Fréttablaðið - 24.03.2012, Side 2
24. mars 2012 LAUGARDAGUR2
Tómas, verður þetta ekki að
vera alveg hárnákvæmt hjá
rakaranum?
„Alveg hárrétt, annars förum við í
hár saman.“
Tómas Hlíðarsson vekur víða athygli fyrir
þann nýstárlega sið að raka mynstur í
hár sitt.
Auk þess mun sendiherrann deila persónulegri reynslu sinni
af þátttöku í öllum sjö formennskutíðum Dana í ESB.
Sendiherra Danmerkur, Søren Haslund, ræðir áherslur
Dana í formennsku fyrir Evrópusambandið
á opnum fundi í Evrópustofu,
mánudaginn 26. mars kl. 17:00-18:00.
Formennska Dana í ESB
Opinn fundur í Evrópustofu:
Erindið fer fram á ensku.
Allir velkomnir!
Suðurgötu 10 | 101 Reykjavík | Sími 527 5700 | evropustofa.is
SPURNING DAGSINS
BANDARÍKIN „Ef ég ætti son, þá myndi hann líta út eins
og Trayvon,“ sagði Barack Obama Bandaríkjafor-
seti í gær. Þar með blandaði hann sér í umræðu um
mikil hitamál í Bandaríkjunum, sem snýst um dráp á
þeldökkum unglingspilti í bænum Sanford í Flórída í
síðasta mánuði.
Trayvon Martin heitir sá og hafði skroppið út í
sjoppu þegar hvítur maður skaut hann, að því er virð-
ist að tilefnislausu.
Byssumaðurinn heitir George Zimmerman. Hann
var á eftirlitsferð um hverfið á vegum nágrannagæslu
þegar hann kom auga á Martin og hóf að elta hann, að
sögn af því honum þótti hann grunsamlegur. Innan
tíðar kom til átaka milli þeirra og þá dró Zimmerman
upp byssu sína með fyrrgreindum afleiðingum.
Zimmermann sagðist hafa gert þetta í sjálfsvörn
og lögreglan lét þá útskýringu duga, en almenningur
brást ókvæða við og hefur efnt til ýmiss konar mót-
mæla.
„Ég held að allir foreldrar í Bandaríkjunum ættu
að geta skilið hvers vegna það skiptir öllu máli að við
rannsökum allar hliðar þessa máls,“ segir Obama.
Tveir embættismenn í Sanford hafa nú vikið úr
embætti tímabundið meðan málið er til rannsóknar,
þeir Bill Lee lögreglustjóri og Norman Wolfinger sak-
sóknari.
„Ég geri þetta í von um að skapa einhvers konar
kyrrð í þessari borg, sem hefur verið í uppnámi í
fleiri vikur,“ sagði Lee þegar hann tilkynnti um brott-
hvarf sitt. - gb
Lögreglustjóri og saksóknari víkja úr embætti í Flórída vegna dráps á unglingspilti:
Obama vill láta rannsaka málið til hlítar
BILL LEE Lögreglustjórinn í Sanford víkur úr embætti tíma-
bundið meðan málið er rannsakað. NORDICPHOTOS/AFP
FÓLK Vitinn á Breiðinni á Akra-
nesi verður opinn almenningi í
dag. Tilraunir verða gerðar með
opnun vitans fyrir ferðamenn á
laugardögum á næstunni.
Hægt verður að fara upp í vit-
ann og njóta útsýnisins. - þeb
Vitinn á Breið á Akranesi:
Opna vitann
fyrir almenning
EFNAHAGSMÁL Frumvarp að eins
konar regnhlífarlögum fyrir alla
fjármálastarfsemi landsins verð-
ur lagt fram á þingi í haust, ef hug-
myndir sem settar eru fram í nýrri
skýrslu um framtíðarskipan fjár-
málakerfisins verða að veruleika.
Tilgangurinn með slíkri ramma-
löggjöf væri að samþætta reglur
um banka, verðbréfafyrirtæki,
lífeyrissjóði og opinbera lána-
sjóði á borð við Íbúðalánasjóð, og
tryggja þannig að í grundvallar-
atriðum gildi sambærilegar reglur
um alla þá starfsemi, og jafnframt
að kveða með skýrum hætti á um
verkaskiptingu opinberra stofnana
og hvar ábyrgðin liggur á eftirliti
með stöðugleika fjármálakerfisins
í heild sinni.
Hluti af slíkri löggjöf væri sér-
stakt stöðugleikaráð undir forystu
efnahags- og viðskiptaráðherra.
