Fréttablaðið - 08.02.2012, Síða 50

Fréttablaðið - 08.02.2012, Síða 50
8. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR30 sport@frettabladid.is HERMANN HREIÐARSSON mun ekki spila neitt með sínu nýja liði, Coventry, næstu vikurnar þar sem hann þarf að fara í aðgerð vegna axlarmeiðsla. Þetta kom fram í viðtali við Hermann á Rás 2. Hermann var búinn að spila tvo leiki með Coventry áður en hann meiddist. Mér stóð til boða að vera áfram hjá Emsdetten en fjölskyldan ákvað að flytja heim. Það er því ekki á stefnuskránni að flytja aftur út. PATREKUR JÓHANNESSON LANDSLIÐSÞJÁLFARI AUSTURRÍKIS HANDBOLTI Patrekur Jóhannesson tók í haust við starfi landsliðsþjálf- ara Austurríkis og kom liðinu yfir sína fyrstu hindrun á leið á HM í handbolta sem fer fram á Spáni á næsta ári. Hann segir starfið gott og metnaðinn mikinn hjá austur- ríska landsliðinu. Patrekur er ekki fyrsti Íslend- ingurinn sem sinnir þessu starfi en Dagur Sigurðsson gerði það með góðum árangri frá 2008 til 2010. Hann náði níunda sæti á EM þar í landi árið 2010 og kom svo liðinu á HM í Svíþjóð áður en hann lét af störfum. Patrekur tók við af Svíanum Magnus Andersson sem átti ekki jafn góðu gengi að fagna. En for- ráðamenn austurríska landsliðs- ins ætla sér að festa liðið í sessi á alþjóðlegum vettvangi. Austur- ríki fór nokkuð létt í gegnum riðil sinn í forkeppninni í síðasta mán- uði og spilaði þar gegn Ísrael og Bretlandi. Unnið sjö af níu leikjum „Fyrsta markmiðið var að kom- ast í gegnum þennan riðil og gerð- um við það nokkuð sannfærandi,“ segir Patrekur. „Erfiðasti leikur- inn var útileikurinn í Ísrael en við unnum þann leik með níu mörkum. Ég er því mjög sáttur við þessa byrjun. Alls höfum við spilað níu leiki og þar af unnið sjö.“ Patrekur hefur verið óhrædd- ur við að tefla fram ungum og óreyndum leikmönnum og stefnir að því að byggja upp sterkt lið til frambúðar. „Ég hef verið að gefa ungum leikmönnum stærra hlut- verk og er það nauðsynlegt. Það hafa nokkrir lykilmenn gengið úr skaftinu á síðustu árum og því hefur þurft að endurnýja liðið að stóru leyti. Það hefur gengið mjög vel og við erum ánægðir með þeirra framgöngu,“ segir hann. „Ég er líka með eldri leikmenn sem þekkja þetta allt og þetta er því ágæt blanda.“ Sinnir starfinu frá Íslandi Patrekur þekkir vel til í Þýska- landi þar sem hann spilaði lengi og fyrir skömmu þjálfaði hann lið Emsdetten í B-deildinni. Hann var þó fluttur til Íslands þegar hann tók við starfinu og er enn búsettur hér á landi. „Ég þekkti ekki mikið til austur- rísku deildarinnar og var nokkuð duglegur að fara út fyrstu mán- uðina. Ég hef svo góðan aðgang að leikjum í gegnum netið og verið nokk- ur upplýstur um gang mála í deild- inni,“ segir Patrekur. Handboltaíþróttin hefur tekið nokkurn kipp eftir að Evrópumeistaramót- ið var haldið þar í landi og segir Patrekur það augljóst að það sé uppgangur þar um þessar mundir. „Það er mjög vel haldið utan um landsliðið og umgjörð- in um liðið afar fagmannleg. Ég er með mjög öflugt starfsteymi í kringum liðið sem sér um að leik- menn séu vel þjálfaðir.“ Patrekur starfaði áður sem íþróttafulltrúi Garðabæjar en fékk ekki leyfi til að sinna þjálf- arastarfinu samhliða því. Hann ákvað því að hætta og leitar sér nú að starfi sem hann getur sinnt með. Hann segist þó ekki vera að sækjast eftir því að komast í þjálf- un hjá félagsliði í Evrópu. „Mér stóð til boða að vera áfram hjá Emsdetten en við í fjölskyld- unni ákváðum að flytja heim. Það er því ekki á stefnuskránni að flytja aftur út í bráð. Það berast svo sem fyrirspurnir reglulega frá öðrum liðum en ég er mjög ánægður þar sem ég er og spenn- andi tímar fram undan í Austur- ríki.