Fréttablaðið - 10.03.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.03.2012, Blaðsíða 8
10. mars 2012 LAUGARDAGUR8 Námskeið með DAVÍÐ KRISTINSSYNI næringar- og lífsstílsþjálfara www.heilsuhusid.is 30 daga hreinsun á mataræ›i! Námskeiðið er haldið í Heilsuhúsinu, Lágmúla 5, kl. 20 - 22. Innifalið er uppfærð handbók með öllum upplýsingum sem þú þarft og 30 daga framhaldsmatseðill. Námskeiðsgjald aðeins kr. 5.500,- Nánari upplýsingar á www.30.is og í síma 864 9155. Geir H. Haarde fyrir Landsdómi - dagur 5 Báðir bankastjórar Lands- bankans fullyrtu við seðla- bankastjóra að yfirtaka ríkisins á Glitni hefði engin áhrif á hina bankana. Þetta kom fram í vitnisburði Öss- urar Skarphéðinssonar fyrir Landsdómi. Jóhanna Sig- urðardóttir forsætisráð- herra telur forvera sinn hafa gert allt sem hann gat til að afstýra bankahruni árið 2008. „Mér kom aldrei til huga að ein- hver banki myndi rúlla, svo ég upplýsi fávísi mína,“ sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fyrir Landsdómi í gær, spurður um hvernig hann hafi metið stöðuna í kringum páskana 2008. Össur, sem var iðnaðarráðherra þegar bankakerfið hrundi, sagði að síðar hafi runnið á hann tvær grím- ur. Hann hafi þess vegna spurt á fundi í Seðlabankanum 28. septem- ber hvaða áhrif yfirtaka ríkisins á 75 prósenta hlut í Glitni kynni að hafa. Þar hafi hann verið fullviss- aður um að hinir bankarnir myndu ekki fara í þrot í kjölfar þeirrar aðgerðar. Markús Sigurbjörnsson, forseti Landsdóms, spurði Össur nánar út í þetta atvik, og vildi fá að vita hver eða hverjir það hafi verið sem hafi fullvissað Össur um að hinir bank- arnir myndu ekki falla. Össur sagðist hafa spurt þessarar spurningar þrisvar. Í fyrsta skiptið á fundinum í Seðlabankanum. Þar hafi hann verið upplýstur um að Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, hafi fullyrt þetta daginn áður. Trúði ekki Davíð Oddssyni „Ég held að það hafi verið þáverandi seðlabankastjóri [Davíð Oddsson] sem sagði þetta. Ég var ekki alveg vissum að hann hafi sagt mér satt,“ sagði Össur. Hann hafi því spurt annan starfsmann Seðlabankans sem setið hafi fundinn með Sigur- jóni í einrúmi þegar þeir brugðu sér á sama tíma á salernið, en feng- ið sömu svör. Síðar sama kvöld segist Össur hafa spurt Davíð aftur. Davíð hafi þá rætt í síma við Halldór J. Krist- jánsson, bankastjóra Landsbankans, og hafi hann svarað á sama veg og Sigurjón. „Ég held að Geir [H. Haarde] hafi gert allt sem í hans valdi stóð […] til að taka á þessum vanda,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra í vitnisburði hennar fyrir Landsdómi í gær. Hún sagði Geir, sem er ákærður fyrir Landsdómi fyrir vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins, meðal annars hafa beitt sér fyrir því að styrkja gjaldeyrisvarasjóð Íslands með gjaldmiðlaskiptasamningum við Danmörku, Svíþjóð og Noreg. Auk þess hafi hann og Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, þáverandi utanrík- isráðherra reynt að leysa lausafjár- vanda bankanna, meðal annars með því að vinna gegn neikvæðri ímynd íslensku bankanna. Rætt var innan ríkisstjórnarinn- ar árið 2008 að viðskiptabankarn- ir þrír væru of stórir, en Jóhanna sagði ekki hægt að saka Geir um að hafa ekki brugðist við þeirri stöðu. Enginn hafi bent á þær aðgerðir sem hægt hefði verið að grípa til árið 2008 til að minnka efnahags- reikning bankanna. Andrúmsloft- ið hafi verið afar viðkvæmt, og allt sem sagt hafi verið hafi getað haft áhrif á bankana. Þetta er svipað viðhorf og heyrst hefur frá öðrum stjórnmálamönnum og embættis- mönnum sem borið hafa vitni. Össur Skarphéðinsson utanrík- isráðherra, sem bar vitni á undan Jóhönnu í gær, var sömu skoðun- ar. Hann sagðist enn ekki hafa hitt þann mann sem hafi geta bent á hvernig hefði verið hægt að fram- kvæma það á árinu 2008. Glæpir sem jaðra við landráð Jóhanna var harðorð í garð Seðla- bankans, og sagðist eins og aðrir hafa tekið mark á skýrslum sem frá bankanum komu árið 2008. Í skýrslu sem kom út í maí hafi komið fram að staða bankanna væri góð, og það hafi róað hana. Eftir á að hyggja hafi verið afar sérkennilegt að bankinn hafi látið slík plögg frá sér á þessum tíma. Mikið uppnám varð á ríkis- stjórnarfundi þann 30. september 2008 þegar Davíð Oddsson, þáver- andi formaður bankaráðs Seðla- banka Íslands, kom óvænt á fund- inn, sagði Jóhanna. Hún sagði í gær að Davíð hafi greint ríkisstjórn- inni frá því að bankakerfið væri að hrynja, og hafi nánast talið að loka þyrfti landinu. Þá segir hún Davíð hafa viljað að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sem þá sat viki, og þjóðstjórn tæki við völdum. Jóhanna orðaði það þannig í gær að ekki hafi allir verið ánægðir með þá hugmynd Davíðs, enda varð hún ekki að veruleika. Össur lýsti fundinum með Davíð í meiri smáatriðum. Hann sagði rík- isstjórnarfundinn hafa verið byrj- aðan þegar Geir hafi verið kallaður af fundi, sem sé í sjálfu sér mjög óvenjulegt. Davíð hafi svo fylgt Geir inn á fundinn. Á fundinum greindi Davíð ríkis- stjórninni frá því að ekki hafi tek- ist að bjarga málunum með því að leggja Glitni til hlutafé frá ríkinu tveimur dögum fyrr, sagði Össur. Það hafi verið gert að undirlagi Davíðs. Viðbrögð markaðarins voru ekki eins og reiknað hafði verið með, lánshæfismat bankanna féllu og lánalínur þornuðu. Þá sagði Össur að Davíð hafi notað „nokkur vel valin orð“ yfir eigendur tveggja „tilgreindra“ banka. Hann sagði að rétt væri að stórefla efnahagsbrotadeild ríkis- lögreglustjóra því eigendur bank- anna tveggja hafi framið glæpa- verk sem jaðraði við landráð. Össur nefndi bankana ekki á nafn. Í skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika frá því í maí það sama ár fengu Kaupþing og Glitnir mun lakari umsögn en Landsbankinn. Mismeðvituð um samráðshóp Össur sagði að Davíð hafi ekki fyrr varað við alvarlegri stöðu íslenska fjármálakerfisins í sín eyru. Eins og Jóhanna sagðist hann hafa treyst skýrslu Seðlabankans sem út kom í maí 2008 þar sem bankarnir voru sagðir standa traustum fótum. „Skýrslan frá Seðlabankanum í maí var túlkað þannig af fjölmiðlum og stjórnmálamönnum að staða bank- anna væri í lagi,“ sagði Össur. Jóhanna sagðist fyrst hafa heyrt af starfi samráðshóps um fjármála- stöðugleika árið 2006. Í hópnum sátu fulltrúar forsætisráðuneytis- ins, fjármálaráðuneytis, viðskipta- ráðuneytis, Fjármálaeftirlits og Seðlabanka. Geir er meðal annars sakaður um að hafa ekki beitt sér fyrir því að vinna hópsins væri markvissari. Jóhanna sagðist hafa heyrt af samráðshópnum í svari þáverandi viðskiptaráðherra við fyrirspurn hennar á Alþingi árið 2006. Össur virðist ekki hafa fylgst með þeirri fyrirspurn samflokks- konu sinnar því hann sagði fyrir Landsdómi í gær að hann hafi fyrst heyrt af tilvist samráðshópsins á ríkisstjórnarfundi í mars 2008. Hann sagðist eftir það hafa talið að hópurinn ætti að vinna að einhvers konar viðbragðsáætlun vegna fjár- málaáfalls og fylgjast grannt með stöðu mála. Össur ekki rétti maðurinn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáver- andi formaður Samfylkingarinnar, vildi ekki að Björgvin G. Sigurðs- son, þáverandi viðskiptaráðherra, yrði látinn vita af fundi æðstu ráða- manna um yfirtöku á 75 prósenta hlut í Glitni haustið 2008, sagði Össur. Hann segir Ingibjörgu, sem var þá stödd í Bandaríkjunum, hafa hringt í sig klukkan 18 á sunnudegi og beðið sig að vera fulltrúa sinn og Samfylkingarinnar á fundi með for- sætisráðherra, seðlabankastjóra og fleirum. Össur sagðist ekki hafa haft mik- inn áhuga á því, hann hafi ekki talið sjálfan sig rétta manninn til að sitja slíkan fund, enda bankamál fjarri hans sérsviði. Ingibjörg hafi talið hann á að fara, og sent með honum Jón Þór Sturluson, aðstoðarmann Björgvins. Össur sagðist hafa viljað hringja í Björgvin, en Ingibjörg hafi ekki vilj- að það. Þegar leið á fundinn hringdu Össur og Jón Þór í aðra ráðherra Samfylkingarinnar til að fá umboð þeirra til að taka ákvarðanir í nafni flokksins. Forseti Landsdóms krafði Össur um nöfn VITNAR UM FORVERANN Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra bar vitni um störf forvera síns á stóli forsætisráðherra fyrir Landsdómi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hefði tekið 2-3 ár að flytja Kaupþing Verjandi Geirs H. Haarde, Andri Árnason, kallaði fjölmarga fyrrverandi starfsmenn íslensku bankanna og menn sem sátu í skilanefndum þeirra í vitnastúku í gær til að lýsa hvers konar ástand var fyrir eignasölu á árinu 2008. Einn ákæruliðurinn á hendur Geir snýr að því að hann hafi ekki beitt sér nægjanlega gagnvart því að minnka íslenska bankakerfið í aðdraganda hrunsins. Vitnin voru öll á einu máli um að eignasala hefði verið erfið og myndi að öllum líkindum hafa mjög neikvæð áhrif á eigið fé bankanna. Þess utan myndu þau senda skilaboð út á markaðinn að bankarnir væru í vandræðum. Því hefði eignasala í raun getað haft þau áhrif að fella bankana, frekar en að bjarga þeim. Jóhannes Rúnar Jóhannsson, sem situr í slitastjórn Kaupþings og starfaði hjá bankanum fyrir hrun, var spurður út í „Project Hans“ og „Project Einar“, endurskipulagningarhugmyndir sem Hreiðar Már Sigurðsson sagði á fimmtudag að hefðu verið á teikniborðinu hjá Kaupþingi. Jóhannes Rúnar sagði endur- skipulagningar vanalega taka tvo til átján mánuði. Í tilviki Kaupþings hafi verið um fjármálafyrirtæki að ræða sem hefði verið með hlutabréf skráð í tveimur löndum (Íslandi og Svíþjóð), með mjög flókna fjármögnun og ytri aðstæður á árinu 2008 hafi verið mjög vondar. „Flækjustigið í þessu tilviki var margfalt.“ Auk þess snerist „Project Einar“ um að flytja höfuðstöðvar bankans til Bret- lands, en erlendur banki hafði aldrei gert slíkt áður. Að mati Jóhannesar myndi svona flutningur, væri hann gerlegur, því taka tvö til þrjú ár hið minnsta. Hann taldi „Project Hans“, sem snerist um að flytja hluta af starfsemi bankans frá Íslandi til Danmerkur annars vegar og Bretlands hins vegar, hefði í raun ekki breytt neinu til skamms tíma fyrir Kaupþing. Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is JÓHANNES RÚNAR JÓHANNSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.