Fyrirmyndin að því yrði samráðs-
hópur Seðlabankans um fjármála-
stöðugleika, sem starfaði árin fyrir
hrun, en stöðugleikaráðið hefði þó
mun víðtækari heimildir til upplýs-
ingaöflunar og inngripa.
Hugmyndin sem sett er fram í
skýrslunni er að í ráðinu sætu einn-
ig fjármála- og velferðarráðherra,
Seðlabankastjóri og forstjórar Fjár-
mála- og Samkeppniseftirlits.
Árni Páll Árnason, þáverandi
efnahags- og viðskiptaráðherra,
setti vinnu við skýrsluna af stað í
fyrrahaust og núverandi ráðherra,
Steingrímur J. Sigfússon, kynnti
hana til sögunnar í gær.
Á fundinum áréttaði Steingrím-
ur að í skýrslunni væri ekki að
finna beinar tillögur heldur frem-
ur hugmyndir að leiðum sem hægt
væri að fara til að koma í veg fyrir
að sams konar ástand skapaðist
aftur á íslenskum fjármálamarkaði
og það sem leiddi til hrunsins 2008.
„Það verður ekki undan því vik-
ist að taka þetta allt til endurskoð-
unar,“ sagði Steingrímur á fundin-
um í gær.
Steingrímur hefur þess vegna
skipað sérfræðingahóp sem ætlað
er að fara yfir skýrsluna og skila
tillögum um breytingar á lagaum-
gjörð fjármálamarkaðarins fyrir
haustið.
Í hópnum sitja Jón Sigurðsson,
fyrrverandi stjórnarformaður
Fjármálaeftirlitsins, sem einnig
hafði veg og vanda af skýrslugerð-
inni, Gavin Bingham, fyrrverandi
framkvæmdastjóri hjá BIS-bank-
anum í Basel, og Kaarlo Jännäri,
fyrrverandi forstjóri finnska fjár-
málaeftirlitsins.
Jafnframt kom fram í máli Stein-
gríms að meðal þess sem yrði skoð-
að sérstaklega væri aðskilnaður
viðskipta- og fjárfestingarbanka-
þjónustu, sem flest rök hnigu að, og
staða innistæðutryggingakerfisins.
stigur@frettabladid.is
Regnhlífarlög sett
um fjármálamarkað
Stöðugleikaráð skipað æðstu mönnum, með víðtækar heimildir til gagnaöflunar
og inngripa, er meðal hugmynda sem settar eru fram í nýrri skýrslu um framtíð
íslensks fjármálakerfis. Von er á frumvörpum til lagabreytinga á haustþingi.
VIÐAMIKIL SAMANTEKT Í skýrslunni, sem er rúmar hundrað blaðsíður, er farið yfir
orsakir þess ástands sem hér skapaðist fyrir hrun og í hruninu, og hvaða leiðir eru
færar til að koma í veg fyrir það. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÞJÓÐKIRKJAN Agnes M. Sigurðar-
dóttir, sóknarprestur í Bolungar-
vík, og Sigurður Árni Þórðarson,
prestur í Nes-
kirkju, fengu
flest atkvæði
í kjöri til bisk-
ups. Talið var
í gær.
Þar sem eng-
inn fékk meira
en helming
atkvæða þarf
að kjósa aftur
á milli Agnes-
ar og Sigurðar.
Það verður gert
í byrjun apríl.
Agnes varð
efst í kjör-
inu með 131
atkvæði, Sig-
urður næst-
ur með 120
atkvæði og
á eftir þeim
komu Sigríður
Guðmarsdóttir með 76 atkvæði,
Örn Bárður Jónsson með 49,
Kristján Valur Ingólfsson með
37, Gunnar Sigurjónsson með
33, Þórhallur Heimisson með 27
atkvæði og síðastur varð Þórir
Jökull Þorsteinsson með tvö
atkvæði. Kjörsókn var 95 pró-
sent. - sh
Talið í kjöri til biskups:
Kosið aftur á
milli Agnesar
og Sigurðar
AGNES M.
SIGURÐARDÓTTIR
SR. SIGURÐUR
ÁRNI ÞÓRÐARSON
DÓMSMÁL Dómari hafnaði í gær
kröfu Lárusar Welding og Guð-
mundar Hjaltasonar um að þeir
fengju afhenta geisladiska með
hljóð- og myndupptökum af
skýrslum sem þeir gáfu hjá sér-
stökum saksóknara við rannsókn
á tíu milljarða lánveitingu Glitn-
is til Milestone. Niðurstaðan
verður kærð til Hæstaréttar.
Lárus, sem var forstjóri Glitn-
is, og Guðmundur, sem var yfir
fyrirtækjasviði hans, eru ákærð-
ir fyrir umboðssvik við lánveit-
inguna.
Þeim hafði verið veittur frest-
ur þar til í gær til að skila grein-
argerðum í málinu en það gerðu
þeir þó ekki í gær. Búist er við
að boðað verði til annars þing-
halds fljótlega þar sem greinar-
gerðunum verður skilað. - sh
Lárus og Guðmundur tapa:
Upptökur af
yfirheyrslum
ekki afhentar
GENF, AP Mannréttindaráð Samein-
uðu þjóðanna hvatti stjórnvöld í
Sri Lanka í gær til að rannsaka að
fullu meinta stríðsglæpi á meðan
borgarastyrjöld stóð í landinu.
Stjórnarherinn og aðskilnaðar-
sinnar Tamíltígra bárust á bana-
spjótum í 26 ár fram að fulln-
aðarsigri stjórnvalda árið 2009.
Rannsaka á glæpi hjá báðum
hinna stríðandi fylkinga.
Stjórnvöld í Sri Lanka brugð-
ust ókvæða við tilmælunum, sem
þeir sögðu vera afskipti af innan-
ríkismálum þeirra. - þj
SÞ um stríðið í Sri Lanka:
Vilja sjá stríðs-
glæparannsókn
DÓMSMÁL Einn þriggja pólskra
manna sem réðst inn í verslun
úrsmiðsins Franks Michelsen
á Laugavegi í október og rændi
þaðan 49 úrum hefur játað verkn-
aðinn. Hann situr nú í varðhaldi
eftir að hafa verið handtekinn í
Sviss og framseldur til Íslands.
Einn hefur þegar verið dæmd-
ur í fimm ára fangelsi vegna
málsins. Sá kom aldrei inn í
verslunina heldur ók mönnunum
þremur og ætlaði að flytja úrin
úr landi falin í bíl. Hann sagðist
bara hafa hlýtt skipunum.
Sá framseldi hefur aðra sögu
að segja. Hann vísar ábyrgð á
skipulagningu ránsins að nær
öllu leyti á bílstjórann.
Þriðji ræninginn er í haldi í
Sviss vegna þarlendrar lögreglu-
rannsóknar og þess fjórða er leit-
að í Póllandi. - sh
Úraræningi í varðhaldi:
Vísar mestri sök
á bílstjórann
LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn frá
embætti Ríkislögreglustjóra fylgja
nú ráðherrunum Steingrími J. Sig-
fússyni og Ögmundi Jónassyni
hvert fótmál. Þá eru heimili þeirra
vöktuð allan sólarhringinn.
Ástæðan er sú að ráðherrunum
hafa borist hótanir, að því er fram
kom í fréttum RÚV í gær.
Öryggisgæsla mun einnig hafa
verið aukin í kringum Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra,
en henni fylgja þó ekki lögreglu-
menn.
Ekkert þeirra þriggja vildi tjá
sig um málið við fjölmiðla í gær
umfram það að
þau fylgdu fyr-
irmælum lög-
reglu í þessum
efnum.
„Mér þætti
betra að ræða
þetta mál ekki
við fjölmiðla,
fjölskyldu
minnar vegna
og margra ann-
arra,“ sagði Steingrímur á tröpp-
um stjórnarráðshússins.
„Lögreglan hefur passað vel upp
á mig, eins og hún vonandi gerir
upp á okkur öll,“ sagði Ögmund-
ur Jónasson, sem er ráðherra lög-
reglu- og dómsmála, og kvaðst
ekki vita hvort aðgerðirnar tengd-
ust skipulögðum glæpagengjum.
„Þú verður bara að spyrja lögregl-
una,“ sagði Ögmundur.
„Lögreglan hefur fullkomlega
með þetta að gera og við skiptum
okkur ekkert af þessu máli. Við
hlýðum því sem þeir segja í hví-
vetna.“ Ríkislögreglustjóri vildi
hins vegar engar upplýsingar veita
um málið og sagði það aldrei gert í
málum sem þessum.
- sh
Steingrími J. Sigfússyni og Ögmundi Jónassyni hafa borist hótanir:
Lífverðir gæta tveggja ráðherra
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
Það verður ekki
undan því vikist að
taka þetta allt til endurskoð-
unar.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
EFNAHAGS- OG VIÐSKIPTARÁÐHERRA