Fréttablaðið - 08.02.2012, Síða 54
8. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR34
BESTI BITINN Í BÆNUM
MENNINGARSTARF
Í KÓPAVOGI
Menningar- og þróunarráð auglýsir eftir umsóknum
um styrki úr lista- og menningarsjóði Kópavogsbæjar.
Umsóknum skal skila fyrir 14. febrúar
Umsóknareyðublöð fást á vef Kópavogsbæjar eða í
þjónustuveri bæjarins, Fannborg 2.
Umsóknum skal skilað til:
Lista- og menningarsjóður, Fannborg 2,
200 Kópavogur.
Allar nánari upplýsingar á kopavogur.is
„Mér finnst austurlenskur
matur mjög góður. Ég hendi
mér oft inn á Nings og fæ mér
eitthvað gott. Ég fæ mér öndina
ef ég vil gera vel við mig.“
Sigurður Hlöðversson útvarpsmaður.
„Þessi mynd hefur snert ein-
hverja taug hjá honum,“ segir
skopmyndateiknarinn og uppi-
standarinn Hugleikur Dagsson.
Leikstjórinn og framleiðand-
inn Judd Apatow fagnaði 44 ára
afmælinu sínu í desember á síð-
asta ári. Apatow er mikill aðdá-
andi Hugleiks og fékk eina af
myndum hans í afmælisgjöf frá
starfsfólki sínu.
„Skrifstofan hans Judds Apa-
tow hafði samband við mig.
Starfsfólkið hans ætlaði að gefa
honum flotta gjöf og athugaði
hvort ég ætti einhverjar mynd-
ir,“ segir Hugleikur. Íslenska
útgáfa myndarinnar, sem var í
sérstöku uppáhaldi hjá Apatow,
er í eigu tónlistarmannsins Árna
Vilhjálmssonar úr hljómsveitinni
FM Belfast, þannig að Hugleikur
teiknaði nýja útgáfu af myndinni
og sendi til Kaliforníu. „Ég fékk
þau skilaboð að þetta væri besta
afmælisgjöf allra tíma,“ segir
hann.
Judd Apatow er einn allra far-
sælasti framleiðandi, handritshöf-
undur og leikstjóri Hollywood um
þessar mundir. Hann er maðurinn
á bak við gamanmyndir á borð við
The 40 Year Old Virgin, Knocked
Up, Pineapple Express ásamt því
að hafa framleitt myndir á borð
við Bridesmaids og Get Him to
the Greek.
Apatow birti teikningar Hug-
leiks í bókinni I Found This
Funny, sem kom út fyrir tæpum
tveimur árum. Þar er Hugleik-
ur á meðal snillinga á borð við
Steve Martin, Jon Stewart, Adam
Sandler og Ernest Hemingway
sem eiga efni í bókinni.
Hversu mikið rukkaðirðu fyrir
myndina?
„Ég rukkaði bara hefðbundinn
prís,“ segir Hugleikur, en bætir
við að starfsfólk Apatow hafi að
auki sent honum pakka með DVD-
myndum framleiðslufyrirtækis-
ins. Í pakkanum var einnig sér-
stök viðhafnarútgáfa þáttanna
HUGLEIKUR DAGSSON: STARFSFÓLK JUDDS APATOW VILDI FLOTTA GJÖF
MYND HUGLEIKS BESTA
AFMÆLISGJÖF ALLRA TÍMA
„Þetta þurfa að vera einstaklingar sem eru til-
búnir að opinbera sig og fara í smá sjálfskoðun
í leiðinni,“ segir Hildur Margrétardóttir fram-
leiðandi, sem leitar nú að ungu fólki til að taka
þátt íslenskum raunveruleikaþáttum.
Þættirnir eru þó ekki eins og raunveru-
leikaþættir á borð við Keeping Up with the
Kardashians, Big Brother og Survivor því
markmið þessara þátta er að varpa ljósi á veru-
leika íslenskra ungmenna í dag. Verkefnið er að
danskri fyrirmynd en þar voru sambærilegir
þættir sýndir á vefmiðli dagblaðsins Politiken.