“ eirikur@frettabladid.is Spennandi verkefni í Austurríki Patrekur Jóhannesson er einn fjölda íslenskra handboltaþjálfara sem eru að gera það gott í evrópska bolt- anum. Patrekur er landsliðsþjálfari karlaliðs Austurríkis sem ætlar að festa sig í sessi á næstu misserum. PATREKUR Þjálfaði Stjörnuna hér á landi áður en hann hélt utan til Þýskalands. Hann er nú kominn aftur heim en þjálfar nú austurríska landsliðið. NORDIC PHOTOS/GETTY Austurríki dróst gegn Makedóníu í umspilinu fyrir HM á Spáni en leikirnir fara fram í byrjun júní. „Þetta verða auðvitað erfiðir leikir en það skipti í raun engu hvaða lið við hefðum fengið – þau voru öll sterk sem stóðu okkur til boða,“ sagði Patrekur Jóhannesson. Makedónía sló í gegn á EM í Serbíu og endaði í fimmta sæti. Stórskyttan Kiril Lazarov varð markahæsti leikmaður mótsins og bætti um leið markamet Ólafs Stefánssonar frá EM 2002. „En við stefnum auðvitað á að fara áfram eins og öll lið. Annars væru þau ekki að standa í þessari baráttu. Þetta er bara verkefni sem við fáum að takast á við og ég er ánægður með það,“ bætir Patrekur við. Erfitt verkefni gegn Makedóníu FÓTBOLTI Um fátt annað var rætt í gær en hvort Luis Suarez, leik- maður Liverpool, hefði sparkað viljandi í magann á Scott Parker, leikmanni Tottenham, í leik lið- anna á mánudag. Suarez var að snúa aftur úr níu leikja leikbanni og var aðeins búinn að vera inni á vellinum í fimm mínútur þegar hann þrum- aði í magann á Parker sem lá óvíg- ur eftir. Sitt sýndist hverjum um atvikið. „Ef dómarinn sá sparkið frá Suarez og gefur honum spjald fyrir, þá hefði það átt að vera rautt,“ skrifaði Rooney á Twitter- síðu sína og Gary Neville, sérfræð- ingur Sky Sports, var einnig á því að Suarez hefði átti að fá rauða spjaldið en dómarinn lét gult duga. Kenny Dalglish, stjóri Liver- pool, hélt þó uppi vörnum fyrir sinn mann og sagði hann ekki hafa séð Parker. Stjórinn lét síðan hafa eftir sér að það hefði aldrei átt að dæma Suarez í bann fyrir kyn- þáttafordóma í garð Patrice Evra, leikmanns Man. Utd. Liverpool mætir Man. Utd um næstu helgi og má búast við því að þá verði heitt í kolunum. - hbg Mörgum þótti Luis Suarez, leikmaður Liverpool, sleppa vel með gult spjald: Sparkaði Suarez viljandi í Parker? SÁRT Suarez stumrar hér yfir Parker sem liggur sárþjáður eftir að hafa fengið fast spark í magann frá Suarez. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Samkvæmt heimildum fréttavefs BBC ætlar John Terry að halda áfram að gefa kost á sér í enska landsliðið þó svo að hann verði ekki áfram fyrirliði. Á föstudaginn ákvað stjórn enska knattspyrnusambandsins að Terry gæti ekki gegnt hlut- verki fyrirliða á meðan réttar- höld um meint kynþáttaníð hans gagnvart Anton Ferdinand eru í gangi. Það þýðir að Terry verður ekki fyrirliði Englands á EM í sumar þar sem réttarhöldunum hefur verið frestað þar til í júlí. Fabio Capello landsliðsþjálf- ari er ekki ánægður með ákvörð- un stjórnarinnar og styður sinn mann. - esá John Terry: Ekki hættur í landsliðinu JOHN TERRY Einn umdeildasti knatt- spyrnumaður Englands. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Patrice Evra segir það merkilegt hversu vel Manchester United hefur tekist að glíma við þau meiðslavandræði sem hafa verið að hrjá liðið á tímabilinu. Sérstaklega hafa varnarmenn United verið duglegir við lenda í hinum ýmsu vandræðum. Þar ber hæst fyrirliðann Nemanja Vidic sem verður frá allt tímabilið eftir að hafa slitið krossband í desemb- er. Þar að auki hafa þeir Rio Ferd- inand, Phil Jones, Chris Small- ing og Rafael skipst á að vera á meiðslalista liðsins hverju sinni þannig að Alex Ferguson, stjóri liðsins, hefur varla getað stillt upp sömu varnarlínunni tvo leiki í röð. „Það er ótrúlegt hversu margir leikmenn hafa verið meiddir hjá okkur,“ sagði Evra sem hefur verið fyrirliði í fjarveru Vidic. - esá Patrice Evra um meiðslin: Erum ótrúlega óheppnir VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR ENSKI BOLTINN STÆRRI EN ALLT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.