Fréttablaðið - 10.03.2012, Blaðsíða 80
10. mars 2012 LAUGARDAGUR48
krakkar@frettabladid.is
48
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
„Ég sá draug uppi á háa-
lofti.“
„Nú, hvernig leit hann út?“
„Eins og alger hálfviti.“
„Það er nú óþarfi að hræðast
sinn eigin skugga.“
„Fyrir hvað var frændi þinn
tekinn fastur?“
„Hann ákvað að hefja jóla-
innkaupin snemma.“
„Nú, og er það saknæmt?“
„Ja, sko, hann byrjaði áður
en búðin var opnuð.“
„Rosalega var ég heppinn að
fæðast ekki í Frakklandi.“
„Nú, af hverju segir þú það?“
„Ég kann ekki stakt orð í
frönsku.“
Er gaman að syngja í Hörpu?
Júlía: Já, það er mjög gaman,
sérstaklega þegar við syngjum
með hljómsveitinni.
Una: Það er rosalega gaman að
fá tækifæri til að syngja í þessu
flotta húsi.
Guðrún: Fyrst var það erfitt, en
nú er það gaman.
Ertu spennt fyrir frumsýning-
unni?
Júlía: Ég er bæði spennt og líka
pínu kvíðin!
Una: Auðvitað er ég mjög
spennt!
Guðrún: Já.
Hefur þú áður tekið þátt í leik-
sýningu eða óperu?
Júlía: Já, með Leynileikhúsinu
og svo í skólanum mínum, Laug-
arnesskóla. Síðan hef ég séð
mjög margar óperusýningar.
Una: Þetta er fyrsta skiptið sem
ég er með hlutverk í svona sýn-
ingu en mig hefur langað til
þess mjög lengi. Ég byrjaði að
tala um það við foreldra mína
þegar ég var þriggja ára!
Guðrún: Já, ég hef tekið þátt í
leiksýningu.
Hver finnst þér skemmtilegasta
persónan í La Bohème?
Júlía: Musetta, af því að hún er
svo fyndin. Og Lulu (hundurinn)
er líka mjög sæt!
Una: Mimì er í uppáhaldi.
Kannski bara af því hún er í
aðalhlutverki.
Guðrún: Mimì.
Hvaða hlutverk myndir þú vilja
fara með, ef þú værir í aðalhlut-
verki?
Júlía: Mimì, af því það er svo
flott sem hún fær að syngja.
Una: Í La Bohème myndi ég
vilja syngja bara mitt hlutverk,
það er að segja vera eitt af götu-
börnunum. Ef ég mætti velja
hlutverk úr öðrum söngleikjum
þá er hlutverk Maríu í Söngva-
seið í fyrsta sæti. Ég kann það
utanað.
Guðrún: Hlutverk Mimì.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór?
Júlía: Kannski leikari, eða
óperusöngkona, eða rithöfund-
ur.
Una: Óperusöngkona og leik-
kona.
Guðrún: Það kemur í ljós þegar
ég verð stór.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera, fyrir utan að syngja?
Júlía: Leika við vini mína, fara í
sund og vera heima, þó það hafi
ekki verið mikill tími til þess
síðustu daga!
Una: Næstskemmtilegast á eftir
því að syngja og leika finnst
mér að spila á fiðlu.
Guðrún: Að teikna.
SPENNTAR FYRIR FRUM-
SÝNINGU LA BOHÈME
Þær Guðrún Ýr Guðmundsdóttir, Júlía Helga Kristbjarnardóttir og Una Ragnars-
dóttir eru allar átta ára. Þær eru þrír yngstu meðlimir 32 barna kórs sem syngur í
óperunni La Bohème, sem verður frumsýnd í Hörpu næstkomandi föstudag.
Júlía, Guðrún og Una eru yngstu þátttakendurnir í uppfærslu Íslensku óperunnar á La Bohème, en þær eru allar átta ára.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í DAG býður Maxímús Músíkús upp á söng- og sögustund í Hörpu, með hjálp Eddu
Austmann söngkonu og Rúnars Steins Benediktssonar gítarista. Hittu Maxa fyrir utan
músarholuna hans klukkan 15. Þú finnur hana á jarðhæð Hörpu, inni í verslun 12 Tóna.
Sá sem dregur hæsta spil úr stokknum á að
byrja. Spilin eru sett í stokkinn aftur og
honum er dreift á borð með spilin
á grúfu. Hver spilari dregur
fimm spil til að hafa
á hendi, svo byrjar
veiðin.
Sá sem byrjar
spyr einhvern
hinna hvort
hann eigi
tiltekið spil,
segjum ás. Ef
svo er skal spil-
ið (ásinn, ásarnir)
látið af hendi. Þá
má hann spyrja annan við borðið um eitt-
hvert tiltekið spil. Þannig gengur þetta þar til
sá sem er spurður á ekki spilið sem beðið er
um. Þá segir hann „veiddu“ og sá sem spurði
dregur eitt spil úr hrúgunni. Ef hann dregur
spilið sem hann bað um má hann spyrja aftur
en ef spilið kemur ekki
upp er röðin komin að
næsta manni (rétt-
sælis) að spyrja
og veiða.
Þegar spilari
er kominn
með eina
samstæðu,
leggur hann
hana á borð-
ið sem slag.
Ef hann klárar
öll spil á hendi dreg-
ur hann eitt spil úr hrúg-
unni og heldur áfram. Þegar hrúgan er tæmd
er haldið áfram uns allir eru búnir með spilin
á hendi. Sigurvegari er sá sem hefur flesta slagi.
Veiðimaður
Góð kennsla, þjónusta við nemendur, íþróttir, afþreying
og skemmtun eftir skóla, sem og gisting að eigin vali.
www.namsferdir.is
Klapparstíg 25 • Sími 578 9977