Ómar Stefánsson
Sara Stefánsdóttir
Rakel Stefánsdóttir
Stefán Þór Stefánsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar og afi,
Einar Gísli Gunnarsson
Logafold 29, Reykjavík,
fórst með Hallgrími SI-77 miðvikudaginn 25. janúar sl.
Minningarathöfn verður í Grafarvogskirkju föstudaginn
10. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á að láta Slysavarnaskóla sjómanna njóta þess.
Ásrún Sólveig Leifsdóttir
Gyða Hrönn Einarsdóttir Áslaug Rán Einarsdóttir
Sóley Unnur Einarsdóttir Dýrleif Bára Einarsdóttir
Guðbjörg Rún Torfadóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Margrét Sighvatsdóttir
Víðigerði 8, Grindavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Hjúkrunarheimilinu
Víðihlíð í Grindavík föstudaginn 3. febrúar.
Útförin verður gerð frá Grindavíkurkirkju
föstudaginn 10. febrúar kl. 14.00.
Páll Hreinn Pálsson
Margrét Pálsdóttir Ársæll Másson
Páll Jóhann Pálsson Guðmunda Kristjánsdóttir
Pétur Hafsteinn Pálsson Ágústa Óskarsdóttir
Kristín Elísabet Pálsdóttir Ágúst Þór Ingólfsson
Svanhvít Daðey Pálsdóttir Albert Sigurjónsson
Sólný Ingibjörg Pálsdóttir Sveinn Ari Guðjónsson
ömmubörn og langömmubörn.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Margrét Guðmundsdóttir
frá Fífuhvammi,
Digranesheiði 14, Kópavogi,
lést í Sunnuhlíð laugardaginn 4. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn
10. febrúar kl. 13.00.
Sigurjón Antonsson
Hrafn Antonsson Iða Brá Þórhallsdóttir
Hilmar Antonsson Þóra S. Guðmundsdóttir
Rúnar Antonsson Birna H. Ragnarsdóttir
Guðmundur Antonsson Auður Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
systir og amma,
Lára Margrét
Ragnarsdóttir
fyrrverandi alþingismaður,
lést á heimili sínu sunnudaginn 29. janúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn 10. febrúar kl. 13.00.
Anna Kristín Ólafsdóttir Hjörleifur B. Kvaran
Ingvi Steinar Ólafsson Sigrún Guðný Markúsdóttir
Atli Ragnar Ólafsson
Kristján Tómas Ragnarsson Hrafnhildur Ágústsdóttir
Árni Tómas Ragnarsson
Ásta Kristrún Ragnarsdóttir Valgeir Guðjónsson
Hallgrímur Tómas Ragnarsson Anna Haraldsdóttir
Lísa Margrét, Eysteinn, Bjarki, Anika Embla, Salvör Íva,
Auður Ísold og Katrín Rán.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls
eiginkonu, móður, tengdamóður og
ömmu,
Maríu Schjetne
Rjúpnasölum 10, Kópavogi.
Þorgeir Axel Örlygsson
Gerður Rós Axelsdóttir Gunnar Már Gunnarsson
Örlygur Axelsson Regína Lilja Magnúsdóttir
María Rós Gunnarsdóttir
Gunnar Axel Gunnarsson
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Ingvar Magnússon
Nýbýlavegi 60,
lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 4. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Jenný Bjarnadóttir
Bjarni Ingvarsson
Fríða Björk Ingvarsdóttir Hans Jóhannsson
Ingvar Örn Ingvarsson Hildur Fjóla Svansdóttir
Baldur Bjarnason, Brynhildur Jenný Bjarnadóttir, Elín
Hansdóttir, Úlfur Hansson, Björk Ingvarsdóttir og Ingvar
Andri Ingvarsson.
Elsku hjartans maðurinn minn,
pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
Sæmundur Þ. Sigurðsson
bakarameistari,
Heiðarbæ 1, Reykjavík,
sem lést þann 27. janúar sl. á Landspítalanum við
Hringbraut verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík, fimmtudaginn 9. febrúar kl. 13.00.
Snæfríður R. Jensdóttir
Stella Sæmundsdóttir Sveinn S. Kjartansson
Marsibil J. Sæmundardóttir Sigvaldi Þór Loftsson
Sigurður Jens Sæmundsson Hildur Arna Hjartardóttir
og barnabörn.