„Þetta verða raunveruleikaþættir en án tilbúins
veruleika eins og flestir þættir sem eru í gangi
í dag. Eins konar dagbók. Verkefnið mæltist vel
fyrir og þótti gefa góða innsýn inn í líf unga
fólksins í Danmörku. Það jókst bæði skilningur
og samkennd hjá áhorfandanum,“ segir Hildur
sem framleiðir þættina ásamt Herberti Svein-
björnssyni fyrir Edison Lifandi ljósmyndir.
Hildur og Herbert leita nú að tveimur stúlk-
um og tveimur strákum á aldrinum 18-25 sem
vilja fá myndavél í hendurnar og skuldbinda sig
til að festa líf sitt á filmu í tíu vikur. Áætlað er
að gera þetta á svipuðum tíma á hinum Norður-
löndunum og því verður hægt að bera saman
vefþættina.
„Við áætlum að tökur hefjist í mars og
stefnum á að birta einn þátt í viku um hvern
einstakling. Við leitum nú að heppilegum vef-
miðli til að birta þættina á,“ segir Hildur og
viðurkennir að þeir sem sækja um verða að
vera tilbúnir að opna sig um líf sitt. Hægt er að
senda umsóknir á póstfangið doxwiseisland@
gmail.com en einnig er hægt að fræðast meira
um verkefnið á Facebook-síðu Doxwise. - áp
Leita að ungu fólki í raunveruleikaþátt
LEITA AÐ UNGU OPNU FÓLKI Hildur Margrétardóttir og
Herbert Sveinbjörnsson framleiða íslenska raunveru-
leikaþætti og leita að stúlkum og strákum á aldrinum
18-25 ára til að taka þátt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Þetta er stærsti tískuviðburð-
inn á Íslandi og ætti að vera eft-
irsóknarvert fyrir fyrirsætur
að taka þátt í þessu með okkur,“
segir Arnar Gauti Sverris son,
framkvæmdastjóri Elite á Íslandi,
en hann leitar nú að 40 fyrirsæt-
um, stúlkum og strákum, til að
ganga tískupallana á Reykjavík
Fashion Festival í ár.
Arnar Gauti ætlar að halda
prufur í húsakynnum Elite Fas-
hion Academy að Ármúla 21 á
morgun milli klukkan 17-19. Ásta
Kristjánsdóttir og Ellen Lofts-
dóttir verða einnig viðstaddar
prufurnar og saman ætla þau
að finna rétta fólkið. Stúlkur og
strákar sem eru yfir 172 cm á hæð
og í góðu líkamlegu formi eru því
eindregið hvött til að mæta.
„Við ætlum að taka þetta skref-
inu lengra í ár og gerum miklar
kröfur til einstaklinganna sem
verða fyrirsætur á hátíðinni. Það
getur skipt sköpum fyrir gæði
sýningarinnar að fyrirsæturnar
séu góðar.“
Arnar Gauti hefur fengið til
liðs við sig dansarann og dans-
höfundinn Cameron Corbett sem
ætlar að æfa göngulagið hjá fyr-
irsætunum. „Göngulagið á sýn-
ingum skiptir miklu máli og hjá
Cameron fá fyrirsæturnar bestu
leiðsögnina. Hann verður með
æfingabúðir fram að hátíðinni
og verða fyrirsæturnar því vel í
stakk búnar að ganga tískupall-
ana á hápunkti íslenska tískuiðn-
aðarins,“ segir Arnar Gauti og
lofar skemmtilegu ævintýri fyrir
þær fyrirsætur sem verða valdar
til að sýna á RFF. - áp
Fyrirsæturnar fara í göngubúðir
TIL JUDD APATOW
Judd Apatow, einn farsælasti framleiðandi Holly-
wood um þessar mundir, fékk þessa mynd
Hugleiks í afmælisgjöf frá starfsfólki sínu.
Freaks and Geeks, sem Apatow
framleiddi rétt fyrir aldamót. „Ég
hef alltaf viljað eiga það á DVD og
á núna flottan pakka,“ segir Hug-
leikur.
En veistu hvar myndin hangir?
„Ég hef ekki hugmynd. Ætli hún
sé ekki uppi á vegg á skrifstofunni
hans.“
atlifannar@frettabladid.is
GERIR MIKLAR KRÖFUR Arnar Gauti
Sverrisson leita að fyrirsætum til að sýna
fyrir Reykjavik Fashion Festival sem fer
fram í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFAN