Fréttablaðið - 10.03.2012, Blaðsíða 96
10. mars 2012 LAUGARDAGUR64
sport@frettabladid.is
Edda Garðarsdóttir
knattspyrnukona
VIKTOR KRISTMANNSSON er ekki meðal keppenda á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum sem fram fer í Laugabóli í
Reykjavík í dag og á morgun. Viktor hefur orðið Íslandsmeistari í fjölþraut undanfarin níu ár en er meiddur á baki. Það er samt líklegt
að titilinn haldist í fjölskyldunni því bróðir hans Róbert Kristmannsson hefur verið í öðru sætinu á eftir Viktori undanfarin þrjú ár.
Thelma Rut Hermannsdóttir hefur titil að verja hjá konunum en hún hefur unnið fjölþrautina tvö ár í röð.
Eftir nýliðið fótboltaár þurfti ég að
setjast að samningaborði með knatt-
spyrnufélaginu mínu hér í Örebro. Hér
hef ég spilað við góðan orðstír síðan
í ársbyrjun 2009 og hef haldið áfram
að bæta minn leik hægt og bítandi
þó ég sé að nálgast eftirlaunaaldur
fótboltalega séð (Katrín Jónsdóttir fyrir-
liði landsliðsins er sem betur fer enn að
teygja mörkin).
Því miður bý ég ekki svo vel að geta
söðlað um og ráðið umboðsmann
í samningaviðræður. Mér finnst þær
hvimleiðar vegna þess að ég er af
gamla skólanum og á mjög erfitt með
að biðja um peninga fyrir að gera það
sem mér finnst skemmtilegast, þ.e.a.s.
spila fótbolta.
Þarna þurfti ég að sitja og tala um
eigið ágæti, hvað ég hefði gert fyrir
félagið og sem leikmaður. Einnig þurfti
ég að sýna og „selja“ æfingaplanið mitt
utan æfinga með félaginu og sannfæra
nýja stjórn í félaginu, sem ég er búin
að spila fyrir í þrjú ár, um að ég væri
afreksíþróttakona og ómissandi (eng-
inn er ómissandi).
Í þetta sinn sat ég með meiðsla-
pakka á bakinu eftir „smá“ misheppnað
ár 2011. Löng saga stutt: Tognun í
febrúar, opið (skrautlegt) nefbrot
í maí og rifinn liðþófi í hné í lok
ágúst. Þeir sem að hafa meiðst
vita það að endurhæfing tekur
mun meiri tíma en venjulegar
æfingar, og reynir töluvert
mikið meira á taugarnar.
Þetta voru þeir ekki að
skilja og töluðu við mig
eins og ég hefði verið í
sumarfríi síðan í septem-
ber og virtust ekki vita að
konur æfa jafnmikið eða
meira en karlar til að vera
í fremstu röð. En með
„frekjunni“ (af því að ég
er kona) tókst mér að
sannfæra þá um að ég
væri happafengur og
þeir ættu að reyna að
næla sér í fleiri íslenskar
fótboltakonur af því
að við erum vanar að þurfa að hafa
fyrir hlutunum. Ég fór skjálfandi út af
þessum fundi. Athugið þó að hér er
ég að biðja um algjör lágmarkslaun og
kort í ræktina, basic.
Þetta er harður heimur. Maður er
alltaf að berjast fyrir tilvist sinni sem
íþróttamaður. Það eru ekki margir
íþróttamenn sem geta lifað á því að
æfa og keppa í sinni íþrótt. Kudos til
þeirra, ég samgleðst hverjum þeim
sem getur framfleytt sér á þann hátt.
Það gerði ég í eitt ár. En það kostar að
lifa og það er ekki sjálfgefið að eiga í sig
og á þegar maður er íþróttamaður.
Ég hef verið heppin að geta unnið
með fótboltanum en samt getað æft
eins og mörður. Oft á tíðum hef ég
unnið 100% vinnu og svo eina eða
tvær aukavinnur. Í dag gæti ég þetta
aldrei. Hér í Svíþjóð vinn ég 50% vinnu
og svo æfi ég og keppi í fótbolta í efstu
deild. Það er mikið vinnutap og mikið
um launalaus frí. Ég er samt þakklát
fyrir að vera með vinnu af því að
annars væri þetta ekki hægt nema með
herkjum. Vinnan göfgar manninn. Ef ég
ætti kost á því að þurfa ekki að vinna
myndi ég glöð troða mér fremst í þá
röð til að vera í allra fremstu röð.
Styrki hef ég aldrei fengið þó ég
hafi sótt um þá nokkrum sinnum.
Ég hef aldrei verið á samningi hjá
neinu fyrirtæki. Mér
hafa stundum verið
gefnir fótboltaskór í
gegnum árin og það
er ég þakklát fyrir. Ég er
þakklát fyrir að hafa
þetta tækifæri hérna
í Svíþjóð, hef nýtt
það og mun nýta það
áfram. Á nýju ári munu
koma ný tækifæri og nýir tímar.
Ég bukta mig og beygi fyrir
afreksíþróttafólki sem á þess kost
að geta farið á Ólympíuleika og
úrslitakeppnir í HM, þá bæði
ófatlaðra og fatlaðra. Ég er í
þessu fyrir sjálfa mig, fyrir sál-
ina, líkamann og svo auðvitað
land og þjóð. Áfram Ísland!
Show me the money!
FÓTBOLTI Sjálfsagt muna ekki marg-
ir eftir Lettanum Aleksandrs Ceku-
lajevs sem lék hér á landi sumarið
2010. Helst stuðningsmenn Víkings
frá Ólafsvík og aðrir sem fylgdust
vel með keppni í 2. deild karla það
sumar. Cekulajevs skoraði fjórtán
mörk í 22 leikjum með Ólsurum
þetta eina sumar sem hann spilaði
hér á landi.
Cekulajevs spilaði í JK Trans
Narva í efstu deild í Eistlandi síð-
asta tímabil og er óhætt að fullyrða
að þar hafi hann slegið í gegn – enda
skoraði hann 46 mörk í 35 deildar-
leikjum með félaginu. Ótrúlegur
árangur sem skilaði honum ofar-
lega á lista yfir þá sem keppa um
gullskó Evrópu en hann fær marka-
hæsti leikmaður álfunnar ár hvert.
Keppt er í Eistlandi yfir sumar-
mánuðina, rétt eins og á Íslandi,
og lauk tímabilinu þar í nóvem-
ber. Cekulajevs getur því ekki bætt
við árangurinn þó svo að hann sé
reyndar búinn að skipta yfir í lið
sem spilar yfir vetrartímann. Hann
er nú hjá FC Valletta á Möltu.
Lengi vel var hann með mynd-
arlegt forskot á næstu menn á list-
anum – þá Cristiano Ronaldo hjá
Real Madrid og Börsunginn Lio-
nel Messi. En þar sem þeir fá tvo
punkta fyrir hvert mark þar sem
þeir spila í sterkari deild voru þeir
fljótir að taka fram úr Cekulajevs á
stigum. Ronaldo er kominn með 30
mörk (60 stig) og Messi með 28 (56
stig). Cekulajevs fékk bara eitt stig
fyrir hvert mark sem hann skoraði
í Eistlandi og situr því eftir með
„aðeins“ 46 stig. Robin van Persie,
leikmaður Arsenal, hefur einnig
tekið fram úr honum með sín 25
mörk (50 stig) í ensku úrvalsdeild-
inni.
Ejub Puresevic þjálfaði Cekulaj-
evs hjá Víkingi fyrir tveimur árum.
„Þessar fréttir komu vissulega á
óvart. Hann spilaði talsvert hjá
okkur en lenti líka í meiðslum. Þetta
var góður leikmaður en kannski
helst til mjúkur fyrir íslenska bolt-
ann. En því er ekki að neita að hann
gat klárað sín færi og gerði það
vel,“ sagði Ejub sem segir að það
hafi komið til tals að hann myndi
spila áfram með Víkingum. „En það
náðist ekki samkomulag um það.“
Ejub gleðst yfir árangri Cekulajevs.
„Þetta er ágætis drengur og þetta
eru auðvitað glæsilegar tölur.“
eirikur@frettabladid.is
Ólsari keppir um gullskóinn
Aleksandrs Cekulajevs, fyrrum leikmaður Víkings Ólafsvíkur, sló í gegn í Eist-
landi og átti í keppni við Cristiano Ronaldo, Lionel Messi og Robin van Persie
um gullskóinn í Evrópu. Cekulajevs skoraði 46 mörk í 35 leikjum í Eistlandi.
ALEKSANDRS CEKULAJEVS Hér í búningi Víkings frá Ólafsvík. MYND/HELGI KRISTJÁNSSON
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
49
83
4
frá kr. 79.900
Benidorm
Heimsferðir bjóða páskaferð til Benidorm í 13 nætur. Takið forskot
á sumarið og njótið páskanna í veðurblíðunni á Benidorm.
Flamingo Playa *** – kr. 79.900 í 13 nætur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með einu svefnherbergi.
Netverð m.v. 2 fullorðna í íbúð kr. 104.600 á mann.
Hotel Melia **** – kr. 118.800 með hálfu fæði í 13 nætur
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í herbergi m/hálfu fæði.
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í tveggja manna herbergi m/hálfu fæði kr. 143.700.
Mediterraneo **** – kr. 138.600 með allt innifalið í 13 nætur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í herbergi.
Netverð m.v. 2 fullorðna í herbergi kr. 149.900 á mann.
13 nátta ferð 28. mars - 10. apríl
Páskaferð til
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Dreglar og mottur
á frábæru verði!
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Margar
stærðir
og gerðir
Breidd: 1 metri
Verð pr. lengdarmeter
1.795
Ódýrar mottur
40x60 cm frá kr.
399
PVC mottur 50x80 cm
1.490
Breidd: 66 cm
Verð pr. lengdarmeter
1.495
Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á sunnudags morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill þjóðmálaþáttur