Stoðtækjafyrirtækið Össur hefur gert samning við
sportvörurisann Nike um hönnun og framleiðslu hlaupa-
sóla fyrir gervifætur fatlaðra íþróttamanna. Verkefnið
er unnið í samstarfi við íþróttakonuna Sarah Reinert-
sen, sem er heimsmeistari í þríþraut aflimaðra.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segir í frétta-
tilkynningu að með „Sörusólanum“, sem kemst næst
nafni verkefnisins The Sarah sole, hafi verið tekið
stórt skref til að aðstoða fatlaða íþróttamenn við að ná
markmiðum sínum. Með samstarfi Össurar og Nike
hafi komið saman fyrirtæki sem hafi yfir að ráða ein-
stakri sérkunnáttu til að framleiða vöru sem ekki á sér
hliðstæðu.
Tobie Hatfield, þróunarstjóri hjá Nike, segir í sömu
tilkynningu að verkefnið hafi sérstöðu hjá Nike.
Sarah Reinertsen hefur um árabil starfað með Össuri
og heimsótt Ísland oftar en einu sinni þess vegna. Hún
hefur náð frábærum árangri í íþróttum og hefur tekið
þátt í Ólympíumótum fatlaðra. Hún vakti heimsathygli
þegar hún komst áfram í Ironman keppninni í Banda-
ríkjunum fyrir nokkrum árum. Í keppninni þarf að
hlaupa, hjóla og synda í sjó – og er hún fyrsta aflimaða
konan sem náði þessum árangri. - shá
Stoðtækjafyrirtækið Össur semur við sportvöruframleiðanda í samstarfi við heimsmeistara:
Össur framleiðir sóla fyrir Nike
Á FÆTI FRÁ ÖSSURI Sarah lauk Ironman á Hawaii árið 2005 á fimm-
tán klukkustundum, þá á gervifæti frá Össuri. Hún hljóp maraþon,
hjólaði 180 kílómetra og synti sjö kílómetra í sjó.
Hver er maðurinn? er
meðal atriða í dagskrá
Ljósmyndasafns Reykja-
víkur á Safnanótt næsta
föstudagskvöld. Þar biðl-
ar safnið til gesta og biður
þá að hjálpa sér að þekkja
fólk á ljósmyndum sem til
sýnis eru.
Annar liður á dagskrá
safnsins nefnist Myrkur-
hús. Þar verður gestum
gefin innsýn í upphaf ljós-
myndunar í orðsins fyllstu
merkingu.
Tilkynnt verður um
vinningshafa í ljósmynda-
samkeppni Ljósmyndadaga
klukkan 20 og klukkan 21
mun Sigrún Sigurðardóttir
menningarfræðingur leiða
gesti um sýninguna Berg-
mál, eftir Charlottu Hauks-
dóttur og Sonju Thomsen.
Dagbókarbrot Christians Schierbeck 1901-1902 eru til
sýnis í safninu og í Skotinu er sýning Sigurðar Gunnars-
sonar: Strætóskýli.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur er á 6. hæð í Tryggva-
götu 15 og það verður opið á safnanótt frá klukkan 19 til
miðnættis á safnanótt.
Í mögnuðu myrkri
HVER ER MAÐURINN? Þeir sem
komnir eru til vits og ára muna
eftir Björgvini Halldórssyni með
brotna tönn.
Grænlenski trommusöngvarinn Silbat Kuitse og danska tón-
listar- og myndlistarkonan Karen Thastum flytja verkið
Nipi&Qaamasoq Saga/Sagan mín í Norræna húsinu í Vatns-
mýrinni klukkan 20 í kvöld, miðvikudag. Saman kalla
flytjendurnir sig Tura Ya Mora. Verkið byggir á blöndu af
hefðbundnum trommudansi, norrænum hljómum og eigin
tónsmíðum flytjendanna.
Verkefnið hefur hlotið styrk frá Norrænu menningargátt-
inni og NAPA, norrænu menningarstofnuninni á Grænlandi.
Aðgangur að tónleikunum kostar 1000 krónur íslenskar og
miðasala er við innganginn.
Þess má geta að Tura Ya Mora verður líka með tónleika í
Norræna húsinu á safnanótt nú á föstudaginn. - gun
Saga/Sagan mín
TURA YA MORA Karen Thastum og Silbat Kuitse fara á kostum.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.